Morgunblaðið - 23.05.2018, Side 35
Áskelssonar. Hann lauk fimm ára A-
kirkjutónlistarnámi frá Robert Schu-
mann-háskólanum í Düsseldorf í
Þýskalandi með 1. einkunn. Þar naut
hann leiðsagnar Hans Dieters Möll-
ers í orgelleik, Volkers Hempflings í
kórstjórn og hljómsveitarstjórn og í
píanóleik hjá Michael Ziechang og
Thomas Palm.
Kári var organisti við Óháða söfn-
uðinn í Reykjavík 1992-93, aðstoðar-
organisti við Hallgrímskirkju 1992-
93, organisti við Auferstehungskirche
í Kaarst í Þýskalandi 1994-98, org-
anisti við Kópavogskirkju 1998-99,
organisti við Áskirkju í Reykjavík
2001-2007, var forstöðumaður Kirkju-
og menningarmiðstöðvarinnar í
Fjarðabyggð 2007-2010 og organisti
og kórstjóri Eskifjarðarkirkju 2007-
2010. Hann hefur verið dómorganisti
við Dómkirkjuna í Reykjavík frá 2010
og stjórnað þar bæði Dómkórnum og
Kammerkór Dómkirkjunnar og flutt
þar margvísleg verk. Hann var kór-
stjóri Menntaskólans í Reykjavík
2012-2014 og 2015, undirleikari og pí-
anókennari við Tónlistarskólann í
Reykjavík 2016-2017 og orgelkennari
og undirleikari við Menntaskóla í
Tónlist frá 2017.
Kári hefur haldið píanótónleika og
orgeltónleika á Íslandi, í Þýskalandi,
Frakklandi og á stórri alþjóðlegri
orgelhátíð á Álandseyjum. Hann hef-
ur sérhæft sig í flutningi á róman-
tískum orgelverkum frönsku tón-
skáldanna og hlotið frábæran
vitnisburð tónleikagagnrýnenda fyrir
leik sinn. Hann hefur verið atkvæða-
mikill í íslensku tónlistarlífi sem org-
anisti, píanóleikari og kórstjóri, en á
þeim vettvangi var hann tilnefndur til
Íslensku tónlistarverðlaunanna árið
2004 með Kór Áskirkju fyrir geisla-
diskinn „Það er óskaland íslenskt“.
Kári sat í stjórn Tónskóla þjóð-
kirkjunnar um skeið.
Það er eins með Kára og aðra tón-
listarmenn; tónlistin er hvort tveggja
atvinna og áhugamál: „Við það er litlu
að bæta. Ég er mikill fjölskyldumað-
ur og hef áhuga á fallegum húsum og
arkitektúr. Þegar við hjónin létum
teikna fyrir okkur hús vorum við sjálf
töluvert með puttana í þeirri vinnu.
Auk þess eru guðshúsin sem ég hef
unnið í mörg mjög falleg mannvirki.“
Fjölskylda
Eiginkona Kára er Sveinbjörg
Halldórsdóttir, f. 3.10. 1969, næring-
arfræðingur. Foreldrar hennar: Hall-
dór Þorsteinsson, f. 29.8. 1940, d. 1.1.
2018, sjómaður í Neskaupstað, og
k.h., Guðrún Sigurðardóttir, f. 24.10.
1939, d. 6.9. 2011, hjúkrunarforstjóri
við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað.
Synir Kára og Sveinbjargar eru
Konráð, f. 15.7. 2000, nemi; Halldór
Svanberg, f. 3.10. 2005, nemi, og Gutt-
ormur Kári, f. 23.5. 2012.
Hálfsystir Kára, samfeðra, er
Helga Rósa, f. 11.3. 1952, búsett í
Noregi.
Alystkini Kára eru Jóhannes, f.
13.2. 1957, bílstjóri í Hafnarfirði; Páll,
f. 22.10. 1958, vélsmiður í Hafnarfirði;
Sigurveig, f. 13.9. 1959, hárskeri í
Hafnarfirði, og Sigfríð, f. 13.8. 1963,
verktaki í Hafnarfirði.
Foreldrar Kára: Kári Pálsson Þor-
mar, f. 29.1. 1929, rafeindavirki og
loftskeytamaður, búsettur í Hafnar-
firði, og k.h., Ólafía Jóhannesdóttir, f.
3.3. 1930, d. 25.11. 2004, húsfreyja.
Þau bjuggu lengst af í Hafnarfirði.
