Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
EIM
-4,70%
192,5
ORIGO
+3,72%
22,3
S&P 500 NASDAQ
+0,13%
7.363,733
+0,13%
2.716,44
+0,08%
7.785,08
FTSE 100 NIKKEI 225
24.11.‘17 24.11.‘1723.5.‘18 23.5.‘18
1.900
752.500
2.132,0
2.248,1
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
78,87
-1,05%
22.689,74
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
55
63,86
„Það er erfitt að alhæfa einungis út
frá þessum tölum en ég held að á
heildina litið getum við verið nokkuð
sátt,“ segir Helga Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, um niðurstöður Ferða-
mannapúlsins fyrir aprílmánuð.
Þrátt fyrir talsverða fjölgun ferða-
manna síðustu 12 mánuði sýna niður-
stöður að ánægja erlendra ferða-
manna sem sækja Ísland heim
stendur í stað og er nú 83,6 stig af 100
mögulegum. Í apríl var ánægjan
mest meðal Þjóðverja en lægst meðal
Íra, sem iðulega hafa mælst lægstir í
mælingum Ferðamannapúlsins.
Fram kemur þegar horft er í
undirþætti Ferðamannapúlsins að
óánægja vegna verðlags hérlendis
hefur aukist. Helga segir að hækkun
verðlags sé áhyggjuefni fyrir ferða-
þjónustuna enda dragi hún úr sam-
keppnishæfni landsins og ánægju
þeirra sem hingað koma.
Minni ánægja undanfarin ár
„Ánægja hefur aukist í fjórum af
þessum fimm undirþáttum. Hækkun
verðlags heldur aftur af aukinni
ánægju fólks hvað varðar Íslands-
heimsóknina, sem er auðvitað ekki
jákvætt. Þetta er sá flokkur sem hef-
ur helst verið að draga okkur niður,“
segir Helga en bætir við að einnig sé
hægt að lesa margt jákvætt úr niður-
stöðunum.
„Það hefur aldrei verið ódýrt að
koma til Íslands. Hins vegar verðum
við að vanda okkur þannig að verð og
gæði haldist í hendur. Við sjáum m.a.
í þessum undirþáttum að við erum
mjög góðir gestgjafar og fólk er al-
mennt ánægt þegar það heldur af
landi brott. Að skora í kringum 80-90
stig er vel viðunandi og við getum
verið sátt við það,“ segir Helga.
Undanfarin ár hefur Ferðamanna-
púlsinn lækkað talsvert milli ára, en í
fyrra lækkaði hann um rúmlega tvö
stig milli sumarsins 2017 og 2016. Að-
spurð segir Helga að ákveðið mynst-
ur hafi verið að myndast undanfarin
ár. „Skorið hefur verið að lækka und-
anfarin ár og eins og ég sagði áður
vegur hækkun verðlags þar þyngst.
Það er ekki gott að mynstrið sé niður
á við en svo virðist sem það sé að
hægja á þessu og aðrir þættir vegi
upp á móti hækkun verðlags,“ segir
Helga.
Kortavelta dregst saman
Hærra verðlag og styrkingar
krónunnar undanfarin misseri hafa
leitt til þess að erlend greiðslukorta-
velta hér á landi hefur lækkað um
17% síðustu 12 mánuði.
Helga segir að mikilvægt sé að
rýna gögn sem þessi vel og skoða
m.a. neyslu og ánægju ferðamanna
sem sækja landið heim með tilliti til
þjóðernis.
„Neyslumynstur eftir þjóðerni er
mjög mismunandi og það þarf að
skoða það betur. Þá bregðast þjóðir
með mismunandi hætti við verðlags-
breytingum, en það er auðvitað
áhyggjuefni að þjóðir eins og Banda-
ríkin hafi verið að skila verri tölum,
enda eru miklir vaxtarmöguleikar
þar. Þetta þarf því að skoða í stærra
samhengi,“ segir Helga, sem er þó
bjartsýn á áframhaldandi vinsældir
Íslands sem áfangastaðs.
„Við eigum þetta stórkostlega
land, erum góðir gestgjafar og upp-
fyllum væntingar flestra ferða-
manna. Ég tel því að bjartir tímar
séu fram undan í íslenskri ferðaþjón-
ustu,“ segir Helga.
Lítil breyting á
ánægju ferðamanna
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nýjustu mælingar á
ánægju erlendra ferða-
manna sýna að hún er enn
mikil þrátt fyrir talsverða
fjölgun ferðamanna hér-
lendis undanfarin ár.
Morgunblaðið/Eggert
Samkvæmt upplýsingum frá Ferðamannapúlsinum eru erlendir ferðalangar
sem sækja Ísland heim almennt ánægðir með dvöl sína hér á landi.
HÁTÆKNI
Kviðdómur í Delaware-ríki í Banda-
ríkjunum hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að bandaríska stórfyrirtækið
Natus Inc. hafi viljandi brotið gegn
skráðu einkaleyfi Nox Medical í
Bandaríkjunum á hönnun lífmerkja-
nema sem notaður er við svefnrann-
sóknir.
„Þessi barátta hefur kostað okkur
hundruð milljóna króna og er líklega
eitt stærsta hugverkaréttarmál sem
íslenskt fyrirtæki hefur háð,“ segir
Pétur Már Halldórsson, forstjóri Nox
Medical.
