Morgunblaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 23
hann lést 1998 og hefur síðan staðið fyrir búinu ásamt fjölskyldu sinni. Guðbrandur sat í sveitarstjórn Hraunhrepps 1978-90 og var þá oddviti hreppsnefndar og sat í bæjarstjórn Borgarbyggðar 1998- 2002. Hann var formaður Bún- aðarsambands Borgarfjarðar 1993- 98, hefur setið í stjórn Veiðifélags Álftár á Mýrum frá 1976, hefur starfað mikið í Svínaræktarfélagi Íslands frá um 1980 og sat þar í stjórn og félagsráði um árabil. Guðbrandur var gjaldkeri Skóg- ræktarfélags Borgarfjarðar frá 1989 til 2009, í stjórn Skógræktar- félags Íslands frá 2002, hefur setið í stjórn Landgræðslusjóðs og verið formaður hans frá 2003. Ég er fæddur með skógræktaráhuga, fékk hann með móðurmjólkinni en móðir mín var mikil rækt- unarkona.“ Guðbrandur hefur verið stjórnar- formaður Minningarsjóðs Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárð- arson frá 2010. Hann starfaði í Al- þýðubandalaginu um skeið og hefur sinnt trúnaðarstörfum á vegum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Fjölskylda Eiginkona Guðbrands er Snjó- laug Guðmundsdóttir, f. 14.11. 1945, veflistakona. Hún er dóttir Guðmundar Bárðarsonar vélstjóra og Margrétar Ingibjargar Bjarna- dóttur vefnaðarkennara. Synir Guðbrands og Snjólaugar eru 1) Brynjúlfur Steinar, f. 27.2. 1973, bóndi á Brúarlandi, en kona hans er Theresa Vilstrup Olesen og eiga þau eina dóttur, Dóru Karól- ínu; 2) Guðmundur Ingi, f. 28.3. 1977, líffræðingur og umhverf- isstjórnunarfræðingur, nú um- hverfis- og auðlindaráðherra í rík- isstjórn Íslands. Systkini Guðbrands: Helga, f. 20.10. 1936, húsmóðir í Reykjavík, var gift Borge Jónssyni sem er lát- inn og eiga þau tvær dætur; Ólöf, f. 7.6. 1938, húsfreyja í Haukatungu, var gift Páli Sigurbergssyni sem er látinn og eiga þau sex börn; Ragn- heiður Hrönn, f. 2.8. 1939, fv. bankastarfsmaður í Borgarnesi, gift Hauki Arinbjarnarsyni og eiga þau fjögur börn; Eiríkur Ágúst, f. 15.1. 1942, d. 25.5. 1998, bóndi á Brúarlandi; Halldór, f. 20.6. 1943, d. 18.10. 2007, bifreiðastjóri í Borg- arnesi. Kona hans var Ásta Sigurð- ardóttir, sem einnig er látin, og eignuðust þau þrjú börn en tvö eru á lífi; Brynjólfur, f. 25.3. 1945, d. 6.9. 2016, bifvélavirki í Kópavogi, var kvæntur Fanneyju Ein- arsdóttur og eiga þau þrjá syni; Guðmundur Þór, f. 12.12. 1950, pípulagningameistari og starfs- maður Orkuveitu Reykjavíkur í Borgarnesi, kvæntur Ásdísi Bald- vinsdóttur og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Guðbrands voru Brynjúlfur Eiríkssonar, f. 21.12. 1910, d. 12.1. 1976, bóndi og bifreið- arstjóri á Brúarlandi í Hraun- hreppi á Mýrum, og Halldóra Guð- brandsdóttir, f. 15.5. 1911, d. 7.12. 