Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 54
Styrkþegar Pamela de Sensi, Árni Heimir Ingólfsson og Guðný Þorsteins-
dóttir ásamt Jóhannesi Nordal við afhendingu styrkjanna í Seðlabankanum.
Úthlutað hefur verið í sjöunda sinn
úr menningarsjóði sem tengdur er
nafni Jóhannesar Nordals, fyrrver-
andi seðlabankastjóra. Markmiðið
er að styðja viðleitni einstaklinga og
hópa sem miðar að því að varðveita
menningarverðmæti sem núverandi
kynslóð hefur fengið í arf.
Guðný Þorsteinsdóttir hlaut 1,5
milljóna króna styrk til verkefnisins
Hulduheimur: Leikjabók um ís-
lenskan þjóðararf fyrir spjaldtölvur
en það er gagnvirk tölvuleikjabók
sem fjallar um ævintýri tvíbura-
systkinanna frá 19. öld. Auk Guð-
nýjar taka Friðrik Magnússon for-
ritari og Emil Hjörvar Petersen
rithöfundur þátt í verkefninu. Árni
Heimir Ingólfsson hlaut 1 milljónar
króna styrk til útgáfu bókarinnar Ís-
lensk nótnahandrit frá 1100 til 1800 í
samstarfi við bókaforlagið Crymo-
gea. Mörg hundruð nótnahandrit frá
árunum 1100 til 1800 munu verða að-
gengileg almenningi með útgáfu
bókarinnar. Og Pamela de Sensi, í
samstarfi við Tónlistarsafn Íslands,
hlaut hálfrar milljónar króna styrk
til verkefnisins Ferðast um full-
veldið – sögur af fullvalda börnum
sem er bók, hljómdiskur og tón-
leikar í tilefni 100 ára fullveldis Ís-
lands, en þemað er sögur af atburð-
um í lífi barna á fullveldistímanum
1918 til 2018. Sögurnar eru samdar
af Þórarni Eldjárn en Heiða Rafns-
dóttir myndskreytir bókina og Elín
Gunnlaugsdóttir semur tónlist.
Þrjú verkefni styrkt
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
ELINA BROTHERUS
LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018
KORRIRÓ OG DILLIDÓ
Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar – 2.2. - 29.4.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR – Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR
– ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70,
sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA – 2.10.2016 - 29.04.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Samsýningin Fullveldið endur-
skoðað verður opnuð í Listasafninu
á Akureyri, Ketilhúsi, í dag, laug-
ardag, klukkan 15. Um er að ræða
útisýningu með verkum eftir tíu
ólíka listamenn og eru þau sett upp á
ýmsum stöðum í miðbæ Akureyrar.
Verkin eru öll gerð sérstaklega í
tilefni af aldarafmæli fullveldis Ís-
lands. Markmiðið er að sýna nýja
hlið á stöðu fullveldisins á okkar tím-
um og fá áhorfendur til að velta fyrir
sér hugmyndum, útfærslum og fjöl-
breyttum sjónarhornum því tengd-
um.
Höfundar verkanna eru lista-
mennirnir Guðmundur Ármann Sig-
urjónsson, Gunnar Kr. Jónasson,
Hrefna Harðardóttir, Jón Laxdal
Halldórsson, Jónína Björg Helga-
dóttir, Karólína Baldvinsdóttir,
Libia Castro og Ólafur Ólafsson, Re-
bekka Kühnis, Samúel Jóhannsson
og Snorri Ásmundsson. Sýningin
hlaut styrk úr sjóði afmælisárs full-
veldis Íslands og sýningarstjórar
eru þau Guðrún Pálína Guðmunds-
dóttir og Hlynur Hallsson.
Í formi upplýsingaskilta
Hlynur, sem er forstöðumaður
Listasafnsins á Akureyri, segir þau
hafa velt því talsvert fyrir sér hvert
ætti að vera framlag safnsins til af-
mælisfagnaðar fullveldisins. „Okkur
þótti tilvalið að setja upp sýningu ut-
andyra og buðum til samstarfs tíu
nokkuð ólíkum listamönnum, sem
birta sína sýn á hundrað ára full-
veldi. Þeim var vitaskuld frjálst að
túlka það hver á sinn hátt.“
Hann segir enga tilviljun að lista-
menn eins og Libia og Ólafur séu í
hópnum, þar sem þau hafa í verkum
sínum til að mynda fjallað um stjórn-
arskrá Íslands en þetta sé allt ólíkt
fólk með ólíka sýn.
„Þetta eru tíu verk og sýningin er
sett upp í formi upplýsingaskilta
sem eru á átta stöðum og mynda
stutta gönguleið í miðbænum. Eitt
skiltið er við Torfunefsbryggju, þá
má ganga í átt að Hofi og sjá annað,
það eru skilti á Ráðhústorginu og í
göngugötunni, fyrir framan Lista-
safnið á leiðinni upp gilið og síðasta
skiltið er hjá sundlauginni,“ segir
Hlynur. Skiltin vísa hvert á annað og
þá hefur verið gert kort sem fólk
getur fengið og sýnir hvar skiltin
eru.
