Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
„Velkomin um borð
í flug Air Iceland Con-
nect til Reykjavíkur í
boði WOW air,“ sagði
flugfreyjan þegar hún
bauð farþega vel-
komna um borð í flug-
vél frá Akureyri til
Reykjavíkur kl. tæp-
lega 21 að kvöldi 18.
maí en flugið var þá
orðið um fjórum
klukkustundum á eftir
áætlun án þess að nokkur skýring
væri gefin. Því miður er þetta ekki
óvenjulegt hjá þessu flugfélagi nú-
orðið, auk þess sem þjónustulundin
og virðing fyrir viðskiptavinunum
fer síminnkandi.
Sú sem þetta skrifar hefur nú í
tæp fimm ár flogið að jafnaði einu
sinni í mánuði milli Reykjavíkur og
Akureyrar og oftast farið báðar leið-
ir sama dag. Þetta hefur almennt
gengið mjög vel, ég hef örfáum sinn-
um þurft að flýta eða seinka för
vegna slæmrar veður-
spár að vetri og hef einu
sinni verið veðurteppt á
Akureyri í 2 daga vegna
veðurs. Frá því að
Bombardier-vélarnar
komu og eftir að nafn
félagsins breyttist í Air
Iceland Connect hefur
hins vegar mikil breyt-
ing orðið á til hins
verra, einkum síðustu
sex mánuði.
Í þau fimm skipti sem
ég hef farið þessa flug-
leið það sem af er þessu
ári, alltaf á föstudagseftirmiðdegi,
hefur þrisvar orðið seinkun og í tvö
skiptin svo mikil að ekki hefur verið
lent í Reykjavík fyrr en milli kl. 21
og 22 að kvöldi þegar átti að lenda
um kl. 18 og í hvorugt þessara skipta
var neitt að veðri.
Þetta byrjar alltaf eins, þ.e. 2-3
tímum fyrir brottför fær maður sms
þar sem sagt er að seinka þurfi vél-
inni um tæpan klukkutíma og gefinn
upp nýr brottfarartími án þess að
nokkur skýring sé gefin. Þegar svo
um 1-2 klst. eru í þá brottför er aftur
tilkynnt um seinkun og gefinn upp
nýr tími sem heldur ekki stenst og
síðan ekki söguna meir því næsta
áætlaða brottfarartíma hafa farþeg-
arnir í bæði þessi skipti sem um ræð-
ir séð á skjánum í flugstöðinni all-
nokkrum mínútum áður en tilkynnt
var um hann í hátalarakerfinu og
aftur án skýringa. Þeir segja að vísu
að þeim þyki þetta leitt en það er allt
og sumt, ekki einu sinni boðið upp á
hressingu meðan beðið er og þess er
vel gætt að hafa tímann milli tilkynn-
inga þannig stilltan að fólk geti ekki
gripið til annarra úrræða eins og að
leigja sér sér bíl til að komast fyrr á
áfangastað, til þess að missa ekki
farþegana.
Vitað er að flugfélagið vissi þegar
um hádegi þennan dag, 18. maí, að
þetta væri ráðgert, það er að sam-
eina vélar og fljúga ekki fyrr en um
kvöldið, og öll sómakær flugfélög
hefðu tilkynnt farþegum það um leið
og ljóst var að þetta stæði til. Þar
sem ekki tekur nema 4 klst. að keyra
milli Akureyrar og Reykjavíkur
hefðu farþegar getað bjargað leik-
húsum og öðrum viðburðum sem
þeir höfðu ráðgert þá um kvöldið ef
tilkynnt hefði verið um seinkunina í
tíma eins og félaginu var í lófa lagið
að gera í þessu tilviki. Nú er svo
komið að margir samstarfsmanna
minna sem áður flugu á milli eru al-
farið farnir að keyra þar sem þessi
framkoma flugfélagsins er orðin svo
algeng upp á síðkastið.
Undirrituð lenti í samskonar
uppákomu hjá KLM/Air France fyr-
ir nokkrum vikum, þá var tilkynnt
um það með dags fyrirvara auk þess
sem flugfélögin lögðu sig fram við að
leysa vanda farþeganna sem skap-
aðist. Þær flugferðir voru þó ódýrari
heldur en flugið til Akureyrar þó um
þvera Evrópu væri að fara.
