Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 16
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þann 10. september 2013, fyrir
tæpum fimm árum, framkvæmdi
Samkeppniseftirlitið húsleit á
starfsstöðvum Samskipa og Eim-
skips. Húsleitin var gerð vegna
rannsóknar á meintum brotum
gegn 10. og 11. grein samkeppn-
islaga. Í tilkynningu um afkomu
17. maí síðastliðinn neitar Eimskip
því að hafa gerst brotlegt gegn
ákvæðum samkeppnislaga.
Morgunblaðið birti frétt 11.
september 2013, um ofangreinda
húsleit, undir fyrirsögninni Vís-
bendingar um ólöglegt samráð.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, sagði m.a.
í fréttinni: „Það er verið að afla
gagna vegna vísbendinga um
hugsanleg brot á samkeppnis-
lögum. Það er gert á grundvelli
úrskurðar frá Héraðsdómi
Reykjavíkur. Það var farið í þess-
ar aðgerðir samtímis hjá báðum
fyrirtækjunum.“
Þar kom jafnframt fram að hús-
leit var einnig gerð hjá dóttur-
félögum Eimskips, Eimskip Ísland
ehf. og TVG Zimsen ehf., og
dótturfélögum Samskipa, Land-
flutningum og Jónum Transport.
Þann 12. september 2013 birti
Morgunblaðið frétt um að gagna-
öflun Samkeppniseftirlitsins væri
lokið. Rúmu ári síðar, 15. október
2014, birtist frétt í Morgunblaðinu
undir fyrirsögninni „Grunaðir um
ólöglegt samráð“, þar sem sagði
að Samkeppniseftirlitið hefði kært
ellefu starfsmenn Eimskips og
Samskipa til embættis sérstaks
saksóknara vegna gruns um að fé-
lögin hefðu um árabil haft með sér
ólöglegt samráð. Þar kom jafn-
framt fram að Samkeppniseftir-
litið hefði framkvæmt aðra húsleit
í fyrirtækjunum sumarið 2014.
Bæði félög neita sök
16. október 2014 birti Morgun-
blaðið frétt undir fyrirsögninni
Eimskip og Samskip neita sök.
Þar kom fram að Samkeppnis-
eftirlitið hefði fengið ábendingar
um ólöglegt samráð og að félögin
misnotuðu markaðsráðandi stöðu
sína.
Orðrétt sagði í ofangreindri
frétt: „Fram kom í fréttum RÚV í
gær að forstjórar Vífilfells og Öl-
gerðarinnar ætla að kalla eftir
skýringum skipafélaganna í ljósi
kæru Samkeppniseftirlitsins.
Pálmar Óli Magnússon, forstjóri
Samskipa, hafnar því að hann og
fleiri starfsmenn Samskipa hafi
gerst brotlegir við ákvæði sam-
keppnislaga. „Við höfum ekki séð
þetta plagg sem RÚV er greini-
lega með, þannig að það er erfitt
að tjá sig efnislega um það. Ég
horfði á Kastljósið og gat ekki séð
neitt í þeirri umfjöllun, sem benti
til þess að samkeppnislög hafi ver-
ið brotin,“ sagði Pálmar Óli í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.“
Pálmar Óli var spurður um
þann hluta umfjöllunar Kastljóss-
ins þar sem greint var frá því að
innan Samskipa hefði verið sagt
að láta ætti Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar eiga sig, á meðan
Vífilfell væri hjá Samskipum,
hvort það væri ekki vísbending
um brot á samkeppnislögum. „Nei,
af hverju?“ spurði Pálmar Óli.
Í fréttinni kom fram að Ólafur
Þór Hauksson, þáverandi sér-
stakur saksóknari, nú héraðs-
saksóknari, segði að hann gæti
ekki tjáð sig efnislega um kæru
Samkeppniseftirlitsins á hendur
ellefu starfsmönnum Eimskips og
Samskipa til embættis sérstaks
saksóknara vegna gruns um að fé-
lögin hefðu um árabil haft með sér
ólöglegt samráð, en Ólafur Þór
staðfesti að kæran hefði borist
embættinu í mars á 2014.
