Morgunblaðið - 23.05.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 23.05.2018, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Nauthólsvík Sólin skein í heiði á annan dag hvítasunnu. Sumir fóru í sjóinn en landkrabbarnir voru kappklæddir. Kristinn Magnússon 1. „Staðfest áform“ um íbúðabyggingu skila sér í fullgerðum íbúðum á næstu árum. Raunveruleikinn: Rangt. Það hafa aldr- ei verið jafn fáar íbúð- ir byggðar á neinu 8 ára tímabili í Reykja- vík frá árinu 1929 eins og síðustu tvö kjör- tímabil undir stjórn Dags B. Eggerts- sonar. Þrátt fyrir öll staðfestu áformin. 2. Samfylkingin ætlar að bæta við leikskólaplássum með því að byggja nýja leikskóla. Raunveruleikinn: Það vantar í hið minnsta 100 leikskólakennara og það hefur þurft að loka heilu deildunum á leikskólum á und- anförnum árum. Þetta er ekki nýtt vandamál og borgarstjórn- armeirihlutinn hefur ekkert gert til að bæta kjör starfsfólks leik- skóla. 3. Íbúðauppbygging á þétting- arreitum skilar sér fljótlega í þéttari borg. Raunveruleikinn: Íbúum í ná- grannasveitarfélögum Reykjavík- ur hefur fjölgað um þúsundir um- fram Reykjavík á ári hverju um nokkurt skeið. Þétting á afmörk- uðu svæði vestan Kringlumýr- arbrautar mun ekki vinna gegn þessari þróun. Þvert í móti hefur íbúðaskortur í Reykjavík ýtt íbú- um enn hraðar út í nágranna- sveitarfélögin og jafnvel lengra út, t.d. á Reykjanes, Suðurland og Akranes. 4. Skuldir Reykjavíkurborgar hafa lækkað. Raunveruleikinn: Skuldir Reykjavíkurborgar vegna dag- legs rekstrar hafa hækkað þrátt fyrir að tekjur hafi aldrei verið meiri en Orkuveitan hefur lækk- að skuldir stórlega. Vinstrimenn settu sérstaka undanþágu í lög 2012 sem undanskilja orkufyr- irtæki frá skuldum sveitarfélaga þegar kemur að viðmiðunum fyr- ir að sveitarfélög missi fjárhags- legt sjálfstæði sitt. Þessi lög voru sett sérstaklega vegna skulda Orkuveitu Reykjavíkur. En nú vill borgarstjórn hinsvegar telja lækkun þessara skulda sér til tekna. 5. Met var slegið í úthlutunum lóða. Raunveruleikinn: Það er auð- velt að slá met með þeirri aðferð að fresta úthlutunum fram á næsta ár. Hvað þá með því að slá met eftir sögulega litla úthlutun lóða í 3 ár í röð og koma svo til baka af krafti með uppsafnaðar úthlutanir. Ef kjörtímabilið er skoðað sem heild eru úthlutanir á lóðum vel undir meðallagi. 6. Borgarstjórn hefur tekist að lækka skuldir Orkuveitunnar. Raunveruleikinn: Skuldir Orkuveitunnar þrettánfölduðust þegar gengi krónunnar var óhag- stætt. Nú er gengi krónunnar betra og erlendar skuldir lægri. Borgarstjóra er ekki hægt að þakka þann efna- hagslega viðsnúning á Íslandi sem rík- isstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar náði með bar- áttunni við vogunar- sjóðina. 7. Yfirbygging hef- ur ekki aukist í borg- inni. Raunveruleikinn: 85% aukning útgjalda hefur orðið hjá miðlægri stjórnsýslu borgarinnar og starfs- mönnum hefur fjölgað. 8. Útþensla byggðar leiðir af sér fleiri bíla á Miklubrautina. Raunveruleikinn: Þétting byggðar og atvinnustarfsemi kringum miðborgina leiðir af sér fleiri bíla á Miklubrautina. Upp- bygging atvinnustarfsemi í út- hverfum þarf að fylgja uppbygg- ingu íbúðabyggðar. Þá liggur umferðarstraumurinn ekki allur í sömu átt á álagstímum. 9. Nú er mesta upbyggingar- skeið í sögu borgarinnar. Raunveruleikinn: Það á ekki við um fullgerðar íbúðir. Ef með- altal í fullgerðum íbúðum á ári er skoðað allt aftur til 1929, þá hafa síðustu 2 kjörtímabil, undir stjórn Dags verið undir meðallagi hvert ár af kjörtímabilinu. 