Verðlagningin hjá Air Iceland
Connect er slík að jafnvel fyrir þá
sem fljúga á svokölluðu Flugfrelsi
sem á að teljast hagstætt þá kostar
ferðin til og frá Akureyri rúmlega 22
þúsund krónur og núorðið má fá
flugferð til erlendra borga á sama
verði. Undanfarna mánuði hefur
mér virst sem framboðið á þessum
flugfrelsissætum sé takmarkaðra en
áður og oftar sem maður þarf að
kaupa annars konar miða annan
legginn með tilheyrandi aukakostn-
aði, jafnvel þótt fyrirvarinn sé góður.
Hér áður fyrr var líka möguleiki á að
fá sig fluttan á milli véla ef maður
var kominn út á völl og það var laust
sæti í vélinni. Núna er það borin von
nema borga um helming af verði
flugmiðans, jafnvel þótt vitað sé um
laus sæti.
Mér finnst nokkuð ljóst að Air Ice-
land Connect ætlar að notfæra sér
einokunarstöðu sína í innanlands-
fluginu meðan það getur og ég get
ekki beðið eftir að komi samkeppni
inn á þann markað. Þá er ballið búið.
„Velkomin um borð í flug Air Iceland
Connect til Reykjavíkur í boði WOW air“
Eftir Halldóru
Björnsdóttur »Mér finnst nokkuðljóst að Air Iceland
Connect ætlar að not-
færa sér einokunarstöðu
sína í innanlandsfluginu
meðan það getur.
Halldóra
Björnsdóttir
Höfundur er læknir.
Það kom þægilega
á óvart að fá svar við
grein minni um
ACER, þriðja orku-
málapakka Evrópu-
sambandsins (ESB),
frá nánum vini og
samstarfsaðila til ára-
tuga, Elíasi B. Elías-
syni.
Ég vil taka það
fram að ég er ekki
vel að mér í lögfræðilegum þátt-
um þessa máls en ég þekki mjög
vel til tæknilegra þátta í rekstri
raforkukerfa.
Elías nefnir þrjá punkta hjá
mér til umræðu:
Ef við höfnum þriðja
orkupakkanum verðum við
einir um það innan EFTA
Í grein minni nefndi ég að
„töluvert flókin staða gæti komið
upp ef Ísland hafnaði ACER eftir
samþykkt Norðmanna.“
Norðmenn samþykktu ACER
með meirihluta atkvæða í Stór-
þinginu en hvort það var 75%,
eins og Elías nefnir í grein sinni,
er ég ekki viss um. Kannski hef
ég nefnt þá tölu í samtölum við
Elías og hefur það þá verið gert í
óvarkárni, en mér hefur ekki tek-
ist að grafa upp niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar svo óyggjandi
sé. En meirihluti var
það.
Það er minn skiln-
ingur að lýðræði eigi
að virka með þessum
hætti. Stórþingið í
Noregi hafði vald til
lokaúrskurðar f.h. al-
mennings og þetta
varð niðurstaðan.
Ýmsir hags-
munaaðilar í Noregi
óska nú eftir aðgerð-
um til að ógilda
ákvörðun Stórþingsins.
Horft er til þess hvaða niðurstaða
verði í málinu á Íslandi og ef málið
væri fellt þar þá er talið að það
muni hafa í för með sér nýja stöðu
í Noregi. Íslendingar eru allt í
einu orðnir björgunaraðili til að
ógilda úrskurðarvald Stórþingsins.
Öðru vísi mér áður brá.
Þetta minnir óneitanlega á að á
sínum tíma var afráðið, í almennri
atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa,
að leggja niður innanlandsflugvöll-
inn í Vatnsmýri. Ennþá er verið að
mótmæla þessari lýðræðislegu nið-
urstöðu og það er jafnvel orðið hið
mesta hagsmunamál hjá mörgum
stjórnmálaflokkum að brjóta í bág
við hana. Varla þarf að taka fram
að ég er fylgjandi því að leggja
niður þennan flugvöll.
Mótrök gegn andstöðu í Noregi
Um sæstrengshugmyndir segir
Elías: „ACER er þegar með það á
sínu borði hvort IceLink-verkefnið
sé sameiginlegt hagsmunamál Evr-
ópu. Vegna hreinleika orkunnar
hér verður að telja líklegt að svo
verði ákveðið.“
Ég held að þótt einhverjir
starfsmenn innan ACER kroti
þessar hugmyndir á blað þá jafn-
gildi það ekki ákvörðun, langt í
frá.