„Á öllum skiltunum er texti á ís-
lensku og ensku um hugmyndina að
hverju verki, yfirlýsing frá lista-
manninum og upplýsingar um hann
– og svo vitaskuld verkið sjálft.“
Sýningin mun standa til 19. ágúst
og Hlynur segir að líklega verði er-
lendir ferðamenn í meirihluta þeirra
sem sjá verkin, á sumrin séu útlend-
ingar áttatíu prósent gesta í Lista-
safninu.
„Verkin eru mjög ólík. Sum eru
gagnrýnin en önnur fagurfræðileg.
Við sjáum textaverk, málverk, nokk-
ur ljósmyndaverk og samsetta hluti.
Þá eru þarna verk sem kunnugir
munu ekki endilega tengja við lista-
mennina við fyrstu sýn en önnur
tengir maður strax við höfundinn.“
Leiðsögn á sýningartímanum
Hlynur segir að þau Guðrún Pál-
ína hafi í upphafi ákveðið að hafa
listamennina tíu og hafi verið erfitt
að velja. Niðurstaðan var sú að
nokkuð margir heimamenn taka
þátt, ólíkt fólk á ólíkum aldri og af
báðum kynjum. Á sýningartímanum
verður boðið upp á leiðsögn með
listamönnunum þar sem gengið
verður á milli verkanna og þau
rædd.
Umfangsmikil stækkun á húsnæði
Listasafnsins stendur yfir. Til stóð
að opna safnið eftir breytingar á
þjóðhátíðardaginn 17. júní en því
hefur verið frestað fram að Akureyr-
arvöku í lok ágúst en þá verður hald-
ið upp á 25 ára afmæli safnsins. Þá
verða öll hin nýju og breyttu rými
til, og tengibygging að Ketilhúsi.
Verk um stöðu fullveldis
Tíu ólíkir listamenn eiga verk á sýningunni Fullveldið end-
urskoðað sem verður opnuð í dag í miðbæ Akureyrar
Ljósmynd/Hlynur F. Þormóðsson
Útisýning Einu af tíu verkum sýningarinnar í miðbæ Akureyrar komið fyrir framan við Ketilhúsið. Það er eftir
Hrefnu Harðardóttur og heitir Rauðbuxur og grænsokkur. Í því vísar Hrefna til kvenfrelsisbaráttu liðinnar aldar.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Vel heppnuð heimsókn til Færeyja á
dögunum æsti upp í mér margs kon-
ar nálganir við tónlistarlífið þar,
sem er bæði líkt og ólíkt því ís-
lenska. Þetta
er fjórði pist-
illinn sem ég
rita upp úr
þessari
bústnu helg-
arreisu og sá
síðasti. Í bili.
Ég hef stund-
um furðað mig á tiltölulega litlu
tónlistarlegu flæði milli þessara
bræðra- og systraþjóða en samt er
þó eins og straumurinn sé að verða
greiðari í báðar áttir. Og vert að
geta þess að Kristian Blak, tónlist-
argúru eyjanna, heldur einmitt tón-
leika í kvöld í Norræna húsinu með
Yggdrasil, fjölsnærðu verkefni sínu
sem tekur á sig ýmsar myndir. Í
kvöld leika með honum hin síber-
íska Vera Kondrateva, okkar eigin
Guðni Franzson og svo landi hans
Heðin Ziska Davidsen.
En ég ætlaði ekki að skrifa um
Blak hér (gerði það fyrir nokkrum
vikum) heldur aðra færeyska sveit
sem er ekki síður virt og dáð. Þjóð-
lagasveitin Enekk gaf út nokkrar
plötur og ólíkar á tíunda áratugnum
og þeim fyrsta. Eyjarnar fóru á
hausinn árið 1992, sex þúsund
manns flúðu land og bölmóður og
volæði fylgdi eðlilega í kjölfarið. En
– svo fór listalífið í gang, betur en
nokkurn tímann fyrr. Myndlistar-
menn blómstruðu og tónlistin hrein-
lega streymdi úr fólkinu. Enekk var
hluti af þessari bylgju, söng á fær-
eysku og átti eftir að hafa mikil
áhrif á yngri tónlistarmenn sem
áttu eftir að umbylta tónlistarmenn-
ingunni þar um og uppúr 2000.
Ver sterk mín sál er ein þess-
ara platna, plata sem ég hef lofað í
ræðu og riti allt frá því ég heyrði
verkið fyrst en komst að því, eftir
heimsóknina, að ég hef aldrei skrif-
að um hana á opinberum vettvangi
fyrr. Platan inniheldur lög við ljóð
Janus Djurhuus, sem var fyrsta nú-
Fegurðin ein
Ver sterk mín sál með færeysku sveitinni Enekk er eitt mesta
tónlistarafrek sem unnið hefur verið í eyjunum.
» Platan inniheldurlög við ljóð Janus
Djurhuus, sem var
fyrsta nútímaljóðskáld
eyjanna. Tónlistin er
einhvers staðar á milli
djass og þjóðlagatón-
listar en ljóðin syngur
Kári Sverrisson, leiðtogi
sveitarinnar.