Morgunblaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Álið verður aftur nýtt 2018 | Ársfundur Samáls Dagskrá: 8:00 Morgunverður 8:30 Ársfundur Ragnar Guðmundsson, stjórnarformaður Samáls Staða og framtíð íslensks áliðnaðar Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðarráðherra Ávarp Justin Hughes frá alþjóðlega greiningarfyrirtækinu CRU Horfur í áliðnaði á heimsvísu Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri hjá Gámaþjónustunni Tækifæri í endurvinnslu- málum á Íslandi Olga Ósk Ellertsdóttir og Studio Portland Nytjahlutir verða til úr áli í sprittkertum Kerti verður til Nemendahópur úr Verzlunarskóla Íslands Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls Ál og fiskur 10:00 Kaffispjall að loknum fundi Ársfundur Samáls verður haldinn í Kaldalóni í Hörpu 16. maí undir yfirskriftinni Álið verður aftur nýtt. Fjallað verður um stöðu og horfur í áliðnaði á Íslandi og á heimsvísu. Rýnt er í tækifæri til að gera betur í söfnun, flokkun og endurvinnslu áls. Sýningin #Endurvinnumálið verður sett upp og fulltrúar hönnunarteyma segja frá gerð nytjahluta úr áli í tilefni af endurvinnslu- átaki áls í sprittkertum. Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffi og veitingar. Fundarstjóri er Bjarni Már Gylfason. Skráning fer fram á vefsvæði Samáls: www.samal.is. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta gerir okkur kleift að pakka laxinum í kassa við einnar gráðu frost árið um kring. Með því tryggj- um við mestu mögulegu gæði og fiskurinn fær 3-5 daga auka- geymsluþol,“ segir Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Fisk- eldis Austfjarða. Búlandstindur á Djúpavogi sem slátrar og pakkar laxinum fyrir fyrirtækið hefur tekið í notkun nýtt kerfi, svokallað ofur- kælikerfi, við slátrun á laxi. Kerfið er hannað af fyrirtækinu Skaginn 3X. Það afkastar allt að 13 tonnum á sólarhring. Ekki þarf að setja nema lítið af ís í kassana til kælingar við útflutning. Það sparar flutningskostnað og umbúðirnar nýtast betur. Þá er það mikilvægt að ofurkælingin lengir geymsluþol fisksins. Guðmundur segir að það komi sér vel vegna þess að Ísland er lengra frá mörkuðum en helstu sam- keppnislönd. Slátra fyrir bæði fyrirtækin Laxar fiskeldi sem er að byggja upp laxeldi í Reyðarfirði og víðar á Austfjörðum hefur keypt þriðjungs- hlut í Búlandstindi á móti Fiskeldi Austfjarða og hlutafélagi heima- manna. Búlandstindur mun slátra fyrir bæði fyrirtækin og mun nýja kerfið auðvelda það. „Þetta gengur mjög vel. Við erum að slátra um 100 tonnum á viku. Markaðir eru einstaklega góðir, hátt verð og mikil eftirspurn,“ segir Guð- mundur. Fiskeldið hefur mikil áhrif í Djúpavogshreppi. Um 40 starfs- menn eru hjá Búlandstindi og 20 við sjókvíaeldi Fiskeldis Austfjarða þannig að bein störf við eldið eru 60 í um 460 manna sveitarfélagi. Bæði fiskeldisfyrirtækin eru í stækkunarferli og bíða eftir nýjum leyfum. Fiskeldi Austfjarða hefur leyfi fyrir eldi á 11 þúsund tonnum í Berufirði og Fáskrúðsfirði og hefur sótt um stækkun í báðum fjörðunum og nýtt eldissvæði í Stöðvarfirði. Ofurkæling á laxi við slátrun á Djúpavogi  60 starfa við fiskeldi, slátrun og pökkun á Djúpavogi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Búlandstindur Unnið við snyrtingu á regnbogasilungi í frystihúsi Búlands- tinds á síðasta ári. Nýja kerfið nýtist við laxaslátrun sem nú er í gangi. Maður, sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot í starfi sínu sem botsíaþjálfari á Akureyri neitaði al- farið sök þegar mál hans var þing- fest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gærmorgun. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa haft samræði og önnur kyn- ferðismök við þroskaskerta konu í fjölda skipta á tímabilinu frá því í júní 2014 og fram í júní 2015. Nýtti sér yfirburði sína Dómstóllinn hefur gert hluta ákærunnar aðgengilegan en réttar- hald í málinu er lokað. Er maðurinn sagður hafa nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart konunni, sem er með þroskahömlun og „gat því ekki skilið þýðingu verknaðar- ins“, að því er fram kemur í ákæru. Segir í ákærunni að manninum hafi verið kunnugt um fötlun kon- unnar vegna tengsla sinnar við hana sem þjálfari. Þá hafi hann útvegað henni hús- næði og bíl í janúar 2015 og hafi nýtt sér trúnað hennar í sinn garð. Aukinheldur hafi hann gerst per- sónulegur talsmaður hennar í maí 2015. Er þess krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar, en einnig er lögð fram einkaréttarkrafa fyrir hönd konunnar. Er þess krafist þar að hann greiði henni tvær milljónir króna í miskabætur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þingfesting Maðurinn, sem er ákærður, kemur í Héraðsdóm Norðurlands eystra á Akureyri. Hann neitar sök í málinu, sem þingfest var í gær. Ákærður fyrir brot í starfi þjálfara  Neitaði sök fyrir héraðsdómi í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.