Morgunblaðið - 23.05.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Gaman Kristín og Guðríður Sigurbjörnsdóttir, samstarfskona hennar,
ásamt Achola Afrikana Otieno sem hefur kynnt tungumálið svahílí.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég kom til Íslands eftirað hafa búið í Danmörku í29 ár, frá því ég var sexára. Ég var því í raun af
erlendum uppruna, þó að ég væri
fædd hér. Ég ætlaði að staldra við
hér á landi í leyfi í sex mánuði en
menningarmótsverkefninu mínu var
svo vel tekið að ég er hérna enn, tíu
árum síðar,“ segir Kristín R. Vil-
hjálmsdóttir, verkefnastjóri fjöl-
menningar hjá Borgarbókasafni, en
hún er hugmyndasmiður verkefnis á
vegum bókasafnsins sem heitir
Menningarmót – Fljúgandi teppi.
„Menningarmótsverkefnið mitt
gengur út á að varpa ljósi á sögu,
lífsreynslu, styrkleika og tungu-
málaforða þeirra sem taka þátt. Til-
gangurinn er að skapa vettvang þar
sem borgarbúar geta hist, bæði Ís-
lendingar og þeir sem hér búa en
eru með rætur í öðrum löndum og
menningarheimum. Þetta snýst um
að skapa samtal, leyfa fólki að miðla
sinni menningu og tungumáli, út frá
þess eigin forsendum og lífs-
reynslu.“
Kristín segist hafa byrjað að
þróa verkefnið þegar hún var kenn-
ari á Jótlandi.
„Við vinnum út frá opnu menn-
ingarhugtaki, ekki aðeins því sem
tengist landamærum, heldur
persónulegri menningu og sögu, því
að allir eiga sína sögu. Í fjölmenn-
ingarsamfélagi okkar gengur þetta
út á að flétta sögurnar saman og svo
búum við til nýjar sögur saman. Við
búum til samfélag saman út frá
framlagi hvers og eins,“ segir Krist-
ín og bætir við að Menningarmót –
Fljúgandi teppi sé verkefni sem sé í
boði fyrir leik-, grunn- og fram-
haldsskólana í borginni.
„Þá fer ég og undirbý með
kennurum og set verkefni af stað, en
á menningarmótinu sjálfu kynna
börnin styrkleika sína, áhugamál og
persónulega menningu. Við erum að
reyna að fljúga út um allt samfélagið
á töfrateppinu okkar,“ segir Kristín
og bætir við að verkefnið hafi hlotið
ýmsar viðurkenningar og vakið
áhuga ekki aðeins á Íslandi, heldur
líka í hinum Norðurlandaríkjunum, í
Kanada, Tékklandi og Belgíu.
Einnig hefur verkefni Kristínar
fengið tungumálaviðurkenningu;
Evrópumerkið árið 2017.
Ég tilheyri tveimur löndum
Kristín segist ekki aðeins hafa
komið til Íslands til að fara af stað
með fjölmenningarstarf hjá Borgar-
bókasafninu, heldur einnig til að
kynnast rótum sínum.
„Ég hafði ekkert búið hér sem
fullorðin manneskja og ég hafði ekki
fengið móðurmálskennslu í íslensku
í uppvextinum í Danmörku. Ég hafði
ekki talað íslensku nema einu sinni
til tvisvar á ári, þegar ég kíkti í
heimsókn til Íslands. Ég var auðvit-
að orðin dönsk og kom því hingað
sem innflytjandi, ég kom til Íslands
með þessa sömu reynslu og fólk af
erlendum uppruna sem býr hér, fólk
sem hefur farið frá heimalandinu og
flyst þangað sem er nýtt umhverfi
og nýtt tungumál. Þetta nýttist mér
vel í vinnunni við fjölmenningar-
verkefnið, og ég lærði líka að skrifa
íslensku í gegnum þessa vinnu.“
Kristín segir að við það að flytja
heim til Íslands, upprunalands síns,
hafi heimurinn allur opnast fyrir
henni, í gegnum vinnu hennar með
fjölmenningarsamfélagið hér.
