Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
www.gilbert.is
Framleıtt í takmörkuðu upplagı
Aðeıns 300 stk í boðı
JS WATCH
WORLD CUP
MMXVIII
20 18
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Erkibiskup í Ástralíu var í gær fund-
inn sekur um að hafa hylmt yfir með
presti sem var sakaður um kyn-
ferðisbrot gegn börnum á áttunda
áratug aldarinnar sem leið. Erkibisk-
upinn er hæst setti maðurinn í kaþ-
ólsku kirkjunni sem hefur verið
dæmdur sekur um yfirhylmingu í
barnaníðingsmáli, að því er fram
kemur á fréttavef breska ríkisút-
varpsins.
Erkibiskupinn af Adelaide, Philip
Wilson, sem er 67 ára, var ákærður
fyrir að hafa hylmt yfir með prest-
inum Jim Fletcher sem var sakaður
um kynferðisbrot gegn börnum í
Nýju Suður-Wales. Wilson neitaði
sök og verjendur hans reyndu fjórum
sinnum að fá dómarann til að vísa
ákærunni frá vegna þess að erkibisk-
upinn hefði verið greindur með alz-
heimersjúkdóminn, sem leiðir til
hrörnunar heilans og vitglapa, lýsir
sér með slæmu minni og þverrandi
raunveruleikatengslum. Hann hefur
þó haldið stöðu sinni í kaþólsku kirkj-
unni.
Dómarinn í málinu, Robert Stone,
komst að þeirri niðurstöðu að Wilson
hefði gerst sekur um að leyna alvar-
legu, refsiverðu afbroti annars
manns. Refsidómur verður kveðinn
upp í júní og Wilson á yfir höfði sér
allt að tveggja ára fangelsi. Erkibisk-
upinn sagði í yfirlýsingu að niður-
staða dómarans ylli sér miklum von-
brigðum og kvaðst ætla að ráðfæra
sig við lögfræðinga sína um hvort
áfrýja ætti dómnum.
Vildi vernda kirkjuna
Jim Fletcher var dæmdur í fang-
elsi árið 2004 fyrir kynferðisbrot
gegn níu börnum þegar hann var
prestur í borginni Maitland. Hann
lést í fangelsi um tveimur árum síðar.
Þegar brotin voru framin var Wil-
son aðstoðarprestur í Maitland og
þeir Fletcher bjuggu í sama húsi um
tíma. Jóhannes Páll II páfi gerði Wil-
son að biskupi árið 1996 og fimm ár-
um síðar var hann vígður erkibiskup
af Adeleide.
Einn þeirra sem urðu fyrir kyn-
ferðisbrotum Fletchers, Peter
Creigh, var altarisdrengur í kirkju
hans. Creigh sagði fyrir réttinum að
hann hefði sagt Wilson frá kynferðis-
brotunum árið 1976 þegar hann var
fimmtán ára, fimm árum eftir að þau
voru framin.
Wilson neitaði því að hann hefði
vitað af athæfi Fletchers og kvaðst
ekki muna eftir samtalinu sem
Creigh lýsti fyrir réttinum. Dómar-
inn hafnaði staðhæfingu erkibiskups-
ins og komst að þeirri niðurstöðu að
Creigh væri trúverðugt og sannsög-
ult vitni. Wilson hefði vitað að frá-
sögn Creigh væri „trúverðug ásök-
un“. „Ákærði vildi vernda kirkjuna
og orðspor hennar,“ sagði í dóms-
niðurstöðunni.
Annað fórnarlamb prestsins sagði
fyrir réttinum að hann hefði sagt
Wilson frá kynferðisbrotum prests-
ins þegar hann skriftaði fyrir honum,
þá ellefu ára að aldri. Wilson hefði þá
sakað hann um lygar og refsað hon-
um með því að skipa honum að þylja
tíu maríubænir.
Creigh táraðist þegar hann heyrði
dómsniðurstöðuna. „Ákvörðunin
bindur vonandi enda á hræsni kirkj-
unnar, blekkingu hennar og misnotk-
un hennar á valdi og trausti,“ sagði
hann við fréttamenn.
Biskupar Chile sögðu af sér
Dómsniðurstaðan eykur vanda
Frans páfa sem hefur verið undir
miklum þrýstingi vegna fjölda barna-
níðingsmála sem komið hafa fram í
kaþólsku kirkjunni víða um heim síð-
ustu ár. Páfi hefur verið hvattur til að
koma á umbótum í kirkjunni til að
vernda börn og koma í veg fyrir að
hylmt sé yfir með prestum sem ger-
ast sekir um kynferðisbrot gegn
börnum.
Allir 35 biskupar Chile tilkynntu á
föstudaginn var að þeir hefðu ákveð-
ið að biðja páfa um að leysa þá frá
störfum vegna hneykslismáls sem
hefur valdið kaþólsku kirkjunni álits-
hnekki í landinu. Þeir tilkynntu af-
sagnarbeiðni sína eftir að páfi kallaði
þá á sinn fund vegna málsins.
Nokkrir biskupanna hafa verið
sakaðir um að hafa hylmt yfir með
barnaníðingnum og prestinum Fern-
ando Karadima á níunda og tíunda
áratug aldarinnar sem leið. Mikið
uppistand varð í Chile í janúar þegar
páfi var þar í heimsókn og lýsti yfir
stuðningi við umdeildan biskup, Juan
Barros, sem er sakaður um að hafa
hylmt yfir með barnaníðingnum. Páfi
bað seinna fórnarlömb prestsins af-
sökunar á orðum sínum og viður-
kenndi mistök sín eftir að hafa lesið
skýrslu um kynferðisbrot presta
gegn börnum í Chile.
