Morgunblaðið - 30.04.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
KRINGLU OG SMÁRALIND
HERRASKÓR
SKECHERS FLEX ADVANTAGE HERRASKÓR MEÐ STÖMUM BOTNI SEM
HENTAR VEL TIL VINNU Á SLEIPU OG HÁLU GÓLFI. STÆRÐIR 41-47,5
ERUM EINNIG MEÐ DÖMUTÝPUR MEÐ SAMA BOTNI.
VERÐ: 12.995
Hafþór Hreiðarsson
Húsavík
Á laugardag voru 100 ár síðan
Verkakvennafélagið Von var
stofnað á Húsavík og af því tilefni
stóð Framsýn stéttarfélag fyrir
afmælisfögnuði í Menningar-
miðstöð Þingeyinga á Húsavík.
Aðalsteinn Á. Baldursson, for-
maður Framsýnar, opnaði hátíð-
ina með stuttu ávarpi og Ósk
Helgadóttir, varaformaður Fram-
sýnar, flutti síðan ávarp þar sem
hún fór yfir aðdragandann að
stofnun Vonar og rakti hún um
leið sögu félagsins.
Björg Pétursdóttir var ein af
stofnendum Vonar og á afmælis-
daginn kom út ljóðabókin
„Tvennir tímar“ með ljóðum eftir
hana, en Framsýn gefur bókina
út í samstarfi við afkomendur
Bjargar.
Sérstakur gestur hátíðarinnar,
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra, fékk afhent fyrsta eintakið
og flutti hún stutt ávarp við það
tækifæri auk þess sem hún las
upp tvö ljóð Bjargar.
Boðið var upp á tónlistaratriði
á samkomunni sem var fjölmenn
og að dagskrá lokinni var opnuð
ljósmyndasýning með myndum af
konum við störf á tímum Verka-
kvennafélagsins Vonar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fjölmenni á 100 ára
afmælishátíð Vonar
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hægt er að kaupa aðgang til að hlusta
á nærri 40 hljóðbækur í nýju smáfor-
riti sem Forlagið hefur tekið í notkun.
Bækurnar eru seldar á sérstöku
kynningarverði út maímánuð. Öðrum
útgefendum gefst kostur á að selja
bækur sínar í gegnum sölukerfi For-
lagsins og er eitt þegar byrjað að nýta
sér þennan möguleika. Ekki eru sömu
vandamál gagnvart höfundum og
komu upp í áskriftarveitunni Story-
tel.
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins, segir að
miðlun hljóðbóka hafi verið vandamál
og þess vegna hafi verið unnið að
hljóðbókaappi.
Vilja nota snjalltækin
„Hljóðbækur hafa átt erfitt upp-
dráttar á íslenskum bókamarkaði,
ekki síst vegna þess að notkun á
geisladiskum og Mp3-diskum hefur
dregist mikið saman. Hljóðbókaappið
gerir öllum sem eru nettengdir kleift
að hlusta á hljóðbækur með einföld-
um hætti,“ segir Egill Örn. Smáfor-
ritið sjálft er ókeypis og til að gefa
sem flestum kost á að prófa þessa nýj-
ung eru allar bækur seldar á 990
krónur í maí. „Við trúum því að ef fólk
fæst til að prófa að hlusta á hljóðbæk-
ur þá hætti það ekki að hlusta, ánetj-
ist þessu. Það á bæði við börn og full-
orðna,“ segir hann.
Egill Örn segir að reynslan erlend-
is sýni að notkun hljóðbóka aukist
verulega á meðan sala á rafbókum
dalar eða í besta falli stendur í stað.
„Ljóst er að allur almenningur vill
nota sér snjalltækin, meðal annars til
þess að hlusta á hljóðbækur. Ég er
ekki í nokkrum vafa um að Íslend-
ingar munu taka þessu framtaki okk-
ar fagnandi og tel reyndar að þegar
séu tugir þúsunda áskrifenda á au-
dible.com sem er í eigu Amazon.“
Munurinn á hljóðbók og rafbók er
eins og heitin gefa til kynna sá að
hljóðbók er upptaka af bók sem lesin
hefur verið inn á hljóðskrá en rafbók
er rafræn útgáfa af prentaðri bók.
