Morgunblaðið - 15.05.2018, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
✝ Sigrún Árna-dóttir var fædd
30.12. 1923 og lést
á Selfossi 3.5. 2018.
Móðir Sigrúnar
var Marsibil Jó-
hannsdóttir, f. 22.3.
1893, d. 26.12.
1980, frá Efri-
Hömrum í Holtum,
faðir Árni Árna-
son, f. 2.11. 1886, d.
4.9. 1948, kennari
og bóndi frá Ölvesholtshjáleigu
í Holtum.
Systkini Sigrúnar eru Ólafur
Örn, f. 1919, látinn sama ár,
Ólafur Örn, f. 1921, látinn 2012,
Baldur, f. 1922, látinn 1992,
Ásta Ingibjörg, f. 1923, látin
2013, og Sigríður, f. 1926.
Eftirlifandi eiginmaður Sig-
rúnar er Bárður Kjartan Vig-
fússon, f. 10.4. 1927, frá Ljótar-
stöðum í Skaftártungu.
Dætur Sigrúnar með Ágústi
Inga Guðmundssyni frá Vest-
mannaeyjum eru:
1) Brynja Ágústsdóttir, f.
17.2. 1944 maki hennar Eggert
Simonsen, f. 6.5. 1943, d. 24.8.
2009. Börn þeirra eru:
a) Ottó W. Simonsen, f. 1961,
dóttir, þau eiga tvo syni.
c) Gestur Ari, f. 1987.
d) Hjördís, f. 1988, maki
hennar. Steingrímur Gauti Ing-
ólfsson, þau eiga eina dóttur.
4) Kristinn Marinó Bárðarson
f. 3.1.1957, maki hans Gerða
Arnardóttir 17.4. 1963. Dætur
þeirra eru:
a) Sigrún Erna, f. 1987, maki
hennar Daníel Gunnarsson og á
hann eina dóttur.
b) Sara Sif, f. 1992, maki
hennar Atli Tómasson.
Sigrún og Bárður hófu bú-
skap á Selfossi árið 1953, fyrst á
Austurvegi 61, en byggðu svo
einbýlishús á Sólvöllum 15 sem
þau flytja í 1965 og bjuggu þau
þar alla tíð síðan. Síðustu þrjú
árin hefur Sigrún verið á hjúkr-
unarheimilinu Ljósheimum á
Selfossi.
Sigrún starfaði alla tíð við
saumaskap sem hún lærði af
móður sinni og hjá klæðskera í
Reykjavík. Á Selfossi vann Sig-
rún sumarvinnu hjá Mjólkurbúi
Flóamanna, í Sundhöll Selfoss
og frá 1968 hjá Sjúkrahúsi Suð-
urlands sem forstöðumaður
þvottahúss og saumakona þar
til hún lét af störfum í árslok
1993.
Úför Sigrúnar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 15. maí,
klukkan 14.
maki hans Rut Guð-
mundsdóttir, f.
1960, eiga einn son
og þrjú barnabörn.
b) Sigrún Bára
Eggertsdóttir, f.
1965, á þrjú börn
og þrjú barnabörn.
c) Hafdís Linda
Eggertsdóttir, f.
1967, maki hennar
Magnús Geir Gunn-
arsson, f. 1961, eiga
þrjú börn og eitt barnabarn,
Magnús á dóttur frá fyrra sam-
bandi og tvö barnabörn.
d) Þórunn Marsibil, f. 1972,
maki hennar Böðvar Bjarki
Þorvaldsson, f. 1971, eiga þrjú
börn.
2) Ásta Hlíf Ágústsdóttir, f.
11.2. 1945, d. 7.3. 2018.
Synir Sigrúnar og Bárðar
eru:
3) Gestur Ragnar Bárðarson,
f. 26.5. 1953, maki hans Erna
Steina Guðmundsdóttir, f. 12.3.
1953. Börn þeirra eru:
a) Tómas Áki, f. 1976, maki
hans Íris Ólafsdóttir, þau eiga
tvær dætur.
b) Davíð Kjartan, f. 1983,
maki hans Ingibjörg Óttars-
Ein af mínum fyrstu minning-
um er mamma að sauma fínan
ballkjól á fræga söngkonu. Auðvit-
að var ég sendur fram í eldhús og
mátti ekki fylgjast með en söng-
konan var Elín Bachmann, sem
söng með stórhljómsveit Óskars
Guðmundssonar. Mamma var
flink sauma- og hannyrðakona og
saumaði á okkur bræðurna föt,
kúrekahatta, vesti með kögri og
fleira nauðsynlegt sem ungir
menn þurftu til að líta út eins og
ósviknir töffarar. Gestur bróðir
naut þess að vera eldri og þegar
Bítlarnir gáfu út Sgt. Peppers Lo-
nely Hearts Club Band saumaði
hún ljósbláan jakka með spæl, al-
veg eins og þann sem Paul klædd-
ist á plötuumslaginu. Frumsýning
var auðvitað á þjóðhátíðardaginn
17. júní og þegar Gestur bróðir
segir þessa sögu var umferðar-
teppa þar sem hann gekk um.
