Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 29

Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 ✝ Marta BíbíGuðmunds- dóttir fæddist á Ísa- firði 9. nóvember 1932 og ólst þar upp. Hún lést 13. maí 2018 á heimili sínu. Foreldrar Mörtu Bíbíar voru Guð- mundur Kristján Guðmundsson, f. 15.8. 1897, d. 4.1. 1961, bóndi í Stakkadal og síðar skipstjóri á Ísafirði, og k.h. Sig- urjóna Guðmundína Jónas- dóttir, f. 14.1. 1903, d. 9.9. 1954, húsfreyja í Stakkadal og á Ísa- firði. Marta lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar 1948. Marta Bíbí giftist 31.12. 1961 Erlingi Magnússyni, þau skildu. Marta Bíbí giftist 27.12. 1969 Geir Jónassyni, skipstjóra á Stokkseyri, f. 14.6. 1940, d. 18.1. 1970. Marta Bíbí var í sambúð frá 12.2. 1930, d. 9.5. 1996, versl- unarmaður; Jónas Þór, f. 6.11. 1934, d. 5.7. 2003, stýrimaður; Helga Gunnur, f. 6.8. 1937, fv. deildarstjóri; Rannveig, f. 15.9. 1940, fv. alþingismaður og ráð- herra; Gunnbjörn, f. 23.2. 1944, prentari. Marta Bíbí vann á Símstöð- inni á Ísafirði 1948-58, Lang- línumiðstöðinni og skrifstofu Bæjarsímans í Reykjavík 1958- 65, á Stokkseyri 1965-77 og var stöðvarstjóri þar frá 1967, var stöðvarstjóri í Mosfellsbæ á ár- unum 1977-92 og loks í Hafnar- firði 1992-97. Marta Bíbí æfði og keppti á skíðum frá því á unglingsárun- um og var ein fræknasta skíða- kona landsins á sínum tíma. Hún keppti fyrir Ísafjörð á skíðum í alpagreinum 1952-58 og fyrir KR á árunum 1959-66 og varð margfaldur Reykjavíkur- og Ís- landsmeistari. Hún sat í stjórn Skíðadeildar KR 1978-79. Marta Bíbí var formaður deildar stöðv- arstjóra 1979-89, ritari Félags íslenskra símamanna og sat í samninganefnd FÍS 1979-89. Hún var félagi í Zontaklúbbi Reykjavíkur og gegndi oft trún- aðarstörfum fyrir klúbbinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. 1986 með Þorvarði Guðjónssyni fram- kvæmdastjóra, f. 28.1. 1929, d. 24.1. 2011. Þau giftust 31.1. 2001. Dætur Mörtu Bíbíar eru Hjördís Erlings- dóttir, f. 24.10. 1959, sölustjóri í Reykjavík en dóttir hennar er Andrea, f. 1989; Jóhanna Erlingsdóttir, f. 14.12. 1962, verkefnastjóri í Svíþjóð en mað- ur hennar er Sigurður Hjálm- arsson og eiga þau synina Tóm- as, f. 1987, Hjálmar, f. 1988, og Martein, f. 1990; Geirný Ósk Geirsdóttir Stöhle, f. 26.8. 1970, flugvallarstarfsmaður, búsett í Osló en sambýlismaður hennar er Erik Stöhle, dóttir Geirnýjar er Friðrikka, f. 1994. Systkini Mörtu Bíbíar eru Guðrún Sigríður, f. 1.8. 1926, fv. skólaritari; Margrét Valgerður, f. 8.2. 1928, d. 18.6. 2004, fv. bankafulltrúi; Hulda Rósa, f. Elsku mamma okkar, amma og tengdamamma. Það er skrýtin tilhugsun að þú sért ekki með okkur lengur – það mátti kannski búast við að tím- inn með þér væri farinn að styttast en krafturinn í þér og viljastyrkurinn var svo mikill að við vorum ekki alveg tilbúin þegar kallið kom. Þú ert fyrirmynd okkar dætra þinna. Sjálfstæð kona sem vílaði ekkert fyrir sér. Gafst okkur gott veganesti, elsku mamma. Varst einstæð móðir þriggja dætra, vannst fulla vinnu allt þitt líf, ferðaðist um heiminn eins og þig langaði til. Þú kunnir að njóta lífsins út í fingurgóma þó að ekki væri líf þitt alltaf dans á rósum. Vissir nákvæmlega hvernig þú vildir hafa hlutina og sást til að þeir væru þannig. Þú varst mikil útivistarmanneskja og þá sér- staklega mikill sóldýrkandi. Ferðirnar í Þrastalund til að njóta sumarblíðunnar voru margar frá Stokkseyri og stundirnar í garðinum á Lyng- brekku þegar þar að kom. Síð- asta ferðin okkar saman í sól- ina var bara fyrir nokkrum