Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 16
markaðurinn
Starfshópurinn telur
ekki skynsamlegt að eftirlit
með lausu fé hjá bönkum sé
á hendi Seðlabankans á
meðan eftirlit með öðrum
fyrirtækjum á fjármálamark-
aði sé annars staðar.
Hagnaður Iceland Travel, ferða
þjónustufyrirtækis í eigu Icelandair
Group, dróst saman um 35 prósent og
nam 335 þúsund evrum, jafnvirði 42
milljóna króna, á árinu 2017. Félag
ið hyggst greiða jafnvirði 32 milljóna
króna í arð.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði,
afskriftir og skatta (EBITDA) dróst
saman um 46 prósent á milli ára.
EBITDA sem hlutfall af tekjum var
1,1 prósent í fyrra og lækkaði um 1,4
prósentustig á milli ára. Rekstrar
kostnaður jókst um 29 prósent á
milli ára. Kostnaðarverð seldra vara,
sem er langumfangsmesti kostn
aðarliðurinn, jókst í 80,8 prósent af
tekjum úr 78,3 prósentum á milli ára.
Tekjur félagsins jukust um 27 prósent
á milli ára og voru 105 milljónir evra,
jafnvirði 13 milljarða króna í fyrra.
Eiginfjárhlutfall Iceland Travel var
níu prósent við árslok. Lágt eigin
fjárhlutfall leiddi til þess að arðsemi
eigin fjár var 28 prósent. Hefði eigin
fjárhlutfallið verið 30 prósent, sem er
algengt á meðal íslenskra fyrirtækja,
væri arðsemi eigin fjár níu prósent.
Icelandair Group er stór viðskipta
vinur Iceland Travel. Um 21 prósent
tekna fyrirtækisins renna til félaga
innan samstæðunnar eða jafnvirði
2,8 milljarða króna. Hlutfallið lækk
aði um 3 prósentustig á milli ára, sam
kvæmt upplýsingum úr ársreikningi.
Upplýst var í haust að ákveðið hafi
verið að slíta sameiningaviðræðum
Iceland Travel og Allrahanda – hvj
Hagnaður Iceland Travel
dregst saman um 35%
32
milljónir króna verða
greiddar í arð.
Már Guðmundsson seðlabanka
stjóri segir að sér hugnist ekki sú
tillaga nefndar um ramma peninga
stefnunnar að Seðlabankinn birti
vaxtaspáferil sinn í því augnamiði
að styrkja markaðsvæntingar. „Ég
held það hefði skapað töluvert meiri
vandamál ef við hefðum birt feril
inn. Það hefði bara ruglað umræð
una, engum til gagns,“ sagði hann á
fundi í bankanum í gær.
Nefndin, sem birti niðurstöður
sínar í síðustu viku, sagði að ein leið
til þess að bæta væntingastjórnun
Seðlabankans væri sú að hagfræði
deild bankans myndi birta vaxta
spáferla sína sem liggja til grund
vallar verðbólguspá hans. Slíkt gæti
aukið gagnsæi í langtímavaxtastefnu
bankans.
Í skýrslu nefndarinnar kom fram
að margt benti til þess að styrkja
þyrfti væntingastjórnun, auka
gagnsæi við vaxtaákvarðanir og
gefa betri framtíðarleiðbeiningar
um setningu vaxta.
Már sagðist ekki vera þeirrar skoð
unar að heppilegt væri að birt
spáferla bankans. Hann benti
á að vandinn við tillöguna
væri sá að stýri vaxta spáin
væri gerð af starfsmönnum
bankans, en hún væri hins
vegar ekki spá peninga
stefnunefndarinnar.
„Og til þess að þetta yrði
einhver marktæk framsýn
leiðsögn þyrfti að útkljá það mál
hverjir eru jafnvægisraun
vextirnir. Það er mjög
flókið úrlausnarefni,“
nefndi hann.
Aðspurður tók
Már einnig fram
á fundinum að
sterk hagfræði
leg rök væru
fyrir því
að hafa
kostnað
v e g n a
húsnæð
is inni í
vísitölu
sem notuð er við beitingu verð
bólgumarkmiðs bankans.
Hægt væri að taka húsnæð
isliðinn út en það væri
eins og að „henda barninu
út með baðvatninu“. Ein
af tillögum nefndarinnar
var að verðbólgu mark
miðið undan skildi hús
næðisverð. – kij
Ruglaðri ferill ef vaxtaferillinn er birtur
Starfshópur, sem var falið að endur
skoða löggjöf um opinbert eftirlit
með fjármálastarfsemi, leggur til
að eftirlit með bönkum verði allt
á hendi Fjármálaeftirlitsins (FME).
Hópurinn segir núverandi fyrir
komulag, þar sem Seðlabankinn
annast eftirlit með lausafjárstöðu
banka en FME hefur eftirlit með
eiginfjárstöðu þeirra, ekki þekkjast
á meðal þeirra ríkja sem Ísland
beri sig jafnan saman við og þá hafi
Seðlabankinn jafnframt ekki sams
konar úrræði og FME til þess að
sinna eftirlitshlutverki sínu.
Niðurstöður starfshópsins, sem
voru kynntar á fundi ríkisstjórnar
innar síðasta föstudag, eru ekki í
samræmi við ráðleggingar Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins sem hefur lagt til
í skýrslum sínum að bankaeftirlit
verði flutt til Seðlabanka Íslands.
Í nýrri skýrslu nefndar um ramma
peningastefnunnar, sem kom út í
síðustu viku, var að sama skapi lagt
til að ábyrgð yrði færð frá FME til
Seðlabankans þannig að bankinn
bæri einn ábyrgð á eftirliti með
þjóðhagsvarúð og eindarvarúð.
