Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 40

Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 ✝ Vigdís Gunn-arsdóttir hús- freyja, frá Skalla- búðum í Eyrar- sveit, fæddist á Efri-Hlíð í Helga- fellssveit 21. nóvember 1929. Hún lést 12. apríl 2018 á dvalarheim- ilinu Fellaskjóli í Grundarfirði. Foreldrar Vig- dísar voru Gunnar Hannesson og Soffía Guðmundsdóttir frá Efri-Hlíð í Helgafellssveit. Systkini Vigdísar voru Njáll, Jó- Guðrún Hildur Hafsteinsdóttir. 3) Óskírður, f. 19.12. 1959, d. 5.4. 1960. 4) Ásthildur Elva, f. 13.5. 1965, maki Jóhann Jón Ísleifs- son. 5) Árni Bjarki, f. 9.9. 1968, maki Maria Louise Johanson. 6) Oddur Hlynur, f. 9.9. 1968, maki Guðrún Margrét Hjaltadóttir. Barnabörn eru 18, barnabarnabörn eru 16 og barnabarnabarnabarn er eitt. Vigdís starfaði lengst af við bústörf en starfaði einnig við ýmis önnur störf svo sem hjá fiskvinnslustöðvum Grundar- fjarðar og einnig í þvottahúsinu hjá Hraðfrystihúsi Grundar- fjarðar. Síðasti vinnustaður hennar var svo Leikskólinn Sól- völlum í Grundarfirði árin 1994- 1999. Vigdís verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 28. apríl 2018, klukkan 11. hanna Þórunn, Ragnhildur, Hann- es og Áskell. Hann- es og Ragnhildur eru tvö eftirlifandi systkina. Maki Vigdísar var Kristján Torfa- son, f. 2. júní 1927 á Garðsenda í Eyr- arsveit, d.18. júlí 2009. Vigdís og Krist- ján eignuðust sex börn: 1) Gunn- ar, f. 27.10. 1950, maki Jóhanna Hallgerður Halldórsdóttir. 2) Torfi Rúnar, f. 13.1. 1954, maki Elsku amma mín er búin að fá hvíldina eftir tæp 89 ár á þessari jörð. Margar eru minningarnar og allar eru þær góðar en þær sem standa upp úr eru öll sumrin sem ég dvaldi í sveitinni sem barn. Þar hjálpaði ég ömmu meðal annars í garðinum við að vökva öll fallegu blómin sem hún var með og taka upp kartöflur og rabarbara. Við fórum í fjöruferðir og tíndum fal- lega steina, gáfum heimalningun- um pela, sóttum egg til hænsn- anna og kíktum á hestana. Við amma brölluðum nefnilega margt saman og hún hafði alltaf þolin- mæði til að gera eitthvað með mér. Við fórum stundum í leik sem ég mun alltaf muna eftir, en þá lék ég póstmanninn sem var að koma með póstinn og amma lék með og bauð póstmanninum inn og gaf honum kaffi og sykurmola og við spjölluðum um allt á milli himins og jarðar á meðan. Á laug- ardagsmorgnum gerðum við sam- an leikfimiæfingar sem við hlust- uðum á í útvarpinu og hreinsuðum svo æðardún eða gerðum kleinur eða hrísmjölsgraut, amma gerði nefnilega besta hrísmjölsgraut í heimi. Það er svo margt sem ég get talið upp í viðbót en ég læt þetta duga að sinni. Elsku amma, ég mun sakna þín alla daga en ég veit að þú ert kom- in á betri stað og ætla ég því að gleðjast yfir tímanum sem við fengum saman í staðinn fyrir að syrgja það að þú sért ekki lengur hér, því það er akkúrat það sem þú vildir. Ég elska þig, þín Heiðdís Björk Jónsdóttir. Elsku amma. Upp kom þá sá dagur að þú kvaddir þessa jarðvist. Það hafði verið okkur systrum erfitt að horfa upp á þig í veikindum þínum síðastliðin ár. Þú sem hafðir alltaf verið svo sjálfstæð og áttir erfitt með að þiggja aðstoð varst allt í einu orðin upp á aðra komin með allt. Það vissum við að væri þér erfitt og þess vegna teljum við að þú hafir alveg verið tilbúin að kveðja. Við trúum því að þín hafi beðið betri staður, þar sem þú nýt- ur þín umvafin blómum, dýrum og gleði. Þegar við horfum til baka yfir þann tíma sem við áttum með þér er margt sem kemur upp í hug- ann. Við systur vörðum allar mikl- um tíma hjá þér og afa á Skalla- búðum. Vegna aldursmunar okkar vorum við aldrei þar á sama tíma, engu að síður eigum við allar sömu minningar þaðan. Það sem er okkur efst í huga er leikgleði