Morgunblaðið - 23.05.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 23.05.2018, Qupperneq 33
sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Þín systir, Guðlaug Guðjónsdóttir. Hallgrímur Pétursson orti um, og velti fyrir sér, dauðans óvissa tíma. „Á snöggu auga- bragði, afskorið verður fljótt“ – „líf mannlegt endar skjótt“. Við Guðmundur kynntumst vegna eiginkvenna okkar, Dag- nýjar Þorgilsdóttur og Ásrúnar Sigurbjartsdóttur, Döggu og Ásu. Guðmundur kom frá Nes- kaupstað, ég frá Keflavík. Þær voru hafnfirskar, og höfðu verið í saumaklúbbi frá því í barna- skóla, með mörgum fleiri. Þær nefndu hann síðar saumaklúbb- inn „síbomm“. Þar létum við Guðmundur talsvert að okkur kveða! Þær Dagga og Ása voru sér- lega nánar vinkonur, og gagn- kvæmt hreinskilnar hvor við aðra. Ása og Guðmundur fluttu til Svíþjóðar til að afla sér frek- ari menntunar. Þeim líkaði vel í Jönköping, ekki síst Ásu. Það blasti við að þau settust þar að námi loknu, en þegar Guðmundi bauðst starf við sitt hæfi hjá Hafnar- fjarðarbæ, þá var trauðla hægt að hafna því. Við Dagga áttum hjá þeim tvær heimsóknir til Jönköping, mjög fróðlegar og ánægjulegar. Tvö yngri börn okkar voru með, og milli Ásu og Viktoríu og Guðna og Guðmund- ar lágu síðan þá miklir vináttu- þræðir. Dauðans óvissi tími getur verið afar afstæður. Skömmu eftir að þau fluttu aftur heim til Hafnarfjarðar veiktist Dagga, kona mín, skyndilega, og illi- lega. Sjálfur var ég fjarverandi í vinnu. Börnin kölluðu á lækni, og gerðu jafnframt boð til Ásu. Hún hafði sænska sjúkrahús- reynslu, sá að þetta var alvar- legt hjartaáfall. Læknirinn vildi aðeins gefa verkjapillur. Ása hafði að lokum sitt fram. Þá urðu læknar að panta sjúkrabíl, sem hann gerði. Læknar, sem tóku á móti henni, sögðu hálftíma hafa munað. Þess vegna voru Döggu, og hennar fólki, gefin 32 ár. Heim- koma þeirra skipti sköpum fyrir okkar fjölskyldu. Og nú er Guð- mundur látinn, ári síðar, í næsta herbergi við það þar sem Dagga lést. Þau hjón voru mjög sam- rýmd, en þó nokkuð ólík. Guð- mundur hægur, en Ása örari. En hvort bætti annað upp. Guð- mundur var vandvirkur heima og heiman. Heimilisverk og eldamennska léku í höndum hans, og reynd- um við Dagga hann að slíku í Svíþjóð. Hann var ákaflega reglusamur og þrifinn, og þægi- legur í allri viðveru. Fjölskylda mín minnist góðs vinar og gegns, og það gerir ef- laust sá „síbommi“ hópur sem enn lifir. Ámundi H. Ólafsson. Elsku amma, eða amma rokk eins og við kölluðum þig okkar á milli. Amma rokk af því að þú varst ekki hefðbundin amma í blómasvuntu að baka smákökur, heldur frekar óhefðbundin amma í leðurpilsi með rauðan varalit og sítt hár, mjög töff en með svo hlýtt faðmlag og fallegt bros og ávallt var stutt í hláturinn. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín í Mið- strætið. Þar gátum við systkinin leikið tímunum saman með stærðarinnar krukku sem var stútfull af gömlum smápening- um, og þegar Þorsteinn braut hana óvart einn daginn varstu ekkert miður þín þrátt fyrir að hafa átt hana í mörg ár, alltaf svo þolinmóð yfir krakkaveseni í kringum þig. Í Miðstrætinu kenndir þú okkur að hlusta eftir hafinu í gegnum stóra kuðunginn í stofunni þinni og sagðir okkur ótal sögur af fólki sem þú hafðir hitt á förnum vegi. Þegar við vor- um börn héldum við hreinlega að þú þekktir til allra manna og kvenna á Íslandi. Þegar við vor- um unglingar og farin að eignast kærasta eða kærustu þá var fyrsta spurning þín alltaf „já, og hverra manna er hann/hún?“, og oftar en ekki þekktirðu til ætt- menna þeirra. Þegar við urðum svo fullorðin öðluðumst við ef til vill dýpri skilning á sögunum þínum og fólkinu sem þú hafðir kynnst og sáum hversu langa og fróðlega ævi þú hafðir átt. Þú hafðir alla tíð mikið dálæti á tónlist og varst alltaf svo stolt og stuðningsrík þegar þú mættir á tónleika hjá Guðrúnu þegar hún var í söngnáminu. Ferðalög voru í miklu uppáhaldi hjá þér og þá bættust við skemmtilegar ferðasögur í safnið þitt. Þú heim- sóttir okkur barnabörnin þín alla leið til Kanada þegar við vorum lítil og Bryndísi til Bretlands nú á síðari árum. Ást þín og um- hyggja fyrir ömmubörnunum þínum skein ætíð í gegn, og þrátt fyrir háan og virðulegan aldur hefur þú undanfarin ár prjónað dásamlegar gersemar á barna- barnabörnin þín, sem verða geymd fyrir barnabarnabarna- börnin þín. Það er svo skrýtið að þú sért farin, elsku amma, en þú býrð ennþá í hjörtum okkar því við munum alltaf elska þig og muna. Við kveðjum þig nú í hinsta sinn með söknuð í hjarta. Þín barnabörn, Bryndís, Guðrún Ragna og Þorsteinn. Amma, elsku amma. Allt var rautt, allt svo rautt. Þú hvattir mig til að semja, kaldhæðni þína ógerlegt að temja. Rauðu blómin, rauða naglalakkið, hárið ætíð pínu hrokkið. Amma, elsku amma, sjaldan langt í spilastokkinn. Amma mín, elsku amma mín, hlátur þinn ómar í langa tíð. Húmorinn sem brunnur eilífðar. Amma þú varst svo snjöll. Amma þú varst svo fyndin. Getum við spilað eitt spil enn? Hafðu það allra kvenna best, eins og þú sagðir fyrir rest. Rauður var þinn litur, nú við borðið enginn situr. Súkkulaðið og hárið hrokkið. Rauða naglalakkið, og við tilefni rauðar varir. Nú er svo komið að þú farir, hittir langafa og gamla vini. Nú er komið að því, kvíddu ekki því. Það verður tekið vel á móti þér, elsku amma uppí himin. Eitt sem þú góða kenndir mér, að kyssa kónginn á vegginn. Hafðu það allra kvenna best, Elsku amma, þú ert best. (IS) Þín dótturdóttir, Ingibjörg Sörensdóttir. