Morgunblaðið - 15.05.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 15.05.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Þann 30. mars hófust í Palestínu mót- mæli sem verið hafa mest áber- andi á Gaza- svæðinu, frið- samleg mót- mæli undir heitinu Gangan mikla fyrir heimkomu flóttafólks. 70 ár eru liðin frá upphafi hörm- unganna (Nakba) þegar helmingur palestínsku þjóð- arinnar var hrakinn frá heimkynnum sínum og hef- ur fólkið og af- komendur þess ekki fengið að snúa heim aft- ur. Þeir sem eftir urðu búa við hernám, innilokun, skert ferða- frelsi, kúgun í stóru og smáu, fangelsanir, meiðingar og manndráp. Á hverjum föstudegi hafa þúsundir manna safnast saman og reist tjöld í nokkur hundruð metra fjarlægð frá landa- mærunum við Ísrael. Sex föstudaga í röð hafa tjöldin færst nær. Viðbrögð Ísr- aelsstjórnar voru að gefa 100 leyniskyttum Ísraels- hers frjálst skotleyfi á óvopnaða mótmælendur og hafa 50 manns verið drepnir þar á meðal fimm börn. Þá hafa nærri níu þúsund manns verið særð skotsár- um og eru hundruð þeirra alvarlega særð. Margir hafa verið skotnir í fótleggi og misst fætur. Borist hefur beiðni til Íslands um að senda nú meira efni í gervi- fætur. Mótmælin gegn hernámi Palestínu og fyrir heim- komu flóttfólks munu ná há- marki á þriðjudaginn 15. maí og þann dag munu Pa- lesstínumenn á Íslandi og þeir sem styðja rétt palest- ínsku þjóðarinnar til að lifa við mannréttindi og frið í sínu landi koma saman á Austurvelli kl. 17. Eftir Svein Rúnar Hauksson Sveinn Rúnar Hauksson » Viðbrögð Ísra- elsstjórnar voru að gefa 100 leyni- skyttum Ísraels- hers frjálst skot- leyfi á óvopnaða mótmælendur. Höf. er læknir og heiðurs- borgari í Palestínu srhauks@gmail.com Samstaða gegn hernámi og fyrir rétti flóttafólks til heimkomu Á fundi borgarráðs 19. september 2013 ákváðu fulltrúar Sam- fylkingarinnar, Vinstri grænna og Besta flokksins að úthluta Félagi múslima á Ís- landi ókeypis lóð til að byggja mosku í Sogamýri. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins höfðu ekki kjark til að greiða atkvæði gegn tillög- unni og sátu hjá við af- greiðslu málsins. Meirihluti Reykvíkinga var mótfallinn úthlutuninni. Fulltrúar þeirra stórn- málaflokka sem stóðu að út- hlutuninni vísuðu hins vegar til þess að ekki mætti mis- muna trúfélögum. Þau yrðu öll að sitja við sama borð. Félag múslima á Íslandi var þess vegna heldur ekki krafið um nein gjöld af lóð- inni. Nú hefur komið á dag- inn að þetta voru aðeins hentistefnurök því meiri- hlutinn hefur hafnað því að Hjálpræðisherinn, sem er skráð trúfélag, njóti sömu undanþágu. Framkvæmdafrestir eru liðnir Í lögum er ekki gert ráð fyrir því að sveitarfélög út- hluti ókeypis lóðum til allra trúfélaga. Lög um Kristni- sjóð gera ráð fyrir að slíkar úthlutanir séu bundnar við kirkjur Þjóðkirkjunnar. Reykjavíkurborg var því óskylt og reyndar óheimilt að gefa lóðina. Af þessum sökum lýsti ég því yfir í að- draganda síðustu borgar- stjórnarkosninga að ég teldi rétt að aftur- kalla lóðar- úthlutunina. Af viðbrögðum full- trúa þeirra stjórn- málaflokka sem mynduðu nýjan