Staðfesti ekki umfjöllunina
Í fréttinni kemur fram að Sam-
keppniseftirlitið hafi deginum áður
sent frá sér athugasemd, þar sem
sagði m.a.: „Samkeppniseftirlitið
mun ekki verða við beiðnum fjöl-
miðla um aðgang að gögnum máls-
ins. Jafnframt er eftirlitið ekki
reiðubúið að staðfesta þá umfjöll-
un sem fram kom í Kastljósi í
gærkvöldi. Þá skal sérstaklega
tekið fram að rannsókn málsins er
ekki komin á það stig að unnt sé
að slá neinu föstu um niðurstöður
hennar.“
Þann 24. október 2014 birtist
svohljóðandi frétt í Morgunblaðinu
undir fyrirsögninni „Eimskip kær-
ir leka til lögreglu“: „Eimskip hef-
ur kært til lögreglu leka á upplýs-
ingum til fréttaþáttarins Kastljóss
er tengjast rannsókn Samkeppnis-
eftirlitsins á félaginu. Segir í til-
kynningu frá Eimskip að Kauphöll
Íslands hafi athugunarmerkt
hlutabréf Eimskipafélags Íslands
vegna leka á gögnum til Kastljóss
er tengjast rannsókn Samkeppn-
iseftirlitsins. Eimskip segir í til-
kynningu að lekinn hafi skaðað
ímynd félagsins.
Þá hafnar Eimskip ásökunum
um að hafa gerst brotlegt gegn
ákvæðum samkeppnislaga. Fram
kemur að það sé von félagsins að
rannsókn á því hvernig áðurnefnd
trúnaðargögn komust í hendur
óviðkomandi upplýsist sem fyrst.“
Morgunblaðið/EggertMorgunblaðið/Hari
Eimskip Uppskipun úr Bakkafossi, einu gámaskipa Eimskips, í Sundahöfn.
Rúm fjögur ár frá því að kært var
Félögin neita því að hafa brotið lög Önnur húsleit Samkeppniseftirlitsins sumarið 2014
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
Þurrkarar
Ofnar
Helluborð
Ryksugur
Smátæki
Þv
ot
ta
vé
la
r
Kæ
lis
ká
pa
r
Vi
ft
ur
og
há
fa
r
Uppþvottavélar
Alveg
einstök gæði
20-25% afsláttur
af öllum vörum í nokkra daga
Lágmúla 8 · sími 530 2800
TILBOÐSDAGAR
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu í
gær að fjórir menn hefðu stöðu
sakbornings í rannsókn héraðssak-
sóknara á meintum samkeppnis-
brotum Samskipa og Eimskips.
Í meginmáli er rifjað upp að Eim-
skip kærði til lögreglu leka á upp-
lýsingum til Kastljóssins í október
2014. Ólafur Hand, upplýsinga-
fulltrúi Eimskips, var í gær spurður
hvar kæra félagsins væri stödd:
„Hún er enn hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Við vitum
ekki annað,“ sagði Ólafur.
„Þetta er mjög stórt mál, sem
skýrir það að minnsta kosti að
hluta til hversu langan tíma rann-
sóknin hefur tekið,“ sagði Ólafur
Þór Hauksson héraðssaksóknari í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagðist ekki geta rætt
efnisþætti málsins að svo stöddu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, sagði í
gær að rannsókn eftirlitsins beind-
ist að mögulegum brotum fyrir-
tækja á samkeppnislögum, þ.e. í
stjórnsýslumáli. „Þessi rannsókn
hefur reynst gríðarlega umfangs-
mikil og tímafrek og mikil vinna
hefur farið í að afla og greina gögn
og upplýsingar,“ sagði Páll Gunnar,
en ekki væri hægt að upplýsa frek-
ar um framvindu málsins.
Þetta er mjög stórt mál
HÉRAÐSSAKSÓKNARI OG FORSTJÓRI SAMKEPPNISEFTIRLITS
Samskip Helgafell, eitt gámaskipa Samskipa, komið til landsins hlaðið gámum.