Morgunblaðið - 23.05.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 23.05.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Verðbólgutrygging sem þak á verð- tryggðum húsnæðislánum myndi ekki kosta mikið ef tilgangurinn með tryggingunni er að tryggja sig fyrir óðaverðbólgu. Þetta er meðal niðurstaðna í meistaraverkefni Torfa Más Hreinssonar frá tækni- og verkfræði- deild Háskólans í Reykjavík. Sem dæmi nefnir Torfi að verð- bólgutrygging til 40 ára með samn- ingsgengi upp á 6% myndi kosta tæplega 800 þús- und krónur. Hann segir að samningsgengi verðbólgu hafi mikil áhrif á kostnað við verðbólgutrygginguna. Í flest- um tilfellum myndi ekki borga sig að tryggja sig gegn verðbólgu til 40 ára þegar samningsgengið er sett of lágt. Vill ekki boð og bönn Spurður um ástæðuna fyrir þessu vali á meistaraverkefni segir Torfi í samtali við Morgunblaðið að sér finnist umræðan um afnám verð- tryggingar áhugaverð. „Mér finnst áhugaverðar þær skoðanir fólks að allt yrði betra ef verðtryggingin yrði afnumin. Ég er nokkuð viss um að svo verði ekki,“ segir Torfi. Hann segist almennt ekki vera hlynntur boðum og bönnum á þessu sviði. „Ég vil frekar hafa þennan valmöguleika, sem verðtryggingin er, áfram í boði. Sumum hentar þessi kostur. Ef hann er ekki í boði erum við að skerða möguleika tekjulágra til að eignast sitt eigið húsnæði.“ Torfi segir að verðbólgutrygging sé ekki í boði í dag hér á landi. Til að slíkt yrði mögulegt þyrfti að koma til lagabreyting sem heimila myndi einstaklingum að stunda af- leiðuviðskipti, eða þá að sett yrðu sértæk lög um þak á verðtryggð lán. Spurður að því hvort að sambæri- legar tryggingar tíðkist erlendis bendir Torfi á að íslenska verð- tryggingin sé séríslenskt kerfi og því sé erfitt að finna svipuð dæmi erlendis. Minnka vanefndir Í verkefninu rekur Torfi hvernig verðbólgutrygging gæti minnkað líkur á vanefndum hjá tryggðum að- ilum. Því þyrftu lánastofnanir ekki að halda eftir jafn stórum eiginfjár- grunni þar sem lánasafnið væri öruggara. „Það gefur auga leið að ef það kæmi verðbólguskot og eigið fé lántaka í húsnæði hans myndi hverfa, þá myndi hvati lántakans til að halda áfram að greiða af láninu sömuleiðis hverfa. En hins vegar ef þakið er til staðar, þá heldur lántaki eignarhlut í fasteigninni og hefur þar með áfram hvata til að greiða af láninu,“ segir Torfi að endingu. Verðbólgutrygging ódýr lausn gegn óðaverðbólgu Morgunblaðið/RAX Hvati Verðbólgutrygging gæti staðið vörð um hvata lántakenda til að greiða.  Í stað afnáms verðtryggingar gæti trygging gegn verðbólgu verið raunhæfur kostur Verðtrygging » Torfi notaði útfærslu Kron og Kruse á Black-Scholes líkaninu fyrir verðlagningu val- rétta til að verðleggja verð- bólgutryggingu. » Skoðaði áhrif flökts á verð- bólgu, nafnvöxtum og raun- vöxtum á verðbólgutryggingar. Torfi Már Hreinsson milljarða króna milli ára; hækkuðu úr 9,9 milljörðum í 11,2 milljarða. