Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 27
Pálmi
Jónasson
Halldóra Sigurjónsdóttir
skólastj. Húsmæðraskólans á Laugum
Halldór Víglundsson
smiður og síðar vitavörður
Kristín Halldórsdóttir
alþm. og húsfreyja
Ásta Jónasdóttir
kennari í Rvík
Jónas Bjarnason efnaverkfr.
og næringarfræðingur
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Litlu-Laugum, systurdóttir
Einars Ásmundssonar alþm. í Nesi
Björn Jónsson ritstjóri
Fróða á Akureyri
Arnór Sigurjónsson skólastj. og rithöfundur
Ingi Tryggvason fyrrv. form.
Stéttarsambands bænda
Unnur Sigurjónsdóttir húsfr.
á Laugabóli í Reykjadal
Bragi Sigurjónsson alþm., ráðherra og ritstj. Dags
Halldór Halldórsson fyrrv.
yfirlæknir á Kristnesi
Svanhildur Halldórsdóttir
fyrrv. félagsmálafulltr. BSRB
Þóranna Pálmadóttir
húsfr. á Akureyri og á Siglufirði
Pétur Pétursson
kaupm. á Akureyri og á Siglufirði
Anna Pétursdóttir
bókari í Rvík
Kristján Jónasson
læknir í Rvík
Bjarni Benediktsson kaupm.
og útgerðarm. á Húsavíkryndís Bjarnadóttir
húsfr. í Rvík
BSigtryggur Sigtryggssonritstjórnarfulltr. á
Morgunblaðinu
Gunnar Bjarnason
hrossaræktaráðunautur
Halldór Gunnarsson
fyrrv. prestur í Holti
Hansína Benediktsdóttir
húsfr. í Rvík
Jónas Kristjánsson
læknir og alþm. á Sauðárkróki, stofnandi NLFÍ,
systursonur Jóhannesar Nordal íshússtj. afa
Jóhannesar Nordal fyrrv. seðlabankastjóra
Úr frændgarði Pálma Jónassonar
Jónas Kristjánsson
fyrrverandi ritstjóri DV
Sigurjón Friðjónsson
skáld, alþm. og oddviti á Litlu-Laugum í Reykjadal, af Sílalækjar- og Hólmavaðsætt
Bjartmar Guðmundsson alþm.
Heiðrekur Guðmundsson skáld
Guðmundur Friðjónsson
skáld og b. á Sandi í Aðaldal
Karl Ísfeld ritstjóri og rithöfundur Áslaug Friðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík
Erlingur Friðjónsson kaupfélagsstj. og alþingismaður
Svanborg Stefanía Bjönsdóttir
húsfr. á Hauksstöðum
Víglundur Helgason
b. á Hauksstöðum, systursonur Árna í
Garði, föður Þuru í Garði og afa Þorgríms
Starra hagyrðings í Garði, af Hraunkotsætt
skrifaði ég í tvö ár. Vann um tíma
við að endurgera ferðabækur fyrir
netið en það varð ekki sú framtíð-
arvinna sem vonast var eftir. Ég
ætlaði alltaf að verða merkilegt
skáld en skáldagyðjan hefur ekki
alveg birst mér ennþá.
Ég hef alltaf verið lífsnautnamað-
ur og haft gaman af öllu sem teng-
ist matseld. Á hlut í bát og hef
gengið um fjöll og firnindi til að
skjóta dýrindis fugla. Skrifaði um
vín í Krónikkuna og DV á árunum
2007 og 2008. Árið 2006 bjó ég um
tíma á veitingahúsinu Hostaria di
Cansignorio hjá Sirpu og Tiziano í
Castelceriono í Soave á Ítalíu og
hjálpaði til í eldhúsinu. Síðast þegar
ég vissi var enn boðið upp á „Torta
di Palmi“ eftir minni uppskrift.“
Svo hefur þú verið að bæta við
þig háskólagráðu fyrir tæpum
þremur árum, á miðjum starfs-
aldri?
„Já. Það er mikilvægt að kanna
öðru hverjuu hvort heilasellurnar
virki. Ég fór í blaðamannaskólann í
Árósum árið 2006 með 16 öðrum
fréttamönnum víðs vegar af Norð-
urlöndum og við sátum fjölda fyrir-
lestra og ferðuðumst saman vítt og
breitt um Evrópu. Það jók víðsýni
og sjálfsöryggi í faginu. Á gamals-
aldri tók ég svo upp á því að fara í
tveggja ára MBA-nám í stjórnun á
ensku við Háskólann í Reykjavík.