árum og það var yndislegt að sjá hversu mikið þú naust þessa að vera í sól og hita, með okkur dætrum þínum. Minning- arnar eru margar um yndisleg- ar stundir þar sem oft var mik- ið glens og grín. Þú varst hápólitísk, sagðir alltaf skoðun þína, kvenskör- ungur mikill. Stolt af þeim kyn- systrum þínum sem voru í far- arbroddi á hinum ýmsu sviðum en líka með hjartað á réttum stað þegar kom að þeim sem minna máttu sín í nærsamfélagi þínu og í gegnum næstum 50 ár í Zonta. Alveg yndisleg fyrirmynd, elsku mamma. Alltaf svo hrædd um okkur, alveg fram á síðustu stundu. Þér var svo mikið í mun að okkur vegnaði vel í líf- inu. Þú ert skíðadrottning barnabarnanna. Ferðirnar í Skálafellið eru ógleymanlegar. Það var aldrei spurning um hvort börnin vildu fara á skíði, heldur hvenær. Alltaf tilbúin í að koma með í fjöllin og alltaf sá amma um að allir væru vel búnir og með bestu græjurnar. Ekkert var sparað þegar kom að því að kynna fyrir barna- börnunum skíðaíþróttina. Allir krakkarnir fengu að vera hjá þér og þá var boðið upp á vöffl- ur, farið í sund eða í ferðir í húsbílnum. Alltaf svo stolt af krökkunum og fagnaðir með þeim hverjum áfanga í þeirra heimalandi. Þú ert virt og elskuð af tengdasonunum. Alltaf svo gott á milli ykkar. Þeir minnast þín sem töffara sem gaman var að spjalla við og þá sérstaklega um skoðanir og dægurmál, allt- af til í eldhúsumræður sem log- uðu af pólitík og skemmtileg- heitum. Stutt í hláturinn og grínið. Elsku æðsti-strumpur, eins og við alltaf kölluðum þig, við eigum eftir að sakna þín óskap- lega. Við erum stolt af þér og því hvernig þú sigraðist á veik- indunum til að geta haldið sjálf- stæði þínu. Það var mikilvægt fyrir þig að stjórna þínu lífi sjálf sem þú og gerðir. Sami krafturinn alltaf í þér sama hvað á gekk. Við vitum að tekið verður vel á móti þér af þeim ástvinum sem á undan þér eru farnir. Þú varst trygglynd öllum þínum, elsku mamma, amma og tengdamamma. Hvíl í friði. Hjördís, Jóhanna og Geirný Ósk, tengdasynir og barnabörn. Marta Bíbí systir er látin og útförin hefur farið fram. Ég var harmi slegin þegar hún kvaddi óvænt þótt hún hefði tvisvar fengið heilablóðfall, hið fyrra fyrir ellefu árum. Strax þá ákvað hún að mæta öllum með brosi og sýna jákvætt viðmót. Eldri systur mínar voru góðar fyrirmyndir og við vorum nán- ar, ekki síst eftir að mamma dó aðeins 51 árs gömul. Öll systk- inin, sex stelpur og tveir strák- ar, urðu mjög samheldin. Bíbí var kraftmikil íþróttastelpa og var keppniskona að upplagi. Hún æfði handbolta og varð landsþekkt skíðakona sem vann til fjölda verðlauna. Seinna varð hún óþreytandi að hendast á skíði með stelpurnar sínar Hjördísi, Jóhönnu og Geirnýju Ósk. Bíbí varð fyrir mikilli lífs- reynslu á sínu æviskeiði en hún setti sér ný markmið þegar áföll dundu yfir. Þannig sótti hún um að verða póst- og sím- stjóri á Stokkseyri í kjölfar skilnaðar með tvær ungar dæt- ur af því þá gat hún búið Hjör- dísi og Jóhönnu betra líf, en fram að því voru langir dagar með strætó til dagmömmu og strætó til og frá vinnu og fáar gæðastundir. Bíbí vann alla starfsævina hjá Pósti og síma. Á Ísafirði frá fimmtán ára aldri, lengst af á ritsímanum, en flytur tæpum áratug seinna til Reykjavíkur og þar hefur hún sambúð með Erlingi Magn- ússyni, föður eldri dætranna. Eftir Stokkseyrardvölina, sem spannar á annan áratug, verður hún póstmeistari í Mosfellsbæ en endar starfsferilinn sem póstmeistari í Hafnarfirði. Þeg- ar Bíbí flutti á Stokkseyri þekkti hún engan þar og áform- aði að búa þar fáein ár til að jafna sig