Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
✝ Halla Jóhanns-dóttir fæddist
20. nóvember 1923 í
Reykjavík. Hún lést
8. apríl 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhann Ár-
mann Jónasson, úr-
smiður í Reykjavík,
f. 2. janúar 1877, og
kona hans Ólöf
Jónsdóttir hús-
móðir, fædd 1. októ-
ber 1883. Föðurforeldrar: Jónas
Kjartansson, bóndi og sjómaður í
Drangshlíð undir Eyjafjöllum, og
Þuríður Björnsdóttir, húsfreyja.
Móðurforeldrar: Jón Oddsson,
bóndi á Álftanesi á Mýrum, og
Marta María Níelsdóttir hús-
freyja. Halla var yngst sjö syst-
kina sem öll eru nú látin.
Halla nam við Kvennaskólann
í Reykjavík og vann síðan við
skrifstofustörf hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur í nokkur ár.
Halla giftist 9. júlí 1949 Karli
Bergmanni Guðmundssyni
geirsdóttir, f. 16. október 1997.
Dóttir Rúnars er Vera Sif, f. 5.
júní 1993, í sambúð með Ágústi
Ásbjörnssyni, þeirra dóttir er
Indía Nótt, f. 12. janúar 2016,
sonur Rúnars er Frosti, f. 11. des-
ember 2005. 1.3) Karl Bergmann
myndlistarmaður, f. 6. júní 1975,
kvæntur Hye Joung Park mynd-
listarmanni. Þeirra sonur er
Breki, f. 28. júní 2008. 2) Þor-
móður myndlistarmaður, f. 29.
desember 1958, d. 2. mars 2000.
3) Auður, leikskólakennari í
Vestmannaeyjum, f. 4. janúar
1963, gift Sigurði Þór Hafsteins-
syni, stýrimanni í Vest-
mannaeyjum. Þeirra dætur eru
3.1) Ólöf Halla, f. 2. apríl 1995, í
sambúð með Guðmundi Jóni
Magnússyni, þeirra dóttir er Haf-
dís Helga, f. 22. júní 2015, og 3.2)
Jóhanna Helga, f. 17. febrúar
1998, í sambúð með Darra Gunn-
arssyni. Dætur Sigurðar eru:
Ásta Rut, f. 1. október 1985, og
Vala Dögg, f. 10. febrúar 1988. 4)
Jóhann Ármann, lögfræðingur
og framkv.stj. á Spáni, f. 18. júní
1964, kvæntur Mariu Jose Juan
Valero lækni. Þeirra börn eru:
4.1) Carlos, f. 9. júní 2004, og 4.2)
Yasmin, f. 2. febrúar 2006.
Útför Höllu fór fram í kyrrþey
20. apríl 2018.
bankamanni, f. 12.
nóvember 1919, d.
4. júlí 2008. For-
eldrar Karls: Guð-
mundur Björnsson,
vélsmiður á Siglu-
firði, f. 24. maí 1876,
og Anna Pálína
Loftsdóttir, hús-
freyja á Vegamót-
um, Seltjarnarnesi,
f. 7. maí 1900. Börn
Höllu og Karls: 1)
Anna, bankamaður, f. 20. júlí
1950, gift Ómari Hannessyni raf-
verktaka. Börn þeirra eru 1.1)
Hildur, forstöðumaður hjá Ice-
landair hótelum, f. 10. júlí 1968,
gift Pétri Péturssyni, framkv.stj.
hjá Valitor. Þeirra synir eru: Ari
Karl, f. 29. ágúst 2001, og Davíð,
f. 27. júlí 2007. Sonur Péturs er
Arnar Már, f. 21. júní.1993. 1.2)
Rúnar, markaðsráðgjafi, f. 30.
júlí 1970, í sambúð með Ástu Sig-
ríði Kristjánsdóttur ljósmyndara,
þeirra sonur er Atlas, f. 21. mars
2011. Dóttir Ástu er Jasmin Sig-
Það var fyrir um það bil 50 ár-
um sem ég kom á Sæbrautina í
foreldrahús Önnu í fyrsta sinn.
