Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 11

Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 11FRÉTTIR Af síðum Það kætir Donald Trump Bandaríkja- forseta þegar hlutabréfamarkaðinum tekst að rjúfa nýja múra. En það er eitt sem ráðgjafar hans hafa mögulega gleymt að segja forsetanum og það er hvaða félag hefur vaxið mest að mark- aðsvirði síðan hann náði kjöri. Það er Amazon, sem Trump virðist hafa meiri óbeit á en nokkru öðru fyrirtæki. Á þessu mikla hækkunarskeiði hafa tíst forseta Bandaríkjanna stund- um haft neikvæð áhrif á gengi hlutabréfa í Amazon. En áhrifin hafa aldrei varað lengi. Frá því í nóvember 2016 hefur Amazon tvöfaldast að stærð og markaðsvirði félagsins aukist um meira en 380 milljarða dala – sem er jafnvel meira en þau auðæfi sem Trump heldur fram að hann eigi. Forset- inn er núna að „þrýsta“ á forstjóra bandarísku póstþjónustunnar að tvö- falda gjaldið sem Amazon greiðir fyrir pakkasendingar, að því er Wash- ington Post greinir frá. Fram til þessa hefur bandaríska póstþjónustan, sem þarf að keppa við einkarekin vörusendingafyrirtæki, getað spyrnt við fótunum. Núna þegar kannanir sýna að 43% kjósenda segjast ánægð með Trump þá er hæpið að hann geti unnið Amazon í vinsældakjöri, en samkvæmt könnun Reputation Institute er bandaríski netverslunarrisinn með 10. besta orðsporið af öllum bandarískum fyrirtækjum. Bandarískir neyt- endur kunna að meta þjónustuna sem fyrirtækið veitir þeim. Í síðustu viku áætluðu markaðsgreinendur hjá JP Morgan að þau fríðindi sem fylgja því að vera í áskrift að Amazon Prime, sem kostar 119 dali á ári, væru 785 dala virði þegar búið væri að leggja saman allt frá ókeypis póst- sendingum yfir í að geta streymt kvikmyndum yfir netið. Fjárfestar álíta, réttilega, að bræðisköst forsetans séu því ekki mikil ógn við fyrirtækið. En hátt markaðsvirði félagsins leiðir athyglina að því, að jafnvel ef því yrði skipt í tvennt (og með þeim stóra fyrirvara að það myndi ekki breyta virði hvorrar einingar fyrir sig), þá væru þessar tvær minni útgáfur af Amazon samt báðar í hópi tíu stærstu fyrirtækja heims. Vaxandi hópur gagnrýnenda Amazon myndi einmitt vilja sjá fyrirtækinu skipt upp með þessum hætti. Það er ekki rangt sem Trump hefur haldið fram, að vel- gengni Amazon hafi verið reiðarslag fyrir hefðbundnar verslanir. Þótt fyrirtækið hafi ekki sölsað undir sig nema lítið brot af smásölumark- aðinum hefur það yfirburðastöðu í netverslun og sumir sérfræðingar í lög- um um hringamyndun telja að tilefni sé til að grípa til aðgerða. Það er kaldhæðnislegt, að telja verður ólíklegt að nokkuð muni gerast með Trump við stjórnvölinn. Fyrir Amazon, rétt eins og hina tæknirisana, er stærsta ógnin ekki núverandi forseti, heldur stjórnlyndir stjórnmála- menn á vinstri vængnum, það er ef demókratar næðu meirihluta á þingi og Elizabeth Warren kæmist í Hvíta húsið. LEX AFP Amazon og Trump: Pakki í óskilum Það heyrist æ oftar sagt í Peking að Liu He varaforseti landsins sé í „versta starfi í Kína“. Í mörg ár hefur hann unnið á bak við tjöldin sem áhrifamesti efna- hagsráðgjafi Xi Jinping Kínaforseta. En nú stígur hann fram sem valda- mikill embættismaður með ótal mál á sinni könnu, þar á meðal viðskipta- viðræður við Bandaríkin og Evrópu- sambandið, regluverk fjármála- markaðarins, peningastefnuna, umbætur fyrirtækja í ríkiseigu og stefnumótun í iðnaði. Að kínverskum varaforseta sé fal- ið að axla svona þungar byrðar hefur ekki gerst síðan um miðjan 10. ára- tuginn, þegar Zhu Rongji var seðla- bankastjóri og á sama tíma í reynd yfirmaður efnahagsmála í Kína. Árangur í fyrstu prófraun Í síðustu viku tókst Liu á við stærstu prófraun sína til þessa, þeg- ar hann fór fyrir sendinefnd til Washington til að eiga í viðræðum sem miða að því að forða viðskipta- stríði á milli þjóðanna. Honum virð- ist hafa tekist ætlunarverk sitt, því Steven Mnuchin fjármálaráðherra samþykkti að „slá viðskiptastríði á frest“ í skiptum fyrir lítið meira en loðið loforð frá teymi Liu um að kaupa meira af vörum og þjónustu frá Bandaríkjunum. Eitthvað sem