Ætli það hafi ekki verið grái fiðr-
ingurinn. Ég vildi síður skipta um
konu og held ég væri hálfkjána-
legur á mótorhjóli svo ég skellti
mér bara í krefjandi nám og sé ekki
eftir því.“
Fjölskylda
Eiginkona Pálma er Sigrún
Thorlacius, f. 10.2. 1968, aðstoðar-
forstöðukona í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum. Foreldrar hennar
eru hjónin Ásdís Kristinsdóttir, f.
29.4. 1939, og Kristján Thorlacius,
f. 30.10. 1941, búsett í Reykjavík.
Dætur Pálma og Sigrúnar eru
Hera, f. 1989, mannfræðingur; Auð-
ur, f. 1997, stúdent; Kristín, f. 2002,
og Áslaug, f. 2006.
Systkini Pálma eru Kristján Jón-
asson, f. 27.3. 1964, jarðfræðingur;
Pétur Jónasson, f. 24.12. 1970, kerf-
isfræðingur, og Halldóra Jónas-
dóttir, f. 7.1. 1974, flugmaður.
Foreldrar Pálma: Jónas Krist-
jánsson, f. 5.2. 1940, fyrrv. ritstjóri
Vísis, DB og DV, og Kristín Hall-
dórsdóttir, f. 20.10. 1939, d. 14.7.
2016, alþingismaður, húsfreyja og
starfsmaður Kvennalistans.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 39.990 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.
Grímur Thomsen fæddist áBessastöðum á Álftanesi15.5. 1820. Foreldrar hans
voru Þorgrímur Tómasson, gull-
smiður, ráðsmaður á Bessastöðum
og alþingismaður, og k.h., Ingibjörg
Jónsdóttir húsfreyja.
Eiginkona Gríms var Jakobína
Jónsdóttir en sonur Gríms og
Magdalene Thoresen var Axel Peter
Jensen, f. 1843.
Grímur var ekki í Bessastaðaskóla
en lærði hjá Árna Helgasyni prófasti
í Görðum og biskupi og lauk hjá hon-
um stúdentsprófum 1837. Hann hóf
nám í lögfræði við Hafnarháskóla en
snéri sér brátt að heimspeki og bók-
menntum, lauk mag.art.-prófi 1845,
með ritgerð um Byron lávarð. Það
rit varð helsta kynning sem Danir
fengu af Byron og var gerð að dokt-
orsritgerð með konungsúrskurði
1854. Hann vakti einnig eftirtekt
Dana á Johan Ludvig Runeberg og
kenndi þeim að meta sinn helsta
snilling á þeim tíma, H.C. Andersen.
Grímur hlaut konungsstyrk til
kynnisfarar um Evrópu árið 1846 og
stóð sú ferð í tvö ár. Hann starfaði í
danska utanríkismálaráðuneytinu
1848-66, var m.a. aðstoðarmaður
sendiherra Dana í Brüssel og Lund-
únum og síðast skrifstofustjóri.
Hann flutti síðan heim, keypti
Bessastaði og var bóndi frá 1868 til
æviloka. Hann var ritstjóri Ísafoldar
1878-79, var alþingismaður Rang-
æinga 1869-74, Gullbringu- og Kjós-
arsýslu 1874-80, og Borgfirðinga
1880-92.
Síðast en ekki síst var Grímur eitt
helsta ljóðskáld þjóðarinnar á sínum
tíma og ljóðaþýðandi. Ljóð hans hafa
yfirleitt elst vel. Hann var laus við
landlæga mærðina sem einkenndi
um of síðrómantíkina, orti sjaldan
undir fornum háttum sem þá var þó í
tísku, en var formsnillingur, bjó yfir
mögnuðum mannlýsingum og var
hnitmiðaður í orðavali. Hann var
mikill heimsmaður, höfðinglegur í
fasi og klæðaburði, íhaldssamur,
forn í hugsun, oft orðhvass og mein-
hæðinn og varð aldrei orðafátt.
Grímur lést 27.11. 1896.