þín, hversu auðvelt var að fá þig með í alls kyns leiki og hversu frjálsar við fengum að vera í leikj- um okkar, í klettunum í fjörunni, uppi á húsþökum og í hlöðunni. Við fengum skýr fyrirmæli um að fara varlega, en að öðru leyti voru okkur engar hömlur settar. Við bjuggum til hús úr sófapúðunum í stofunni, fundum skeljar og kepptum í því hvaða skel væri sterkust, leyfðum ungunum sem við fundum í fjörunni að svamla í baðkarinu, hoppuðum í heyinu í hlöðunni og margt fleira. Best var samt að fá að fara á hestbak og það máttum við oft gera, við þurft- um bara að ná hestunum sjálfar þar sem þeir voru á beit, það var nú lítið mál. Í sveitinni lærðum við að vinna, því allar höfðum við skyldum að gegna, það þurfti að raða stein- unum í kringum blómabeðin, reyta arfa, slíta gras og svo þurfti að gefa kindunum og hænunum, „og munið að passa ykkur á han- anum!“ Í minningunni var alltaf mannýgur hani í hænsnakofanum svo amma kom nánast alltaf með til að gefa hænunum, það gerði ekki svo mikið til þó að hann réðist á hana, að henni fannst, sem gerð- ist að við höldum oftar en einu sinni. Svo fengum við að tína jarð- arber og taka upp rabarbara, hugsa um heimalningana og taka þátt í sauðburði. Í eldhúsinu á Skallabúðum átt- um við margar góðar stundir, þar voru heimsmálin rædd, eða mest samt fréttir úr sveitinni og veðrið, það var alltaf kvöldkaffi fyrir svefninn, haframjöl með nesquick og sykri á morgnana, franskbrauð með rabarbarasultu og eplasafi með, að ógleymdu sódastream- tækinu með öllum bragðefnunum, það var sko veisla! Amma hafði mjög gaman af skemmtunum og gleðskap og á þeim stundum var mikið hlegið og mikið gaman. Hún hafði líka mjög gaman af spilamennsku, en á sama tíma mikið keppnisskap sem einhverjar okkar, nefnum engin nöfn, hafa erft. Það gilda ákveðnar reglur í spilamennskunni, við skulum bara hafa það á hreinu. Það er margs að minnast og margs að sakna, hlýja þín, hlátur, styrkur þinn og þolinmæði. Þú hafðir marga frábæra eiginleika og varst okkur fyrirmynd á mörg- um sviðum. Við þökkum þér fyrir allt það sem þú hefur kennt okkur, þær dýrmætu minningar sem þú gafst okkur. Við trúum því að leið- ir okkar muni liggja saman að nýju og þá verður glatt á hjalla. Þínar sonardætur, Dagfríður Ósk, Vigdís og Jóhanna Þórunn. Í dag verður tengdamóðir mín Vigdís Gunnarsdóttir frá Skalla- búðum jarðsungin. Ég kom fyrst að Skallabúðum átján ára gömul. Þá var þar hefð- bundinn búskapur á lítilli búðjörð í Eyrarsveit. Íbúðarhúsið var ekki stórt á þeim tíma en þar bjó þó sjö manna fjölskylda og alltaf var pláss fyrir næturgesti. Undir Eyr- arfjallinu gat verið mikið veðra- víti, sem var nokkuð sem ég hafði aldrei upplifað áður. Þrátt fyrir það tókst Vigdísi að rækta blóma- garð á sjávarbakkanum, sem var einstaklega fallegur. Hún notaði steina úr fjörunni til skrauts og til að afmarka beðin. Erfiðlega gekk að rækta skjólgarð við þessi vind- asömu og sjávarsöltu skilyrði, en nokkrum árangri náði hún þó. Vigdís kunni betur við að vera úti- við en innandyra. Hún var mikill dýravinur og þekkti flestar jurtir í íslenskri náttúru. Það var nokkuð annar bragur á heimilishaldinu á Skallabúðum en ég átti að venjast og það tók tíma að venjast því. Þar kom þó að ég lærði að meta ný viðhorf og for- gangsröðun hluta. Mér eru minn- isstæð fyrstu jólin mín á Skalla- búðum, nítján ára með ungt barn. Það var margt eftir að gera þegar við komum nokkrum dögum fyrir jól og ég var við það að fá tauga- áfall þegar hún var enn að skúra eldhúsgólfið á hnjánum þegar jól- in voru hringd inn klukkan sex. En loksins þegar fjölskyldan var tilbúin að halda jól voru jólin kom- in og ekkert annað komst að. Þar var meiri jólaandi og gleði öll jólin en