Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 41
öllum sem voru í leikskólanum þegar hún var þar í vinnu. Um- hyggjan og hlýjan einkenndi allt hennar tal um börnin sín, sem öll kölluðu hana ömmu. Það voru for- réttindi að fá að vinna með henni, konunni sem tók þátt í að móta uppvaxtarár mín. Ég kveð hana með hlýju í huga og votta öllum af- komendum hennar innilega sam- úð. Hvíl í friði. Sigríður Herdís Pálsdóttir. Vetri hallar, vorsins blær vermir hjalla og rinda. Geislar falla, grundin hlær, glóir á fjalla tinda. (Magnús Finnsson) Já, nú glóir sólin á „Strákana“ hennar Dísu. Þeir standa keikir í fjallinu fyrir ofan bæinn hennar Skallabúðir. Og þegar vorar hugs- ar maður um sól og Dísu og sé ég hana þá fyrir mér í garðinum sín- um rótast í moldinni, hreinsa beð- in og hlúa að blómunum. Líta svo á kindurnar sínar, það styttist jú í sauðburðinn, sinna öllum vorverk- unum. En þannig var hún sístarf- andi og lék allt í höndum hennar. Ég var svo heppin að fá að þekkja hana í rúm 40 ár og þar kynntist ég traustri og góðri konu. Urðum við með árunum góðar vinkonur og var ætíð gott að leita til hennar með stórt og smátt og alltaf gott að koma að Skallabúðum. Í gegn- um árin höfum við líka brasað ým- islegt, lent í spaugilegum ævintýr- um, en þau gerðust aðallega á leið til vinnu í Hraðfrystihúsinu þar sem við unnum saman um skeið. Eitt sinn vorum við að fara til vinnu á laugardagsmorgni og lögðum af stað á fjórhjóli, senni- lega engir bílar á lausu þann dag- inn, en við lögðum af stað með miklum rykkjum og skrykkjum, stundum úti í kanti en oftast á veginum. Svo kom bíll úr Grundarfirði á móti okkur og við náðum til vinnu næstum því á rétt- um tíma. En eitthvað hefur verk- stjóranum okkar þótt þetta fynd- ið, „sveitakellingar“ á fjórhjóli, því hann var glottandi allan daginn yfir þessu. Svo vorum við að festa okkur í snjó og verða veðurtepptar í roki. En allt blessaðist þetta nú. Við Dísa störfuðum saman í Kvenfélaginu frá 1986 og vorum saman í stjórn í þrjú ár frá 1990. Stjórnarfundir voru oft haldnir á Skallabúðum, „það var eitthvað svo notalegt að koma í sveitina“ sögðu hinar stjórnarkonurnar. Þetta var skemmtilegur og lær- dómsríkur tími og unnum við vel saman. Einu sinni sem oftar vorum við að steikja kleinur fyrir sjómanna- dagskaffið og gerðum við það hjá mér; „betri eldavél“ sagði hún. Verkaskiptingin var skýr. Hún hnoðaði deigið, flatti út og skar, ég sneri og steikti. Þegar við svo smökkuðum dásemdina voru þær allt of saltar því í öllu masinu fór of mikið salt í uppskriftina, en æ, þetta gerir ekkert til, „hann Stjáni borðar þær bara“, og gerðum við svo bara aðrar betri. Við gerðum þetta í nokkur ár, að hittast og steikja kleinur, og voru það skemmtilegar stundir. Við rædd- um líka um lífið og tilveruna og margan fróðleik fékk ég hjá henni því hún vissi svo margt. Dísa kvartaði ekki oft en hafði nú samt á orði eitt sinn að hún þyrfti senni- lega að fá heimilishjálp við þrifin. Sagði ég þá við hana að ég ég skyldi bara koma til hennar og hjálpa henni. Það varð úr og var ég hjá þeim vikulega í um átta ár, þar til þau fóru á