Morgunblaðið - 30.04.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
585
Strákú
á tann
verði
Garðkl a/Garðskófla
595
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
3.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar
með 100 kg burðarge
frá 995
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá 999
Laufsugur
7.495
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
Barnaverndarmál eru í eðli sínuviðkvæm og einstök mál ættu
sem minnst að rata inn á vettvang
stjórnmálanna. Í þessum málum
ættu þeir fullorðnu fyrst og fremst
að hugsa um hag barnanna.
En þeir eru tilsem vilja nota
þessi mál eins og
önnur til að slá póli-
tískar keilur. Ög-
mundur Jónasson
víkur að nýlegu
dæmi um þetta á vef
sínum í gær og nefn-
ir þar þingmenn Pí-
rata sem hann segir
„ræða mikið um sið-
ferði og siðareglur -
en aðallega fyrir
aðra. Þess vegna er
ekki úr vegi að
beina þeirri spurningu til nefndra
þingmanna hvort þeir leiði aldrei
hugann að eigin ábyrgð; hversu sið-
legt það er að notfæra sér aðstöðu
sína sem þingmenn til að koma
höggi á einstaklinga og pólitíska
andstæðinga sína.
Sérstaklega verður þessi spurn-ing ágeng eftir að fylgjast með
framgöngu Halldóru Mogensen,
formanns velferðarnefndar Alþing-
is, sem nú hefur kallað eftir afsögn
Ásmundar Einars Daðasonar fé-
lagsmálaráðherra.
Halldóra Mogensen tilkynnirþjóðinni á föstudag að hún
vilji ræða þessi viðkvæmu mál í
beinni sjónvarpsútsendingu frá
nefndarsviði Alþingis. Síðan kemur
á daginn að þetta gerir hún án þess
að hafa kynnt sér þau gögn sem
eigi að ræða og nefnd hennar hafa
verið aðgengileg.“
Og Ögmundur spyr hvort að ekkiværi nær að formaður félags-
málanefndar en félagsmálaráð-
herra segði af sér. Kemur það til
greina?
Ögmundur
Jónasson
Aðgát skal höfð
STAKSTEINAR
Halldóra
Mogensen
Veður víða um heim 29.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 6 rigning
Akureyri 8 alskýjað
Nuuk -1 snjókoma
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 heiðskírt
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 8 rigning
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 11 þoka
Dublin 10 léttskýjað
Glasgow 10 skýjað
London 7 alskýjað
París 11 rigning
Amsterdam 10 súld
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 24 heiðskírt
Vín 27 heiðskírt
Moskva 16 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 9 skúrir
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 13 léttskýjað
Montreal 6 rigning
New York 9 alskýjað
Chicago 9 heiðskírt
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:03 21:48
ÍSAFJÖRÐUR 4:52 22:08
SIGLUFJÖRÐUR 4:35 21:52
DJÚPIVOGUR 4:29 21:21
Vegagerðin hefur ákveðið að
ganga að tilboði Munck Íslandi ehf.,
Kópavogi, um smíði nýrrar brúar
yfir Eldvatn á Skaftártunguvegi í
Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Vegagerðin hefur áður boðið
út þetta verk en öllum tilboðum var
hafnað í fyrra skiptið vegna þess
hve há þau reyndust.
Munck Íslandi ehf., Kópavogi
bauðst til að vinna verkið fyrir
367,4 millj. kr. Var það 20% yfir
áætluðum verktakakostnaði, sem
var 304 millj. kr. Ístak hf., Reykja-
vík bauð 426 millj. kr. og Eykt ehf.
Reykjavík bauð 487 millj. kr. .
Ný brú yfir Eldvatn verður 80
metra löng stálbogabrú og er um
0,5 km vestan núverandi vegamóta
hringvegar og Skaftártunguvegar í
nýrri veglínu Skaftártunguvegar
frá Eystri-Ásum að nýjum vega-
mótum við hringveg. Verkinu skal
að fullu lokið fyrir 1. júlí 2019.
Núverandi brú yfir Eldvatn lask-
aðist í Skaftárhlaupi haustið 2015
og verður nýja brúin smíðuð í öðru
vegarstæði. sisi@mbl.is
Samið um smíði brúar yfir Eldvatn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eldvatn Munck Íslandi ehf. átti lægsta tilboðið í smíði nýrrar brúar.
Jón Steinar
Gunnlaugsson,
fyrrverandi
hæstaréttardóm-
ari, hefur gefið út
bókina When
Justice Failed, en
hún er stytt, þýdd
útgáfa af bók
hans Með lognið í
fangið sem hann
gaf út á síðasta ári og fjallar um af-
glöp Hæstaréttar eftir hrun.
Bókin er gefin út af Almenna
bókafélaginu og mun hún m.a. verða
til sölu í verslun Eymundssonar í
Austurstræti í Reykjavík.
Jón Steinar segist með útgáfunni
vilja svara eftirspurn erlendra fjöl-
miðla, en hann hefur fengið fyrir-
spurnir um bók sína frá fréttamönn-
um sem fjallað hafa um hrunið hér á
landi og leitað eftir viðhorfum á því
hvernig dómstólar hafi staðið sig. Í
bókinni setur hann fram alvarlega
gagnrýni á hendur dómurum við
Hæstarétt og ákvað hann því að gera
bókina aðgengilega erlendum les-
endum. thorgerdur@mbl.is
Með logn-
ið í fangið
á ensku
Svarar eftirspurn
erlendra fjölmiðla