Morgunblaðið - 23.05.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum
þarf að neyta 250 mg á dag.
OMEGA-3
FYRIR SJÓN
OG AUGU
Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi
sem er einkumætlað að viðhalda
eðlilegri sjón.
Omega-3 augu inniheldur lútein,
zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt
omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og
ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla
að viðhaldi eðlilegrar sjónar.
Fæst í öllum helstu apótekum landsins.
www.apotekarinn.is
- lægra verð
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
15%
afslátt
ur*
* 2MG og 4MG 204 stk
pakkningum. Gildir af öllum
bragðtegundum.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Tillögur að nýju skipulagi í Örfir-
isey, sem oft er betur þekkt sem
Grandi, voru kynntar af meistara-
nemum í skipulagsfræðum við Land-
búnaðarháskóla Íslands á þriðjudag.
Tillögurnar eru hluti af verkefni sem
meistaranemar á fyrsta ári vinna en
í verkefninu þurfa nemendur meðal
annars að vinna greiningar á veð-
urfari, vatnafari og sögu og þróun
byggingar.
„Þetta vakti greinilega áhuga póli-
tíkusa því það voru mættir fulltrúar
frá mörgum framboðum til að fylgj-
ast með og kynna sér málið,“ segir
dr. Sigríður Kristjánsdóttir, lektor
við skólann, í samtali við Morgun-
blaðið.
Tillögurnar eru ólíkar að mörgu
leyti en hafa þó allar útsýnið sem
svæðið býður upp á í öndvegi við
skipulagningu. Mikil áhersla er lögð
á þétta byggð en tillögurnar gera
ráð fyrir uppbyggingu íbúðahverfis
á svæðinu þar sem vistvænum ferða-
mátum, tækninýjungum og menn-
ingu er gert hátt undir höfði. Ein af
tillögunum gerir ráð fyrir byggingu
nýs Listaháskóla en önnur gerir ráð
fyrir því að olíutankarnir, sem hafa
staðið á svæðinu frá því um miðja
síðustu öld, verði gerðir að bátaskýli
og svæði fyrir heita potta.
„Ættu að senda Reykjavík-
urborg reikning“
Síðustu ár hafa meistaranemar í
skipulagsfræði unnið sambærileg
verkefni á öðrum svæðum borg-
arinnar en þar hafa meðal annars
komið fram tillögur að skipulagi við
Hörpu og á Miklubraut. Aðspurð
hvort tillögurnar hafi einhvern tíma
komist í framkvæmd segir Sigríður:
„Þegar við tókum Hörpuna rétt eftir
hrun þá var svæðið þar nánast í rúst.
Nemendurnir ættu bara að senda
Reykjavíkurborg reikning því þeir
kynntu sitt skipulag fyrir þeim og í
dag er búið að breyta þessu nánast í
fullkomnu samræmi við þeirra til-
lögur“. Nemendur Sigríðar unnu
einnig með skipulag við Suðurlands-
braut árið 2013. „Þá vorum við að
hugsa um þessa hugmynd að Borg-
arlínunni, en þá var að vísu borgar-
línutitillinn ekki kominn,“ segir Sig-
ríður en eins og margir vita er
Borgarlínan svokallaða eitt helsta
deiluefni komandi borgarstjórnar-
kosninga.
Grandi Ein af tillögunum gerir ráð fyrir nýrri vegtengingu um Hringbraut.
Grandi endur-
skipulagður
Nemar endurskipuleggja borgina
Sorpa setti nýverið á laggirnar svo-
kallaða efnismiðlun, tilraunaverkefni
sem ætlað er að endurnýta hin ýmsu
efni og hluti í stað þess að koma þeim
strax í hefðbundið endurvinnsluferli.
Rekstrarstjóri endurvinnslustöðva,
Guðmundur Tryggvi Ólafsson, segir
endurnotkun umhverfisvænni en end-
urvinnslu. Að sögn Guðmundar er að-
sóknin í efnismiðlunina töluverð en
framboð og eftirspurn haldast ekki
endilega í hendur. „Timbur er vinsælt
ásamt gluggum og reiðhjólum. Það er
einnig mikil eftirspurn eftir steyptum
hellum en minna um framboð.“
Efnismiðlunin er eins konar bygg-
ingavörumarkaður ætlaður þeim sem
standa í framkvæmdum en markhóp-
urinn er einnig skólar og listafólk.
„Þarna er að finna mikið úrval af ým-
iss konar vörum til framkvæmda fyrir
lítinn pening.“ ragnhildur@mbl.is
Endurnotkun ofar endur-
vinnslu í tilraunaverkefni
Sorpa opnar
efnismiðlun
Ljósmynd/Sorpa
Efnismiðlun Hér er hægt að finna timbur, glugga, reiðhjól, dekk og fleira.
Fimm voru fluttir á slysadeild eftir að húsbíll fauk út af þjóðveginum undir
Hafnarfjalli á sjötta tímanum í gær. Einn farþeginn festist undir bifreiðinni
en vel gekk að losa hann og er hann ekki alvarlega slasaður. Aðrir voru
með eymsli eða óslasaðir. Alls voru fimm manns í bílnum, þrír fullorðnir og
tvö börn, og voru þau öll flutt á slysadeild til aðhlynningar. Bifreiðin var á
suðurleið en var að sögn lögreglu kyrrstæð eða á mjög lítilli ferð þegar
hún fauk út af veginum. Hvöss suðaustanátt hefur verið á Suður- og Vest-
urlandi í dag með talsverðri rigningu og snörpum vindstrengjum við fjöll.
Veðurstofan hefur varað við því að ökumenn ökutækja sem taka á sig mik-
inn vind séu á ferðinni.
Húsbíll fauk út af veginum við Hafnarfjall
síðdegis í gær og slösuðust fimm farþegar