Fellaskjól. Var það mjög góður tími og þegar þrif- um lauk á daginn horfðum við saman á Leiðarljós. Mátti alls ekki missa af því. En nú er hún vinkona mín farin í Sumarlandið að sinna blómum og ragast í fénu sínu. Það styttist í sauðburð. Ég vil þakka henni fyrir hlýja og trausta vináttu í gegnum árin Ættingjum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Sigríður Diljá, Nýjubúð. MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 ✝ Ingólfur RúnarSigurz fæddist í Reykjavík 3. júlí 1977. Hann lést á heimili sínu 26. mars 2018. Foreldrar hans eru Ingunn Þóra Jóhannsdóttir, f. 10. apríl 1951, og Skúli E. Sigurz, f. 18. desember 1951. Systkini Ingólfs eru: Berglind, f. 6. október 1970, eiginmaður hennar er Sigurður Valtýsson, f. 15. ágúst 1967, Dagmar, f. 27. júlí 1971, eigin- maður hennar er Hjalti Ein- arsson, f. 8. janúar 1971, Mar- grét, f. 10. apríl 1973, eiginmaður hennar er Kristján Gunnar Ríkharðsson, f. 25. nóvember 1971. Ingólfur eign- aðist tvö börn með Önnu Maríu Ingv- eldi Larsen, f. 22. maí 1982. Börnin eru: Kristín Rán, f. 5. september 2000, og Alexander Breki, f. 25. ágúst 2004. Ingólfur ólst upp í Breiðholt- inu og sótti þar skóla og víðar. Hann vann ýmis verkamanna- störf. Útför Ingólfs fór fram frá Bú- staðakirkju 4. apríl 2018. Elsku Ingó minn. Það erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Þó svo að veikindi þín hafi verið mikil síðasta ár þá var alltaf trú um batnandi kraftaverk. Sam- bandið milli okkar var sumum al- veg óskiljanlegt. Það var stormasamt mikið eins og hún vinkona mín orðar það. Við eignuðumst tvö yndisleg börn saman sem þú varst ávallt svo montinn af. Þó svo að lífið hafi oft á tíðum verið erfitt reyndum við alltaf að vera vinir. Við vorum dugleg að skrifa hvort öðru og elskuðum að fá fal- leg skilaboð og ljóð. Það var pínu okkar og stutt er síðan þú sendir mér svo fallegt ljóð og þakkaðir mér fyrir að varðveita elsku börn- in okkar svona vel, þegar þú gast það ekki vegna veikinda þinna. Ég mun gera það enn og segja þeim sögur af þér og við munum halda minningu þinni á lofti. Hvíldu í friði, elsku vinur. Þín Anna María. Elsku pabbi minn er dáinn. Það stingur mig í hjartað, það er svo vont að hugsa til þess að sjá þig ekki aftur, heyra hláturinn þinn og hlæja með þér. Við vorum svo góðir vinir og þú treystir mér fyrir öllu og sagðir mér alltaf þín leynd- armál. Leyndarmálin sem þú treystir ekki öðrum fyrir. Mér þótti vænt um það. Þegar ég var lítil varstu alltaf til í að leika við mig þótt það væri barbíleikur. Ég byrjaði í fótbolta fjögurra ára gömul og var eina stelpan í hópnum. Þú dressaðir mig upp. Keyptir á mig Manchester- galla, mættir með mér á æfingar með risa myndavél og tókst af mér myndbönd. Þú spilaðir mikið með mér fót- bolta og ég man hvað mér fannst þú góður. Ég hélt í alvöru að þú hefðir verið atvinnumaður í boltanum. Þetta gaf mér mikið sjálfstraust og strákarnir höfðu ekkert í mig. Þú hafðir rétt fyrir þér, því ári seinna vildi þjálfarinn færa mig í hóp með eldri krökkum. Ég var nú ekkert spennt fyrir því. Mér leið vel með þessum hóp. Þú varst allt- af stoltur af mér