Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 51

Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 51
90 og tók þá þátt í fjölda samsýninga og hélt fjórar einkasýningar. Hún átti, ásamt Magnúsi Pálssyni og fleiri, þátt í að breyta deildaskipan og áherslum Myndlista- og hand- íðaskólans í skólastjóratíð sinni og skila kraftmikilli kynslóð listafólks út í samfélagið og hlaut heiðurs- verðlaun sjónlista árið 2012 meðal annars fyrir það starf. „Upp úr 1968 voru konur farnar að senda skilaboð inn í samfélagið um að við værum ekki ánægðar og að við vildum breytingar. Ég held að mér hafi áunnist eitthvað í þá veru að gera námið gæfuríkt fyrir stelp- urnar ekki síður en strákana og það voru sterkir árgangar sem komu fram í kjölfar ́68-byltingarinnar þar sem myndlistin blómstraði.“ Hildur hefur látið ýmis félagsmál til sín taka, m.a. unnið að uppbygg- ingu Ullarvinnslunnar í Þingborg og stuðlað á annan hátt að eflingu hand- verks. Þá hefur hún skrifað greinar af ýmsu tilefni í blöð og tímarit. Hún lagði grundvöllinn að öflugu starfs- fyrirkomulagi Rauðsokkarhreyfing- arinnar á fyrstu árum hennar. Á efri árum hefur Hildur einkum fengist við ritstörf og gefið út nokkr- ar bækur. Af þeim er Ætigarðurinn þekktastur en einnig þýðing hennar og Elísabetar Gunnarsdóttur á hinni þekktu bók H.D. Thoreau, Walden eða lífið í skóginum sem hlaut Ís- lensku þýðingarverðlaunin 2017. Báðar þessar bækur hefur hún myndskreytt. „Þegar ég lenti í bílslysi sem or- sakaði það að ég gat lítið ofið og varla haldið myndavél kyrri þá réð ég helst við að pikka á tölvuborð. Þannig orsakaðist það að skriftirnar urðu, nokkuð af illri nauðsyn, mitt aðalstarf sem ég stunda að einhverju leyti ennþá þar sem ég er aftur flutt í jaðarbyggð Reykjavíkur og horfi út á sjóinn og Leirvogshólmann.“ Fjölskylda Hildur giftist 23.12. 1955 Oddi Benediktssyni, f. 8.5. 1937, d. 17.8. 2010. Þau slitu samvistum. Hildur giftist 31.12. 1976 Þór Vig- fússyni, f. 2.4. 1936, d. 5.5. 2013, kennara og skólameistara. Hann var sonur hjónanna Vigfúsar Guð- mundssonar, bifreiðastjóra á Sel- fossi, og Guðrúnar Jónsdóttur hús- móður. Börn Hildar eru 1) Kolbrún Þóra Oddsdóttir, f. 8.6. 1956, landslags- arkitekt; hún á dæturnar Þórhildi lögfræðistúdent, f. 1986, og Katrínu verkfræðing, f. 1988; 2) Hákon Már Oddsson, f. 1.12. 1958, kvikmynda- gerðarmaður í Reykjavík. Hann á Urði f. 1980, söngkonu, Arnór, f. 1991, tölfræðing í London, og Hildi Lailu, f. 2007. Urður á Kríu, f. 2006. Systur Hildar eru Inga Huld Há- konardóttir f. 15.3. 1936, d. 27.5. 2014, sagnfræðingur, og Hjördís Björk Hákonardóttir, f. 28.8. 1944, fyrrv. hæstaréttardómari. Foreldrar Hildar voru hjónin Há- kon Guðmundsson, f. 18.10. 1904, d. 6.1. 1980, hæstaréttarritari og yfir- borgardómari í Reykjavík, og Ólöf Dagmar Árnadóttir, f. 14.10. 1909, d. 7.7. 