Mér var strax mjög vel tekið af
þeim hjónum Höllu og Karli og
fljótlega varð ég eins og einn af
fjölskyldunni. Bygging innviða
hússins stóð yfir og fór ég fljót-
lega að vinna með Karli, því eins
og þá tíðkaðist unnu menn sjálfir
að sínum húsbyggingum. Halla
stjórnaði öllu húshaldi af mynd-
arskap og sá til þess að ég fengi
nóg að borða, því heldur fannst
henni tilvonandi tengdasonur
holdlítill. Umhyggja þeirra fyrir
velferð annarra var aðdáunarverð
og nutum við þess í ríkum mæli
þegar við Anna byrjuðum búskap
á neðri hæð hússins. Eftir að börn
okkar fæddust áttu þau alltaf at-
hvarf hjá ömmu og afa. Óhætt er
að segja að í húsi tengdaforeldra
minna hafi ég lært að meta klass-
íska tónlist, sem þau spiluðu
gjarnan af hljómplötum eða disk-
um. Halla sat þá gjarnan í stof-
unni og prjónaði litlar barnapeys-
ur, því alltaf voru að fæðast börn í
stórfjölskyldunni og fengu þau
gjarnan slíka gjöf frá henni. Hún
hafði einlægan áhuga á því hvern-
ig fjölskyldumeðlimum vegnaði
og ef einhver fór til útlanda fletti
hún upp í stóra Atlasinum og
fylgdist með ferðalaginu. Við átt-
um því láni að fagna að ferðast
með þeim bæði innanlands og ut-
an. Karl fór þá oft með kvæði, því
hann kunni þau mörg utan að og
Halla benti á fjöll og dali og sagði
okkur heiti þeirra.
Húsið á Sæbrautinni var sann-
kallað fjölskylduhús, þar voru
börn skírð, hjónavígslur fóru fram
í fjöruborðinu og fermingarveisl-
ur voru haldnar. Þar var Halla í
essinu sínu og stjórnaði af mynd-
arskap. Þakklæti fyrir fólkið sitt
var henni ofarlega í huga og lét
hún það oft í ljósi. Ég tek tengda-
móður mína mér til fyrirmyndar
og þakka henni samfylgdina,
minning um góða konu lifir.
Ómar Hannesson.
„Halla fékk þig eiginlega í tví-
tugsafmælisgjöf,“ sagði mamma
mér þegar ég var lítil stúlka og
mikið var ég stolt af að heyra
þetta. Mér fannst ég eiginlega
mun merkilegri fyrir að vera
svona tengd Höllu föðursystur.
Ég ólst upp á efri hæðinni á
Skólavörðustíg 17b, í skjóli ömmu
og afa sem bjuggu á neðri hæð-
inni. Þrjár dætur þeirra, föður-
systur mínar, voru enn í föður-
garði og Halla yngst þeirra.
Fyrrnefndan afmælisdag Höllu
tók mamma léttasótt og búist var
við barninu, sem var hennar
sjötta barn, um kvöldið. Það lét
hins vegar á sér standa og kom
ekki í heiminn fyrr en næsta
morgun. Alla tíð síðan hefur því
verið tuttugu ára og eins dags ald-
ursmunur á okkur Höllu frænku
samkvæmt skráðu tímatali.
Svo er það nafnið: Pabbi valdi á
mig Höllunafnið og stóð þar við
loforð sem hann gaf langömmu
sinni Höllu Jónsdóttur húsfreyju
á Álftanesi á Mýrum þegar hann
var lítill drengur. Halla föðursyst-
ir mín var skírð eftir þessari sömu
langömmu sinni en hún var þá var
nýlátin í hárri elli. Þetta tvennt,
afmælisdagarnir og nafnið, hefur
ávallt verið eins og leynileg taug
frá mér til föðursystur minnar og
nöfnu.
