Morgunblaðið - 15.05.2018, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Flytur lögheimilið
2. Allt að 35% hækkun bílverðs
3. Fjandsamleg yfirtaka
4. Birkir bjargaði hjónabandinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ný kvikmynd Benedikts Erlings-
sonar, Kona fer í stríð, er nú sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Cannes og fær
ágæta dóma. Gagnrýnandi The Guard-
ian lofar mjög frammistöðu leikkon-
unnar Halldóru Geirharðsdóttur, sem
leikur kórstjóra sem á í stríði gegn
orkufyrirtækjum. Leikstjórn Benedikts
er lofuð fyrir örugg tök á efniviðnum
og útlitinu hrósað en rýninum, sem
gefur myndinni þrjár stjörnur, þykir
hún nokkuð sérviskuleg. Rýnir Variety
er hrifinn, segir kvikmyndina nær full-
komið framhald fyrstu myndar Bene-
dikts, Hross í oss; þetta sé mannleg
kvikmynd sem hann spáir að verði ein
þeirra mynda á Cannes sem hvað
mest verði slegist um og verði hún
sýnd víða. Dómur Hollywood Reporter
er einnig lofsamlegur og Kona fer í
stríð sögð hafa „meiri tilfinningadýpt
og skýrari pólitíska undirtóna“ en fyrri
mynd Benedikts.
Rýnar ánægðir með
Kona fer í stríð
Þrívíddar tríóið kemur fram á tón-
leikum á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30.
Tríóið skipa Rögnvaldur Borgþórsson
á gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjóns-
son á kontrabassa og Magnús Trygva-
son Elíassen á trommur.
Leika þeir lög eftir Gate-
way-tríóið og frumsamið
efni eftir Rögnvald, auk
laga eftir Monk, Ell-
ington og
Ari Hoen-
ig. Að-
gangur er
ókeypis.
Þrívíddar tríóið á
Kex hosteli í kvöld
Á miðvikudag Suðvestan 5-10 m/s og rigning með köflum, en
léttskýjað norðaustantil á landinu. Hiti 5 til 10 stig.
Á fimmtudag Vaxandi sunnanátt með lítilsháttar vætu, en bjart-
viðri á Norður- og Austurlandi. Suðaustan 10-18 undir kvöld.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 8-13 og dálitlar skúrir eða slydduél,
norðlægari austanlands með rigningu á láglendi.
VEÐUR
„Það voru margir leikmenn
sem yfirgáfu félagið í lok tíma-
bilsins og þetta var allt saman
mjög skrítið og ég hef aldrei
upplifað svona lagað áður á
mínum ferli. Það er þess vegna
gaman að upplifa þessi um-
skipti hjá félaginu, það kemur
nýr þjálfari hérna inn með mik-
inn kraft og liðið er mjög sam-
stillt núna og með skýr mark-
mið,“ segir Glódís Perla
Viggósdóttir, sænskur bikar-
meistari í fótbolta. »2-3
Gaman að upplifa
þessi umskipti
Helgi Mikael Jónasson dæmdi fjórar
vítaspyrnur í bráðfjörugum leik
Stjörnunnar og Víkings R. í Garðabæ
í gærkvöld, þar sem liðin gerðu 3:3-
jafntefli í síðasta leik 3. umferðar
Pepsi-deildar karla í knattspyrnu.
Stjarnan komst þrívegis yfir í leikn-
um en Víkingar tryggðu sér stig með
marki seint í uppbótartíma, þegar
Hollendingurinn Rick ten Voorde
skoraði í annað sinn úr vítaspyrnu í
leiknum. Hilmar Árni
Halldórsson skoraði
úr báðum víta-
spyrnum
Stjörn-
unnar.
» 2
Fjórar vítaspyrnur í
Garðabæ í gærkvöld
„Í lyfjaprófuðum kraftlyftingum, sem
ég keppi í innan ÍSÍ, þá hafa bara tveir
aðrir menn í heiminum náð þessari
þyngd í réttstöðulyftu eftir að breyt-
ingar urðu á þyngdarflokkunum. Ann-
ar þeirra er í öðrum þyngdarflokki,“
segir Júlían J.K. Jóhannsson, Evrópu-
og heimsmeistari í réttstöðulyftu,
m.a. við Morgunblaðið en hann lyfti
400 kg í greininni. »1
Afrek á heims-
mælikvarða hjá Júlían
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Robert T. Kristjanson, fiskimaður á
Gimli, hefur stigið ölduna í 70 ár.