Seinna breytti mamma jakkanum
fína í forláta vesti á mig enda Bítl-
arnir bresku hættir að spila sam-
an.
Mamma var glaðlynd og já-
kvæð og við bræðurnir máttum
alltaf bjóða vinum okkar inn í hús
og ef við vorum svangir fann hún
til kökur og kex. Binna systir
stofnaði ung heimili í Reykjavík
en kom oft austur á Selfoss. Jólin
voru tilhlökkunarefni því Binna og
Eggi komu austur með krakkana
sína og þá var mikið spilað og
hlegið.
Mamma hafði mjög gaman af
ferðalögum. Pabbi keypti rúss-
neskan eðaljeppa (Lada Sport) en
mamma kunni aldrei almennilega
við hann svo honum var skipt upp í
Pathfinder-jeppa sem henni líkaði
miklu betur við.
Á hverju sumri fóru þau í ferðir
með tjaldvagninn og svo fellihýsið,
oftast í Rangárþing eða Skaftár-
tunguna. Eða þá í veiðitúra inn á
Landmannaafrétt eða í Veiðivötn.
Mamma byrjaði að vinna í
þvottahúsi Sjúkrahússins á Sel-
fossi 1968.
Þar unnu með henni skemmti-
legar konur, Gunnurnar Guðjóns,
Péturs og Jóns, Bogga, Sigrún og
Hjördís. Í kaffitímanum var alltaf
spilað af krafti og hlegið mikið,
enda sagði Hafsteinn Þorvalds-
son, forstjóri sjúkrahússins, að ef
sjúklingar væru daprir og niður-
dregnir væri besta læknisráðið að
senda þá í þvottahúsið.
Ásta systir var þroskaskert.
Fyrstu árin bjó hún hjá okkur í
litla húsinu á Austurveginum en
fór svo að Sólheimum í Grímsnesi
1960. Það var erfið ákvörðun fyrir
mömmu en á Sólheimum leið Ástu
vel. Ásta dó 7. mars sl. en mamma
var það hress að hún gat fylgt
henni síðasta spölinn og munu
þær mæðgur hvíla hlið við hlið í
Selfosskirkjugarði.
Fyrir nokkrum árum lærbrotn-
aði mamma og varð að fara á
hjúkrunarheimili. Mamma fékk
hægt andlát eftir stutta sjúkdóms-
legu á hjúkrunarheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi fimmtudaginn
3. maí og erum við fjölskylda
hennar þakklát fyrir góða umönn-
un og nærgætni starfsfólksins.
Ég kveð móður mína með ljóði
eftir Ólaf Örn bróður hennar:
Hnigin er að foldu móðir göfgi gædd,
sem geislum kærleiks stráði farinn
veg
og öllum var svo góð og innileg,
ímynd fórnarlundar holdi klædd.
Við heyrum hennar hlýja, milda róm
á helgri kveðjustund innst í sál
og þökkum hennar fylgd á förnum
vegi
því hún, sem þráði litfríð lífsins blóm
og las úr hverjum steini helgi mál,
mun umbun veitt á upprisunnar degi.
(ÓÖÁ)
Kristinn Marinó Bárðarson.
Í dag kveðjum við Sigrúnu
Árnadóttur, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu.
Á kveðjustund er efst í huga
þakklæti til örlátrar móður, ömmu
og langömmu sem gaf endalaust
af sér, konu sem smitaði frá sér
lífsgleði og hugrekki, sem hvatti
og studdi þegar á því var þörf.
Hjá Rúnu var ætíð skjól að
finna þegar léttvægar æskuraunir
steðjuðu að.
Hún hafði lag á að sjá jákvæðu
hliðarnar og gerði sér ekki óþarfa
rellu yfir hlutunum.
Þegar tengdadóttir var kynnt
til sögunnar tók hún henni opnum
örmum og seinna meir þegar
barnabörnin tóku að teljast inn,
áttu þau hjá henni vísan hauk í
horni.
Það var alltaf dásamlegt fyrir
fjölskylduna að koma á Selfoss
þar sem öllum var tekið fagnandi
og gleðilegt er að okkar fimm
barnabörn fengu einnig notið þess
að heimsækja ömmu Rúnu og afa
Dadda á Selfoss, eitthvað sem þau
munu ætíð meta mikils.