Halla hafði alla tíð sterkar
skoðanir á þjóðmálum en segja
má að hún hafi ekki síst borið hag
barna fyrir brjósti, bæði aðbúnað
þeirra og samvistir við foreldra
sína sem og skólagöngu þeirra og
menntun. Á unglingsárum mínum
fannst mér hún stundum full dóm-
hörð í minn garð en ég átti eftir að
sjá að það var eingöngu vegna
þess hve henni var umhugað um
mig. Hún lét sig líka varða börnin
í stórfjölskyldunni og stóð árum
saman fyrir hófi um jólin fyrir alla
afkomendur foreldra sinna og þar
sátu vitaskuld börnin í öndvegi.
Halla var með afbrigðum fáguð
kona, hún var einmuna hög í
höndunum og einkar glæsileg á
velli. Hún átti svo sem ekki langt
að sækja þetta enda gilti það
sama um föður hennar, Jóhann
Ármann Jónasson úrsmíðameist-
ara. Að honum gengnum mátti
lesa um hann í minningargrein:
„Jóhann var dverghagur smiður,
hann var jafnvígur á tré sem
málma.“ Sömuleiðis: „Nákvæmni
hans um ytra útlit og framkomu
alla var á þann veg að lengra varð
naumast komist og hans innri
maður var sannur spegill af þeim
ytri, prúðmennska og mann-
göfgi.“
Halla föðursystir mín hefur
verið ein af kjölfestunum í lífi
mínu, ekki síst eftir að báðir for-
eldrar mínir voru fallnir frá. Með
árunum gaf aldursmunur okkar
tímatalinu langt nef og snarm-
innkaði. Við áttum samleið á nýj-
an, einstakan og djúpan hátt sem
jafningjar og trúnaðarvinkonur.
Margt af því sem hún sagði mér
geymi ég í hjarta mínu fyrir mig
eina en annað mun ég ekki þreyt-
ast á að rifja upp með öðrum: Til
dæmis hvað hún talaði fallega um
mömmu mína og hve mikil gleði
hefði fylgt henni þegar þau pabbi
fluttu í fjölskylduhúsið á Skóla-
vörðustíg.
Halla átti því láni að fagna að
halda að mestu andlegu og líkam-
legu atgervi fram undir það síð-
asta. Hún var að nálgast nírætt
þegar við sóttum námskeið í Fær-
eyingasögu og fórum í framhaldi
af því í nokkurra daga ferð til
Færeyja. Mér er minnisstætt eitt
kvöldið í þeirri ferð þegar hún tók
þátt í færeyskum hringdansi eins
og ung stúlka en ég sat á hliðarlín-
unni eins og illa gerður hlutur.
Þannig mun ég minnast hennar,
sem lífsglaðrar, heilsteyptrar
konu sem ég hef tekið mér til fyr-
irmyndar um svo margt – fyrir ut-
an dansinn að vísu.
Kristín Halla.
„Mikið er þetta blessað líf fljótt
að líða þegar litið er til baka,“
sagði Halla frænka mín þegar ég
leit við hjá henni fyrir nokkru.
Samt hafði hún náð 94 ára aldri og
bar aldurinn lengst af ótrúlega
vel. Hún var jákvæð og velviljuð
og talaði oft um hvað hún væri
þakklát fyrir hvað lífið hefði verið
henni gott, hve hún hefði átt góða
að bæði í uppvexti og síðan með
eiginmanni og börnum. Ekki var
líf hennar þó áfallalaust, Þormóð-
ur sonur hennar varð fyrir fólsku-
legri árás á götu í New York þeg-
ar hann hafði nýlokið meist-
aranámi í myndlist og lá eftir það
nokkrar vikur meðvitundarlaus á
sjúkrahúsi. Hann hélt lífi, en hafði
orðið fyrir miklum heilaskaða,
varð aldrei samur og lést nokkr-
um árum síðar.
Halla var mjög hjálpsöm og fór
ég svo sannarlega ekki varhluta af
því. Ég var áhyggjufull að leita að
dagmömmu fyrir fjögurra mán-
aða gamla dóttur mína, Ingi-
björgu Jónu, þegar kom að því að
fara að vinna að loknu fæðingar-
orlofi, sem var þrír mánuðir í þá
daga, en sumarfrí geymt til við-
bótar. Þá hringdi Halla og bauðst
til að gæta hennar, því hún væri
allt of lítil til að fara til vanda-
lausra. Stúlkan hafði fæðst fyrir
tímann og var því mun minni en
aldur sagði til um. Hún var síðan í
góðu yfirlæti í daggæslu hjá Höllu
frænku fram að eins árs aldri og
mynduðust með þeim sérstök
tengsl.
