Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 41

Morgunblaðið - 23.05.2018, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is ICQC 2018-20 AF GRÍNGOÐSÖGN Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enski gamanleikarinn, grínistinn og handritshöfundurinn John Cleese heiðraði Íslendinga með nærveru sinni í Eldborgarsal Hörpu í síðustu viku þegar hann flutti í þrígang sýningu sína Last Time to See Me Before I Die, Síð- asta tækifæri til að sjá mig áður en ég dey í lauslegri þýðingu. Cleese hefur verið lengi á grafarbakkanum, að því er virðist, því hann hefur flakkað um heiminn með þessa sýningu allt frá árinu 2013, eftir því sem ofanritaður kemst næst. Þó má vera að sýningin hafi tekið einhverjum breytingum á þeim tíma og ljóst að Cleese mun ekki drepast alveg strax því fleiri sýningar eru framundan. Óþolandi aðdáendur Cleese er ein af goðsögnum grínsögunnar og enn að gera grín, þó orðinn sé 79 ára. Ef hláturinn lengir lífið eru allar líkur á því að Cleese verði 150 ára hið minnsta, enda ískraði í honum hláturinn hvað eftir annað á sviði Eldborgar. Hann öðlaðist frægð með hinum magnaða grínhópi Monty Python á sínum tíma en hópurinn gerði sína fyrstu þáttaröð, Monty Python’s Flying Circus, fyrir BBC árið 1969 og gjörbreytti með henni gaman- þáttagerð í sjónvarpi. Eftir hópinn liggur margt meistaraverkið, bæði þættir og kvikmyndir, m.a. gaman- myndin Life of Brian þar sem sagan af Jesú er tekin fyrir með einstök- um hætti, eins og frægt er orðið. Cleese sagði m.a. frá aðdraganda þeirrar myndar og eftirmálum á sýningu sinni í Eldborg sem var ekki eiginlegt uppistand heldur blanda af gamanmálum, fyrirlestri, minningum og upprifjunum og sýndi meistarinn mörg myndskeið sem teljast í dag sígild, m.a. úr Monty Python-þáttunum og kvik- myndunum Holy Grail, The Mean- ing of Life og Life of Brian. Cleese er sem gamanleikari í sérstöku uppáhaldi hjá pistilritara og nægði honum í raun að sjá Cleese í holdinu á sviði Eldborgar; roskinn, belgmikinn og enn í fullu fjöri, þrátt fyrir yfirskrift sýning- arinnar. Strax í upphafi minnti hann á mikilvægi sitt með því að segja frá þeim ótal skiptum sem ókunnugir hafa komið að máli við hann, lýst yfir aðdáun sinni á hon- um og fullyrt að hann hafi breytt lífi þeirra. „Ég þoli það ekki!“ sagði Cleese og uppskar mikinn hlátur Ekki dauður enn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Óborganlegur Cleese brá sér m.a. í hlutverk gamallar konu á sýningu sinni í Eldborg í síðustu viku. gesta Eldborgar. Hann lét við- stadda svo þylja upp texta af skjá þar sem þeir lýstu yfir aðdáun sinni á honum og að hann hefði breytt lífi þeirra en textinn endaði á þeim orðum að Cleese væri óþolandi montrass og leiðindaskarfur. Organdi kæti og vonbrigði Af viðbrögðum að dæma virt- ust sýningargestir flestir vera aðdáendur Cleese og ljóst að þeir sem ekki þekktu Cleese og hans verk, m.a. Monty Python og þann einstaklega kjánalega húmor sem hópurinn er frægur fyrir, hefðu betur heima setið. Sessunautar pistilritara voru eins og svart og hvítt. Hægra megin sátu tveir karl- ar um fertugt sem voru í símunum sínum alveg fram að hléi, hlógu lít- ið sem ekkert og furðuðu sig reglu- lega á því hversu lélegur Cleese væri og sýningin lítið fyndin. Báðir létu sig hverfa í hléi. Vinstra megin við pistilritara og frú voru aftur á móti tvær konur í sínu fínasta pússi, á að giska milli þrítugs og fertugs. Þær orguðu af hlátri og jafnvel áður en brandar- arnir voru byrjaðir, þekktu greini- lega öll atriði Cleese og Monty Python og voru nær hamslausar af gleði, enda margt bráðfyndið þó maður hefði séð það margoft áður. Má þar nefna æluatriðið sígilda í The Meaning of Life sem er alltaf jafnstórkostlegt, sama hvað maður sér það oft enda gekk það og geng- ur enn gjörsamlega fram af fólki í subbuskap sínum og ósmekkleg- heitum sem gerir það einmitt svo hrikalega fyndið. Dánarorsakir fyndnar? Bleksvart grín var Cleese afar hugleikið þetta kvöld og hann hafði á orði að ekki mætti gera grín að neinu lengur eða svo gott sem. Sá gamli