Morgunblaðið - 15.05.2018, Page 32

Morgunblaðið - 15.05.2018, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Ástralska kvikmyndaleikkonan Cate Blanchett, sem jafnframt er formað- ur dómnefndar á Kvikmyndahátíð- inni í Cannes, tók ásamt ríflega átta- tíu kvikmyndagerðarkonum þátt í gjörningi við Lumière Theater í Cannes um helgina til að vekja at- hygli á skertum hlut kvenna jafnt á hátíðinni sem og í kvikmyndabrans- anum. Í 71 ára sögu Kvikmyndahá- tíðarinnar í Cannes hafa aðeins verið frumsýndar 82 kvikmyndir sem leik- stýrt var af konum samanborið við tæplega 1.700 myndir í leikstjórn karla. Konurnar sem þátt tóku um helgina tilheyra hópi sem nefnist 5050X2020 sem hefur það að mark- miði að hlutfall kynja í kvikmyndum á Cannes verði jafnt árið 2020. Blanchett og kvikmyndaleikstjórinn Agnes Varda lásu yfirlýsingu hóps- ins á bæði ensku og frönsku og lögðu áherslu á að kvikmyndir þyrftu að endurspegla hlutfall kynjanna í raunheimum. „Konur eru ekki í minnihluta í raunheimum þrátt fyrir að kvikmyndaiðnaðurinn segi okkur að svo sé,“ segir yfirlýsingunni þar sem jafnréttis er krafist, öruggra vinnuaðstæðna og jafnra launa. Gjörningurinn var framinn fyrir frumsýningu á Girls of the Sun í leikstjórn Evu Husson, sem er ein þriggja kvikmynda í leikstjórn konu sem þátt taka í keppninni um Gull- pálmann í ár, en alls keppir 21 mynd. AFP Jafnrétti 82 konur tóku þátt í gjörningi þar sem jafnréttis var krafist í kvik- myndabransanum. Cate Blanchett leiðir Övu DuVernay og Agnes Varda. Sterk Cate Blanchett flutti ávarp þar sem staða kvenna á Cannes var gerð að umtalsefni. Við hlið hennar er kvikmyndaleikstjórinn Ava DuVernay. Vilja jafnrétti Búið er að velja 19 krakka sem leika munu í söngleiknum Matt- hildi sem verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins í mars 2019. Þrjár stelpur á aldr- inum níu og tíu ára munu skipta með sér hlutverki Matthildar, þær Erna Tómasdóttir, Ísabella Dís Sheehan og Salka Ýr Ómars- dóttir. Með önnur krakkahlutverk fara Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir, Arnaldur Halldórsson, Baldur Björn Arnarsson, Edda Guðna- dóttir, Emil Björn Kárason, Erlen Ísabella Einarsdóttir, Gabríel Máni Kristjánsson, Hilmar Máni Magnússon, Hlynur Atli Harðar- son, Jón Arnór Pétursson, Linda Ýr Guðrúnardóttir, Lísbet Freyja Ýmisdóttir, María Pála Marcello, Patrik Nökkvi Pétursson, Þóra Fanney Hreiðarsdóttir og Þórey Lilja Benjamínsdóttir. „Þessi voru valin úr hópi 1.119 krakka sem mættu í áheyrnar- prufur í Borgarleikhúsinu á síð- ustu vikum. Valið reyndist gríðar- lega erfitt enda stóðu allir þeir krakkar sem mættu sig mjög vel. Forsvarsmenn sýningarinnar og Borgarleikhússins vilja koma á framfæri miklum þökkum til allra þeirra sem mættu í prufurnar og hvetja þau til dáða í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá leikhúsinu. Hæfileikaríkar Erna Tómasdóttir, Ísabella Dís Sheehan og Salka Ýr Ómarsdóttir skiptast á að leika Matthildi í samnefndum söngleik hjá Borgarleikhúsinu. Erna, Ísabella og Salka leika Matthildi Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 22.00 Undir trénu Bíó Paradís 20.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm IMDb 8,2/10 Bíó Paradís 18.00 The Shape of Water 16 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 86/100 IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 17.30 The Square Bíó Paradís 20.00 You Were Never Really Here Morgunblaðið bbnnn Bíó Paradís 18.00 I, Tonya Bíó Paradís 22.45 Loving Vincent Bíó Paradís 20.00 Deadpool 2 16 Eftir að hafa naumlega kom- ist lífs af í kjölfar nautgripa- árásar á afmyndaður kokkur ekki sjö dagana sæla. IMDb 9,4/10 Sambíóin Egilshöll 22.00 Sambíóin Kringlunni 22.20 Sambíóin Keflavík 19.45 Smárabíó 20.00 Háskólabíó 21.00 I Feel Pretty 12 Metacritic 48/100 IMDb 4,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.20, 21.40 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.40, 20.00, 22.20 Overboard Metacritic 45/100 IMDb 4,9/10 Laugarásbíó 17.40, 20.00, 22.20 Smárabíó 17.00, 19.40, 22.20 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.30 Ready Player One 12 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 65/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 19.30, 22.20 A Quiet Place 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Egilshöll 20.00 Strangers: Prey at Night 16 Metacritic 49/100 IMDb 5,8/10 Smárabíó 22.10 Rampage 12 Metacritic 47/100 IMDb 6,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20 Blockers 12 Metacritic 73/100 IMDb 6,2/10 Laugarásbíó 20.00 Önd önd gæs Einhleyp gæs verður að hjálpa tveimur andarungum sem hafa villst. Íslensk tal- setning. Laugarásbíó 17.40 Smárabíó 15.10, 17.20 Borgarbíó Akureyri 17.30 Pétur Kanína Pétur reynir að lauma sér inn í grænmetisgarð nýja bóndans og þeir há mikla baráttu. Smárabíó 15.30, 17.20 Lói – þú flýgur aldrei einn Morgunblaðið bbbbn Smárabíó 15.10 Víti í Vestmanna- eyjum Morgunblaðið bbbbn Sambíóin Álfabakka 17.20 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 16.00 Sambíóin Akureyri 17.00 Sambíóin Keflavík 17.30 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 68/100 IMDb 9,4/10 Laugarásbíó 17.00, 22.30 Sambíóin Álfabakka 17.30, 18.30, 19.00, 20.40, 21.40, 22.00 Sambíóin Egilshöll 17.00, 18.00, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.00, 19.10 Sambíóin Akureyri 19.10, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.20 Avengers: Infinity War 12 Vargur 16 Bræðurnir Erik og Atli eiga báðir við fjárhagsvanda að stríða af ólíkum ástæðum. Saman grípa þeir til þess ráðs að smygla dópi til landsins. Erik skipuleggur verkefnið í þaula og allt virðist ætla að ganga upp. Morgunblaðið bbbmn IMDb 8,0/10 Laugarásbíó 22.10 Smárabíó 17.50, 20.10, 22.30, 22.40 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.30, 21.50 7 Days in Entebbe 12 Myndin er innblásin af sann- sögulegum atburðum, þegar flugvél Air France var rænt árið 1976 á leið sinni frá Tel Aviv til Parísar, og sett var í gang ein djarfasta björgunaráætlun í sögunni. Metacritic 49/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Kringlunni 18.10, 20.30, 22.50 Sambíóin Akureyri 22.20 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.