Ég get hins vegar ekki verið
samþykkur því að farið verði á
næstunni í að leggja raforkusæ-
streng yfir úfið Atlantshafið, vegna
mikillar áhættu bæði við lagningu
kapalsins og viðgerðir á honum.
Þarna gæti ég verið sammála
Elíasi, sem segir í Morgun-
blaðsgrein 28. apríl sl., að IceLink-
sæstrengurinn gæti verið óðs
manns æði. Ákvörðun um fram-
kvæmdina verður alltaf til hjá þar
til bærum stjórnvöldum á Íslandi.
Ef ekki, þá væri gott að heyra um
það frá til þess hæfum lögfræð-
ingum.
Í þessu sambandi má nefna að
Basslink-sæstrengurinn milli Tas-
maníu og Ástralíu bilaði á sjó árið
2016 og var tekinn úr notkun í sex
mánuði til viðgerða. Hann bilaði
aftur í byrjun apríl 2018, í enda-
stöð á landi, og er búist við að bil-
unin standi í tvo mánuði og að
hann komist aftur í gagnið í byrj-
un maí nk. Þetta er ískyggilegt
fordæmi fyrir IceLink.
Elías gerir að umræðu hættuna
á að ACER gæti gert kröfur um
aukið álag á virkjanir, sem þá
mundi valda auknum sveiflum í
vatnsmiðlunum ofan virkjana. Ís-
lensk verðstýring á raforkufram-
leiðslu mun halda aftur af þessu
með hæfilegri verðlagningu vatns í
miðlunum. Líklega þyrfti að breyta
þessari verðlagningu frá því sem
nú er í reiknilíkönum til að takast
á við nýjar aðstæður.
Gæðastjórnun í raforkukerfinu
Með raforkulögunum 2003, eða
fyrir 15 árum, var afráðið að færa
ákvörðunarvaldið frá pólitíkusum
yfir til samkeppni á markaði. Raf-
orkumarkaður væri tekinn í notk-
un þar sem uppboð á raforku færi
fram. Verðmyndun á samkeppn-
ismarkaði mundi þá verða leiðandi
bæði við útbyggingu raforkukerf-
isins og rekstur þess. Að vísu voru
ákvæði um markaðinn kölluð heim-
ildarákvæði en ekki var farið dult
með hvert ætti að stefna.
Þessari skipan hefur nú verið
komið á nánast í öllum hinum
tæknivæddu þjóðríkjum hvar á
hnettinum sem er og að mínu mati
gæti verið óklókt fyrir Íslendinga
að standa fyrir utan þá meginlínu.
Á þeim tíma sem lögin voru sett
var maður á báðum áttum um af-
stöðu til málsins vegna smæðar
hins íslenska raforkumarkaðar.
Eftir 15 ár og eftir að hafa fylgst
með þróun raforkumála um allan
heim hef ég styrkst í þeirri skoðun
að við ættum að feta sömu leið.
Eini þröskuldur í vegi er að ennþá
er ekki hafin vinna við gangsetn-
ingu á uppboðsmarkaði fyrir raf-
orku hér á landi, en allar þjóðir í
kringum okkur hafa þróað þessi
mál hjá sér þannig að til fyrir-
myndar er. Á síðustu misserum
hef ég fylgst náið með þróun
breska markaðarins og get ekki
annað en hrifist af vinnubrögðum
þeirra.
Þessar aðferðir ættum við að
taka upp til að móta okkar raf-
orkumarkað. Aðferðirnar eiga að
bjóða upp á að staðbundni mark-
aðurinn geti hvort tveggja verið
einangraður eins og hann er í dag
eða raftengdur síðar meir ef svo
ólíklega vildi til að sæstrengur til
Bretlands verði lagður einhvern
tíma í fjarlægðri framtíð.
Án samkeppnismarkaðar erum
við með ófullnægjandi gæðastjórn-
un í raforkukerfinu og þar gæti
ACER komið til aðstoðar.
Andsvar til Elíasar
Eftir Skúla
Jóhannsson
Skúli Jóhannsson
»Án samkeppnismark-
aðar erum við með
ófullnægjandi gæða-
stjórnun í raforkukerf-
inu og þar gæti ACER
komið til aðstoðar.
Höfundur er verkfræðingur.
skuli@veldi.is