Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
ICQC 2018-20
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagins 7. maí
SÉRBLAÐ
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. maí
Söngsveitin Fílharmónía heldur
tónleika í Langholtskirkju ásamt
sænska kórnum Cappella Snöstorp
annað kvöld, sunnudag, kl. 20.
„Á efnisskránni verða margs
konar kórverk án undirleiks, gömul
og ný, sem kórarnir syngja ýmist
hvor í sínu lagi eða saman,“ segir í
tilkynningu frá tónleikahaldara.
„Sænski kórinn Cappella Snös-
torp var stofnaður 2006 og hefur
flutt ýmis stórvirki fyir blandaða
kóra, bæði í heimabæ sínum, Halm-
stad í Suður-Svíþjóð, og víða um
Evrópu, svo sem Messias eftir
Händel, Magnificat eftir Bach og
Requiem eftir Mozart. Kórinn legg-
ur land undir fót annað hvert ár og
hefur til þessa heimsótt Írland,
Þýskaland, Pólland, Litháen og
Ítalíu, þar sem hann vann fyrstu
verðlaun í kórakeppninni Riva del
Garda 2012. Nú er röðin komin að
Íslandi og hingað koma sænsku
söngvararnir ásamt stjórnanda sín-
um, Göran Persson.
Söngsveitin Fílharmónía, undir
stjórn Magnúsar Ragnarssonar,
undirbýr sig um þessar mundir fyr-
ir kórakeppni í Flórens í sumar og
flytur hluta af keppnisdagskránni á
tónleikunum.“
Þess má að lokum geta að að-
gangur að tónleikunum er ókeypis.
Tveir kórar saman
í Langholtskirkju
Keppni Söngsveitin Fílharmónía ásamt Magnúsi Ragnarssyni stjórnanda.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Börkur Sigþórsson mun leikstýra
þremur fyrstu þáttum nýrrar sex
þátta sjónvarpsþáttaraðar breska
ríkisútvarpsins,
BBC, sem nefn-
ist Babtiste.
Þáttaröðin segir
af rannsókn-
arlögreglumann-
inum Julian
Baptiste sem var
ein af aðal-
persónum
tveggja þátta-
raða The Missing
og leikinn af
franska leikaranum Tchéky Karyo.
Börkur heldur seinna í þessum
mánuði til Englands til að undirbúa
tökur þáttanna sem verða svo tekn-
ir upp síðar í Hollandi og Belgíu.
„Þetta er hálfgert „spin-off“ af
The Missing, sem einhver kallaði
„afleggjara“ sem mér finnst mjög
góð þýðing,“ segir Börkur um þætt-
ina. Þeir verði þó ólíkir The Miss-
ing að uppbyggingu. „The Missing
gerðust alltaf á nokkrum tímalínum
og fjölluðu hver um sitt málið og
fókusuðu á fjölskyldurnar í kring-
um mannshvarf. En límið milli serí-
anna var þessi lögreglumaður,
Babtiste, og nú er fókusinn meira á
honum,“ útskýrir Börkur. Verið sé
að vinna með ákveðinn heim sem
þegar hafi verið skapaður en þó á
algjörlega nýjan hátt. „Þetta koll-
varpar væntingum fólks, ég get
sagt það,“ segir Börkur kíminn um
hina væntanlegu þætti en hann má
auðvitað ekki segja of mikið um
söguþráðinn.
Komst á radarinn með Ófærð
–Hvernig kom það til að þú varst
fenginn í þetta verkefni?
„Þetta er búið að vera langt ferli.
Ég er búinn að vera með umboðs-
mann í Bretlandi í sjö ár og var bú-
inn að vera á sveimi í kringum
þessa senu þarna. Þegar Ófærð
kom út vakti hún mikla lukku í
Bretlandi og var meðframleidd af
BBC þannig að ég komst á rad-
arinn í gegnum hana og ég fór og
gerði þátt í seríu sem heitir En-
deavour í kjölfarið,“ segir Börkur
en hann leikstýrði tveimur þáttum
af Ófærð og leikstýrir fjórum í ann-
arri syrpu þáttanna sem er nú í
vinnslu. Þættirnir Endevour voru
framleiddir af bresku sjónvarps-
stöðinni ITV og segir Börkur að
eitt leiði af öðru og að leikstjórar
þurfi að sanna sig í bransanum til
að fá bitastæð verkefni. Og Bab-
tiste er sannarlega eitt slíkt, fram-
leitt af sjónvarpsstöðinni BBC One
og verða þættirnir sýndir á sunnu-
dagskvöldum kl. 21, á besta tíma í
sjónvarpi.
