Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
Afmælishátíð Konubókastofu verð-
ur haldin á morgun, 29. apríl, kl. 14
í Rauða Húsinu á Eyrarbakka. Ásta
Stefánsdóttir, bæjarstjóri Árborg-
ar, segir nokkur orð og prófessor
Dagný Kristjánsdóttir mun fjalla
um Ragnheiði Jónsdóttur sem
fæddist á Stokkseyri 1895. Þá mun
Brynhildur Heiðar og Ómarsdóttir
segja frá Fjöruverðlaununum, bók-
menntaverðlaunum kvenna og
handhafar Fjöruverðlauna og Ís-
lensku Bókmenntaverðlaunanna
2018 munu fjalla um verk sín, þær
Unnur Jökulsdóttir, Kristín Eiríks-
dóttir og Margrét Tryggvadóttir,
sem fékk Fjöruverðlaunin í flokki
unglinga og barnabóka 2017 ásamt
Lindu Ólafsdóttir, kemur einnig og
segir frá sinni bók.
Konubókastofa er fræðslu- og
varðveislusafn tileinkað íslenskum
kvenrithöfundum og verkum þeirra
og var formlega stofnuð í apríl
2013, fyrir fimm árum. Markmið
Konubókastofu er að halda til haga
þeim ritverkum sem íslenskar kon-
ur hafa skrifað í gegnum tíðina og
kynna höfundana og verk þeirra
innanlands sem utan, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Morgunblaðið/Hari
Verðlaunahafi Kristín Eiríksdóttir
hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2018
fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt.
Afmæli Konubókastofu fagnað
tímaljóðskáld eyjanna. Tónlistin er
einhvers staðar á milli djass og
þjóðlagatónlistar en ljóðin syngur
Kári Sverrisson, leiðtogi sveit-
arinnar. Eini tilgangur þessara
skrifa er í raun sá að hvetja þig, tón-
listarunnandi góður, til að hlusta á
verkið og nema þá snilld sem þar er
að finna (platan er á Spotify en einn-
ig er hægt að kaupa hana frá Tutl
eða á Amazon). Þessi plata er ein-
faldlega á einverju öðru plani, snert
af almættinu ef svo má segja. Söng-
ur Kára er ólýsanlegur, svo ótrú-
lega fallegur og næmur að mann
setur hljóðan. Líkt er með spila-
mennskuna og upptakan er svo
hljóðbær að maður heyrir skrjáfið í
stólunum. Punkturinn yfir i-ið eru
svo nístandi ljóð Djurhuus sem fara
inn að kjarna hins mannlega; full af
fegurð, von og birtu en einnig von-
leysi og myrkri. Það er allt rófið
þarna. Algerlega ótrúlegt verk og í
raun ekki hægt að koma orðum að
kynngimagninu þarna, þó hér fari
aum tilraun til þess.
Enekk Sveitin er leidd af Kára Sverrissyni, sem er fyrir miðju.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við fögnum vorinu með þessum
góða kokteil sem er mjög hlust-
endavænn,“ segir Rakel Edda Guð-
mundsdóttir sópran um tónleika
Barbörukórsins sem haldnir verða í
Hásölum, Hafnarfirði, í dag kl. 17
undir yfirskriftinni „Sunnan yfir sæ-
inn breiða“. Tónlistin er öll sungin án
undirleiks og tónleikarnir eru án
hlés.
„Okkur fannst gaman að bjóða
upp á lög sem margir þekkja og flétt-
um saman lög sem tengjast vorinu
annars vegar og fullveldinu hins veg-
ar, enda fannst okkur upplagt að
heiðra hundrað ára fullveldisafmælið
með þessum hætti. Á efnisskránni er
því blanda af ættjarðarlögum sem
öllum þykir vænt um, perlur á borð
við „Hver á sér fegra föðurland“ og
„Smávinir fagrir“. Einnig flytjum við
indæl, sumarleg og upplífgandi kór-
lög úr Fjárlögunum. Í bland við
þetta ákváðum við að hafa lög sem
kalla mætti þjóðlög samtímans. Það
eru lög sem hafa fangað hug og
hjörtu þjóðarinnar hin seinni ár,“
segir Rakel og nefnir í því samhengi
„Tvær stjörnur“ eftir Megas, „Orðin
þín“ eftir Braga Valdimar Skúlason
og „Bæn einstæðingsins“ eftir Gísla
frá Uppsölum við tónlist Ómars
Ragnarssonar. „Texti Gísla frá Upp-
sölum er ekki sé mest upplífgandi á
allri efnisskránni, en þetta er engu
að síður hjartnæmt og þjóðlegt. Ég
fer sjálf alltaf næstum að skæla þeg-
ar ég syng þetta,“ segir Rakel.
