Morgunblaðið - 30.04.2018, Síða 14
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þegar rýnt er í nýbirtan ársreikning
Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss
ohf. má finna ýmis merki þess að um-
skipti eigi sér stað í rekstrinum.
„Það eru skýrar vísbendingar um að
þær aðgerðir sem við réðumst í um
mitt síðasta ár séu að skila árangri,“
segir Svanhildur Konráðsdóttir sem
tók við forstjórastarfinu fyrir réttu
ári. „Við höfum velt við hverjum
steini til að reyna að koma böndum á
kostnaðinn og bæta reksturinn.
Verður samt að fara varlega þegar
dregnar eru ályktanir af ársreikn-
ingnum því starfsemi af þessu tagi
getur verið mjög sveiflukennd og má
ekki mikið út af að bera.“
Vakið hefur athygli að í fyrra var
EBITDA Hörpu jákvæð í fyrsta
skipti frá opnun hússins en það skýr-
ist þó einkum af 450 miljóna króna
viðbótarframlagi ríkis og borgar til
félagsins. Aðspurð hvort hún sjái
fyrir sér að starfsemi Hörpu muni
einn daginn geta staðið undir sér án
meðgjafar frá hinu opinbera, segir
Svanhildur það ólíklegt ef miðað er
við óbreytt rekstrarmódel þar sem
fasteignin er inni: „Hins vegar ger-
um við allt sem í okkar valdi stendur
til þess að félagið sé rekið á sem hag-
kvæmastan hátt. Raunveruleikinn er
samt sá að útleiga á sölum og menn-
ingarrekstur eru ekki svo arðbær
starfsemi, ef horft er bara í krónur
og aura, að hún geti staðið undir því
að reka þessa dýru fasteign. Svo seg-
ir það sig líka sjálft að við getum ekki
hækkað verðskrána upp úr öllu valdi
því það myndi hvorki ferðaþjónustan
og því síður tónlistin þola,“ segir
hún. „Í mínum huga snýst þetta líka
um það að meta hvers konar menn-
ingarleg, efnahagsleg og samfélags-
leg verðmæti við erum að fá fyrir þá
fjármuni sem settir eru í reksturinn.
Raunar þekki ég ekkert einasta sam-
bærilegt hús erlendis sem þjónar
sama hlutverki og er rekið án opin-
bers stuðnings.“
Afskriftir bjaga myndina
Eigið fé samstæðunnar var nei-
kvætt á síðasta ári og segir í árs-
reikningi að þrátt fyrir batnandi
rekstur sé fyrirsjáanlegt að eigið fé
muni verða sífellt neikvæðara, eink-
um vegna verðbótahækkunar lána,
hárra afskrifta og fjármagnskostn-
aðar. Svanhildur segir áhyggjuefni
að eigið fé Hörpu sé neikvætt, en ef
að er gáð er fyrst og fremst um bók-
haldslegt atriði að ræða sem þurfi,
strangt til tekið, ekki að hafa áhrif á
daglegan rekstur félagsins. „Við
þurfum náttúrlega að afskrifa hluta
af verðmæti hússins ár hvert. Af-
skriftirnar eru gríðarlega háar og
námu rúmlega 340 milljónum á síð-
asta rekstrarári. Við bætist fjár-
magnskostnaður vegna lántöku sem
ráðist var í til að fjármagna bygg-
ingu hússins og kaup á búnaði. Sam-
an þurrkar þetta upp eigið fé Hörpu
en þeir fjármunir sem eigendur
Hörpu, ríki og borg, greiða árlega til
endurgreiðslu á stofnkostnaðinum,
vega á móti háum afskriftum og fjár-
magnskostnaði. Þessi framlög eig-
enda koma ekki inn í rekstur Hörpu
en renna í raun beint í það að kaupa
húsið á 35 ára afborgunum. Það var
sú leið sem farin var þegar ríki og
borg tóku verkefnið yfir eftir hrun
og koma þessar gríðarlegu stærðir
inn í reikninga Hörpu. Þetta hefur
iðulega gert myndina af sjálfum
rekstrinum og starfseminni sem fer
fram í húsinu villandi. Við erum í
mjög góðu samtali við eigendur um
að endurskoða þetta módel og koma
rekstrinum þar með á heilbrigðari
grunn.“
Bættu vinnufyrirkomulagið
Að þessu sögðu er margt jákvætt í
síðasta ársreikningi félagsins. Til
dæmis stendur launakostnaður í
stað á milli ára þrátt fyrir almennar
launahækkanir um 8% en stöðugild-
um var fækkað um tvö á milli ára.
„Við erum að endurskoða rækilega
skipulagið hjá okkur og m.a. fyrir-
komulag vinnunnar til að nýta sem
best það sem við höfum úr að spila,“
segir Svanhildur.