10. Það er ekki nægt vinnuafl til að byggja íbúðir hraðar. Raunveruleikinn: Skortur á vinnuafli virðist ekki standa ná- grannasveitarfélögum fyrir þrif- um að eiga met í íbúðauppbygg- ingu. Ekki virðist heldur skorta vinnuafl til að reisa hótel. Ísland er í EES og það er nóg af vinnu- afli að hafa. 11. Strætófarþegum hefur fjölgað. Raunveruleikinn: Innstigum í strætó hefur fjölgað. En mark- miðið sem lagt var upp með í samningi um stöðvun vegafram- kvæmda 2012 hljóðaði upp á að auka hlutdeild strætó í ferðavenj- um borgaranna. En sú hlutdeild hefur verið föst í 4% síðan ríkið fór að veita milljarð á ári til strætó. Að innstigum hafi fjölgað á sama tíma er merki um að strætókerfið sé orðið óskilvirkara þannig að nú þarf hver farþegi að stíga upp í fleiri vagna til að komast leiðar sinnar. Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Það hafa aldrei verið jafn fáar íbúðir byggðar á neinu átta ára tímabili í Reykjavík eins og síðustu tvö kjör- tímabil undir stjórn Dags B. Eggertssonar. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og er borgarstjóraefni Miðflokksins. Blekkingar borgarstjóra Fullgerðar íbúðir í Reykjavík 1929-2017 1.000 800 600 400 200 0 Fjöldi Miðgildi 1929 1940 1951 1962 1973 1984 1995 2006 2017 Heimild: Ársskýrsla byggingarfulltrúa 2017 935 872 405 95 482 1.026 634 25 Fátt skiptir foreldra meira máli en að börn- um þeirra standi til boða góð menntun. Fyrir börnin er menntun lykillinn að framtíðinni. Grunn- urinn er lagður í grunnskólum og leik- skólum. Allt það sem á eftir kemur byggist á þessum grunni, sem sveitarfélögin hafa tekið að sér að bera ábyrgð á. Það er miður hve fátækleg op- inber umræða um menntamál er í aðdraganda sveitarstjórnarkosning- anna næstkomandi laugardag. Um það verður ekki efast að allir fram- bjóðendur til sveitarstjórna vilja standa vel að málum leik- og grunn- skóla. Margir lofa enn hærri út- gjöldum og taka undir kröfu um að fjölga sérfræðingum í grunnskólum og lýsa því yfir að nauðsynlegt sé að hækka laun kennara. En verður vandinn sem við er glímt leystur með þessum einfalda hætti? Munu gæði menntunar aukast? Ég leyfi mér að efast. Í skýrslu Samtaka iðnaðarins – Ísland í fremstu röð eflum sam- keppnishæfnina – er bent á að eng- in þjóð innan OECD verji hærri fjármunum til grunnskólans en Ís- lendingar. Þrátt fyrir þetta bendir alþjóðlegur samanburður til þess að íslenskir nemendur standi lakar að vígi en nemendur þeirra landa sem við viljum bera okkur saman við. Á mælikvarða PISA var Ísland í 27. sæti af 35 í lesskilningi og 24. sæti í stærðfræði. Grunnskólanemendum á hvern kennara hefur fækkað á undan- förnum áratugum. Stöðugildum kennara fjölgaði um 868 frá alda- mótaárinu til ársins 2016. Nem- endum á stöðugildi fækkaði úr 12,7 í 10,3. Öðru starfsfólki grunnskól- anna hefur einnig fjölgað. Frá 2000 til 2016 fjölgaði stöðugildum við ís- lenska grunnskóla um 1.549 sam- kvæmt tölum Hagstofunnar. Heildarútgjöld sveitarfélaganna vegna grunnskólans námu alls 79,5 milljörðum króna árið 2016 sem er um 24,5 milljörðum hærri fjárhæð á föstu verðlagi en árið 2000. Sam- kvæmt gögnum Hagstofunnar lækkuðu útgjöldin töluvert að raun- virði í kjölfar falls bankanna en hafa hækkað aftur á síðustu árum. Svipaða sögu er að segja af leikskólum en útgjöld vegna reksturs þeirra voru yfir sjö milljörðum hærri 2016 en alda- mótaárið á föstu verð- lagi. Á síðasta ári var kostnaður á hvern nemanda liðlega 230 þúsund krónum hærri að raunvirði en 2006. Hver nemandi kostar um 810 þúsund krónur