Halla var sérlega gestrisin og
segja má að hún hafi haldið stór-
fjölskyldunni saman. Hún var
yngst sjö systkina, þar sem faðir
minn var elstur. Lengi vel héldu
hún og Karl maður hennar stór-
veislur á hverjum jólum, þar sem
afkomendum afa og ömmu og
fleira frændfólki var boðið ásamt
skyldfólki Karls. Almennt var
gestkvæmt á heimili þeirra og
hluti fjölskyldunnar bjó þar oft
lengri eða skemmri tíma í íbúð á
neðri hæð hússins og kunni Halla
því vel. Þegar hún tók þá ákvörð-
un fyrir nokkrum árum að selja
það hús og kaupa sér litla þjón-
ustuíbúð á Skólabraut á Seltjarn-
arnesi var hún ánægð með það
val. Samt saknaði hún erils og
margmennis og talaði stundum
um að það væri erfitt að vera orð-
in einskis nýt. Það var þó fjarri
sanni. Þrátt fyrir að hún sinnti
ekki lengur eldamennsku og öðr-
um húsverkum var hún góð heim
að sækja. Hún sáði fræjum lífs-
visku og velvildar og maður fór
alltaf fróðari og ögn betri af henn-
ar fundi. Hún kvaðst frá unga
aldri hafa tamið sér að þakka dag-
lega fyrir allt það góða í lífinu.
Þegar henni fannst einhvern tíma
lífið óvægið þá kvaðst hún hafa
hugsað með sér að allir yrðu fyrir
áföllum og þetta væri áminning
um hvað hún hefði að öðru leyti
átt gott líf. Á sl. ári þegar heilsan
var farin að gefa sig og hún komin
á hjúkrunarheimili barst talið ein-
hverju sinni að samvistum mis-
munandi kynslóða, sem okkur
þótti báðum æskilegt. Þá sagði
Halla: „Það þarf bara að gæta
þess að setja ákveðin mörk, því
annars verður ergelsi og lífið er of
stutt fyrir það.“
Nú er vor í lofti og gróandinn á
fullu. Vonandi ná fræin hennar
Höllu með lífsvisku og velvild að
spíra, dafna og bera ávöxt. Hún
hefur skilað góðu dagsverki,
blessuð sé minning hennar.
Þorbjörg Kjartansdóttir.
Halla
Jóhannsdóttir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
PL Crystal Line,
heitustu úrin í París
Með SWAROVSKI kristalsskífu, 2ja
ára ábyrgð. Sama verð og í heima-
landinu; 16 til 23.000,-.
GÞ Bankastræti, s. 5514007
ERNA Skipholti 3, s. 5520775
www.erna.is
Veiði
Grásleppuveiðimenn
Sumarið er tíminn
Net fyrir nálfellingu.
Net á pípum, löng og stutt
fyrir handfellingu.
Blýtóg, flottóg, felligarn o.m.fl.
Heimavík ehf
S. 892 8655 • heimavik.is
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Þú finnur allt á
FINNA.IS
Vantar þig
pípara?
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og
útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓHANNS ALEXANDERSSONAR
frá Suðureyri við Súgandafjörð.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Guðrún Anna Jóhannsdóttir Kristján G. Gunnarsson
Margrét H. Jóhannsdóttir Sævar Vatnsdal Rafnsson
afa- og langafabörn
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ARNAR PÁLSSONAR,
Strandvegi 13.
Sérstakar þakkir sendum við öllum þeim sem komið hafa að
aðhlynningu hans í gegnum árin.
Margrét Haraldsdóttir
Auður Arnardóttir Ingi Rafn Össurarson
Valdís Arnardóttir Þorlákur Runólfsson
Haraldur Arnarson Erla María Andrésdóttir
og barnabörn