Natus Inc. er skráð á bandarískan
hlutabréfamarkað og veltir rúmlega
50 milljörðum króna á ári. Nox Medi-
cal er íslenskt hátæknifyrirtæki sem
þróar, framleiðir og selur lækn-
ingatæki til greininga svefntruflana.
Hjá fyrirtækinu starfa um 50 manns
á Íslandi og er félagið með allar
tekjur sínar af erlendum mörkuðum.
Tekjur þess námu um tveimur millj-
örðum króna á síðasta ári
Þetta er í þriðja sinn sem Nox
Medical hefur betur gegn Natus, en
áður höfðu Einkaleyfastofa Evrópu
og Einkaleyfastofa Bandaríkjanna
staðfest einkaleyfi Nox Medical á líf-
merkjanemanum. Fyrirtækið hyggst
nú höfða mál gegn Natus til að fá lög-
fræðikostnað vegna málsins
greiddan.
Nox Medical vinnur
stórt einkaleyfismál
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Pétur segir þetta eitt stærsta hug-
verkaréttarmál íslensks fyrirtækis.
FASTEIGNAÞRÓUN
„Það er fyrst og fremst samráðs-
leysi sem lóðarhafar eru ósáttir
við,“ segir Friðjón Sigurðarson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
hjá Reitum fasteignafélagi. Félagið
sendi, ásamt níu öðrum lóðarhöfum
í Skeifunni, bréf til Reykjavíkur-
borgar fyrr á þessu ári þar sem
komið var á framfæri athugasemd-
um vegna rammaskipulags borgar-
innar á svæðinu. „Það má ekki mis-
skilja það þannig að lóðarhafar séu
mótfallnir nýju skipulagi. Það er
hins vegar þannig að slíkt skipulag
verður að okkar mati að byggjast á
ítarlegri skoðun á eðli núverandi
starfsemi og rekstrar á svæðinu,“
segir Friðjón sem kveðst, ásamt
öðrum lóðarhöfum, margsinnis hafa
reynt að koma athugasemdunum á
framfæri við Reykjavíkurborg án
árangurs.
Í rammaskipulagi Reykjavíkur-
borgar fyrir Skeifusvæðið, sem
samþykkt var í fyrra, kemur fram
að ráðgert sé að núverandi
byggingarmagn á svæðinu verði
tvöfaldað, þar af verði reistar 750
íbúðir auk annarra bygginga.
aronthordur@mbl.is
Mótmæla rammaskipu-
lagi á Skeifusvæðinu
Teikning/Kanon arkitektar
Rammaskipulag fyrir Skeifusvæðið
var samþykkt seint á síðasta ári.
Með hækkandi sól, hækkar hitinn! Xprent er
með lausnina fyrir bæði heimili og fyrirtæki.
Sólarfilmurnar eru frá SunTek og eru til
í mismunandi tegundumog styrkleikum.
EFNAHAGSMÁL
Ísland fellur niður um fjögur sæti í
úttekt IMD-viðskiptaháskólans á
samkeppnishæfni þjóða og situr í 24.
sæti á nýjum lista sem kynntur verð-
ur í dag, eða sama sæti og árið 2015.
Úttektin, sem hefur verið fram-
kvæmd í 30 ár, samanstendur af
rúmlega 300 undirþáttum og er ein
sú umfangsmesta í heimi.
Í efnahagslegri frammistöðu fell-
ur Ísland um átján sæti, niður í það
57. en minni hagvöxtur árið 2017 og
sterkt gengi krónunnar skýrir það
að miklu leyti. Skilvirkni hins opin-
bera minnkar einnig milli ára og fer
Ísland úr áttunda sæti niður í það
sextánda á því sviði, á meðan skil-
virkni atvinnulífsins batnar milli ára.
Þar fer Ísland upp um fimm sæti og
situr í því sautjánda.
Bandaríkin samkeppnishæfust
Bandaríkin stökkva upp um þrjú
sæti og fara upp í það fyrsta eftir ár
kröftugs hagvaxtar, og taka þar sæt-
ið af Hong Kong sem er nú í öðru
sæti. Singapúr er í þriðja sæti og þar
á eftir koma Holland og Sviss.
Mongólía og Venesúela reka lestina í
62. og 63. sæti listans.
Bandaríkin mælast í fyrsta sæti
yfir efnahagslegan árangur annars
vegar og hins vegar fyrir innviði
landsins. Hong Kong tekur hins veg-
ar fyrsta sætið bæði fyrir skilvirkni
hins opinbera og atvinnulífsins.
Ísland að dragast aftur úr
Danmörk er samkeppnishæfast
norrænu landanna, fer upp um eitt
sæti og situr í því sjötta. Noregur og
Svíþjóð eru ekki langt undan í sæt-
um átta og níu. Þessi þrjú lönd eiga
það sameiginlegt að sýna sterka
frammistöðu í heildarframleiðslu
einkageirans og stjórnun þess. Finn-
land fellur um eitt sæti, niður í það
sextánda. Ísland hefur því dregist
töluvert aftur úr hinum norrænu
löndunum í samkeppnishæfni, sam-
kvæmt þessum lista.
steingrimur@mbl.is
Ísland fellur á samkeppnislista IMD
Morgunblaðið/Ómar
Ísland situr í 24. sæti lista yfir sam-
keppnishæfni samkvæmt IMD.