Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 39

Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 » Nýjasta kvikmynd Bene-dikts Erlingssonar, Kona fer í stríð, var frumsýnd hér á landi í Háskólabíói í gær á sér- stakri hátíðarsýningu. Kvik- myndin var frumsýnd í Cannes fyrr í mánuðinum og hefur hlotið lofsamlega dóma og hlaut auk þess verðlaun fyrir handrit í flokknum Critic’s Week. Kvikmyndin Kona fer í stríð frumsýnd í Háskólabíói Leikarar og aðstandendur kvikmyndarinnar F.v. Ólafur Egilsson, Davíð Alexander Corno, Benedikt Erlingsson, Jóhann Sigurðarson, Halldóra Geirharðsdóttir og Davíð Þór Jónsson voru kát í aðdraganda frumsýningarinnar. Spennan í hámarki Á meðal frumsýningargesta voru þau Snorri Helgason, Saga Garðarsdóttir og Steiney Skúladóttir. Listamenn Ragnar Kjartansson, Guðrún Ásmundsdóttir, Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir voru í hátíðarskapi. Ánægð hjón Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari og Rósa Björk Sveinsdóttir. Morgunblaðið/Eggert Skjaldborg, hátíð íslenskra heimild- armynda, lauk um helgina og voru átján íslenskar heimildarmyndir frumsýndar og átta verk í vinnslu kynnt. Hátíðinni lauk á sunnudags- kvöld og að vanda með verðlaunaaf- hendingu. Heimildarmyndin Söngur Kanemu eftir Önnu Þóru Steinþórs- dóttur hlaut bæði áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, Einarinn, og dóm- nefndarverðlaun hennar sem nefnast Ljóskastarinn. Myndin fjallar um söngelska dóttur Önnu Þóru, Ernu Kanemu, og leit hennar að söngvum frá Sambíu, heimalandi föður henn- ar, að því er fram kemur í tilkynn- ingu. „Um leið og Erna kemst í snertingu við uppruna sinn þá öðlast hún skilning á tónlistarhefð forfeðra sinna og tekur brot af henni með sér heim til Íslands,“ segir þar. Dómnefnd hátíðarinnar sam- anstóð af Ragnari Bragasyni, El- ísabetu Indru Ragnarsdóttur og Yrsu Roca Fannberg og hafði nefnd- in m.a. það að segja um verðlauna- myndina að hún ætti ríkt erindi við samtíma sinn, miðlaði mikilvægum lífsgildum og fangaði litróf þjóð- arinnar. „Sagan er sögð af mikilli hlýju og næmi, full af gleði og hjarta,“ segir m.a. í umsögn dóm- nefndar. Dómnefndin tilnefndi einnig heim- ildarmyndina Rjóma eftir Freyju Kristinsdóttur til sérstakra hvatn- ingarverðlauna með eftirfarandi um- sögn: „Klassísk saga af órettlæti sem kemur þó sífellt á óvart og heldur manni föngnum frá upphafi til enda.“ Söngur Kanemu hlaut tvenn verðlaun á Skjaldborg Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson Fjölskylda Anna Þóra Steinþórsdóttir með eiginmanni sínum, Harry Mas- hinkila, og dætrum þeirra Kanema Mashinkila og Auði Makaya Mashinkila. Robert Indiana, bandaríski pop- myndlistarmaðurinn sem er fræg- astur fyrir útfærslur á orðinu love í myndverkum sínum, er látinn 89 að aldri. Í andlátsfregn The New York Times segir að útgáfur hans á orð- inu hafi orðið meðal kunnuglegustu listaverka liðinnar aldar en hann gerði hundruð útgáfa af orðinu og útfærði í skúlptúrum, grafík- verkum og málverkum; það birtist líka á frímerkjum og allskyns öðr- um fjölfeldum. Undanfarna áratugi hefur Indiana búið á eynni Vinal- haven í Maine og lifað sífellt ein- angraðra lífi, þótt vinsældir verk- anna hans hafi aukist. Listamaðurinn Robert Indiana látinn Ástarjátning Útgáfur Indiana á orð- inu love eru margar og kunnar. Nær hálfri öld eftir að myndlistar- maðurinn Andy Warhol stofnaði tímaritið Interview í New York hafa núverandi eigendur lýst það gjaldþrota og hætt útgáfunni. Í Interview var frá fyrsta degi fjallað um menningu og listir á fjöl- breytilegan hátt, með stórum ljós- myndum og áhrifaríkri hönnun. Og tímaritið naut löngum mikilla vin- sælda og þótti hafa mótandi áhrif á efnistök og útlit annarra miðla sem létu ritið, sem Warhol hafði mikil áhrif á meðan hann lifði, um að ryðja brautina. Warhol lést árið 1987 og tveimur árum síðar keypti auðkýfingurinn og myndlistarsafn- arinn Peter Brand ritið. Síðustu tvo áratugi hefur lestur á því minnkað og um leið dregið úr áhrifamætti útgáfunnar. Tímaritið Interview gjaldþrota Interview Stofnandinn Andy Warhol á forsíðu gamals eintaks Interview. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fös 25/5 kl. 20:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 36. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s Lau 2/6 kl. 20:00 37. s Allra síðustu sýningar! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas. Fös 1/6 kl. 20:30 aukas. Fös 25/5 kl. 20:30 aukas. Fim 31/5 kl. 20:30 aukas. Lau 2/6 kl. 20:30 aukas. Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Mystery boy (Stóra sviðið) Fim 24/5 kl. 19:30 MYSTERY BOY (Yfirnáttúruleg ástarsaga) Aðfaranótt (Kassinn) Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.