sama hvað, hvort sem ég fékk 3, 8 eða 10 í einkunn. Þú kenndir mér að prumpa með höndunum, haha, við vorum með sama húmor. Manstu þegar við lágum í 20 mínútna í kasti yfir því hvað þú varst búinn að fitna mikið. Ég held þú sért sá eini sem hlær yfir því að vera orðinn feitur. Þú varst alltaf hlæjandi og ég mun aldrei gleyma hlátrinum þín- um. Alltaf þegar við hittumst þá sagðirðu mér hversu fullkomin ég væri, fallegust í heimi. Þú varst besti vinur minn. Þegar þú varst nývaknaður á gjörgæslunni, manstu – ég og mamma sátum hjá þér og þú áttir í miklum erfiðleikum með að tala en þú horfðir á mig og hélst í hönd mína og sagðir að ég ætti að taka þátt í fegurðarsamkeppni. Svo hlógum við öll. Elsku pabbi Þrjóska og stolt var ætíð þín brynja Uns tilvera þín á jörðu byrjaði að hrynja Ófétin hófu líkamann að kvelja þar til ekkert var eftir nema að kveðja Ó, elsku pabbi hve sárt það er að horfa á eftir þér Ég er svo stolt, þú stóðst sem hetja. Í þessari lífsbaráttu þurfti varla að hvetja. Sama hversu lífið lék okkur grátt, í öllum sársaukanum gastu ávallt hlegið dátt. Nú ertu farinn úr þessum heimi eða ert hér einhverstaðar á sveimi. Kannski lítill þröstur á grein sem fylgist með í leyni. En hvar sem þú ert, ég þér aldrei gleymi. Ó hversu oft ég mun hugsa til þín. Ég verð alltaf litla pabbastelpan þín. (ÓMM) Einu sinni var ég engillinn þinn, núna ert þú minn. Ég elska þig alltaf Þín Kristín Rán. Elsku vinur, elsku fjölskyldu- vinur minn. Að kveðja þig var virkilega erfitt. Börnin þín eru pínu börnin mín líka. Við Anna María höfum alltaf verið svo nán- ar og þar af leiðandi kynntist ég þér vel. Ég var ekki nema 15 ára þegar ég eyddi jólum með ykkur fjölskyldunni. Ég og þáverandi kærasti vor- um alltaf velkomin til ykkar og oft vældi ég í ykkur um að fá að passa hana Kristínu og dröslaðist með hana um allt eins og hún væri mín. Við vorum alltaf vinir og þú varst alltaf einn af fjölskyldunni. Ég kom oft með Önnu Maríu upp á spítala og vorum við duglegar að færa þér sjeik og öll þau sætindi sem þú vildir. Ég sá þig batna og hafði fulla trú á að þú kæmist út úr veikindunum. En því miður kom símtalið um að fíknin sigraði að lokum. Er ég þakklát fyrir að hafa fengið að hitta þig ekki fyrir svo löngu og fengið faðmlagið frá þér. Hvíldu í friði, elsku vinur. Sjáumst þegar minn tími kem- ur. Guðrún Alda. Stundum er svo erfitt að skilja lífið. Það er svo sárt að sjá á eftir þér, elsku Ingó, ég hélt alltaf í von, ég sleppti henni aldrei enda viss- irðu það að ég hafði altlaf trú á þér og þess vegna áttum við alltaf ein- stakt vinasamband. Fyrst þegar ég hitti þig var ég 14 ára, við Anna María kynntumst þér á sama tíma, við urðum vin- konur þínar og þú vinur okkar. Það sást strax að þú varst sannur út í gegn enda sóttu margir í að vera í kringum þig. Þú varst alltaf brosandi og glaður, í kringum þig var allt eitt- hvað svo skemmtilegt og ef eitt- hvað var ekki skemmtilegt þá gerðir þú það skemmtilegt. Nokkrum árum seinna fóruð þið Anna María að vera saman, til seinasta dags elskaðir þú Önnu Maríu, hún var alltaf ástin í þínu lífi og þér leið aldrei betur en