Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 12

Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018SJÓNARHÓLL EGGERT Hvað er markaðsdrifið fyrirtæki?Í gegnum tíðina hafa stjórnendur fyrirtækja ásamkeppnismarkaði velt fyrir sér hver væru lykilatriði þess að skapa markaðsdrifið fyrirtæki. Fyr- irtæki sem hefði forsendur til að standa sig í samkeppni með því að taka útgangspunkt í markaðnum. Vissulega eru fjölmargir samverkandi þættir sem skapa slíka stöðu, en flestir fræðimenn nefna eftirfarandi tíu þætti. 1. Skýr stefna og framtíðarsýn; líklega mikilvægasta forsendan. Felst í skýrri sýn á tilgang og kjarnastarf fyr- irtækis, og þá vegferð sem það er á. Strategían feli í sér raunhæfa sýn á það sem skapa á fyrirtækinu samkeppn- isforskot og hvað er í raun það virði sem á að bjóða markaðnum. Ekki óljós orð, heldur kjarnyrt skilgreining. 2. Fylgjast með viðskiptavinum og umhverfinu; stöðug hlustun á það sem er að gerast úti á mark- aðnum. Fylgjast með breytingum á þörfum viðskiptavina og eigin frammistöðu, en ekki síst að átta sig á þeim kröftum í samfélaginu sem hafa áhrif á hegðun og hugs- un. 3. Skilgreina á skýran hátt markaðshluta, markhópa og sérstöðu; mikilvægi þess að skilgreina, skilgreina og skilgreina þá markhópa sem á að beina sjónum að og hvaða hópa á að láta eiga sig. Þannig er tekin afstaða og skerpt á sérstöðunni sem á að skapa. 4. Leggja áherslu á vöruþróun; mikilvægi nýsköpunar á tímum harðnandi samkeppni og aukinna krafna mark- aðarins fer vaxandi. Kemur ekki á óvart að markaðs- drifið fyrirtæki leggi áherslu á að fylgjast með og vera á undan í þróunarmálum. Og það skiptir máli að virkja starfsmannahópinn í þeirri umræðu. 5. Bregðast við aðgerðum keppinauta; markaðsmál snúast um stefnufestu og frumkvæði til aðgerða, en einn- ig endurmat, sveigjanleika og viðbrögð við breyttum for- sendum. Fyrirtæki þarf á hverjum tíma að vinna eftir skýrri stefnu og skynsamlegum markmiðum. Um leið þarf að vera fyrir hendi innbyggður sveigjanleiki. Ef þró- un í umhverfi keppinauta verður önnur en gert var ráð fyrir þarf að bregðast við. Grípa til aðgerða til að mæta nýjum breytum í umhverfinu eða útspili keppinautar. 6. Starfsfólk skilji mikilvægi viðskiptavina; grundvallar- atriði. Ánægðir viðskiptavinir er forsenda viðskipta. Ef starfsfólk er ekki með þann skilning þá er hætta á vand- ræðum. Þetta tengist persónulegum gæðum; vinnubrögð- um og viðhorfi. Með fræðslu verður að leggja áherslu á að allt starfsfólk, hvar sem það starfar í fyrirtækinu, skilji mikilvægi viðskiptavina. 7. Hvetja og umbuna starfsfólki; umbun fyrir góða frammistöðu er eitt af því sem gerir fyrirtæki markaðs- drifið. Frammistöðu á öllum sviðum, en ekki síst ef frammistaðan snýr að þeim vörum og þjónustu sem við- skiptavinum er boðin. Eða að innra starfi, ferlum og vinnubrögðum, sem skila hagkvæmari eða betri vinnu út á við. 8. Byggja ákvarðanir á langtíma- markmiðum; hugsunin hér er að markaðsdrifin fyrirtæki horfa ekki bara rétt fram fyrir nefið á sér. Þau tileinka sér þá áherslu að þekkja fortíð, skilja nútíð og skapa framtíð. Og þá bæði framtíð til skemmri og lengri tíma litið. Orrustur vinnast þegar þær eru háðar, en það er undirbúningurinn, mótun strategíu, taktíkin í bardaganum og sýnin á það sem ger- ist eftir að sigur vinnst sem skiptir ekki minna máli. Því þarf að horfa til framtíðar og setja markmið sem stefnt er að til að ná nauðsynlegu forskoti á markaði. 9. Vinna markvisst eftir áætlunum; áætlanir eiga að vera tækið sem stjórnendur sem og annað starfsfólk styðst við til að skila góðri vinnu og ná árangri. Áætlanir tilgreina aðgerðir, röksemdir að baki þeim, ábyrgðar- menn, tímasetningar, kostnað og fleira. Inn í áætlana- ferlið þarf að virkja sem flest starfsfólk, leita eftir inn- leggi, veita endurgjöf o.s.frv. 10. Hæfileikar og geta til að breyta um stefnu þegar aðstæður bjóða; snýst um staðfestu og sveigjanleika. Um- hverfið er á hreyfingu og það eina sem er öruggt er að allt er breytingum háð. Það þýðir stöðugt endurmat á stefnu og sýn á framtíðina. Þetta er því málið. Ofangreind einkenni markaðsdrifins fyrirtækis mynda ágætan gátlista, sem hver og einn stjórnandi getur tekið og spurt á heiðarlegan hátt; hvern- ig er staða þessara mála í mínu fyrirtæki? MARKAÐSMÁL Þórður Sverrisson ráðgjafi í stjórnun og stefnumótun hjá Capacent Hvað er markaðs- drifið fyrirtæki? ” Umhverfið er á hreyf- ingu og það eina sem er öruggt er að allt er breytingum háð. Meira til skiptanna FORRITIÐ Þegar allt ætlaði að ganga af göfl- unum vegna ævintýralegrar hækk- unar á verði rafmynta hér um árið bentu sumir á að mikilvægasta byltingin væri ekki myntirnar sjálf- ar heldur tæknin sem þær byggjast á. Bálkakeðjan (e. blockchain) gagnast ekki bara til að halda utan um eignarhald á rafmyntum heldur líka til að staðfesta alls kyns skjöl og gjörninga án aðkomu þriðja að- ila. Handshake er nýtt snjallsíma- forrit sem gerir einmitt þetta. Not- endur Handshake senda hver öðr- um hvers kyns loforð og staðfesta í gegnum forritið, sem síðan skráset- ur loforðið með bálkakeðjutækni. Handshake nýtist bæði til að stað- festa og skjalfesta minniháttar lof- orð á milli vina, s.s. um að endur- greiða lán eða endurgjalda viðvik, og getur líka komið í góðar þarfir til að eiga skriflega staðfestingu á t.d. óformlegu atvinnutilboði eða loforði um að skila verkefni á til- teknum tíma. Handshake er ókeypis og fáan- legt bæði hjá iTunes og Google Play. ai@mbl.is Bálkakeðjan man hverju var lofað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.