Forlagið mun að sögn Egils Arnar
bjóða upp á bækur frá öðrum forlög-
um. „Við viljum að allir sem vilja
senda frá sér hljóðbækur geti sett
efni inn á appið. Þú þegar eru komnar
einhverjar bækur frá Hljóðbók ehf.
Höfundar og útgefendur semja
Egill Örn segir að höfundar efnis í
hljóðbókanna fái greiðslur miðað við
notkun. Réttur þeirra sé því gegn-
særri í þessu fyrirkomulagi en
áskriftarfyrirkomulagi eins og Story-
tel. Rithöfundasamband Íslands gerði
athugasemdir við það í febrúar þegar
áskriftarveitan Storytel hóf að miðla
efni íslenskra höfunda sem ekki höfðu
veit leyfi fyrir því. Kristín Helga
Gunnarsdóttir, sem lét af embætti
formanns Rithöfundasambands Ís-
lands í síðustu viku, segir að áskrift-
arveitan sé ný tegund af þjónustu og
ekki sambærileg við hljóðbókaapp
eins og Forlagið er með. Í síðar-
nefndu þjónustunni sé greitt fyrir
hvert eintak, eins og almennt í hljóð-
bókasölu og Forlagið hafi um það
samninga við höfunda sína.
Rithöfundasamband Íslands og Fé-
lag íslenskra bókaútgefenda hafa átt í
viðræðum um viðauka við útgáfu-
samninga sem á að ná yfir afsal rétt-
inda til þriðja aðila, eins og til dæmis
Storytel. Kristín Helga segir viðræð-
um ekki lokið. Höfundar sem ekki
vissu af sínu eftir inni á Storytel hafi
getað afturkallað það í gegnum sína
útgefendur.
Forlagið með nýtt hljóðbókaapp
Hljóðbækurnar á tilboðsverði út maímánuð Ekki sömu vandamál við uppgjör og hjá áskriftarveitum
Getty Images/iStockphoto
Þægindi Sífellt fleiri velja að hlusta á bækurnar í stað þess að lesa.
„Þetta gekk mjög vel og það var
ótrúlega skemmtilegt að sjá hvað
var margt fólk og gott veður,“ segir
Hildur Magnúsdóttir, doktorsnemi
við Líf- og umhverfisvísindadeild
Háskóla Íslands, í samtali við Morg-
unblaðið, en hún leiddi fjöruferð í
Gróttu sl. laugardag.
„Við fundum fullt af litlum kuð-
ungakröbbum. Það var einna helst
það sem heillaði, svo fundum við
sprettfiska og marhnút. Þarna er
mikið lífríki,“ segir Hildur. Hún seg-
ir börnin hafa verið mjög spennt yfir
þessu öllu saman og að þau hafi ver-
ið dugleg að koma til hennar og
spyrja spurninga.
Hildur fræddi unga sem aldna um
lífríkið í fjörunni í Gróttu á Seltjarn-
arnesi, en segja má að þetta hafi ver-
ið síðustu forvöð til að skoða sig um
á svæðinu þar sem varptími er í
nánd. Verður svæðinu því lokað fyr-
ir mannaumferð frá 1. maí og fram í
miðjan júlí.
Ferðin er í röðinni „Með fróðleik í
fararnesti“ sem hófst á aldarafmæli
Háskóla Íslands árið 2011 en hefur
verið haldið áfram með fullum þrótti
vegna vaxandi vinsælda. Um er að
ræða samstarfsverkefni Háskóla Ís-
lands og Ferðafélags Íslands og er
áherslan á að uppfræða börn og
ungmenni. thorgerdur@mbl.is
Kuðungakrabbar
heilluðu krakkana
Lífríki fjörunnar í Gróttu spennandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fararnesti Gestir fjöruferðarinnar voru hvattir til þess að mæta í stígvélum og jafnvel með fötu og skóflu.