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og virðisrýrnun stóð nánast í stað á milli ára og nam um 3,0 milljörðum. Afskriftir og virðisrýrnun voru hins vegar 650 milljónum króna meiri en 2016. Íslandshótel reka sautján hótel um land allt, þar af sex í Reykjavík. Á árinu 2017 voru 775 starfsmenn hjá Íslandshótelum, sé miðað við heilsársstörf, en 650 árið 2016. Laun og launatengd gjöld námu 4,7 millj- örðum króna en voru 3,8 milljarðar árið á undan. Stjórn Íslandshótela gerir tillögu um 150 milljóna króna arðgreiðslu til hluthafa á þessu ári vegna rekstrarársins 2017, en aðgreiðsla nam 100 milljónum króna á síðasta ári. Stærsti hluthafi Íslandshótela er ÓDT ráðgjöf, félag í eigu Ólafs D. Torfasonar, stjórnarformanns og stofnanda félagsins, en Davíð Torfi Ólafsson er framkvæmdastjóri þess. S38 slhf., í eigu fjárfestingarfélag- anna Kjölfestu og Eddu ásamt þrem- ur lífeyrissjóðum, á um 22% hlut í fé- laginu. steingrimur@mbl.is Hagnaður af rekstri Íslandshótela dróst nokkuð saman á árinu 2017 frá árinu á undan og var hagnaðurinn 401 milljón króna á síðasta ári en 936 milljónir árið áður. Að teknu til- liti til 2,8 milljarða króna endurmats á fasteignum og lóðum félagsins var heildarafkoman tæplega 2,7 millj- arðar á síðasta ári, samanborið við liðlega 3,7 milljarða árið 2016, en endurmatið hefur ekki áhrif á rekstrarreikning félagins. Endur- matið var fært í eigið fé félagsins, í samræmi við reikningsskilastaðla sem félagið tók upp á síðasta ári, en ársreikningur Íslandshótela var í fyrsta sinn gerður í samræmi við IFRS, alþjóðlega reikningsskila- staðla. Tekjur jukust um rúmlega 1,3 Hagnaður Íslandshótela dróst saman  Launakostnaður jókst verulega í fyrra Morgunblaðið/Baldur Arnarson Íslandshótel Launakostnaður jókst um rúmar 900 milljónir króna milli ára. 23. maí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 104.42 104.92 104.67 Sterlingspund 140.46 141.14 140.8 Kanadadalur 81.7 82.18 81.94 Dönsk króna 16.55 16.646 16.598 Norsk króna 12.984 13.06 13.022 Sænsk króna 12.062 12.132 12.097 Svissn. franki 104.81 105.39 105.1 Japanskt jen 0.9404 0.946 0.9432 SDR 148.38 149.26 148.82 Evra 123.28 123.96 123.62 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.9802 Hrávöruverð Gull 1285.85 ($/únsa) Ál 2296.5 ($/tonn) LME Hráolía 78.61 ($/fatið) Brent ● Hækkun hús- næðisverðs á höf- uðborgarsvæðinu síðastliðna 12 mán- uði hefur ekki verið minni síðan um mitt ár 2011. Verð á fjölbýli hefur hækk- að um 4,6% og á sérbýli um 7,1% á síðustu 12 mánuðum. Nemur heildar- hækkun húsnæðisverðs 5,4% á tíma- bilinu. Þá var fasteignaverð á höfuð- borgarsvæðinu óbreytt milli mars og apríl. Þetta kemur fram í umfjöllun í Hagsjá Landsbankans sem byggist á tölum frá Þjóðskrá Íslands. Samfelld og mikil hækkun raunverðs stoppaði skyndilega um mitt ár í fyrra og segir í umfjöllun Landsbankans að á svipuðum tíma hefi framboð á markaði tekið að aukast, sem og fjöldi nýbygg- inga. Þrátt fyrir aukið framboð hafa við- skipti dregist saman og var fjöldi við- skipta fyrstu fjóra mánuði ársins 5% minni en á sama tíma í fyrra. Á árinu 2017 voru viðskipti álíka mikil og 2015. Fasteignaverð stóð í stað milli mars og apríl Íbúðir Viðskiptum hefur fækkað í ár. STUTT ● Gengi hlutabréfa í Eimskip lækkaði um 4,67% í Kauphöllinni í gær í 94 millj- óna króna viðskiptum og endaði í 194 krónum á hlut. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær sendi félagið frá sér til- kynningu í fyrrakvöld um að forstjóri þess og einn framkvæmdastjóra hefðu báðir fengið stöðu sakbornings hinn 11. maí í kjölfar skýrslutöku hjá embætti héraðssaksóknara. Hlutabréf Eimskips hafa lækkað um tæp 42% á einu ári. Út- boðsgengi Eimskips við skráningu haust- ið 2012 var 208 krónur á hlut. Enn lækkar Eimskip

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.