Morgunblaðið - 30.04.2018, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú áleist þig vita hvernig þú vilt láta
koma fram við þig, en ert ekki alveg viss.
En þú kemur málunum á hreint með lagni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert fær í flestan sjó svo þér er
óhætt að vera stórtækur. Þú vinnur ótrúlega
vel með þeim sem eru jafn skipulagðir og
þú.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að sýna samstarfsfólki
þínu þolinmæði og gættu þess að segja
ekkert í fljótfærni sem þú munt sjá eftir síð-
ar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of
með þín mál. Óvæntur gestur veitir þér nýja
sýn á mál sem þú hefur lengi verið að glíma
við.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt öðrum þyki ekki mikið til þess
koma sem þú hefur fram að færa, þá skalt
þú halda þínu striki. Sá sem segir fátt kjaft-
ar ekki af sér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér býðst einstakt tækifæri sem
freistar þín svo þú skalt leggja þig allan
fram um að grípa það. Hvers kyns peninga-
viðræður ganga að líkindum að óskum og
koma þér til góða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir fengið það á tilfinninguna að
einhver sé að fara á bak við þig. Allir þurfa
endrum og eins að fá að vera óþekkir, og
nú er þinn tími kominn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gerir miklar kröfur til sjálfs
þín og annarra og setur sjálfum þér oft
ströng skilyrði. Orkan sem þú leggur í það
sem þú fæst við er líf þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú skalt forðast það í lengstu
lög að viðra þær skoðanir þínar sem kunna
að stangast á við stefnu yfirmanna þinna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir lent í erfiðum sam-
skiptum við fólk í valdastöðum í dag. Vertu
raunsær með væntingar þínar og áttaðu þig
á því að hin manneskjan hefur líka sínar
væntingar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert glaðlyndur og öll sam-
skipti ganga vel bæði í starfi og einkalífi.
Notaðu næstu fjórar vikurnar til að rækta
nánustu sambönd þín og bæta það sem
betur má fara.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Allir eru að reyna að sanna að þeir
hafi rétt fyrir sér. Það þýðir ekkert annað en
sækja málin af festu og láta hvergi deigan
síga þótt eitthvað blási á móti.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir áBoðnarmiði hringhendu um
kvennamann og skautakappa:
Ástarbrautin oft er hál,
ýmsa hlaut því skelli,
er hann þaut með eld í sál
á því skautasvelli.
Gunnar J. Straumland orti á
miðvikudag:
Við tíðinni mér hugur hrýs,
hér er ekki laust við
sorgir þegar saman frýs
svikavor og haustið.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
sagði hið sjálfsagða: „Tíðina tem-
ur enginn, og ekki þú og ég“ og
orti:
Batnar tíð og bregst nú við
berst nú vor að hausti.
Bátar hverfa á betra svið
en byrgjast ekki í nausti.
Magnús Halldórsson kvað:
Alveg rakin eðaltíð,
yljar geði manna,
vorið milt og veður blíð,
vekja gleði sanna.
Og að síðustu orti Friðrik Erl-
ingsson:
Freðinn er í fönninni
farið traustið.
Þetta vorið bar að brátt
bölvað haustið.
Þórarinn M. Baldursson talar
um „vorkvöld í Vesturbænum“:
Aftansól á sundin skín,
sær við Skjólin merlar.
Skáldvatnsbólin menga mín
melankólígerlar.
Ármann Þorgrímsson skrifaði í
Leirinn fyrir viku: „Samkvæmt
fréttum á móðurfyrirtækið 20
milljarða, skuldar 30 milljarða, er
að fjárfesta upp á 22 milljarða og
gæti þurft að auka það um 40
milljarða vegna laga um yfirtöku.
Þetta kalla ég fjármálasnilld.
Leikur að kvóta og leikur oft grátt
leikur að annarra krónum,
spilar oft mikið og spilar þá hátt
og spilar sig oft upp úr skónum.“
Ólöf Andrésdóttir orti:
Ennþá hafa örlögin
á mig smokkað belju-klafa.