Einnig var sparað í húsnæðis-
kostnaði, sem vegur þungt í rekstr-
inum. Munaði þar mest um frestun á
viðhaldi og segir Svanhildur að nú
þurfi að taka á þeim málum af festu
og eigendur að „horfast í augu við
nauðsynlega viðhaldsþörf á þessu
verðmæta húsi sem þjóðin á. Húsið
verður sjö ára núna í maí og er í fínu
standi þótt auðvitað sé farið að sjá á
ýmsu innanstokks eftir allan þann
fjölda sem heimsækir húsið á ári
hverju,“ segir hún en áréttar að
nauðsynlegt hafi verið að stíga fast á
bremsuna á þessu sviði eins og
mörgum öðrum.
Svanhildur er vongóð um að rekst-
ur Hörpu muni geta haldið áfram á
sömu braut. „Við munum gera okkar
besta og sjáum fram á að nánasta
umhverfi Hörpu muni breytast mik-
ið á næstunni sem skapar örugglega
jákvæð samlegðaráhrif, t.a.m. þegar
nýtt og glæsilegt hótel verður opnað
við hlið hússins.“
„Ekkert sambærilegt hús
rekið án opinbers stuðnings“
Tölur Svanhildur segir neikvætt eigið fé ekki snerta daglegan rekstur.
Háar afskriftir af húsinu og fjármagnskostnaður þurrka upp eigið fé Hörpu
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
30. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 101.16 101.64 101.4
Sterlingspund 139.42 140.1 139.76
Kanadadalur 78.52 78.98 78.75
Dönsk króna 16.408 16.504 16.456
Norsk króna 12.64 12.714 12.677
Sænsk króna 11.612 11.68 11.646
Svissn. franki 102.13 102.71 102.42
Japanskt jen 0.9247 0.9301 0.9274
SDR 145.37 146.23 145.8
Evra 122.26 122.94 122.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.9892
Hrávöruverð
Gull 1317.7 ($/únsa)
Ál 2203.5 ($/tonn) LME
Hráolía 74.72 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Saudi Aramco,
ríkisolíufélag
Sádi-Arabíu, hef-
ur valið fimm
nýja meðlimi í
stjórn félagsins,
og þar af eina
konu. Lynn La-
verty Elsenhans,
fyrrverandi
stjórnarformaður og forstjóri
bandaríska olíuhreinsunarfyrir-
tækisins Sunoco, mun taka sæti í
stjórninni ásamt Peter Cella, fyrr-
verandi forstjóra Chevron Phillips
Chemical, og Andrew Liveris,
stjórnanda DowDuPont. Að auki
koma inn í stjórnina Mohammed al-
Jaddaan, fjármálaráðherra Sádi-
Arabíu, og viðskiptaráðherrann
Mohammed al-Tuwaijri. Sex aðrir
stjórnarmeðlimir halda sætum sín-
um, að sögn Reuters. ai@mbl.is
Fyrsta konan
tekur sæti í
stjórn Aramco
Viðræður eru langt á veg komnar um
að matvöruverslanakeðjan Sains-
bury‘s kaupi rekstur Asda af banda-
ríska verslanarisanum Walmart.
Reuters greinir frá þessu og hefur
eftir heimildarmanni að ef kaupin
gangi eftir verði verslanir Asda
reknar undir merkjum Sainsbury‘s.
Mike Coupe, forstjóri Sainsbury‘s,
myndi stýra hinu sameinaða fyrir-
tæki en hann vann á sínum tíma hjá
Asda og ætti því að vera þar öllum
hnútum kunnugur.
Sainsbury‘s og Asda eru í dag 2.
og 3. stærstu matvöruverslanakeðj-
ur Bretlands á eftir Tesco en ef fyr-
irtækin sameinast myndi það velta
Tesco úr toppsætinu. Samanlagt er
rekstur Sainsbury‘s og Asda metinn
á um 15 milljarða punda, jafnvirði
nærri 2.090 milljarða króna.
Stærsti hluthafi Sainsbury‘s, Qat-
ar Investment Authority, þjóðarfjár-
festingasjóður Katar, á 22% hlut í
verslanakeðjunni og hefur lýst yfir
stuðningi sínum við fyrirhugaðan
samruna. Heimildarmenn Reuters
vænta mikilla samlegðaráhrifa af
sameiningu Sainsbury‘s og Asda, og
telja að það myndi hjálpa þeim að
bregðast betur við harðri samkeppni
frá þýsku lágverðsverslununum Aldi
og Lidl, sem og anna betur eftir-
spurn neytenda eftir því að fá mat-
inn sendan heim að dyrum.
ai@mbl.is
AFP
Slagur Samkeppnin á breskum matvörumarkaði hefur harðnað mikið.
Sainsbury‘s
vill kaupa Asda
Yrði stærsta matvörukeðja Bretlands