hefur greinilega afar svartan húmor því undir lokin fór hann að spauga með dánarorsakir fólks, nefndi til dæmis að gestir í nokkr- um sætaröðum Eldborgar myndu deyja úr hjartaáfalli, aðrir úr krabbameini, nokkrir myndu svipta sig lífi o.s.frv. Þótti pistilritara þá fulllangt gengið í tabú-gríninu því líklega vilja fáir velta því fyrir sér hvað verði þeim að aldurtila. Að sama skapi var nýrra grín- efni Cleese ekki mjög fyndið, t.d. myndskeið þar sem hann gerir grín að gleðisnauðum Svíum. Gamanið hefur kárnað með árunum enda Cleese ekki lengur ungur og spræk- ur í hópi skapandi manna á borð við félagana í Monty Python. Sá gamli átti engu að síður góða spretti þetta kvöld, t.d. þegar hann lýsti sam- skiptum sínum við síkvartandi móður sína og að hann hefði boðist til að senda á hana „lítinn mann sem býr í Fulham“ sem væri til í að drepa hana (!). Cleese lifir vissulega á fornri frægð og hefur greinilega húmor fyrir því. Þó grínið hafi verið mis- fyndið þetta kvöld var upplifun að sjá þennan mikla grínmeistara og hlusta á hann ausa úr viskubrunni sínum. Þetta var skemmtilegt kvöld. »Þær orguðu afhlátri og jafnvel áður en brandararnir voru byrjaðir, þekktu greini- lega öll atriði Cleese og Monty Python og voru nær hamslausar af gleði. Sendibréf, textabrot, bækur og handrit eftir franska rithöfundinn Marcel Proust (1871-1922) sem barnabarn yngri bróður höfundar- ins selur á uppboði hjá Sotheby’s í París á morgun, opinbera meðal annars ástarsamband Proust og tónskáldsins Reynaldo Hahn. Boðin verða upp ýmis gögn og skjöl, þar á meðal áður óséð bréf sem Proust skrifaði árið 1896 til Hahn, sem fræðimenn sem skoðað hafa bréfin segja hafa verið fyrstu ást Proust. Sambandið hafi aldrei spurst út fyr- ir vinahóp þeirra – því lauk 1898 – og gekkst Proust aldrei við sam- kynhneigð sinni. Proust og Hahn urðu báðir stór- stjörnur á sinni tíð og er stórvirki rithöfundarins, Í leit að glötuðum tíma, eitt af lykilverkum evrópskra bókmennta á fyrri hluta 20. aldar. Nær öll bréf og einkaskjöl Proust hafa þar til nú verið í eigu fjöl- skyldu hans. Fyrir utan handrit og valin skjöl sem bróðurdóttir Proust seldi Landsbókasafni Frakklands á sjöunda áratugnum hafa einkagögn höfundarins ekki verið sýnd opin- berlega fyrr en nú í aðdraganda uppboðsins. Meðal annarra skjala sem vekja athygli blaðamanns The Guardian, sem fjallar um þau, má nefna uppköst að nokkrum þekkt- ustu verkum hans, svo sem Í leit að glötuðum tíma, og safn 138 bréfa sem Proust skrifaði útgefandanum Gallimard á árunum 1912 til 1922. Ljósmynd/Sotheby’s Athyglisverð Nokkur bréfa og skjala Proust sem verða seld á uppboðinu. Ástarbréf Proust til Hahn á uppboð Kona fer í stríð Nýjasta kvikmynd Benedikts Erl- ingssonar. Í henni segir af konu á fimmtugsaldri, kórstjóra, sem ákveður að bjarga heiminum. Hún lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu, gerist skemmdarverka- maður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. „Að bjarga einu barni er að bjarga heiminum. En er það nóg?“ segir í tilkynningu um myndina. Með aðal- hlutverk fara Halldóra Geirharðs- dóttir, Davíð Þór Jónsson, Magnús Trygvason Eliassen, Ómar Guð- jónsson og Jóhann Sigurðsson. Solo: A Star Wars Story Afleggjari svokallaður af Stjörnu- stríðsbálkinum sem segir af kapp- anum Han Solo og ævintýrum hans áður en hann hitti Luke Skywalker, eða Loga geimgengil, og gekk með honum til liðs við uppreisnarmenn í fyrstu Stjörnustríðsmyndinni, A New Hope, frá árinu 1977. Leikstjóri er Ron Howard og með helstu hlutverk fara Alden Ehren- reich, Emilia Clarke, Donald Glov- er, Paul Bettany og Woody Harrel- son. Metacritic: 63/100 Draumur Teiknimynd með íslenskri talsetn- ingu. Öskubuska, Þyrnirós og Mjallhvít uppgötva að þær eru allar trúlofaðar sama prinsinum og þá er úr vöndu að ráða því hann getur ekki gifst þeim öllum. Leikstjóri ís- lenskrar talsetningar er Tómas Freyr Hjaltason. Bíófrumsýningar Solo, draumur og stríð Hetja Úr Solo: A Star Wars Story sem verður frumsýnd í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.