ég hafði áður kynnst. Vigdís kenndi mér að meta kirkjur á ferðalögum okkar um landið, þekkja jurtir, njóta lífsins á annan hátt en ég þekkti. Hún var jákvæð og alltaf til í allt, ekki síst að skemmta sér, ferðast og spila. Ekki er hægt að minnast hennar nema geta þess hversu góð móðir og amma hún var. Börnin voru alltaf í fyrsta sæti hjá henni og allt annað sat á hakanum, þegar þau þörfnuðust athygli hennar. Ég vil þakka Vigdísi fyrir sam- fylgdina, alla hjálpina, ekki síst austur í Lækjarbotnum, og allt það sem hún hefur kennt mér. Það er dýrmætt að hafa kynnst svo góðri fyrirmynd og sterkri konu sem Vigdís var. Minningin um hana mun ætíð veita mér leiðsögn og innblástur. Kveðja, Hildur. Undir hinu litfagra Drápuhlíð- arfjalli í Helgafellssveit stóð eitt sinn lítið kot, Efri-Hlíð. Þar ólst hún Dísa föðursystir mín upp. Þriðja elst, sex systkina. Hún var fimm ára þegar faðirinn dó og eft- ir stóð móðir hennar með barna- hópinn, það elsta tíu ára og yngst- ir voru ársgamlir tvíburar. Á þessum tíma var algengt að börn- um væri dreift á bæina í fóstur þegar foreldri féll frá. En ömmu tókst að halda fjölskyldunni sam- an, með stuðningi foreldra sinna og nágranna. Börnin fóru snemma að taka til hendinni í búskapnum og ung fór Dísa að bera mikla ábyrgð, þegar tvö eldri systkinin voru farin að heiman. Pabbi minnist hennar sem óhemjuduglegrar, strax á unga aldri og alla tíð. Dísa var ættmóðir. Ekki aðeins í þeim skilningi að hún skilur eftir sig stóran hóp afkomenda sem bera þeim Stjána fagurt vitni. Heldur líka vegna þess að hún sá til þess að ættingjarnir hittust reglulega. Meðan þau bjuggu á Skallabúðum buðu þau stórfjöl- skyldunni heim á þrettándanum. Þar komu saman þrjár kynslóðir og var setið lengi fram eftir við að spila Pítró. Alltaf var boðið upp á hangikjöt og gott með kaffinu. Þegar illa viðraði kom fyrir að allir þurftu að gista og þá var búið um fólk í rúmum og á gólfum í litla húsinu. Þar var alltaf nóg pláss, því hjartarýmið var stórt og heim- sóknin varð bara enn minnisstæð- ari fyrir vikið. Dísa var traust. Þess vegna var svo undurgott að eiga hana að þegar þau Stjáni heimsóttu mig á Egilsstaði. Það hittist þannig á að ég hafði deginum áður dottið illa af hestbaki og var talsvert fram- lág, með skurði og mar í andliti. Þá var ómetanlegt að fá að njóta umhyggju Dísu. Dísa var húmoristi. „Hvernig hefurðu það?“ spurði ég eitt sinn þegar heilsan hennar var farin að bila. „O, ég skrölti þetta,“ sagði hún titrandi og tinandi af einkenn- um sem líktust Parkinson, en voru víst einhver annar taugasjúkdóm- ur. Dísa var æðrulaus. Þegar ég spurði hana hvað hún teldi mik- ilvægast í lífinu var svarið stutt og laggott; „þolinmæði“. Dísa var glaðlynd. Hún tók hvorki sjálfa sig né lífið allt of há- tíðlega. Þess vegna voru það dásamlegar stundir að heimsækja hana á gamlársdag síðustu árin og þá bauð hún upp á sérrí og við skáluðum fyrir lífinu. Dísa var skáldmælt. Í nokkur ár skiptust þau pabbi á ljóðabréf- um. Honum finnst miklu meira til vísnanna hennar koma en sinna. Í einu bréfanna var þessi vísa: Þó eigi til stórskálda enn sé ég talin er efalaust neistinn í brjósti mér falinn og þó hann sé bæði kraminn og kvalinn hann kálast þó ei, fyrr en hníg ég í valinn. Hún er nú hnigin í valinn og ekki verða ljóðin hennar fleiri. En við sem fengum að njóta návistar hennar og gjafa kveðjum full þakklætis. Ég flyt fjölskyldunni samúðar- kveðjur frá okkur Inga Hans og pabba. Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Hún Vigdís Gunnarsdóttir á Skallabúðum er dáin. Hún var fædd 21. nóvember 1929 í Efri- Hlíð í Helgafellsveit, mamma æskuvinkonu minnar og frænku. Hún var gift Kristjáni föðurbróð- ur mínum. Ég ólst upp á Naust- um, næsta bæ. Það er stutt á milli og var ég oft á Skallabúðum. Það var alltaf notalegt að hitta Dísu, eins og við kölluðum hana þegar ég var lítil. Hún var róleg og alltaf að stússa eitthvað. Garðurinn hjá henni var fallegur og það var hennar líf og yndi að hlúa að hon- um. Þegar ég varð fullorðin og var í garðvinnu varð mér oft hugsað til hennar og hversu vel henni gekk að hafa garðinn sinn fallegan. Ég var svo heppin að þegar ég varð leikskólastjóri í Grundarfirði kom hún til mín og sótti um vinnu. Það hvarflaði aldrei annað að mér en að ráða hana því ég vissi að hún yrði tryggur starfsmaður. Sem hún var, og þá var hún 65 ára göm- ul. Börnin féllu fyrir henni og hún var alltaf kölluð amma hjá okkur eða Vigdís amma. Þegar ég var að tala við starfsfólkið mitt í leikskól- anum um hversu mikilvægt það væri að vera með börnunum í leik og setjast hjá þeim á gólfið gat ég alltaf vitnað í það að ef Vigdís gæti það ættu ungir starfmenn líka að geta það. Að hafa hana í vinnu kenndi mér margt, sérstaklega virðingu fyrir eldra og reyndara starfsfólki. Þó að ég væri með mína menntun var svo margt sem hún var fróðari um. Fyrir fimm árum, í fermingu barnabarns Vigdísar nöfnu henn- ar, var hún samferða okkur frá Hvolsvelli til Ásthildar dóttur sinnar í Mosfellsbæ. Þá rifjuðum við upp tímann sem við unnum saman. Það var mjög gaman hvað hún mundi eftir Vigdís Gunnarsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR frá Úlfsstöðum. Sigríður Magnea Ólafsdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KARL JÓNATANSSON blikksmíðameistari, Keldulandi 13, Reykjavík, lést á Landspítala við Hringbraut föstu- daginn 20. apríl eftir skammvinn veikindi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 2. maí klukkan 15. Guðmundur Alfreð Guðmundsson Rósa Guðmundsdóttir Jón Fannar Karlsson Taylor V. Auður Karlsdóttir barnabörn og langafabörnin Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLÍNU JÓDÍSAR HANNESDÓTTUR, Hraunbæ 3, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4A á Landspítalanum í Fossvogi fyrir góða umönnun. Aðalbjörg Úlfarsdóttir Arnór Hannesson Jóhanna Úlfarsdóttir Gísli Hafþór Jónsson Jón Smári Úlfarsson Hjördís Hendriksdóttir Þórdís Úlfarsdóttir Guðni Ingvar Guðnason Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elsku mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, ÖNNU SIGURLÍNU STEINGRÍMSDÓTTUR, Álftamýri 52, 108 Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landakoti deild L2 fyrir góða umönnun og velvilja í hennar garð. Guðrún S. Guðmundsdóttir Valdimar Gíslason Magnús Örn Guðmundsson Sigrún Hjörleifsdóttir Grettir Ingi Guðmundsson Hrönn Harðardóttir Óðinn Ari Guðmundsson Iðunn Lárusdóttir Halldór Þór Guðmundsson Sigrún Þóranna Friðgeirsdóttir Rebekka Rós Guðmundsd. Kristján Róbert Walsh barnabörn og langömmubörn Ástkær bróðir okkar, ÞRÁINN HLEINAR KRISTJÁNSSON frá Neskoti, Fljótum, lést á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð, Reykhólum, þriðjudaginn 17. apríl. Útförin fer fram frá Barðskirkju, Fljótum, Skagafirði, miðvikudaginn 2. maí klukkan 14. Stefanía Kristjánsdóttir Björk Kristjánsdóttir Sigurlaug Jakobsdóttir Lára Kristjánsdóttir Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, VALDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR, Lækjargötu 32, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum þriðjudaginn 24. apríl. Útför fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 2. maí klukkan 13. Heba Magnúsdóttir Linda Björk Magnúsdóttir Guðmundur Rúnar Ólafsson Magnús, Heiða Dís, Elísabet, Björgvin, Gylfi Freyr, Hjalti Þór, Birgir Snær, Andri Fannar og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.