Merkir Íslendingar
Grímur
Thomsen
85 ára
Helgi Theódór Andersen
Steinn Guðmundsson
Sveinn J. Sveinsson
80 ára
Guðný Jensdóttir
Herdís Guðrún van der Linden
Sigurður S. Guðmundsson
Sigurgeir Ólafsson
Sverrir Ólafsson
75 ára
Björn Bjarnason
Grétar Vilhelmsson
Gunnar Ellert Þórðarson
Ingvar Sveinsson
Sigrún Arngrímsdóttir
Zylfije Zymeri
Þórarinn Arnórsson
70 ára
Gunnlaugur Björnsson
Ingunn Jónsdóttir
Jón Kristinn Stefánsson
Kristín Ingadóttir
Sigríður Guðmundsdóttir
Teresa Chylinska
60 ára
Brynjólfur Erlingsson
Elsa Jóna Sveinsdóttir
Guðríður Ágústsdóttir
Hannes Halldórsson
Ingibjörg J.
Friðbertsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir
Ingibjörg St. Sigurðardóttir
Ingi Óskarsson
Margrét Ingimarsdóttir
Ólafur Árni Halldórsson
Sigríður Erla Eyjólfsdóttir
Stefán Halldór Kristvinsson
Steindór Helgason
Sveinn Þórisson
50 ára
Aðalheiður Stefánsdóttir
Andrzej Stanislaw Dziekan
Guðborg Eyjólfsdóttir
Guðríður Einarsdóttir
Gunnar Óðinn Einarsson
Hildur Björk Þóroddsdóttir
Jónína Eyja Þórðardóttir
Karel Heiðarsson
Kári Vilhjálmsson
Kristín S. Helgadóttir
Marek Kazimierz Stawarz
Oddur Þór Vilhelmsson
Óskar Gísli Gylfason
Sigurður Karlsson
Valgeir Sigurjónsson
40 ára
Daria Maria Hewelt
Finnur Guðlaugsson
Helga Kristín Skúladóttir
Ingibjörg H. Ingadóttir
Jón Ásgrímsson
Peter Joseph Cassidy
Pétur Ragnarsson
Priscila Jaques Vieira
Shijo Mathew
Sigurpáll Davíð
Eðvarðsson
Unnar Vilhelm Karlsson
Zanna Volkova
30 ára
Auður Eir Guðnadóttir
Bartlomiej Suszko
Birna Ósk Sigurjónsdóttir
Edda Rós Örnólfsdóttir
Fjóla Hrund Björnsdóttir
Gjergji Guraj
Jón Steinar Jónsson
Jón Steinar Ólafsson
Julia Friederike Sciba
Kamil Jan Lewandowski
Krzysztof Gasiewski
Lilja Rún Kristjánsdóttir
Rúnar Kristjánsson
Sundra Mae Amate Secong
Sylwia Gabinska
Til hamingju með daginn
30 ára Rúnar ólst upp á
Selfossi, býr þar, var lengi
keppnismaður í golfi og er
pípulagningamaður.
Maki: Guðfinna Jenný
Þorsteinsdóttir, f. 1993,
nemi í lögfræði við HÍ.
Dóttir: Sara Björk, f.
2016.
Foreldrar: Kristján Karl
Pétursson, f. 1964, bif-
vélavirki, nú búsettur í
Kanada, og Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, f. 1965,
búsett í Kanada.
Rúnar
Kristjánsson
30 ára Jón Steinar ólst
upp á Hellissandi, býr í
Reykjavík og starfar hjá
Smyril Line Cargo í
Hafnarfirði.
Maki: Kristfríður Rós
Stefánsdóttir, f. 1995,
flugfreyja að ljúka námi í
íþrótta- og heilsufræði.
Foreldrar: Ólafur Rögn-
valdsson, f. 1954, útgerð-
armaður á Rifi, búsettur á
Hellissandi, og Hildur
Gunnarsdóttir, f. 1956,
stuðbolti á Hellissandi.
Jón Steinar
Ólafsson
30 ára Fjóla Hrund ólst
upp á Hellu, er nú búsett í
Garðabæ, lauk BA-prófi í
stjórnmálafræði frá Há-
skóla Íslands og er flug-
freyja hjá WOW air.
Maki: Kristján Jökull Sig-
urðsson, f. 1987, forritari.
Foreldrar: Björn Sigurðs-
son, f. 1947, fyrrv. útibús-
stjóri hjá Arion banka á
Hellu, og Vilborg Sigurð-
ardóttir, f. 1954, hús-
freyja. Þau eru búsett á
Hellu.
Fjóla Hrund
Björnsdóttir