Úr frændgarði Kára Þormar
Ólafía Hallgrímsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Steingrímur Torfason
kennari, hafnarvörður
og kaupm. í Hafnarfirði
Sigurveig Steingrímsdóttir
húsfr. og kaupm. í Hafnarfirði
Jóhannes Gunnarsson
kaupm. í Hafnarfirði
Ólafía Jóhannesdóttir Þormar
húsfr. í Hafnarfirði
Hólmfríður Hjartardóttir
húsfr. í Keflavík
Gunnar Jón Árnason
skósm. og verslunarm. í Keflavík
Þórdís Guðjónsdóttir
júkrunarfr. í Hafnarfirðih
Margrét Júlíana
Sigurðardóttir tónlistarkona
Guðjón Steingrímsson
hrl. í Hafnarfirði
Kári Þormar
Geir P. Þormar ökukennari í Rvík
Garðar Þormar bílstj. í Rvík
Sigríður Þormar nemi, lést
ung er Goðafoss var skotinn
niður við Garðskagann
Torfhildur Steingrímsdóttir listakona og saumakona í Hafnarfirði
uðrún Jóhannesdóttir
veitingakona í Rvík
GSigurveig Káradóttir
veitingakona í Rvík
Sigríður Espólín Jónsdóttir
húsfr. á Brekku og á Seyðisfirði
Gísli Hjálmarsson Kristjánsson
útgerðarm. í Neskaupstað, á
Akureyri og í Hafnarfirði
Ingvar Gíslason alþm.,
ráðherra og ritstj. í Rvík
María Hjálmarsdóttir
húsfr. í Sandhúsi í
Mjóafirði
Vilhjálmur Hjálmarsson
alþm., ráðherra og
rithöfundur
Hjálmar
Vilhjálmsson
sérfr. hjá Hafró
Hjálmar
Vilhjálmsson
b. á Brekku
Vilhjálmur
Hjálmarsson b. á
Brekku í Mjóafirði
Konráð Hjálmarsson
verslunarm. í Neskaupstað
Sigfríður Konráðsdóttir Þormar
húsfr. á Seyðisfirði og í Neskaupstað
Páll Guttormsson
framkvstj. og verslunarm. á
Seyðisfirði og í Neskaupstað
Sigríður Guðbjörg Anna Sigmundsdóttir
húsfr. á Eiðum
Guttormur Vigfússon
alþm. og skólastj.
Búnaðarskólans að Eiðum,
bróðursonur Bergljótar,
ömmu Maríu, ömmu
Hrafns Gunnlaugssonar
kvikmyndagerðarmanns
Kári Pálsson Þormar
rafeindavirki og
loftskeytam. í Hafnarfirði
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
Rannveig Jónína Kristjáns-dóttir fæddist á Dagverðar-eyri í Eyjafirði 23.5. 1917.
Foreldrar hennar voru Kristján Sig-
urðsson, bóndi á Dagverðareyri og
kennari á Akureyri, og Sesilía Egg-
ertsdóttir húsfreyja.
Systir Rannveigar var Kristín
Kristjánsdóttir, kennari í efnafræði
við Lundby Gymnasium í Gautaborg
og við Laboratskólann í Gautaborg
og fyrsta íslenska konan til að ljúka
verkfræðiprófi.
Rannveig lést 35 ára, eftir sjö ára
hjónaband sitt og Peters Hallbergs,
prófessors í bókmenntasögu við Há-
skólann í Gautaborg, og lét hún eftir
sig tvö börn, Kristján Magnús sem
varð blaðamaður við GP í Gauta-
borg, og Maríu Sesilíu, lækni í Sví-
þjóð. Kristín, systir Rannveigar,
varð síðan seinni kona Peters og
stjúpmóðir systurbarna sinna.
Bróðir þeirra systra var Eggert
Kristjánsson, hrl. og framkvæmda-
stjóri í Reykjavík.
Rannveig lauk stúdentsprófi frá
MA 1938, stundaði nám við Fack-
skolan för huslig ekonomi í Upp-
sölum og við Socialinstitutet í Stokk-
hólmi og útskrifaðist þaðan 1942.
Rannveig var matreiðslukennari
við Húsmæðraskólann í Reykjavík
1942-44, umferðarkennari og ráðu-
nautur hjá Kvenfélagasambandi Ís-
lands 1944-47 og námsstjóri hús-
mæðraskólanna 1946-48. Þá flutti
hún til Svíþjóðar.
Eiginmaður Rannveigar, Peter
Hallberg, varð helsti fræðimaður
Svía í íslenskum bókmenntum. Hann
þýddi skáldsögur Halldórs Laxness
á sænsku og ritaði ævisögu hans í
tveimur bindum og sendi síðar frá
sér ævisögu Halldórs á ensku sem
kom út í New York árið 1971.
Peter átti stóran þátt í að ávinna
Halldóri virðingu í Svíþjóð og víðar
og hefur sennilega átt þátt í því að
hann hlaut Nóbelsverðlaun árið
1955. Þær systur, Rannveig og
Kristín, áttu hins vegar sinn stóran
þátt í þýðingum Peters á verkum
Halldórs Laxness og ritum Peters
um íslenskar bókmenntir almennt.