meirihluta eftir kosningarnar var hins vegar ljóst að tillaga þess efnis yrði ekki samþykkt. Aðrar ástæður verður því að færa fram fyrir aftur- kölluninni. Þegar þetta er ritað eru tæp fimm ár liðin frá því lóðinni var úthlutað án þess að framkvæmdir séu hafnar á lóðinni. Þeir framkvæmdafrestir sem gilda um lóðina samkvæmt almennum lóða- og fram- kvæmdaskilmálum Reykja- víkurborgar eru því liðnir. Það eitt á því að nægja til að fallist sé á tillöguna. Meira kemur hins vegar til. Ekkert fjármagn hér á landi Bygging mosku kostar mörg hundruð milljónir króna. Í kjölfar þess að lóð- inni var úthlutað lýsti for- maður Félags múslima á Ís- landi því yfir að félagið hygðist fara í fjáröflun og að vonir stæðu til þess að byrjað yrði á fram- kvæmdum vorið 2014. Allar tilraunir félagsins til að fjármagna moskuna hafa hins vegar runnið út í sand- inn. Á árinu 2015 gerði Ólafur Ragnar Grímsson, þá forseti Íslands, opinberlega grein fyrir því að sendi- herra Sádi-Arabíu hefði tjáð honum að Sádi-Arabía hygðist leggja fram fé til byggingar moskunnar. For- maður Félags múslima á Ís- landi bar þær fréttir hins vegar til baka og kvað enga fjármuni hafa borist frá Sádum. Síðan þá hefur fé- lagið árangurslaust reynt að leita fjármagns og stóð meðal annars fyrir opin- berri söfnun í því skyni. Alls bárust fjárframlög frá 19 aðilum og nam saman- lögð fjárhæð þeirra 740 bandaríkjadölum. Tæp fimm ár eru því liðin frá lóðar- úthlutuninni án þess að tek- ist hafi að fjármagna fram- kvæmdina. Engin takmörk á er- lendri fjármögnun og afskiptum Af framansögðu leiðir að moska verður ekki byggð í Sogamýri nema fyrir erlent fjármagn. Ég leyfi mér að fullyrða að borgaryfirvöld hafi engan áhuga á slíkri framkvæmd. Í því sambandi er rétt að minnast orða Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, fyrrverandi for- manns Samfylkingarinnar, sem hún lét falla í viðtali við Morgunblaðið 5. apríl 2015, um að við eigum að sporna við því að róttækur íslam- ismi berist til okkar með því að koma í veg fyrir að er- lendir aðilar fjármagni byggingu moskunnar. Á grundvelli þessara sjón- armiða hafa nágrannalönd okkar mörg hver sett reglur til að koma í veg fyrir að erlent fjármagn, þar á með- al frá Sádi-Arabíu, sé notað til að byggja moskur. Er- lend yfirvöld hafa jafnframt gripið til aðgerða í því skyni að takmarka utanaðkomandi áhrif á stjórn þeirra moska sem þegar hafa verið byggðar. Fyrr á þessu ári bönnuðu belgísk yfirvöld t.d. afskipti Sádi-Araba af Stórmoskunni í Brussel. Þeir flokkar sem nú sitja á Alþingi hafa því miður ekki haft dug í sér til að leggja fram frumvarp sem bannar hvort tveggja fjármögnun og afskipti af þessum toga. Eina ráðið er því að Reykjavíkurborg afturkalli lóðarúthlutunina. Tillaga fyrir borgarstjórn Á fundi borgarstjórnar í dag legg ég fram tillögu um að borgarstjórn afturkalli lóðarúthlutunina og hefji í framhaldinu viðræður við hagsmunasamtök eldri borgara um uppbyggingu á lóðinni. Í fyrsta lagi var lóð- arúthlutunin ólögmæt, í öðru lagi eru allir fram- kvæmdafrestir liðnir og í þriðja lagi hefur ekki tekist