Morgunblaðið - 23.05.2018, Side 44

Morgunblaðið - 23.05.2018, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Veðurgrínið fór úr böndunum 2. Svona fór Sigmundur að því … 3. „Ein stór svikamylla“ 4. Svipt forræði vegna vanrækslu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Nordic Affect kemur fram í Mengi á fimmtudagskvöld kl. 21. Á efnis- skránni eru verk eftir Jóhann Jóhannsson, Helenu Tulve, Georg Kára Hilmarsson og Jobinu Tinne- mans, sem spinna mun með Nordic Affect út frá verki Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Hnit #1. Nordic Affect í Mengi  #bergmálsklef- inn nefnist ný ís- lensk ópera um kynjahyggju á samskiptamiðlum eftir Michael Betteridge og Ing- unni Láru Krist- jánsdóttur sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói á föstudag kl. 20.30. Leikstjóri er Ingunn Lára og leikendur eru Rosie Middleton, Ísabella Leifs- dóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir og Ívar Helgason. #bergmálsklefinn sýndur í Tjarnarbíói  Rússneski fiðluleikarinn Alina Pogostkina hleypur í skarðið fyrir Janine Jansen á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu á fimmtudag kl. 19.30. Leikur hún fiðlukonsert eftir Jean Sibelius, en hljóm- sveitin leikur einnig Ciel d’hiver eftir Kaiju Saariaho Ciel d’hiver og konsert eftir Béla Bartók undir stjórn Dani- els Blendulf. Alina Pogostkina spilar Sibelius Á fimmtudag Suðaustan 5-13 og rigning um landið austanvert og talsverð um tíma suðaustanlands, en suðvestan 5-10 vest- antil og skúrir. Hiti 4 til 12 stig, mildast á Norðausturlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s og skúrir, en létt- skýjað á norðaustanverðu landinu. Hægari og úrkomulítið síð- degis. VEÐUR „Í svona leikjum eflist ég. Þetta er aðeins öðruvísi en í venjulegum leikjum. Auðvit- að fer ég í alla leiki til að gera mitt, gera það sem ég er góð í og svo kemur hitt með. En það er eitthvað innra með mér sem ýtir mér upp á annað stig,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir, lands- liðsfyrirliði í knattspyrnu, sem á morgun leikur til úr- slita með Wolfsburg í Meist- aradeildinni. »1 „Eitthvað sem ýtir mér á annað stig“ „Við sem skipum liðið í dag erum mótaðir af því liði sem var í uppbygg- ingu á erfiðu árunum frá 2007 til 2009. Þá vorum við í fjáröflunum og alls kyns vinnu fyrir deildina að minnsta kosti einu sinni í viku. Eng- inn tók krónu fyrir að æfa og leika fyrir liðið. Þvert á móti borguðu menn með sér. Gildin sem urðu til á þessum árum eru enn í fullu gildi,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, annar fyrirliða Íslandsmeistara ÍBV í hand- knattleik. »2-3 Gildi Eyjaliðsins urðu til á erfiðu árunum KA-menn fara fremur rólega af stað í Pepsi-deild karla í knattspyrnu þetta sumarið. Liðið hefur fengið fimm stig úr fyrstu fimm leikjunum, en í gær gerði liðið markalaust jafntefli við nýliðana úr Keflavík. Leikurinn er sá fyrsti í deildinni í sumar sem Keflvík- ingar halda marki sínu hreinu í og ætti það að vera liðinu gott veganesti í leikinn mikilvæga gegn ÍBV. »2-3 Róleg byrjun KA-manna þetta sumarið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gegnt Heilbrigðisstofnuninni við Merkigerði á Akranesi má sjá mörg- um reiðhjólum, nýjum og notuðum, raðað upp framan við einbýlishús á góðviðrisdögum. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að þarna rekur Axel Gústafsson reiðhjólaverslun og verk- stæði í kjallaranum. Axel hefur rekið þessa starfsemi í áratug og þakkar það hruninu að hann hafi nóg að gera. „Ég vann hjá afa í Axelsbúð, sem hann stofnaði 1942 og rak í áratugi, og þegar hann féll frá 1995 tókum við Guðjón Finn- bogason við rekstrinum,“ rifjar Axel upp. Eftir að Guðjón hætti eftir 56 ára starf í búðinni fór að harðna á dalnum, Axel lagði verslunina niður og seldi lóðina. Hann byrjaði að vinna í Húsasmiðjunni og fór svo til N1. „Ári seinna kom „blessuð kreppan“ en um sumarið 2008 keypti ég notað hjól handa dóttur minni. Það þarfnaðist yfirferðar og ég fór með það á verkstæði. Verkstæðið var til sölu og ég keypti það. Áður en ég vissi af fylltist bílskúrinn hjá mér af hjólum og það hefur verið brjálað að gera síðan. Mér var sagt upp hjá N1 um haustið og hef verið alfarið á eig- in verkstæði í nær áratug.“ Kertastjakar úr festingum Auk viðgerða er Axel umboðs- maður Arnarins í Reykjavík og selur ný hjól frá fyrirtækinu sem og vara- hluti og aukahluti. Hann er jafnframt með hjól til leigu. „Það leynir á sér hvað karlinn er með,“ segir hann og vísar á heimasíðuna til nánari út- skýringar (axelsbud.com). Í viðgerðunum eru það fyrst og fremst bremsurnar og gírarnir sem þarf að laga fyrir utan að bæta slöng- ur eða skipta um þær. „Í góða veðr- inu stend ég hérna úti og geri við. Þá blasa Snæfellsnesið og jökullinn við sem listaverk,“ segir hann. Axel er ekki aðeins í hjólunum heldur býr hann til og selur kerta- stjaka. Hann minnir á að lagnaefni hafi fengist í Axelsbúð og þegar hann hafi lokað búðinni hafi hann meðal annars setið uppi með lager af járn- rörum, hnjám og fleiri járnvörum. Þegar hann hafi verið að bera efnið út úr búðinni hafi honum verið bent á að það hentaði vel fyrir sprittkerti. „Ég átti afmæli og bjó til kertastjaka úr þessu til þess að hafa í veislunni, úðaði þá og setti á borð. Þeir vöktu athygli og fólk hvatti mig til þess að halda áfram á þessari braut. Ég tók það á orðinu, fór að hnoða saman og hef búið til ýmsar útgáfur af kerta- stjökum úr festingum síðan.“ Axel er smiðssonur og hefur smíð- að ýmsa hluti, meðal annars leik- skólabíla, -kerrur og garðbekki. „Pabbi smíðaði bekki í mörg ár og þegar hann hætti að vinna tók ég við af honum, smíðaði í „dauða“ tím- anum á haustin og veturna. Vanda- málið var að það var svo mikil sala í þessum bekkjum að ég komst ekki yfir það vegna vinnu á verkstæðinu, svo að þetta lúxusvandamál varð til þess að ég hætti í bekkjunum. En það er enginn skortur á verkefnum.“ Alltaf á hjólum í vinnunni  Axel Gústafsson þúsundþjalasmið- ur á Akranesi Morgunblaðið/RAX Hjólaviðgerðir Axel Gústafsson hefur nóg að gera í kjallaranum og vantar hvorki tól, tæki né varahluti. Úti og inni Þegar vel viðrar fara viðgerðirnar fram úti undir beru lofti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.