„Ég er mikil tungumálamann-
eskja og var tungumálakennari í
Danmörku. Ástríða mín fyrir tungu-
málum og menningu kemur kannski
til af því að ég tilheyri tveimur
löndum, og það er stór hluti af lífs-
sögu minni. Ég hef fyrir vikið haft
mikla þörf fyrir að tengja fólkið mitt
í Danmörku við Ísland, og tengja
fólkið mitt á Íslandi við Danmörku.
Þessi reynsla mín, að tilheyra tveim-
ur heimum, hefur litað starf mitt og
nýst vel þar, sem og í persónulegu
lífi mínu. Ég hef getað sett mig í
spor fólks af erlendum uppruna af
því ég hef sjálf setið beggja megin
við borðið.“
Kristín segist í vinnu sinni við
verkefnið hafa fengið mikla útrás
fyrir að fara á dýptina með tungu-
mál, kynnast tungumálaheimum og
menningarheimum. „Ég hef fengið
tækifæri til að vekja forvitni um
tungumál. Þetta er mjög skemmti-
legt starf, þetta er eins og að vera
hluti af einni stórri fjölskyldu. Við
vinnum mikið með grasrótinni, sam-
tökum innflytjenda, en eitt aðal-
markmiðið með opnu húsunum er að
skapa vettvang fyrir grasrótina. Til
að byrja með þurftum við mikið að
leita og hafa fyrir því að koma þessu
á framfæri en núna er þetta orðið
svo þekkt að fólk hefur samband að
fyrra bragði og biður um að vera
með við að búa til hvers konar dag-
skrá, barnaviðburði og fleira.“
Flogið um allt sam-
félagið á töfrateppi
„Ég hafði ekki búið hér sem fullorðin manneskja og ég hafði ekki fengið móður-
málskennslu í íslensku í uppvextinum í Danmörku. Ég hafði ekki talað íslensku
nema einu sinni til tvisvar á ári, þegar ég kíkti í heimsókn til Íslands. Ég var orð-
in dönsk og kom því hingað sem innflytjandi,“ segir Kristín R. Vilhjálmsdóttir,
verkefnastjóri fjölmenningar hjá Borgarbókasafninu.
Menningarmót í Fellaskóla Kristín segir starf sitt vera mjög skemmtilegt.
Handagangur í öskjunni Oft er líf og fjör í fjölmenningarstarfinu.
Nú þegar blessuð börnin eru að ljúka
skóla er um að gera að skoða hvað er
í boði fyrir þau yfir sumarið. Í gær var
opnað fyrir skráningar í sumar-
smiðjur menningarhúsa Borgarbóka-
safnsins og kennir þar ýmissa grasa
fyrir börn og unglinga. Má nefna
rapp- og tónlistarkennslu, mannfræði
á krakkamáli, myndlistarnámskeið,
bókagerðanámskeið, ritsmiðju o.fl.
Nánar á borgarbokasafn.is
Fjör á sumarnámskeiðum
Rapp, myndlist
og fleira flott
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smiðjustjóri Kött Grá Pje.
Tíu ára afmæli fjölmenningar-
starfs Borgarbókasafnsins
verður fagnað með tveggja daga
norrænni ráðstefnu í Veröld –
húsi Vigdísar, sem hefst á
morgun, fimmtudag 24. maí.
Yfirskriftin er: Rætur og
vængir, og meðal annars verður
spurt: Hvernig geta mennta- og
menningarstofnanir, félaga-
samtök og listamenn í samein-
ingu stuðlað að fjölbreyttu
menningarlífi þar sem allir fá að
njóta sín? Auk Kristínar flytja
erindi: Vigdís Finnbogadóttir,
Eliza Reid, Mazen Maarouf,
Helga Arnalds og Sjón.
Hægt verður að fylgjast með
ráðstefnunni á streymi, á face-
booksíðu viðburðarins: Rætur
og vængir.
Rætur og
vængir
TVEGGJA DAGA RÁÐSTEFNA
Fjölbreytni Krakkar frá ólíkum
heimum mætast á menningarmóti.