Sekur um að
hylma yfir með
barnaníðingi
Helstu ásakanir, rannsóknir og fréttir um kynferðisbrot presta í heiminum á síðustu árum
Barnaníðingsmál sem tengjast kaþólsku kirkjunni
34 biskupar tilkynntu afsögn í
maí vegna barnaníðingsmála.
80 prestarhafa verið sakaðir um
kynferðisbrot gegn börnum
á síðustu árum
Chile
Bandaríkin
17.000 kærurbárust frá
fólki sem sagðist hafa
orðið fyrir kynferðisofbeldi alls
6.400 presta frá 1950 til 1980
Talið er að fjöldi fórnar-
lambanna sé allt að 100.000
Þýskaland
Hundruð barnaníðingsmála
komu fram árið 2010. Í
skýrslu frá 2017 segir að a.m.k
547 kórbörnhafi orðið
fyrir kynferðisofbeldi á árunum
1945 til 1992
Írland
14.500 börn eru sögð hafa
sætt kynferðisofbeldi
presta
Belgía
Hundruðmanns hafa kært
kynferðisbrot frá 2012.
Biskup sagði af sér
árið 2010 eftir að hafa
játað kynferðisbrot gegn
tveimur frændum sínum
Holland
Tugir þúsundabarna urðu fyrir
kynferðisbrotum á árunum
1945-2010. Um 800 prestar
hafa verið sakaðir um
kynferðisbrot
Austurríki
Nokkur hneykslismál leiddu í
ljós að um 800mannsurðu
fyrir kynferðisofbeldi. Tvö
hneykslismál urðu til þess
að erkibiskup sagði af sér árið
1994 og biskup árið 2004
Rúmlega 10.000manns sem
segjast hafa orðið fyrir
kynferðisbrotum tóku höndum
saman árið 2002 til að krefjast
skaðabóta
Kanada
Ástralía
Péturstorg í
Páfagarði, 25. mars
Ljósmynd AFP: Marco Bertorello
Um 15.000manns höfðu
samband við nefnd,
sem var stofnuð árið 2012,
og sögðust hafa orðið
fyrir kynferðisbrotum
í kirkjum, skólum og
munaðarleysingjahælum
Hæst setti kaþólski biskupinn sem
dæmdur hefur verið fyrir yfirhylmingu
AFP
Fórnarlömb níðings Þrír menn, sem urðu fyrir kynferðisbrotum prests í
Chile þegar þeir voru börn, í Róm eftir að þeir fengu áheyrn hjá páfa.
Sænsk almannavarnayfirvöld hafa
skýrt frá áformum um að dreifa
bæklingi á öll heimili í Svíþjóð til að
fræða þau um hvernig eigi að búa sig
undir hugsanlegt stríð, náttúru-
hamfarir, hryðjuverk og netárásir.
Bæklingurinn er 20 blaðsíður og
verður gefinn út á þrettán tungu-
málum að beiðni sænsku ríkisstjórn-
arinnar. Honum verður dreift til 4,7
milljóna heimila frá 28. maí til 3. júní.
Titill bæklingsins er „Ef hættuástand
eða stríð verður“.
„Jafnvel þótt Svíþjóð sé öruggari
en mörg önnur lönd … eru hættur
fyrir hendi,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Dan Eliasson, forstjóra al-
mannavarnastofnunar Svíþjóðar,
sem annast útgáfuna.
Í bæklingnum er Svíum meðal ann-
ars ráðlagt að kaupa matvæli sem
þola vel geymslu, þurfa lítið vatn eða
séu tilbúin til neyslu án matreiðslu.
Meðal annars er mælt með geymslu-
þolnu brauði, t.d. tortilla-pönnukök-
um og kexi, forsoðnum baunum,
niðursoðnu baunamauki, sardínu-
dósum, tilbúnum súpum og orku-
stöngum. Fólki er ráðlagt að búa sig
undir hugsanlegt rafmagnsleysi,
símasambandsleysi og kulda í húsum,
m.a. með því að geyma hlýjan ull-
arfatnað, svefnpoka og kerti. Svíar
eru einnig fræddir um hvernig þeir
eigi að finna næsta loftvarnabyrgi og
verða sér úti um hreint drykkjarvatn.
Slíkur bæklingur var síðast gefinn
út í Svíþjóð árið 1961 þegar kalda
stríðið stóð sem hæst. Í bæklingnum
er ekki minnst á neitt land sem gæti
ógnað Svíþjóð en engin launung er á
því að sænsk stjórnvöld telja að land-
inu geti stafað hætta af auknum um-
svifum rússneska hersins. Til að
mynda birti varnarmálanefnd
sænska þingsins skýrslu í desember
þar sem hún lagði til aukin framlög til
sænska hersins á næstu árum til að
efla hann vegna aukins hernaðar-
máttar Rússlands.
Fólkinu kennt að
vera viðbúið stríði
Bæklingi dreift á heimili í Svíþjóð
AFP
Almannavarnir Dan Eliasson
kynnti bæklinginn í fyrradag.