Allir menntaðir í söng
Barbörukórinn er kammerkór,
stofnaður vorið 2007 af Guðmundi
Sigurðssyni og nokkrum lærðum
hafnfirskum söngvurum og fagnar
því 11 ára afmæli um þessar mundir.
„Kórinn kennir sig við heilaga Bar-
böru en stytta af dýrlingnum fannst
árið 1950 við uppgröft í fornri kap-
ellu í Kapelluhrauni í Hafnarfirði,“
segir Rakel og bendir á að kórinn
hafi sterk tengsl við Hafnarfjörð og
nefnir sem dæmi að hann komi
reglulega fram við helgihald Hafnar-
fjarðarkirkju auk tónleikahalds og
söngs við útfarir þar og víðar.
„Að jafnaði erum við um fjögur í
hverri rödd, en það er auðvitað
breytilegt eftir verkefnum hverju
sinni,“ segir Rakel og tekur fram að
allir kórfélagar séu tónlistarmennt-
aðir. „Allir eru menntaðir í söng,
hafa ýmist lokið burtfararprófi hér-
lendis eða námi erlendis. Auk þess
eru margir með annan tónlistarbak-
grunn, starfa við tónlistarkennslu og
kórstjórn eða sem tónmenntakenn-
arar og hljóðfæraleikarar. Við erum
því öll að fást við tónlist.“
Aðspurð segir Rakel að Barböru-
kórinn leggi sérstaka áherslu á ís-
lenskan tónlistararf. „Við höfum ein-
beitt okkur að íslenskum tónverkum,
bæði nýjum og gömlum. Það kom
meðal annars til vegna þess að við
vorum í samstarfi við Smára Ólason,
sem er tónlistarsagnfræðingur og
mikill grúskari og hefur grafið upp
perlur úr íslenska tónlistararfinum
og útsett sérstaklega fyrir kórinn,
oft á tíðum í fornum stíl. Þá efnis-
skrá gáfum við út á geisladiski sem
nefnist Syngið Drottni nýjan söng,“
segir Rakel og rifjar upp að disk-
urinn hafi hlotið góðar viðtökur og
mikið lof gagnrýnenda. „Sumarið
2015 kom kórinn fram á tónleikum í
Marienkirche í Berlín og við messu í
Berliner Dom. Við bæði tækifæri var
flutt íslensk kirkjutónlist eftir nokk-
ur af fremstu tónskáldum Íslend-
inga,“ segir Rakel og rifjar upp að
haustið 2016 hafi kórinn verið valinn
sem fulltrúi Íslands á Norrænt
kirkjutónlistarmót í Gautaborg þar
sem kórinn flutti íslenska kirkju-
tónlist á tónleikum í Vasa-kirkjunni
þar í borg við mjög góðar und-
irtektir.
Verkefni kórsins hafa verið fjöl-
breytt á liðnum árum. Sem dæmi má
nefna að í desember kom kórinn
fram í Hörpu með djasspíanistanum
Jan Lundgren þar sem fluttar voru
endurreisnarmótettur við spuna
Lundgrens.
Ljósmynd/Gassi
Fögnuður Barbörukórinn ásamt stjórnanda sínum, Guðmundi Sigurðssyni (annar frá hægri fremst). Rakel Edda
Guðmundsdóttir sópran stendur við vinstri hlið stjórnandans. Kórinn heldur tónleika í Hafnarfirði í dag.
Fagna vorinu með söng
Vortónleikar Barbörukórsins í Hásölum í dag kl. 17
Syngja ættjarðarlög og þjóðlög frá ýmsum tímum
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Fös 4/5 kl. 20:00 26. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s
Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Fim 17/5 kl. 20:00 31. s
Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s
Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Sun 13/5 kl. 20:00 22. s
Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Mið 16/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Fim 17/5 kl. 20:00 23. s
Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Fös 18/5 kl. 20:00 24. s
Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Lau 19/5 kl. 20:00 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Sun 29/4 kl. 20:00 2. s Sun 13/5 kl. 20:00 4. s
Fim 10/5 kl. 20:00 3. s Mið 16/5 kl. 20:00 5. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn
Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn
Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Sun 29/4 kl. 19:30 48.sýn Sun 6/5 kl. 19:30 49.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn
Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 2/5 kl. 20:00 Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 10:00
Mán 30/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200