Um helgina var greint frá því að 12.
júlí næstkomandi fær hann æðstu
viðurkenningu
sem veitt er í
Manitoba, Mani-
tobaorðuna (the
Order of Mani-
toba), fyrir ævi-
starfið á Winni-
pegvatni og fyrir
að hafa staðið
vörð um mikil-
vægi fiskveiða
sem helsti tals-
maður fiski-
manna á svæðinu í áratugi.
„Hann á þetta skilið,“ segir lífs-
förunauturinn Sigurrós, sem hefur
staðið við hlið eiginmannsins í stríðu
sem blíðu. Enginn, sem til þekkir,
efast um orð hennar og viðurkenn-
ingar honum til handa eru til vitnis
um það. Á 79 ára afmæli hans, 2012,
var hann til dæmis sæmdur afmæl-
isorðu Elísabetar II. Englands-
drottningar (The Queen’s Diamond
Jubilee Medal) og ári síðar, á 80 ára
afmælinu 7. desember, heiðraði fylk-
isstjórn Manitoba hann fyrir meng-
unarvarnir í Winnipegvatni og bar-
áttu fyrir sjálfbærum veiðum.
Lætur vaða að sjómanna sið
Robert T., eða Bobby eins og
hann er gjarnan kallaður, hefur
lengi haft munninn fyrir neðan nefið
en tekur nýjustu fregnum af hóg-
værð. „Þetta er vissulega mikill
heiður og ekki aðeins fyrir mig held-
ur er þetta viðurkenning til allra
fiskimanna í Manitoba og ekki síst
hérna á Winnipegvatni,“ segir hann.
Bobby stóð ekki út úr hnefa þegar
hann byrjaði að veiða með Ted, föð-
ur sínum, á fimmta áratug liðinnar
aldar og hann er enn að. „Það er ró-
legt núna enda má ekki byrja að
veiða næst fyrr en um mánaða-
mótin,“ segir hann, greinilega
spenntur að komast aftur út á vatn-
ið, sem er í raun eins og haf. Það hef-
ur verið hans annað heimili eins
lengi og hann man eftir sér og jafn-
vel lengur en það.
Hann hefur ýmsa fjöruna sopið og
kallar ekki allt ömmu sína. Er lifandi
eftirmynd hins dæmigerða íslenska
sjómanns, sem lætur sér ekki allt
fyrir brjósti brenna. „Sérfræðing-
arnir innan gæsalappa hafa ekki allt-
af kunnað að meta það þegar ég hef
sagt þeim til syndanna en ég gefst
aldrei upp á því að verja starfið og
veiðina og satt best að segja held ég
að ég hafi komið einhverju áleiðis.
Það er þá til einhvers unnið.“
Fylkisstjóri Manitoba hefur veitt
Manitobaorðuna árlega frá árinu
1999. Henni var komið á laggirnar til
þess að verðlauna sérstaklega ein-
staklinga sem hafa staðið upp úr í
fylkinu og náð árangri á sínu sviði.
Bobby er sjöundi Kanadamaðurinn
af íslenskum ættum sem fær orðuna
en hinir eru Baldur R. Stefanson
(2000), John Harvard (2004), Neil
Bardal (2006), David Gislason
(2008), Guy Maddin (2009) og Dan
Johnson (2015). Núna verða 12 ein-
staklingar sæmdir orðunni en til
þessa hafa liðlega 200 manns fengið
hana.
Ánægður
Þó að hátt hafi heyrst í Bobby
undanfarin ár og töluvert borið á
honum í fjölmiðlum er greinilegt að
honum er annt um þessa viðurkenn-
ingu og ekki skemmir fyrir að fá til-
kynninguna skömmu fyrir íslenska
sjómannadaginn. „Janice Fil-
mon fylkisstjóri hringdi sjálf í
mig og tilkynnti mér ákvörð-
unina,“ segir Bobby. „Það þótti
mér vænt um.“
Fengsæll fiskimaður í 70 ár
Robert T. Kristjanson á Gimli fær æðstu viðurkenningu Manitoba í Kanada
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Á Winnipegvatni Robert T. Kristjanson hlustar eftir því hvar skriðillinn er undir ísnum, þar verður næst borað og netið dregið upp.
Robert T.
Kristjanson