Merkir Íslendingar
Rannveig J. Kristjánsdóttir
90 ára
Ingibjörg Þórðardóttir
85 ára
Kristján Sigurðsson
Kristleifur Einarsson
Óli Jörundsson
80 ára
Bjarni Árnason
Harpa B. Halldórsdóttir
Ruth Sörensen
Unnur Laufey Jónsdóttir
75 ára
Alma Hákonardóttir
Elín Gíslína Árnadóttir
70 ára
Auðbjörg Ögmundsdóttir
Guðrún Hilmarsdóttir
Oddný Þórisdóttir
Ragnheiður Þorkelsdóttir
Reynir Markússon
Rósa Guðrún Jóhannsdóttir
Sigrún K. Hilmarsdóttir
Sigurður Axel Axelsson
Tatjana Guzhviy
Ögmundur Ólafsson
60 ára
Bára G. Sigurgeirsdóttir
Böðvar Vignir Bergþórsson
Eðvarð Falk
Guðbjörg Jóna Jóhanns
Guðmunda H. Eyjólfsdóttir
Ingvar Elíasson
Jóhannes Ingimarsson
Jón Aðalsteinn Jónsson
Lísa Lotta Reynis Andersen
Sigmundur Sigurgeirsson
Sigríður B. Sigurhansdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir
Sigríður Vilhjálmsdóttir
50 ára
Aafke Roelfs
Aðalheiður Einarsdóttir
Ármann Sævar Gylfason
Ásgerður H. Sveinsdóttir
Brynja Birgisdóttir
Dariusz Maciej Kmera
Diljá Þórhallsdóttir
Ðúc Minh Búi
Guðmundur G. Hrafnsson
Jóhann Ásmundsson
Olga Gunnarsdóttir
Ríkarð Ríkarðsson
Rosello Berg Perez
Sigríður Gunnarsdóttir
Sigríður Héðinsdóttir
Sigrún Þórarinsdóttir
Tryggvi Ragnarsson
Unnur Arna Sigurðardóttir
Þóra Ester Bragadóttir
40 ára
Aistis Svirskis
Bjarni Sigurðsson
Dawid Tadeusz Potrykus
Dóra M. Sigurðardóttir
Erla Rún Sigurjónsdóttir
Gunnar Ólafsson
Halldór Jóhann Sigfússon
Hannes Finnsson
Harpa Vigfúsdóttir
Janusz Michal Socko
Kalina Dimitrova Dimova
Kittý Ásgeirsdóttir
Lilja Petra Ólafsdóttir
Rakel Ýr Óðinsdóttir
Santa Bahadur Gurung
Sigrún Ósk Ómarsdóttir
Svanhildur Þorsteinsdóttir
Svanur Snær Halldórsson
Válter Rodrigues Da Silva
Þorbjörg S.Gunnlaugsdóttir
30 ára
Andri Helgason
Anna Beta Gísladóttir
Elísabet Karlsdóttir
Hildur Ólafsdóttir
Sonja Dröfn Ríkarðsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurður ólst upp
í Efra-Núpi í Miðfirði, býr í
Reykjavík, er húsasmíða-
meistari með MSc-próf í
byggingaverkfræði og
starfar við tjónadeild TM.
Maki: Fredrica Fagerlund,
f. 1989, tamningakona og
reiðkennari.
Dóttir: Líney Anna, f.
2017.
Foreldrar: Sigurrós Krist-
ín Indriðadóttir, f. 1955,
og Örnólfur Friðrik Björg-
vinsson, f. 1951.
Sigurður H.
Örnólfsson
30 ára Bergþóra ólst upp
í Gröf í Laxárdal en býr í
Laufási, lauk BA-prófi í
uppeldis- og menntunarfr.
og er í fæðingarorlofi.
Maki: Katarínus Jón
Jónsson, f. 1988, sér-
fræðingur.
Sonur: Jóhann Elís, f.
2017.
Foreldrar: Jóhann H. Rík-
arðsson, f. 1964, bóndi í
Gröf og Jónína K.
Magnúsdóttir, f. 1968,
sjúkraliði.
Bergþóra Hólm
Jóhannsdóttir
30 ára Alda Guðrún ólst
upp í Reykjavík, býr á Sel-
fossi, er fyrirsæta og
starfar auk þess sem
þjónn.
Unnusti: Gatif Kauzens,
f. 1991, húsasmiður.
Dóttir: Karólína Ósk, f.
2008.
Foreldrar: Karólína Valdís
Svansdóttir, f. 1971, starf-
ar við umönnun í Reykja-
vík, og Jónas Ragnar
Hilmarsson, f. 1964, fisk-
vinnslumaður á Höfn.
Alda Guðrún
Jónasdóttir
www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
faglega þjónustu,