Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Skál fyrır hollustu Ég vildi segja að þetta væri rólegheitastaður en það er oft þaðmikið að gera að ég veit ekki hvort rólegheit séu sannleik-anum samkvæmt, en við viljum ekki æra fólk með hárri tón- list heldur að það eigi rólega og góða stund,“ segir Bragi Skaftason, annar eigenda barsins Veðurs, en Bragi á 40 ára afmæli í dag. Veður er á Klapparstígnum og var barinn opnaður fyrir einu og hálfu ári. Happy Hour er að sjálfsögðu á staðnum og stendur yfir frá opnun til 19.35, þegar veðurfréttunum lýkur. „Mikið af því sem við seljum er samt kokkteilar, en við leggjum upp úr vel gerðum hús- kokkteilum, erum meira að segja með kokkteilastund á milli sjö og níu á kvöldin þar sem hægt er að smakka frábæra drykki á mjög lágu verði.“ Aðaláhugamál Braga er fótbolti og spilar hann með Þrótti old boys. „Ég var að koma úr frábærri ferð með þeim þar sem við spil- uðum á Stadium of Light, heimavelli Sunderland. Við gistum allar næturnar í Edinborg og spiluðum fótbolta við old boys-lið Sunderland og einnig við old boys-lið Spartans í Edinborg. Þetta var algjörlega geggjuð ferð, en við vorum 28 í hópnum frá 31 árs til 68. Svo hef ég gaman af ýmiss konar smíðavinnu, en ég og Arnar Hólm Sigmunds- son, félagi minn, smíðuðum Veður. Afmælið er á milli tveggja ferða, ég var að koma úr fótboltaferð- inni, sem var gjöf frá mér til mín en svo fer ég með fjölskyldunni til Katalóníu í byrjun júní. Mér skilst samt að konan sé búin að ákveða eitthvað að gera fyrir fjölskylduna í dag í tilefni afmælisins.“ Eiginkona Braga er Kristjana Ósk Jónsdóttir, markaðsstjóri hjá Reitum – fasteignafélagi, og börn þeirra eru Þorri, tíu ára, og Helga Sigríður, sjö ára. Vertinn Bragi Skaftason er annar eigenda Veðurs. Nýkominn úr víking með Þrótti old boys Bragi Skaftason er fertugur í dag K ári fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 23.5. 1968 og ólst þar upp: „Húsið sem ég ólst upp í er Lækjargata 12, beint á móti Lækjarskóla, og heitir Þórs- mörk. Það var því stutt í skólann – rétt yfir Lækinn – en stundum var sagt í gríni að sá sem byggi í Þórs- mörk þyrfti að fara yfir Krossá.“ Eftir Lækjarskóla lauk Kári stúd- entsprófi frá Flensborg 1989. Hann stundaði nám í píanóleik, fyrst í Tón- listarskóla Hafnarfjarðar hjá Krist- ínu Ólafsdóttur og Sigurði Marteins- syni, og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni, en frá honum út- skrifaðist Kári með burtfarar- og pí- anókennarapróf frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík 1993. Samhliða píanókennaranámi lauk hann burtfar- arprófi í orgelleik við Tónskóla þjóð- kirkjunnar undir handleiðslu Harðar Kári Þormar dómorganisti – 50 ára Frískt loft í lungun Hér er allur Dómkórinn samankominn um páskana, við gaflinn á Dómkirkjunni, ásamt Kára. Þrír afmælisdagar í fimm manna fjölskyldu Morgunblaðið/Ómar Kórstjórinn Kári í fullri sveiflu við æfingu Dómkórsins í Hörpu. Kópavogur Kristmundur Örn Ingason fæddist 23. maí 2017 kl. 6.31 og á því eins árs afmæli í dag. Hann vó 3.245 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Hulda Björk Guðmunds- dóttir og Ingi Örn Krist- jánsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.