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og foreldramorgnar kl. 10.30. Söngstund við píanóið er kl. 13.45. Hlökkum til að sjá ykkur! Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13- 16. Guðrún Eggertsdóttir fjallar um Guðrúnu frá Lundi og skrif henn- ar. Stólaleikfimi með Öldu Maríu. Leikskólabörn frá Rofaborg líta í heimsókn og syngja fyrir og með okkur. Kaffi og með á eftir í boði kirkjunnar. Allir velkomnir. Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Söngstund með Helgu. Opið hús t.d. vist og brids kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 14.30. Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.45 Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13. Handavinna kl. 9-12. Tölvu- og snjallsímakennsla fellur niður í dag! Bókband kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30, dansleikur með Vitatorgsbandinu frá kl. 14-15. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið öll velkomin til okkar í dag, síminn er 411-9450. Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-150. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40/15.15. Kvennaleik- fimi í Sjálandi kl. 9.30. Kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 10.40, gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið- beinanda kl. 9-12. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13- 16. Félagsvist kl. 13-16. Leikfimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Velkomin! Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 byrjenda-botsía, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Botsía kl. 10–11. Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10, samverustund með Helgu kl. 10.30. Hádegis- matur kl. 11.30, handavinnustofa opin kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl. 10, línudans með Ingu kl. 10, zumba dans leikfimi með Auði kl. 13, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl.14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Upplýsingar í síma 411-2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik- fimi kl. 9.45. Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11. félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl. 16. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. botsía fellur niður í dag vegja uppsetningar á handverkssýningunni sem verður opnuð föstudaginn 25. maí. Ath. að sýningin verður í aðstöðu félagsstarfsins að Skólabraut 3-5 og verður opin föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 13-18. Sölubás og vöfflukaffi. Allir velkomnir. Sléttuvegur 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og handavinnuhópurinn kemur sam- an kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30–15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Stangarhylur 4, ZUMBA Gold kl. 10.30 undir stjórn Tanyu. Göngu- Hrólfar ganga frá Bónus, Hraunbæ, kl. 10. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Ræðumaður Vigfús Ingvar Ingvarsson. Allir velkomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl 20.00. Smáauglýsingar Bækur Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald   þú það sem    á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Bækur til sölu Páll Ólafsson 1-2, 1899-1900. Snorraedda 1975 Þ.J. Sögur og kvæði Einar Ben 1897. Saltkorn í mold 1-2. ár.Kirkjuréttur Jón Pétursson 1863. Stjórnartíðindi 1885 - 2000, 130 st. Eylenda 1-2. Íslandsatlas blár. Þosteinsætt í Staðasveit, Ættir Austfirðinga, Ættir Austur-Hún-vetninga 1-4, Svarfdælingar 1-2, MA stúdentar 1-5, Saga Alþingis 1-5, Rangvellingabók 1-2, Náttúrufræðingurinn 1.-45. ib., Þorpið 1.útg., Ársskýrsla Íslenskra rafveitna 1943-1962 ib., Skýrslur um landshagi á Íslandi 1-5, Hlín 1.- 44 árg., Kir- kjuritið 1. - 23. ár, Hrakningar á heiðarvegum 1-4. Úlfljótur 1-23. ár ib., Eðlisfræði Fischer 1832, Bygging og líf plantna 1906, Söngvar og kvæði Jóns Ólafssonar 1877. ár, Grjót, meira grjót, enn grjót, Kjarval, ib., Njóla 3 útgáfa mk. 1884, Veiði- maðurinn 1.-86 tb.ób. Upplýsingar í síma 898 9475.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.