og hafa dæturnar nærri sér í litlu íbúðinni í póst- húsinu. En á Stokkseyri hitti hún stóru ástina sína, hann Geir Jónasson skipstjóra, og þau giftu sig um um jólin 1969. Í byrjun janúar fórst Geir í hræðilegu sjóslysi við innsigl- inguna að Stokkseyri. Seinna á árinu fæddist dóttir þeirra Geirs, Geirný Ósk. Á uppvaxt- arárum dætranna var Bíbí því lengst af ein með þær. Ég á ljúfar minningar frá Stokkseyr- arárum þeirra mæðgna. Á full- orðinsárum giftist Bíbí Þor- varði Guðjónssyni og þau nutu sambúðar í aldarfjórðung, tóku þátt í félagslífi, ferðuðust og stunduðu skíði. Þorvarður lést árið 2011. Bíbí systir var sterk og framsækin kona sem alltaf varð að treysta á sjálfa sig og var dætrum sínum góð fyrir- mynd. Þegar líf hennar breytt- ist í kjölfar veikindanna sýndi hún sömu gömlu seigluna en varð líka æðrulaus og kærleiks- rík og mikil ástúð kom í sam- band okkar. Hún var stolt af dætrum sínum og barnabörn- unum fimm og naut þess að fá þau í heimsókn en öll nema Hjördís búa erlendis. Yndislega samverustund átti Bíbí með ástvinum á 85 ára afmælinu á Stokkseyri. Á engan er hallað þegar ég þakka Hjördísi fyrir hvað hún auðgaði líf mömmu sinnar og veitti henni einstaka umönnun eftir að halla fór und- an fæti. Ég mun sakna Bíbíar og blíða brossins hennar og er núna þakklát fyrir að hún fór fyrirvaralaust því hún hefði ekki afborið að fara á stofnun. Við Sverrir og börnin okkar vottum Hjördísi, Jóhönnu, Geirnýju og fjölskyldu Bíbíar allri innilega samúð. Blessuð sé minning þessarar einstöku konu. Rannveig Guðmundsdóttir (Veiga systir). Þótt löngu séu liðnir hjá þeir ljúfu, fögru morgnar, þá lifnar yfir öldungsbrá er óma raddir fornar. Hver endurminning er svo hlý að yljar köldu hjarta hver saga forn er saga ný um sólskinsdaga bjarta. (Einar E. Sæmundsson) Elsku Marta systir er dáin. Hún var ein níu systkina sem öll komust til fullorðinsára nema eitt, drengur sem dó þriggja daga gamall (tvíburi). Í svona stórum systkinahópi verða mismunandi einstakling- ar til og allir reyna að finna sitt pláss með sínar þarfir en eitt er öruggt, það myndast sterkur kærleiksstrengur á milli þeirra sem aldrei slitnar. Hún Marta systir fékk marg- ar góðar vöggugjafir og nýtti þær vel og var systkinum sín- um góð fyrirmynd. Hún var góður námsmaður og hörkudugleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Lífshlaup hennar var ekki alltaf dans á rósum en hún fór í gegnum það af miklu æðruleysi. Það var erf- iður tími þegar hún missti hann Geir sinn í hörmulegu sjóslysi á Stokkseyri. Hún var komin tvo mánuði á leið með yngstu dótt- ur sína en hún átti tvær dætur frá fyrra hjónabandi. Það voru rétt fjórar vikur frá því að hún stóð í kirkjunni á Stokkseyri sem brúður þar til hún stóð yfir kistunni hans í sömu kirkju. Ég leit mikið upp til eldri systra minna og fannst þær vera eins og kvikmyndastjörn- ur. Alltaf í fallegustu kjólunum (sem mamma saumaði oftast) og glæsilegar á velli. Ég sé hana fyrir mér á dansgólfinu á Uppsölum þar sem strákarnir slógust um að dansa við hana. Við áttum margar skemmti- legar stundir systkinin með mökum og börnum. Lengi héld- um við jólaböll annan í jólum þar sem við hittumst og höfðum það mjög skemmtilegt. Hún var ekki nema 75 ára þegar hún fékk heilablóðfall og lamaðist öðrum megin. Hún missti málið og þurfti mikla endurhæfingu. Með hjálp stelpnanna sinna og góðs hjúkrunarfólks náði hún sér þannig að hún gat séð um sig sjálf og náði málinu nokkuð vel. Þá hjálpaði dugnaðurinn og þrautseigjan. Fyrir tveimur árum fékk hún annað áfall