1993, húsmóðir og rithöfundur. Úr frændgarði Hildar Hákonardóttur Auður Hildur Hákonardóttir Þorbjörg Olgeirsdóttir húsfreyja, frá Garði í Fnjóskadal Gísli Ásmundsson bóndi á Þverá í Dalsmynni, S-Þing., f. í Rauðuskriðu Auður Gísladóttir húsfreyja og rak síðar matsölu fyrir kostgangara í Miðstræti Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Seltjarnar- nesi Bryndís Snæ- björnsdóttir myndlistar- kona á Sel- tjarnarnesi Ásmundur Gíslason prófastur á Hálsi í Fnjóskadal Einar Ásmundsson hrl. og ritstjóri Morgunblaðsins Garðar Gíslason tórkaup- maður s Kristján Garðarsson Gíslason tórkaupmaðurs Garðar Gíslason fv. hæstaréttar- dómari Árni Jónsson prófastur og þingmaður á Skútustöðum í Mývatnssveit Hjálmar Jónsson bóndi á Ljóts- stöðum í Laxárdal Ragnar H. Ragnar tónlistarskóla- og söngstjóri á Ísafirði Ólöf Dagmar Árnadóttir rithöfundur og fimleika­ kennari í Reykjavík Inga Árnadóttir húsmóðir í Reykjavík Þóra Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík Auður Eir Vilhjálms- dóttir prestur í Rvík Þorbjörg Kristinsdóttir latínukennari í MR Þuríður Helgadóttir húsfreyja, f. í Kasthvammi í Laxárdal Jón Árnason bóndi á Litluströnd við Mývatn Gróa Árnadóttir húsfreyja, frá Dyrhólum í Mýrdal Jón Einarsson bóndi og oddviti á Hvoli í Mýrdal, V-Skaft. Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Hvoli og Stóra­Hofi Guðmundur Þorbjarnarson bóndi og félagsmálafrömuður á Hvoli í Mýrdal og síðar á Stóra­Hofi á Rangárvöllum Hákon Guðmundsson yfirborgardómari í Reykjavík Ingibjörg Þorkelsdóttir húsfreyja, ættuð úr Landeyjum Þorbjörn Einarsson bóndi í Gíslholti í Holtum, Rang., f. í Landeyjum j g tónskáld og fv. rektor Listaháskólans H álmar H. Ra narss. Anna Áslaug Ragnarsd. píanóleikari Sigríður Ragnarsd. skólastjóri Tónlistar- skólans á Ísafirði Jón Guð- mundsson b. og endurskoðandi á Nýjabæ á Seltjarnarnesi ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Hafsteinn Þorvaldsson fædd-ist 28. apríl 1931 í Hafn-arfirði. Foreldrar hans voru hjónin Þorvaldur Guðmundsson, f. 1900, d. 1975, og Lovísa Aðalbjörg Egilsdóttir, f. 1908, d. 1994. Hafsteinn ólst upp í Hafnarfirði til fermingaraldurs en fluttist með for- eldrum sínum að Lambhúskoti í Biskupstungum og síðar að Syðri- Gróf í Villingaholtshreppi. Hafsteinn tók við búskapnum í Syðri-Gróf árið 1953 ásamt konu sinni og bjó þar til 1961 að hann fluttist á Selfoss ásamt fjölskyldu sinni. Eiginkona Hafsteins var Ragn- hildur Ingvarsdóttir, f. 13.8. 1929, d. 16.12. 2006, skrifstofumaður. Börn þeirra eru Þorvaldur, f. 1950, Ragn- heiður, f. 1952, Þráinn, f. 1957, Aðal- björg, f. 1959, og Vésteinn, f. 1960. Hafsteinn nam við Íþróttaskólann í Haukadal 1946-1948. Hann lauk fyrri hluta Lögregluskólans 1964 og kennaranámskeiði í hjálp í viðlögum hjá RKÍ 1968. Þá sótti hann ýmis námskeið m.a. í Stjórnunarskóla Ís- lands og endurmenntun. Hafsteinn var starfsmaður Sel- fosshrepps, lögreglumaður og sölu- maður 1961-1967. Hann var for- stöðumaður Sjúkrahússins á Selfossi 1967-1981 og framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands og Heilsu- gæslustöðvar Selfoss 1982-1995. Hafsteinn var formaður Umf. Vöku 1950-1961 og Umf. Selfoss 1962-1963, ritari HSK 1961-1970 og UMFÍ 1965-1969 og formaður UMFÍ 1969-1979. Hann var formað- ur Æskulýðsráðs ríkisins 1974-1978 og sat í stjórn Frjálsíþrótta- sambandsins, Íþróttakennaraskól- ans og Íþróttamiðstöðvar á Laugar- vatni og var fulltrúi UMFÍ í Íþróttanefnd ríkisins. Hafsteinn sat 14 ár í sveitarstjórn á Selfossi og var forseti bæjar- stjórnar eitt kjörtímabil. Hann sat á Alþingi sem varaþingmaður Fram- sóknarflokksins 1972. Hann var kjörinn heiðursfélagi Umf. Vöku, Umf. Selfoss, HSK og UMFÍ og var sæmdur