á ári. Í áðurnefndri skýrslu Samtaka iðnaðarins kemur fram að kennslu- stundir séu tiltölulega fáar á Íslandi árlega í samanburði við lönd OECD. Þrátt fyrir hærri fjár- framlög hér og þrátt fyrir að nem- endum hafi fækkað á hvern kennara er árangurinn lakari en í þeim lönd- um sem við viljum standa jafnfætis eða betur þegar kemur að sam- keppnishæfni menntakerfisins og atvinnulífsins. Metnaður kynslóðanna Hver kynslóð hefur metnað. For- eldrar mínir lögðu mikið á sig svo lífskjör mín yrðu betri en þeirra eigin og ég hefði fleiri tækifæri til að láta drauma mína rætast. Hið sama var að segja um foreldra þeirra. Með sama hætti hefur það verið kappsmál kynslóðanna að byggja upp menntakerfi þannig að þeir sem á eftir koma fái notið betri menntunar en áður var í boði. Sú hætta virðist raunveruleg að kynslóðin sem nú vex úr grasi fái ekki notið betri menntunar en við sem erum eldri fengum. Það yrði í fyrsta skipti í sögu okkar sem gæð- um menntunar hrakaði á milli kyn- slóða. Aukin útgjöld til menntamála virðast ekki koma í veg fyrir lakari getu í lestri og stærðfræði – und- irstöðu alls sem á eftir kemur. Rökin fyrir skólaskyldu eru aug- ljós og óumdeild. Fáir ef nokkrir gera ágreining um skynsemi þess og réttlæti að hið opinbera – ríki og sveitarfélög – fjármagni mennta- kerfi að stórum hluta og þá ekki síst grunn- og leikskóla. Skortur á samkeppni og valfrelsi Ágreiningurinn snýr fremur að því hvort og þá með hvaða hætti rétt sé að skilja að fjármögnun og rekstur í menntakerfinu. Ef ekki er greint á milli þess hver greiðir og hver veitir þjónustuna, er um leið verið að taka ákvörðun um að tak- marka valfrelsi nemenda og for- eldra, fækka atvinnumöguleikum kennara, koma í veg fyrir heilbrigða samkeppni og draga úr fjölbreytni. Íslendingar hafa í gegnum ára- tugi byggt upp menntakerfi þar sem opinberir aðilar sjá um stærsta hluta rekstrar ekki síst grunnskól- ans. Með örfáum undantekningum annast sveitarfélögin sjálf rekstur grunn- og leikskóla. Valfrelsi nem- enda er í besta falli takmarkað og samkeppni um vinnukrafta kennara er í raun engin. Sömu lögmál gilda um menntun og alla aðra þjónustu. Samkeppni kallar fram það besta fyrir neyt- endur. Það er því nauðsynlegt að brjóta upp kerfið og innleiða sam- keppni á fyrstu skólastigum – láta fé fylgja nemanda. Skólar eiga að keppa um nemendurna en ekki taka þeim sem sjálfgefnum hlut sem þeir þurfa að sinna vegna þess að for- eldrar hafa ákveðið að búa í við- komandi skólahverfi. Skólar eiga ekki að vera með nemendur í sjálf- krafa áskrift. Í þessu geta sveit- arfélög sótt í smiðju Garðabæjar sem hefur innleitt heilbrigða sam- keppni milli skóla óháð rekstrar- formi þeirra. Fyrir kennara ætti fjölbreytni í rekstrarformi grunnskóla að vera keppikefli. Samningsstaða þeirra gagnvart menntastofnunum er allt önnur og betri ef samkeppni er um starfskrafta þeirra. Dugmiklir kennarar sem skila árangri fá umb- un í formi hærri launa í stað þess að þurfa að sætta sig við laun sem eru óháð frammistöðu. Og hvað fáum við að launum ef við skerum upp kerfið og lofum vindum valfrelsis að blása um skóla- kerfið? Betri skóla og meiri gæði menntunar. Nýsköpun, hagkvæmari og arðbærari nýtingu fjármuna. Eftir Óla Björn Kárason » Og hvað fáum við að launum ef við sker- um upp kerfið og lofum vindum valfrelsis að blása um skólakerfið? Betri skóla og meiri gæði menntunar. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins. Valfrelsi í skólakerfinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.