Rúna var traust stoð í lífi okkar
alla tíð. Við kveðjum hana með
ástúð og söknuð í huga .
Ef að þú færð mína móður upp spurt,
hvíslaðu að henni kveðju frá mér,
hvar sem hún er.
(Gunnar Gunnarsson)
Gestur, Erna Steina
og börn.
Sigrún Árnadóttir
✝ RannveigRagnarsdóttir
fæddist í Hallfríð-
arstaðakoti í Hörg-
árdal 17. mars
1932. Hún lést á
heimili sínu 6. maí
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Magnea El-
ín Jóhannsdóttir, f.
12. apríl 1898, og
Ragnar Guðmunds-
son, f. 16. apríl 1898.
Rannveig átti fimm alsystk-
ini. Þau voru í aldursröð: Rann-
veig Jórunn, Jóhann Hallmar,
Septíma Dalrós, Sigrún Jónína
og Marín Hallfríður. Dalrós lifir
systur sína. Rannveig átti einn
hálfbróður samfeðra. Hann hét
Baldur og er látinn.
Hinn 26. júní 1954 giftist
Rannveig Friðfinni Friðfinns-
syni frá Baugaseli í Barkárdal,
f. 26. júní 1917, d. 23. janúar
2011. Foreldrar hans voru Una
Zóphoníasdóttir, f. 24. júní 1894,
og Friðfinnur Steindór Sig-
tryggsson, f. 13. desember 1889.
Börn Rannveigar
eru: 1) Ragnar Ey-
fjörð, f. 19.9. 1951,
maki Ingibjörg Sig-
urðardóttir. Þau
eiga þrjá syni og
fimm barnabörn. 2)
Elín Una, f. 26.12.
1954. Hún á tvo
syni. 3) Erla Hrund,
f. 1.5. 1956, maki
Páll Baldursson.
Þau eiga tvö börn
og þrjú barnabörn. 4) Elsa
Björk, f. 9.10. 1959. Hún á eina
dóttur og tvö barnabörn. 5) Emil
Steindór, f. 12.12. 1966, maki
Sabine Friðfinnsson. Þau eiga
tvö börn.
Rannveig sá ung um heimilið
í Hallfríðarstaðakoti vegna
veikinda móður sinnar. Hús-
móðurstarfið var alla tíð hennar
aðalstarf. Eftir að fjölskyldan
flutti frá Baugaseli til Akureyr-
ar 1965 vann Rannveig einnig
ýmis verkamannastörf.
Útför Rannveigar fer fram
frá Akureyrarkirkju í dag, 15.
maí 2018, klukkan 13.30.
Elsku amma, símtalið sem ég
fékk að morgni 6. maí s.l. var held-
ur óvænt, þegar mamma hringdi í
mig og sagði mér að þú værir dá-
in.
Upp í huga mér komu ótal
minningar. Þakklæti er mér ofar-
lega í huga þegar ég hugsa til
baka, ein af bestu minningunum
mínum er tíminn sem við áttum
saman þegar við fórum að kaupa
jólagjafirnar fyrir alla afkomend-
ur þína. Yndislegur tími sem end-
aði langoftast á kaffihúsaferð, svo
ég tali nú ekki um dagana sem við
áttum saman við að pakka þessu
öllu inn. Mikið sem var spjallað og
hlegið á meðan, stundum það mik-
ið að við vorum ekki alveg með
hugann við það sem við vorum að
gera og klúðruðum merkimiðum,
en vorum farnar að læra á okkur
og keyptum því ríflega af þeim.
Þú varst snillingur í höndun-
um. Ég er glöð yfir því að eiga
verk og hluti eftir þig. Vænst þyk-
ir mér um harðangursdúkinn sem
þú saumaðir og færðir mér fyrir
10 árum á þrítugsafmælinu mínu.
Við áttum gott samband sem
ég er afar þakklát fyrir. Alltaf var
hægt að leita til þín. Það voru ófá
símtölin sem við höfum átt og
verður skrítið að taka ekki upp
símann og heyra í ömmu. Þú varst
alltaf svo jákvæð og glöð, ánægð
og stolt af fólkinu í kringum þig.
Ég ætla svo sannarlega að vona,
amma mín, að ég muni verða eins
yndisleg og þú.
Ansi oft fékk ég að heyra hvað
ég væri lík þér og þykir mér vænt
um það.
Elsku amma, ég er líka stolt af
því að hafa verið fyrst af barna-
börnum þínum til að gera þig að
langömmu, þegar Elva Rún fædd-
ist árið 1998. Þú varst börnum
okkar Árna góð, þau hafa nú misst
góða langömmu.
Þessi tími sem við áttum með
þér er okkur ómetanlegur og dýr-
mætur.