stjórnvöld í Kína hafa ávallt sagst vera reiðubúin og viljug til að gera. Liu og margir aðrir kínverskir embættismenn hafa lengi haldið því fram að það sé hagsmunum Kína fyrir bestu að draga úr 337 milljarða dala vöruskiptaafgangi gagnvart Bandaríkjunum, í ljósi þess að í Kína „fer neysluþörf vaxandi … og þörf er á efnahagsþróun sem er af miklum gæðum“. Verkefni Liu felst nú í því að halda friðinn á meðan tvö stærstu hagkerfi heims reyna að komast að varanlegu samkomulagi um ágreining hvað varðar ójöfnuð í vöruviðskiptum, gagnkvæmar hömlur á fjárfestingar og iðnvæðingarstefnu stjórnvalda í Peking. Takist það ekki gæti það stefnt í voða möguleikum varaforset- ans til að fylgja öðrum mikilvægum málum eftir, svo sem alþjóðavæðingu gjaldmiðils Kína, renminbí, og umbótum hjá ríkis- fyrirtækjum. Kínverjar betur undirbúnir Liu og Mnuchin eru í raun að tefla mjög flókna skák, þar sem þættir sem í fyrstu virðast ótengdir geta haft áhrif á það hvað hvor aðili er reiðubúinn til að semja um í viðræð- unum. Enn sem komið er er útlit fyr- ir að Kínverjarnir hafi verið betur undirbúnir fyrir þennan leik. Að sögn þriggja einstaklinga sem þekkja til samningaviðræðnanna þá neitaði Liu að svo mikið sem koma til Washington, nema hann fengi full- vissu um að Donald Trump Banda- ríkjaforseti myndi aflétta banni við því að eitt af stærstu fjarskipta- fyrirtækjum Kína fengi að kaupa bandarískan tæknibúnað. ZTE, sem er gefið að sök að hafa brotið gegn sáttagerð vegna viðskipta fyrirtæk- isins í Íran og Norður-Kóreu, getur ekki haldið framleiðslu sinni áfram fyrr en slakað hefur verið á banninu. Þess í stað námu kínversk stjórn- völd, í miðjum samningaviðræð- unum í síðustu viku, úr gildi undir- boðstolla sem þau lögðu nýverið á dúrru-korn frá Bandaríkjunum, og samþykktu samkeppnisúttekt á kaupum Bain Capital á örflögufram- leiðslu Toshiba fyrir 18 milljarða dala. En það er ósennilegt að kínversk stjórnvöld muni veita frekari tilslak- anir í viðskiptum eða á samningum sem eru í pattstöðu, eins og vænt- anleg kaup Qualcomm á hollenska fyrirtækinu NXP fyrir 47 milljarða dala, fyrr en búið er að ganga end- anlega frá sakaruppgjöf forsetans gagnvart ZTE. Og í ljósi þess pólitíska bakslags sem varð í Washington eftir yfirlýsingu Trumps um að refsing ZTE myndi leiða til þess að „of mörg störf í Kína myndu hverfa“, þá gæti endanlegt samkomulag um ZTE núna verið ut- an seilingar. Ef dagar ZTE eru tald- ir, þá gildir það sama um mögu- leikann á samkomulagi um viðvarandi frið í viðskiptum á milli Bandaríkjanna og Kína. Norður-Kórea lúrir á bak við Norður-Kórea bætir svo nýrri vídd við þessa fordæmislausu milli- ríkjaskák, a.m.k. frá sjónarhorni Liu og Mnuchin. Þó svo að hvorugur þeirra sé lík- legur til að nefna Norður-Kóreu í tengslum við samningaviðræðurnar, þá vofir það yfir viðræðunum að Trump og Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, munu funda hinn 12. júní. Þegar viðræður hófust á milli Liu og Mnuchin síðastliðinn fimmtudag gaf Trump í skyn að nýlegar hótanir Norður-Kóreu um að draga sig út úr leiðtogafundinum gætu verið vegna þrýstings frá Xi á bak við tjöldin. Hvort Kínaforseti beitti þrýstingi eða ekki skiptir í raun ekki máli. Ef Trump heldur að hann hafi gert það, þá gætu Xi og Liu nýtt slíka ógn sér í hag í verslunarviðræðunum. Á fyrsta ári Trumps í embætti for- seta virtist oft sem hann vildi koma á traustu sambandi við Kína en fara í stríð við Norður-Kóreu. Núna gæti það orðið raunin að draumur Trumps um að koma á sögulegu frið- arsamkomulagi á Kóreuskaga hjálpi Liu að koma í veg fyrir við- skiptastríð á milli Bandaríkj- anna og Kína. Samningamaður Kína stendur vel að vígi Eftir Tom Mitchell í Peking Liu He varaforseti hefur á skömmum tíma öðlast mikil völd í Kína og hann leiðir nú samninga- viðræður við Bandaríkja- menn þar sem hann virðist hafa ýmis tromp á hendi. AFP Liu He var kjörinn varaforseti í mars síðastliðnum og gegnir hann nú lykil- hlutverki í samningaviðræðum Kínverja við Bandaríkin um viðskipti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.