2000, húsfreyja. Guðbrandur verð- ur að heiman á afmælisdaginn. Guðbrandur Brynjúlfsson Guðrún Andrésdóttir húsfr., frá Seljum á Mýrum Gils Sigurðsson b. í Krossnesi á Mýrum Ólöf Gilsdóttir húsfr. á Hrafnkelsstöðum Guðbrandur Sigurðsson b. á Hrafnkelsstöðum Halldóra Guðbrandsdóttir húsfr. á Brúarlandi í Hraunhr.,Mýr. Halldóra Jónsdóttir húsfr., f. á Kirkjubóli í Hvítársíðu Sigurður Brandsson b. á Miðhúsum á Mýrum Stefanía Guðbrandsdóttir húsfr. í Borgarnesi Pétur Geirsson hóteleigandi í Borgarnesi Sigurður Guðbrands- son mjólkur- bússtjóri í Borgarnesi Ólöf Sigurðar- dóttir húsfr. í Garðabæ Ólöf Rún Skúladóttir fv. fjölmiðlakona Þórður Eiríksson b. í Hömrum í Hraunhr., síðast bús. í Rvík uðmundur Þórðarson b. í Álftártungukoti GHólmfríður Þórdísuðmundsdóttir húsfr. á Urriðaá á Mýrum GGuðrún Sigurðardóttirb. á Leirulæk á Mýrum Hólmfríður Sigurðardóttir húsfr., f. á Hítardalsvöllum Þórður Sigurðsson b. í Skíðsholtum og á Hrafnkelsstöðum Helga Þórðardóttir húsfr. á Hamraendum Eiríkur Ágúst Jóhannesson b. á Hamraendum,Hraunhr. Ingibjörg Runólfsdóttir húsfr., frá Höll í Þverárhlíð Jóhannes Guðmundsson b. á Hrafnkelsstöðum,Hraunhr. Úr frændgarði Guðbrands Brynjúlfssonar Brynjúlfur Eiríksson b. og bifreiðarstjóri á Brúarlandi Smári Kristjánsson hljómlistamaður á Selfossi Ása Eiríksdóttir húsfr. í Reykjavík Við Álftá Guðbrandur, Snjólaug og barnabarn þeirra, Dóra Karólína. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018 Bragð af vináttu • Hágæða gæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. 95 ára Ástráður I.H. Björnsson 90 ára Ólafur Magnússon Sigrún Magnúsdóttir 85 ára Olav F. Ellerup 80 ára Björg Þórðardóttir Erlingur Ólafsson Stella J. Þorvaldsdóttir 75 ára Ásta Gísladóttir Ellen Huldís Ólafsdóttir Leif Lykke Mikkelsen Lilja Ingibjörg Jóhannsdóttir Zygmunt Pawlik 70 ára Ágúst Guðmundsson Benedikt Ólafsson Fjóla Hafdís Kristjánsdóttir Guðbrandur Brynjúlfsson Helga Guðmundsdóttir Jónína Haraldsdóttir Karl Magnús Kristjánsson Sigmundur Sigurðsson Sigurberg Ólafsson Þórður M. Sigurðsson 60 ára Elín Guðjónsdóttir Elín Guðmundsdóttir Friðrik Valgeir Guðmundsson Guðbjörn Sigvaldason Halldóra Björnsdóttir Hringur Sigurðsson Jón Ebbi Halldórsson Jón Ólafsson Jón Þór Þorgrímsson Pétur Stefán Bjarnason Rafn Sigurgeir Sigurðsson Sigfús Jón Helgason Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir Sigurður Karl Karlsson Þórey Birna Ásgeirsdóttir 50 ára Baldur Magni Bragason Berglind Soffía Björnsdóttir Gunnar Ólafur Haraldsson Helena Þ. Bergmann Hildur Ágústa Ólafsdóttir Jón Aðalsteinn Brynjólfsson Jón Garðar Guðmundsson Jón Karlsson Jón Þór Friðgeirsson Katrín Heiðar Ólafur Sigvaldason Sigfríður Sigurjónsdóttir 40 ára Arkadiusz Pawel Grzelczak Benedikt Sigurbjörnsson Birna Hlín Káradóttir Gunnlaugur Þorgeirsson Halla Stefánsdóttir Ingunn Eir Eyjólfsdóttir Marta Belecciu Narong Wisetrit Natalia Yukhnovskaya Sasa Stegnjaic 30 ára Alexandra-Elena Brasoveanu Benedikt Valsson Erna Karen Þórarinsdóttir Haukur Heimisson Jón Benediktsson Noe Angel Platas Perez Sveindís Ósk Ólafsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Ingunn býr á Akur- eyri og er félagsráðgjafi á Öldrunarheimili Akureyrar. Maki: Jón Arnar Emilsson, f. 1977, vélstjóri hjá Lands- virkjun. Börn: Viktor Bjarkar, f. 2008, Egill Örn, f. 2010, og Katrín Sara, f. 2015. Foreldrar: Eyjólfur Finns- son, f. 1957, bóndi á Una- læk á Fljótsdalshéraði, og Guðný Erla Guðmunds- dóttir, f. 1954, píanókenn- ari á Akureyri. Ingunn Eir Eyjólfsdóttir 30 ára Haukur ólst upp í