Við munum styðja hvort annað
í sorginni, og ég trúi því að þú
passir vel upp á okkur. Við sökn-
um þín öll.
Þú munt alltaf eiga stað í mínu
hjarta, elsku amma mín.
Þín ömmustelpa,
Kristín Pálsdóttir (Kittý).
Elsku langamma mín.
Ég á mjög erfitt með að trúa
því að þú sért farin frá okkur.
Símtalið sem ég fékk 6. maí síð-
astliðinn frá mömmu var mjög
óvænt. Það tók virkilega á að fá
þessar fréttir að þú hefðir orðið
bráðkvödd þá um morguninn. Þú
varst og verður alltaf fyrirmyndin
mín í einu og öllu, þú kenndir mér
svo margt. Minningarnar okkar
eru ótal margar og eru þær mér
ofarlega í huga nú um þessar
mundir. Þegar það var frí í skól-
anum fékk ég oft að koma í pössun
til þín. Í hádeginu tókum við
gjarnan göngutúr í Hrísalund og
keyptum okkur mat úr heita borð-
inu, jú og ekki má gleyma því að
það var yfirleitt ís í eftirrétt.
En það sem mér er kærast eru
verkin eftir þig og myndirnar sem
ég á af okkur saman og mun ég
varðveita það vel. Hann er mér
líka mikils virði tíminn þegar ég
bjó í blokkinni á móti þér í Tjarn-
arlundinum. Oft beiðst þú í eld-
húsglugganum á kvöldin til þess
að vinka til mín áður en þú færir
að sofa. Þessir litlu hlutir eru mér
nú mikils virði.
Takk, elsku langamma mín,
fyrir allt sem þú kenndir mér,
takk fyrir alla góðu tímana sem
við áttum saman bara við tvær.
Takk fyrir að vera alltaf til staðar
ef það var eitthvað að hrjá mig og
síðast en ekki síst takk fyrir að
vera þú. Það var og er enginn eins
og þú. Þú varst frábær í öllu sem
þú tókst þér fyrir hendur og gerð-
ir allt mjög vel. Þú föndraðir öll
mín afmæliskort og það síðasta
núna í október s.l. þá 85 ára göm-
ul. Ég mun varðveita þessi kort.
Þú varst og verður alltaf hetjan
mín. Ég hef alltaf og mun alltaf
elska þig af öllu mínu hjarta. Þér
þótti svo vænt um alla í kringum
þig, sérstaklega fjölskyldu og vini.
Þú vildir öllum gott og studdir alla
áfram í því sem þeir vildu taka sér
fyrir hendur. Þú ert manneskjan
sem dæmdir ekki, sagðir bara
hvað mætti betur fara og hrósaðir
alltaf. Þú varst alltaf svo glöð og
jákvæð.
Nú ert þú komin til langafa og
trúi ég því að þið vakið yfir okkur.
Elsku langamma, ég mun
sakna þín.
Þín langömmustelpa,
Elva Rún Árnadóttir.
Rannveig
Ragnarsdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma, langamma og langalangamma,
GUÐJÓNA EYGLÓ FRIÐRIKSDÓTTIR
frá Eyrarlandi, Þykkvabæ,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, þriðjudaginn 8.
maí. Útförin fer fram frá Þykkvabæjarkirkju
fimmtudaginn 17. maí klukkan 14.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar
láti Þykkvbæjarkirkju njóta þess.
Jón Viðar Magnússon Hrafnhildur Bernharðsdóttir
Friðrik Magnússon Hrafnhildur Guðnadóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA STEINUNN VALTÝSDÓTTIR,
er látin. Útför hennar verður gerð frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 16. maí
klukkan 13.
Kristín Gunnarsdóttir
Helga Gunnarsdóttir Michael Dal
Hildigunnur Gunnarsdóttir Ásgeir Haraldsson
og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HARALDUR ÁRNASON,
Strikinu 4, 210 Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 8. maí.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
17. maí klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Félags
nýrnasjúkra, www.nyra.is, 0334-26-001558, kt. 670387-1279.
Auður Gunnarsdóttir
Margrét Haraldsdóttir
Ingunn Edda Haraldsdóttir Errol Bourne
Gunnar Haraldsson Jóna Margrét Kristinsdóttir
afabörn og langafabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
BIRNA JÓHANNSDÓTTIR,
Neðstaleiti 7, Reykjavík,
áður í Borgarnesi,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 9. maí. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 19. maí klukkan 14.
Hörður R. Óttarsson
Jóhanna Lára Óttarsdóttir Gunnar Þór Geirsson
Magnús Óttarsson
Snæbjörn Óttarsson
Kolbrún Óttarsdóttir Kristín Amelía Þuríðardóttir
og ömmubörn