fálkaorðunni 2009. Hafsteinn lést 26. mars 2015. Merkir Íslendingar Hafsteinn Þorvaldsson Laugardagur 101 ára Anna Þóra Steinþórsdóttir 90 ára Alda Andrésdóttir Bjarni Bjarnason Kristján Finnbogason Sigfríður Runólfsdóttir 85 ára Guðbjörg Hannesdóttir Margrét Björnsdóttir 80 ára Auður Hildur Hákonardóttir Bryndís Eðvarðsdóttir Federico Diorico Ubaldo Guðmundur Lúðvík Jóhannesson Guðný Hulda I. Waage Jóhanna G. Möller María Theódóra Jónsdóttir Sesselja Ásta Jónsdóttir Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir Sævar Sigurðsson 75 ára Guðríður Kristjánsdóttir Ingólfur Guðmundsson Margrét Jónsdóttir Sigfús Jónasson Sigurbjörn Samúelsson Svanfríður Kjartansdóttir 70 ára Arnór Þorgeirsson Charlotta María Traustadóttir Guðmundur Þór Þormóðsson Halldóra Ólafsdóttir Jóhanna Magnúsdóttir Jóhannes Óli Kjartansson Sigrún Árnadóttir Örn Þorsteinsson 60 ára Alfreð Svavar Erlingsson Anne Marie J. Kristjánsdóttir Elín Katla Elíasdóttir Emilía Marta Stefánsdóttir Guðrún J. Steinþórsd Kroknes Ingibjörg Halldórsdóttir Ómar Ingvarsson Páll Albert Kristjánsson Pétur Aðalsteinn Einarsson Soffía Ragna Pálsdóttir Svanhildur Steingrímsdóttir 50 ára Árni Pétursson Cristinel Solomon Einar Jón Ásbjörnsson Elín Bjarney Bjarnadóttir Gísli Víkingsson Guðmundur H. Garðarsson Helga Ólöf Arnarsdóttir Jacek Hubert Runowski Karl Magnússon Miroslawa Zofia Kosmala Signý Ingadóttir Sigríður Gísladóttir Sigurður Másson Þórður Ásmundsson Þórunn Njálsdóttir 40 ára Anne Evensen Benedikta Hannesdóttir Gísli Björn Bergmann Guðmundur Ásgeirsson Guðni Erlendsson Ingus Spalvins Jón Björgvin Björnsson Kristinn Ólafur Kristinsson Margrét Ösp Stefánsdóttir Sigrún Elíasdóttir Sigurður Baldur Þorsteinsson Valdimar Jóhannsson Vífill Björnsson Wachirarat Catchama Þröstur Már Bjarnason Sunnudagur 85 ára Auður Kristín Jónsdóttir Sigríður Steinþórsdóttir Soffía Sigurðardóttir 75 ára Haukur Ísfeld Jóhann Gunnar Helgason Jóhann Helgason Jóhann Kristjánsson Magnús Tómasson Matthías Matthíasson 70 ára Borgþór Guðjónsson Guðlaugur Jóhannsson Guðríður Gísladóttir Kristinn Sigurðsson Málfríður Ragnarsdóttir Ómar Þór Jóhannesson Óttar Guðmundsson Rannveig Salóme Ólafsdóttir 60 ára Auður Ólafsdóttir David Charles Bobroff Erla Jónsdóttir Friðrik Egilsson Guðný Guðmundsdóttir Guillaume Welbes Gunnar Haraldsson Gústa Hjörleifsdóttir Gyða Steindórsdóttir Hanna Bjartmars Arnardóttir Hjörtur Gíslason Ingigerður Gunnarsdóttir Kolbrún Héðinsdóttir Kristjana E. Guðmunds- dóttir Kristján Einar Einarsson Magnús Jónasson Sigurbjörg Hallsdóttir Þóra Víkingsdóttir 50 ára Áslaug Steinunn Kjartansdóttir Díana Ívarsdóttir Dragan Buzov Ester Martinsdóttir Hjálmtýr U. Guðmundsson Linda María Guðjónsdóttir Magnús Orri Haraldsson Maria Marissa B. Fannberg Rebecca Oqueton Yongco Selma Guðmunda Jónsdóttir Sif Helgadóttir Bachmann Sigríður Ingadóttir Valdemar C. Sousa De Almeida Valrún Helga Magnúsdóttir 40 ára Berglind Steinþórsdóttir Bryndís Elfa Geirmundsdóttir Dagný Reykjalín Ragnarsdóttir Erla Rut Kristínardóttir Fanney Stefánsdóttir Frosti Kr. Logason Guðrún Erla Einarsdóttir Hilmar Örn Smárason Jens Nörgaard-Offersen Pawel Piotr Wyroba Robert Piotr Skóra Yngvi Finndal Heimisson Til hamingju með daginn Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.