Skyldi ég aldrei skerfinn minn
af skítverkunum fengið hafa?
Og að lokum „Meyjargrátur“:
Hvenær skyldi hlotnast mér að heita
kona?
Ætli ég verði alltaf svona?
Ónei, – ég skal biðja og vona!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um ástir, tíðarfarið
og fjármálasnsilld
„ÞÚ ERT SÁ SEM SELDI MÉR
ALLSHERJARFJARSTÝRINGUNA.“
„ÍMYNDAÐU ÞÉR BARA AÐ ÞÚ SVÍFIR
NIÐUR GANGSTÉTTINA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða í rigningunni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HEFURÐU PRÓFAÐ AÐ
GERA MAGA ÆFINGAR?
ÞAÐ VERÐUR
SLANGA Í MATINN!
ÆTLI ÞAÐ SÉ SATT AÐ SNÁKAR
BRAGÐIST EINS OG
KJÚKLINGAR?
ÞESSI GERIR ÞAÐ!
BVAA BVAA
Á Degi bókarinnar sem var í síð-ustu viku, 23. apríl, sem einnig er
fæðingardagur Halldórs Kiljan Lax-
ness, fór af stað umræða á félags-
miðlum hvort einhver læsi lengur
bækur Nóbelsskáldsins. Í stuttu mál
sagt var niðurstaðan af rabbi fólks sú
að verk þessa mesta rithöfundar Ís-
lendinga á síðari tímum virðast eiga
mjög undir högg að sækja. Þau þykja
vera tyrfin svo sem mállýskan, sögu-
þráðurinn flókinn og aðstæður þann-
ig að nýjar kynslóðir tengja sig ekki
við umhverfið, enda gerast sögurnar í
löngu horfinni veröld.
x x x
Sjálfsagt er þetta allt satt og rétt ogmjög skiljanlegt; lesendur þurfa
oft að þekkja býsna vel til sögu og
samfélags fyrri tíma til þess að bók-
staflega skilja hvað Laxnes á við.
Flestar þær bækur skáldsins sem
mesta athygli vöktu komu líka út fyr-
ir 1950. Hitt vitum við þó að sumar
setningar úr bókum skáldsins og
sögupersónur eru enn á sveimi og eru
allt að því ljóslifandi. En svo er líka
rétt að spyrja hvort það séu ekki ör-
lög flestra rithöfunda að verk þeirra
að gleymast. Eða hver les lengur
Guðmund G. Hagalín, Kristmann
Guðmundsson eða Guðmund Daní-
elsson svo einhverjir séu nefndir.
Sennilega er Guðrún frá Lundi sá
höfundur íslenskur frá fyrri tíð sem
helst er veitt athygli í dag.
x x x
Þar sem Víkverji kemur á bæi brýstfram í honum sú venja að renna
augum yfir hillurnar í stofunni, enda
segir bókakosturinn mikið um hús-
ráðendur svo sem áhugamál þeirra og
stjórnmálaskoðanir. Er þjóðráð að
brydda upp á umræðuefnum í sam-
ræmi við bókakostinn. Nú virðist
hinsvegar sem íslenska heim-
ilisbókasafnið, sem oft voru kannski
500-1000 bækur, sé mjög á und-
anhaldi. Söfn þessi eru ekki til lengur
að minnsta kosti á heimilum ungs
fólki sem almennt lætur sig lestur og
bókmenntir litlu skipta. Vandinn felst
þess vegna ekki í því hvort Laxness
er dottinn úr tísku, heldur bókmennt-
irnar almennt. Og þar þarf vitund-
arvakningu og breytingu því lestur er
bestur og opnar nýja heima.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að hvar sem tveir eða þrír eru
saman komnir í mínu nafni þar er ég
mitt á meðal þeirra.
(Matt: 18.20)