þeg- ar þú varst í kringum hana og börnin þín. Anna María varð ung ófrísk að Kristínu Rán, þú tókst föðurhlut- verkið mjög alvarlega og ég man svo vel hvað þú varst duglegur að gefa Kristínu tíma. Fjórum árum seinna fæddist Alexander og það var eins; þú gerðir allt til að vera sem mest í kringum börnin þín og varst eins duglegur að gefa hon- um tíma og Kristínu. Þú varst svo stoltur af þeim, þú elskaðir þau svo mikið og það var svo fallegt að sjá það. Þú þráðir ekkert meira en að eiga fjöl- skyldu, lifa lífi með Önnu Maríu og börnunum þínum og þannig þekki ég þig og mun alltaf þekkja þig. Þú hafðir svo góða persónu að geyma, varst duglegur að byggja fólk upp, hrósa og gleðja aðra. Ég mun alltaf muna þig sem Ingó og ég mun aldrei hugsa til þín öðru- vísi en með hlýju, kærleika og fal- legum hug. Elsku Ingó, sofðu rótt. Anna María, Kristín, Alexand- er og Jóhann, ég votta ykkur sam- úð mína og vona að góður Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Alma Rut. Ingólfur Rúnar Sigurz HINSTA KVEÐJA Elsku pabbi minn, hvíldu í friði með þínum ástkæru vinum. Elska þig og sakna þín alltaf. Þinn Alexander Breki. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, elsku og vináttu við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐJÓNS ARNARS KRISTJÁNSSONAR, skipstjóra og fv. alþingismanns frá Ísafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar og líknardeildar Landspítalans. Þökkum öllum aðstoðina við útförina. Minning Adda Kitta Gau lifir. Marianna Barbara Kristjánsson Guðrún Ásta Guðjónsdóttir Ingibjörg Guðrún Guðjónsdóttir Kristján Andri Guðjónsson Kolbeinn Már Guðjónsson Arnar Bergur Guðjónsson Margrét María Guðjónsdóttir Jerzy Brjánn Guðjónsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær bróðir okkar og frændi, KRISTINN HARÐARSON, lést á heimili sínu laugardaginn 14. apríl. Útförin hefur farið fram. Sigurður Harðarson Ingibjörg Sigurðardóttir Auður Harðardóttir Heiðbjört Harðardóttir Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför STEINUNNAR SIGURBJARGAR ÚLFARSDÓTTUR og heiðruðu minningu hennar. Börn, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, AÐALBJÖRN HALLDÓRSSON, Bugðulæk 9, lést mánudaginn 16. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Maríanna Bjarnadóttir Vilhjálmur Kjartansson Elín Dóra Þórarinsdóttir og barnabörn Innilegar þakkir fyrir hlýjar og fallegar kveðjur vegna fráfalls INGÓLFS RÚNARS SIGURZ. Kristín Rán Sigurz Alexander Breki Sigurz Ingunn Þ. Jóhannsdóttir, Skúli E. Sigurz og aðrir aðstandendur Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓN RAFN JÓHANNSSON landmælingamaður, kortagerðarmaður og þýðandi, Strikinu 3, Garðabæ, sem lést 13. apríl, var jarðsunginn frá Landakotskirkju miðvikudaginn 18. apríl. Kolbrún Jónsdóttir Steingrímur Sigfússon Bjarni Jónsson Arna Víf Hlynsdóttir Eva Dögg Steingrímsdóttir Brynjar Daði Kolbrúnarson Kristín Freyja Óskarsdóttir Sindri Leó Árnason Sarah Komarek Anna María Steingrímsdóttir Steingrímur Steingrímsson Ester Anna Jóhannsdóttir Örn Byström Jóhannsson Hjördís Sverrisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.