og missti þá aftur málið, það var mjög erfitt fyrir hana en þá kom aftur upp í henni keppnisskapið og hún byrjaði að þjálfa sig aftur með hjálp sinna nánustu, en þar átti Andrea dóttir Hjördísar stóran hlut. Við fórum oft til hennar á sjúkrahúsið systkinin og það var alltaf skemmtilegt. Hún tók á móti okkur með bros á vör því hún hafði einsett sér að það væri betra til árangurs að brosa framan í heiminn. Hún ól stelpurnar sínar upp að mestu leyti ein og tókst það afar vel. Þær eru allar til fyr- irmyndar en það var erfitt fyrir hana að tvær þeirra voru bú- settar erlendis ásamt barna- börnum hennar. Hjördís elsta dóttir hennar sem búið hefur á Íslandi var því kletturinn henn- ar og kom það mest í hennar hlut að sjá um mömmu sína sem hún gerði af mikilli ást og alúð. Hún Marta mín kvartaði aldrei þótt lífið færi um hana ómjúkum höndum. Ég sakna hennar en ég veit að hennar tími var kominn. Ég og fjölskylda mín vottum stelpunum hennar og þeirra fjölskyldum dýpstu samúð um leið og ég bið góðan guð að geyma hana. Takk fyrir allt, elsku systir. Helga Guðmundsdóttir. Marta Bíbí Guðmundsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÍMUR BENEDIKTSSON frá Kirkjubóli, Dalbraut 14, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn 18. maí. Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn 25. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Skjól. Benedikt G. Grímsson Anna Inga Grímsdóttir Svanur Ingimundarson Gunnar Rúnar Grímsson Ragna Þóra Karlsdóttir Smári Gunnarsson Stephanie Thorpe Grímur Gunnarsson Þorbjörg Ásta Leifsdóttir Sara Benediktsdóttir Albert Valur Albertsson Lilja Karen Albertsdóttir Faðir minn, afi, bróðir og uppeldisbróðir, EYSTEINN JÓHANNESSON frá Flóðatanga, Rudesövej 13, Holte, Kaupmannahöfn, lést í Kaupmannahöfn þriðjudaginn 8. maí. Útför hans hefur farið fram. Christina Bøgh Blindbæk Thomas Emil, Ida Louise Guðrún Jóhannesdóttir Sveinn Jóhannesson Auður Fanney Jóhannesdóttir Marteinn Valdimarsson Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SONJA GUÐLAUGSDÓTTIR, Böðvarsgötu 11, Borgarnesi, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 17. maí. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 2. júní klukkan 11. Þórður Sigurðsson Guðlaugur Þór Þórðarson Ágústa Johnson Anna Ýr, Rafn Franklín, Þórður Ársæll og Sonja Dís Nú er hann Ragnar bróðir dá- inn. Þetta er víst leiðin okkar allra. Hann var tveimur árum eldri en ég, foringi okkar yngri systkinanna úr hópi tólf. Hann var 12 ára þegar faðir okkar dó og mömmu tókst að halda hópnum saman. Við byggðum okkur bú suður í Brekku, heilt sveitarfélag, og höfðum meira að segja kosn- ingar. Hann var hreppstjórinn og þarna gerði eitt okkar upp- reisn og varð kommúnisti. Fannst ekki réttlátt að hann réði öllu. Einn bróðirinn var Ragnar Hallsson ✝ Ragnar Halls-son fæddist 27. júlí 1933. Hann lést 12. maí 2018. Útförin fór fram 19. maí 2018. ekki mikill búmað- ur og undi sér bet- ur úti í skurði að athafnast. Ragnar var ljúf- menni og hafði ekki hátt, öll börn, mín og annarra, hænd- ust að honum. Íþróttamaður, mikill hlaupari í 400 metrum og stýrði íþróttamót- um í sveitinni. Við vorum flest- öll í íþróttum systkinin. Hestamennskan var líf hans og yndi og hestamannamótin á Kaldármelum eins og þjóðhátíð. Tók hann mikinn þátt í fé- lagsstarfi. En hann var fyrst og fremst bóndi í Hlíð og stóð hugur hans alltaf til náms á Hólum en það gekk ekki upp að komast þang- að. Ég minnist hans með hlýju. Margrét Erla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.