Breiðholti en býr í Kópa- vogi. Hann smíðar sjókví- ar fyrir laxeldi hjá fyrir- tækinu PVA. Systkini: Baldur Búi, Hilmir Freyr, Ásta Lovísa Heimisbörn, og Elín Alex- andra og Tristan Snær Björnsbörn. Foreldrar: Heimir Guð- jónsson, f. 1969, fótbolta- þjálfari í Færeyjum, og Guðrún Rósa Hauksdóttir, f. 1969, bús. í Rvík. Haukur Heimisson 30 ára Jón er Reykvík- ingur, er með BS í hug- búnaðarverkfræði og starfar við ráðgjöf hjá Talnakönnun. Maki: Þórunn Elísabet Bogadóttir, f. 1986, kynn- ingarstjóri hjá Veröld – húsi Vigdísar. Foreldrar: Benedikt Jó- hannesson, f. 1955, stærðfræðingur, og Vigdís Jónsdóttir, f. 1955, að- stoðarskrifstofustjóri Al- þingis, búsett í Reykjavík. Jón Benediktsson  Daniel Juncu hefur varið doktors- ritgerð sína í jarðeðlisfræði við Há- skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Jarðskorpuhreyfingar á jarðhita- svæðum: Rannsóknir á Hengils- svæðinu með gervitunglamælingum. Leiðbeinandi var dr. Þóra Árnadóttir, vísindamaður á Jarðvísindastofnun Háskólans. Doktorsverkefnið fjallar um jarð- skorpuhreyfingar og líkangerð á Hengilssvæðinu, sér í lagi á vinnslu- svæðum fyrir virkjanirnar tvær: Hellisheiði og Nesjavelli. Landmæl- ingar með gervitunglum (GPS og radarmælingar) á tímabilinu 2012- 2015, sýna hreyfingar á stóru svæði vegna landreks og sig í austurhluta Hengilssvæðisins. Eftir að leiðrétt hefur verið fyrir landreki þá sýnir lík- angerð að staðbundið sig á vinnslu- svæðum við Hellisheiði og Nesjavelli sé í samræmi við mælingar á þrýst- ingslækkun í jarðhitageymunum. Í öðrum kafla ritgerðarinnar er greint frá landrisi sem mælist við Húsmúla á tímabilinu 2011-2012. Landrisið hófst á sama tíma og niðurdæling á jarðhitavökva og aukinnar smá- skjálftavirkni varð vart í september 2011. Líkangerð á landmælingunum bendir til að hreyfingarnar (landris og þensla) og jarð- skjálftavirknina megi skýra með auknum poru- þrýstingi í berg- inu þar sem jarðhitavökvanum er dælt niður. Þriðji kafli ritgerðarinnar kannar tengsl jarðskorpuhreyfinga við magn jarðhitavökva sem dælt er upp úr jarðhitasvæðum. Oftast er gert ráð fyrir að mat á rúmmáls- breytingum með líkangerð á jarðskorpuhreyfingum samsvari magni af jarðhitavökva sem tekið er úr kerfinu og mismun megi skýra með flæði vökva inn í kerfið. Sam- anburður mælinga á þremur hita- svæðum sýndi allt að tífaldan mun á rúmmáli, sem metinn er út frá jarð- skorpuhreyfingum, og rúmmáli/ massa vökvans, sem tekinn er upp. Við teljum að þennan mun megi skýra með ástandi jarðhitavökvans á hverju svæði þ.e. hve stórt hlutfall er vökvi og hve mikið er gufa. Daniel Juncu Daniel Juncu er fæddur í borginni Mflheim an der Ruhr í Þýskalandi árið 1987. Hann lauk BS-prófi í jarðvísindum frá RWTH Aachen í Þýskalandi árið 2010 og mastersnámi í jarðvísindum frá ETH Zürich í Sviss, árið 2012. Daniel hóf nám í jarðeðlisfræði við jarðvísindadeild Háskóla Íslands haustið 2013. Auk doktors- námsins hefur Daniel tekið nokkur námskeið í íslensku fyrir útlendinga. Daniel starfar núna sem nýdoktor við Jarðvísindastofnun Háskólans. Doktor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.