Það er nóg að gera hjá Berki um
þessar mundir, hann er að leikstýra
fjórum þáttum af tíu í næstu syrpu
Ófærðar og frumsýnir í næstu viku
fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd
og ber hún titilinn Vargur. Og svo
er það Babtiste, tökur á þáttunum
hefjast í júlí og segist Börkur halda
að þættirnir verði frumsýndir fyrri
hluta næsta árs.
Rannsóknarlögreglumaður Tchéky Karyo í hlutverki Julian Babtiste í annarri þáttaröð The Missing.
Kollvarpar væntingum
Börkur Sigþórsson leikstýrir fyrstu þremur þáttum nýrr-
ar þáttaraðar BBC, Babtiste Afleggjari af The Missing
Börkur
Sigþórsson
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands
stendur fyrir tónleikum í samvinnu
við Listvinafélag Hallgrímskirkju í
dag, laugardag, kl. 14, til að heiðra
fjögur íslensk tónskáld, sem fagna
eða hefðu fagnað stórafmæli á
árinu. Tónskáldin eru Jórunn Viðar
(1918-2017), Jón Ásgeirsson (1928),
Atli Heimir Sveinsson (1938) og
Þorkell Sigurbjörnsson (1938-
2013). Yfirskrift tónleikanna er Séð
frá tungli /tónlistarmenn framtíð-
arinnar.
Flytjendur eru Matthías Harð-
arsson píanó og orgel, Erla Rut
Káradóttir orgel, Sandra Lind Þor-
steinsdóttir sópran, Snæfríður
Björnsdóttir sópran, Guðný Char-
lotta Harðardóttir píanó, María Sól
Ingólfsdóttir sópran, Ásthildur
Ákadóttir píanó, Solveig Ósk-
arsdóttir sópran, Anela Bakraqi pí-
anó, Una María Bergmann mezzó-
sópran, Vera Hjördís Matsdóttir
sópran, Peter Máté píanó, Hjalti
Þór Davíðsson píanó, Vilborg Hlöð-
versdóttir þverflauta, Kristján Karl
Bragason píanó, Bergþóra Linda
Ægisdóttir mezzósópran, Svanur
Vilbergsson gítar, Guðný Ósk
Karlsdóttir sópran, Anna Þórhildur
Gunnarsdóttir píanó, Eliška Helik-
arová sópran, Íris Björk Gunn-
arsdóttir sópran, Aldís Bergsveins-
dóttir fiðla, Agnes Eyja
Gunnarsdóttir fiðla, Sigrún Mary
McCormick víóla, Unnur Jóns-
dóttir, selló, Íris Andrésdóttir þver-
flauta og Kristín Þóra Pétursdóttir
klarínetta. Einnig syngur Kór
Tónlistardeildar Listháskóla Ís-
lands undir stjórn Sigurðar Hall-
dórssonar. Aðgangur er ókeypis.
Allar nánari upplýsingar eru á
heimasíðunum listvinafelag.is og
lhi.is.
Heiðra fjögur íslensk tónskáld
Morgunblaðið/Golli
Skapandi Tónskáldið Jórunn Viðar er ein
þeirra sem heiðruð verða í Hallgrímskirkju.
Útskriftarsýning meistaranema í
hönnun og myndlist við Listahá-
skóla Íslands verður opnuð í Gerð-
arsafni í dag, laugardag, kl. 14.
Útskriftarnemendur í myndlist
eru Andreas Brunner, Arnar Óm-
arsson, Clara Bro Uerkvitz, Einar
Örn Benediktsson, Juliane For-
onda, Juliette Francine Frenay og
Maria-Magdalena Ianchis. Útskrift-
arnemendur í hönnun eru Andrés
Julián León, Arjun Singh, Árdís
Sigmundsdóttir, Guðrún Margrét
Ansnes Jóhannsdóttir og Michelle
T. Site. Sýningarstjóri er Brynja
Sveinsdóttir
Útskriftarsýning meistaranema
Gerðarsafn Meistaranemar í hönnun og myndlist sýna í Kópavogi.