að fjármagna framkvæmd- ina hérlendis. Ég tel því að forsendur fyrir lóðarúthlut- uninni séu brostnar að ógleymdum þeim ástæðum sem ég gat um og tengjast því að hér á landi gilda eng- ar reglur sem takmarka er- lenda fjármögnun og erlend afskipti. Ég legg því til að borgarstjórn fylgi eftir þeirri stefnu sem viðhöfð hefur verið um að fram- kvæmdir af þessum toga verði að hefjast innan tiltek- inna fresta ella sé lóðar- úthlutunin afturkölluð. Ég mun því leggja fram tillögu þess efnis á borgarstjórnar- fundi í dag. Afturkalla ber lóðarúthlutunina Eftir Svein- björgu B. Sveinbjörns- dóttur Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir » Á fundi borgar- stjórnar í dag legg ég fram tillögu um að borgarstjórn afturkalli lóðar- úthlutun til Félags múslima á Íslandi. Höfundur er oddviti Borgar- innar okkar – Reykjavíkur. sveinbjorgbs@reykjavik.is Þessi pistill er birtur aft- ur vegna mistaka við myndbirtingu í gær. Garður og Sandgerði eru einu byggðarlögin sem eru landfræðilega Suðurnes, og þó svo fleiri kenni sig við Suðurnes, en búi ekki á Suðurnesi er það allt í lagi. En þeir eiga ekki nafnið, það eru Sandgerði og Garð- ur sem saman eiga nafnið Suðurnes samkvæmt Islandskort.is, Landsbóka- safni Íslands og Háskóla- bókasafni. Þar kemur fram að Suðurnes eru NA-Út- skálar og SA-Stafnes, mæli- ár var 1908, endurskoðunar- ár var 1932 og útgáfuár var 1944. Einnig samkvæmt fleiri heimildum um að kennileiti Suðurnesja séu einungis Garður og Sand- gerði. Hvernig getur nafnið Suðurnes ekki rúmast innan reglna nefndarinnar? Kristjana Þ. Vilhjálmsdóttir, símstöðvarstjóri í Garði í 40 ár. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Garðskagaviti á Suðurnesjum. Sandgerði og Garður eiga nafnið Suðurnes ✝ Ásgeir Sumar-liðason fæddist í Reykjavík 26.12. 1939. Hann lést á Ísafold (Þórsmörk) 28.4. 2018. For- eldrar Ásgeirs voru Sumarliði Gíslason sjómaður, f. 14.3. 1892, d. 1969, og k.h. Bót- hildur Jónsdóttir húsmóðir, f. 18.10. 1897, d. 1989. Ásgeir var yngst- ur ellefu systkina. Eftirlifandi eru Gíslína, Sigríður, Stella, Inga, Gísli og Birgir. Ásgeir giftist hinn 5.4. 1969 Valgerði M. Guðmundsdóttur snyrtifræðingi, f. 14.7. 1947. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Ólafsson, skipstjóri og síðar gjaldheimtustjóri í Hafn- arfirði, f. 7.11. 1921, d. 1995, og Arnfríður Kristín Arnórs- dóttir húsmóðir, f. 23.12. 1923, d. 2015. Fyrir átti Ásgeir syn- ina Hilmar, f. 26.3. 1962, giftur Anne Frandsen og eiga þau tvö börn, og Þóri, f. 25. 8. 1963, giftur Bettinu Ásgeirsson og eiga þau fjögur börn. Börn Ásgeirs og Valgerðar eru: 1) Guðmundur, f. 8.11. 1968, giftur Birnu Ívarsdóttur Sandholt og eiga þau fjögur börn. 2) Valur, f. 30.9. 1974, sambýliskona Laufey Guðmundsdóttir og eiga þau fjögur börn. 3) Hildur, f. 14.7. 1977, gift Bjarna Friðriki Jó- hannessyni og eiga þau þrjú börn. Ásgeir ólst upp á Hverfis- götu í Reykjavík. Hann starfaði fyrst sem símsmiður hjá Síman- um og svo lengst af sem krana- bílstjóri. Einnig var Ásgeir sjálfstætt starfandi vörubíl- stjóri. Útför Ásgeirs fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15. maí 2018, klukkan 13. Með þessum ljóðlínum langar mig að kveðja minn ástkæra eig- inmann Ásgeir (Geira) með þakklæti efst í huga. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Takk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Þín ávallt, Vala. Elsku pabbi minn. Að setjast niður og skrifa minningargrein um þig er svo óraunverulegt. Margt brölluðum við saman í gegnum tíðina og það eru dýrmætar minningar sem ylja manni um hjartarætur í gegnum þessa óbærilegu sorg. Efst í huga eru samverustund- irnar okkar í sumarbústaðnum sem voru ófáar og skemmtilegar og auðvitað má ekki gleyma ut- anlandsferðunum með þér og mömmu sem voru ýmist á sólar- strönd eða í stórborgum. Ofar- lega í huga er þegar þú, mamma og amma komuð að sækja mig til USA eftir að hafa dvalið þar sem skiptinemi í eitt ár á mínu 19. ári og náðum við að ferðast þaðan líka til Kanada og enn þann dag í dag eru samskipti við fólkið sem tók mig að sér. Einnig ber að nefna fótboltaleikina með þínu gamla liði Fram, þar sem þú bæði dæmdir fyrir og spilaðir með enda mikill fótboltaáhuga- maður. Í seinni tíð þegar ég og Bjarni minn vorum að eignast okkar fyrsta hús saman varst þú ávallt fyrstur á staðinn til að hjálpa sem lýsti best þínum innri manni og ekki leyndi stoltið sér þegar við eignuðumst demantana okk- ar þrjá, þau Valgerði Tinnu, Þóru Margréti og Jóhannes Ás- geir. Búa þau að dýrmætum minningum um yndislegan afa sem við munum hjálpa þeim að varðveita. Þrátt fyrir að farið var að halla undan fæti hjá þér í seinni tíð sástu alltaf spaugilegu hliðarnar á öllum málum, enda með eindæmum mikill húmoristi og hafðir gaman af því að stríða fólki, sem þú gerðir óspart þrátt fyrir að vera orðin mjög veikur undir það síðasta. Á Ísafold varstu að sjálfsögðu vel liðinn og meira að segja gastu strítt bæði öðrum vistmönnum sem og starfsfólkinu. Ekki leyndi sér í þínum veikindum hversu starfs- fólkinu á Ísafold þótti vænt um þig. Elsku pabbi, þú getur vart ímyndað þér hversu ævinlega ég er þakklát fyrir það að þú gast fylgt mér upp að altarinu og glaðst með okkur í brúðkaupi okkar í maí í fyrra, hvað þú naust þín og skemmtir þér vel var unaðslegt. Elsku mamma mín, missir þinn er mikill enda kletturinn í hans lífi og munum við fjölskyld- an gera allt í okkar valdi til að gera ókomin ár bærilegri um leið og við vottum þér okkar dýpstu samúð. Minningu um einstakan mann varðveitum við í hjörtum okkar um ókomna tíð. Hafðu þökk fyrir allt og njóttu ferð- arinnar í sumarlandið og veit ég að þar verður tekið vel á móti þér. Söknuður um æðar rennur, horfi til baka á liðnar stundir sem ekki voru. Aðeins ósk í mínu hjarta, ég finn til. Nú okkar tími liðinn er, aðeins minningar eftir standa. Þína hönd í mína set, þakka fyrir það sem var. Nú ég veit en kannski of seint að mér gafstu allt sem þér var unnt. Elsku pabbi nú tími kominn til að kveðja, þakka fyrir þínar gjafir sem gafstu mér. (Höfundur ókunnur.) Elska þig og sakna! Þín dóttir, Hildur Dögg Ásgeirsdóttir. Ásgeir Sumarliðason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.