Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 45

Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 islenska.is Fjármálastjóri á skapandi vinnustað Íslenska auglýsingastofan auglýsir eftir hæfileikaríkum og kraftmiklum fjármálastjóra til starfa. Íslenska hefur verið í fremstu röð auglýsingastofa á Íslandi um árabil og starfar fyrir mörg af öflugustu fyrirtækjum og vörumerkjum landsins. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga hér heima og erlendis og hefur verið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi mörg undanfarin ár. Íslenska veitir viðskiptavinum sínum heildarþjónustu á sviði markaðsmála. Þar starfa nú um 50 manns í skapandi, krefjandi og umfram allt skemmtilegu umhverfi. Starfssvið • Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi og fjárreiðum félagsins • Gerð og eftirfylgni fjárhags- og rekstraráætlana • Ábyrgð á mánaðar-, árshluta- og ársuppgjöri • Undirbúningur gagna fyrir stjórnarfundi og aðalfund félagsins • Greining og úrvinnsla tölulegra upplýsinga fyrir stjórnendur og viðskiptavini • Gerð ársreikninga í samstarfi við endurskoðanda • Samningar við birgja og aðra samstarfsaðila • Skattaleg uppgjör og skil á gögnum til yfirvalda • Önnur tilfallandi verkefni Menntun og hæfniskröfur • Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun • Góð tölvukunnátta og þekking á Excel • Góð þekking á Navision fjárhagskerfinu • Færni í mannlegum samskiptum og metnaður til að ná árangri • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi • Reynsla af sambærilegum störfum skilyrði • Þekking á rekstrarumhverfi t.d. verkfræði-, arkitekta- eða auglýsingastofa er kostur • Áhugi á skapandi greinum Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is og er umsóknarfrestur til og með 9. maí 2018. Leikskóli Fjallabyggðar auglýsir eftirfarandi stöður Staða aðstoðarskólastjóra Um er að ræða tímabundna ráðningu í 100% stöðu vegna námsleyfis frá 1. september 2018 – 30. apríl 2019. Aðstoðarskólastjóri kemur að starfi á báðum starfsstöðvum skólans. Helstu verkefni og ábyrgð: • Vinnur með skólastjóra að stjórnun leikskólans og er staðgengill hans. • Fagleg forysta. • Dagleg stjórnun á þeirri starfsstöð sem hann starfar á hverju sinni. Menntunar- og hæfnikröfur: • Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla í leikskóla. • Menntun og reynsla í stjórnun æskileg. • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. Laun greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda í leikskóla (FSL) Stöður deildarstjóra og almennra leikskólakennara Um er að ræða ótímabundnar ráðningar. Menntunar- og hæfnikröfur: • Leikskólakennaramenntun. • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð Leikskóli Fjallabyggðar er 8 deilda leikskóli með starfsstöðvar í Ólafsfirði og á Siglufirði. Nemendur næsta skólaár verða um 110. Lögð er áhersla á kennslu gegnum leik. Kennsluaðferðinni Leikur að læra er beitt markvisst og unnið er með námsefnið Hljóðasmiðja Lubba. Þá vinnur skólinn samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Nánari upplýsingar um Leikskóla Fjallabyggðar er að finna á heimasíðum skólans http://leikskalar.leikskolinn.is/ og http://leikholar.leikskolinn.is/ Í Fjallabyggð búa 2000 íbúar. Nánari upplýsingar um Fjallabyggð er að finna á heimasíðunni www.fjallabyggd.is Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur - Sköpun - Lífsgleði Umsóknarfrestur er til 11. maí nk. Upplýsingar veitir Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar í síma 464 9242 og 848 7905 eða í gegnum netfangið olga@fjallaskolar.is og Kristín María Hlökk Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar í síma 464 9145 og 847 4011 eða gegnum netfangið kristinm@fjallaskolar.is Skurðhjúkrunarfræðingur Handlæknastöðin Glæsibæ, óskar eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðinga til starfa. Fullt starf eða hlutastarf kemur til greina. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið atvinna@handlaeknastodin.is fyrir 15. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Einarsdóttir deildarstjóri á gudrun@handlaeknastodin.is Handlæknastöðin hefur starfrækt skurðstofur frá árinu 1984. Við stöðina starfa um 40 læknar ásamt 16 manna starfsliði skipað hjúkrunar- fræðingum, sjúkraliðum og aðstoðarfólki. Árlega eru rúmlega 7.000 skurðaðgerðir framkvæmdar á Handlæknastöðinni. Handlæknastöðin · Álfheimar 74 104 Reykjavík · sími: 5356800 www.handlaeknastodin.is Hótel Húsafell Restaurant leitar að starfsfólki í eftirfarandi störf: Kokkanemar • Hafa áhuga á matreiðslu • Skipulagshæfni, jákvæðni, vandvirkni, frumkvæði og metnaður Þjónanemar • Hafa áhuga á framreiðslu • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta • Skipulagshæfni, jákvæðni, vandvirkni, frumkvæði og metnaður Vaktstjóri í sal á Hótel Húsafell Restaurant Hæfniskröfur og eiginleikar sem við sækjumst eftir: • Sveinspróf í framreiðslu • Reynsla sem vaktstjóri • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta • Skipulagshæfni, jákvæðni, vandvirkni, frumkvæði og metnaður Vaktstjóri í sal á Húsafell Bistró Hæfniskröfur og eiginleikar sem við sækjumst eftir: • Reynsla sem vaktstjóri • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta • Skipulagshæfni, jákvæðni, vandvirkni, frumkvæði og metnaður Gistiaðstaða er á svæðinu. Ferilskrá ásamt umsókn sendist á netfangið restaurant@husafell.is Umsóknarfrestur er til 15 .maí 2018.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.