Starfshópurinn, sem starfaði
undir formennsku Jóhannesar Karls
Sveinssonar, hæstaréttarlögmanns
á Landslögum, telur á hinn bóginn
ekki skynsamlegt að „kljúfa“ eftirlit
ið upp með þeim hætti að almennt
eftirlit með fjármálafyrirtækjum
verði flutt til Seðlabankans og eftir
lit með öðrum fyrirtækjum, svo sem
lífeyrissjóðum og tryggingafélögum,
skilið eftir hjá Fjármálaeftirlitinu.
„Með því myndi glatast yfirsýn yfir
mikilvæga þætti auk þess sem það
að skilja að bankaeftirlit og trygg
ingaeftirlit gæti leitt til þess að
eftirlit með fjármálasamsteypum
lenti á milli skips og bryggju,“ segir
í skýrslu starfshópsins.
Núverandi kerfi ófullkomið
Hópurinn segir ýmsa galla vera á
núverandi fyrirkomulagi, þar sem
Seðlabankinn fer með eftirlit með
lausafjárstöðu banka en Fjármála
eftirlitið fer með eftirlit með eigin
fjárstöðu þeirra, og telur að það væri
til bóta að sameina eftirlitið undir
einum hatti. Er meðal annars bent
á að í lögum um Seðlabankann sé
ekki að finna hefðbundin ákvæði
um úrræði eftirlitsstofnana sem
varða til dæmis fresti til úrbóta eða
takmörkun starfsleyfis.
Þó er tekið fram í skýrslu starfs
hópsins að almennt séu talin rök
með því að seðlabankar hafi fjár
málaeftirlit innan sinna vébanda
og að með því móti geti þeir sinnt
hlutverki lánveitanda til þrautavara
með ábyrgum og tryggum hætti.
Á fundi hópsins með fulltrúum
Seðlabankans kom einmitt fram sú
afstaða bankans að eftirlitshlutverk
hans með lausafjárstöðu banka væri
nauðsynlegt svo hann gæti sinnt
hlutverki sem „lánveitandi til lána
stofnana sem taka við innlánum“.
Með eftirlitinu fengi bankinn – með
öðrum orðum – mikilvægar upp
lýsingar um bankana sem lántaka.
Á móti vegi þau rök að eftirlits
hlutverkið fari ekki vel með hefð
bundnu hlutverki sjálfstæðs seðla
banka. Ekki fari vel á því að „banki
bankanna“ sinni jafnframt eftirliti
og hafi agavald með viðskiptavinum
sínum. Seðlabankar séu jafnframt í
eðli sínu ekki eftirlitsstofnanir.
Er það mat hópsins að ekki
sé „skynsamlegt með tilliti til
yfirsýnar að almennt eftirlit með
lausu fé hjá lánastofnunum sé á
hendi Seðlabankans á meðan eftir
lit með öðrum fyrirtækjum á fjár
málamarkaði sé annars staðar“.
FME hafi auk þess skýrari almennar
eftirlitsheimildir, heimildir til rann
sókna og heimildir til beitingar
þvingunar úrræða en Seðlabankinn.
Niðurstaða starfshópsins er
þannig sú að eftirlit með lausu fé og
fjármögnun banka, sem og annarra
fjármálafyrirtækja, verði formlega
á hendi Fjármálaeftirlitsins en ekki
Seðlabankans.
Hins vegar telur hópurinn rétt að
Seðlabankinn hafi – við ákveðnar
kringumstæður – heimildir til
þess að setja reglur um laust fé og
stöðuga fjármögnun banka. Auk
þess vill hópurinn að bankinn hafi
„með skipulögðum hætti“ aðgang
að öllum þeim gögnum sem FME
aflar við eftirlit sitt.
Sjálfstæði FME eflt
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
sagst hafa áhyggjur af því að Fjár
málaeftirlitið sé bitlaust og skorti
sjálfstæði. Sem dæmi sagði í yfirlýs
ingu sendinefndar sjóðsins í fyrra að
eftirlitið væri „ekki nógu einangrað
frá stjórnmálum“. Til lausnar á
þessu hefur sjóðurinn annars vegar
lagt til að fjármálalegt og rekstrar
legt sjálfstæði FME frá fjármála og
efnahagsráðuneytinu verði tryggt
og hins vegar að lausafjáreftirlit
með bönkum verði sameinað öðru
eftirliti með bönkum í Seðlabank
anum.
Eins og áður segir leggur starfs
hópurinn ekki til að bankaeftir
lit verði flutt til Seðlabankans en
hins vegar tekur hann undir með
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um
mikilvægi þess að sjálfstæði Fjár
málaeftirlitsins verði eflt. Leggur
hópurinn meðal annars til að eftir
litsstofnunin verði skilgreind sem
sjálfstætt stjórnvald og að ráðherra
hafi ekki aðra formlega aðkomu
að starfsemi stofnunarinnar en að
ganga frá skipun stjórnarmanna og
við fjármögnun hennar.
kristinningi@frettabladid.is
Eftirlit með bönkum verði á einni hendi
Starfshópur leggur til að ábyrgð á eftirliti með bönkum verði sameinað hjá Fjármálaeftirlitinu. Ekki sé skynsamlegt að eftirlit með
lausu fé hjá bönkum sé á hendi Seðlabanka Íslands á meðan eftirlit með öðrum fyrirtækjum á fjármálamarkaði sé annars staðar.
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi stóru viðskiptabankanna þriggja. Það eru Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion. FréttAbLAðið/StEFáN
1 4 . j ú n í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R16 F R é T T I R ∙ F R é T T A B L A ð I ð
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
2
1
-8
9
9
8
2
0
2
1
-8
8
5
C
2
0
2
1
-8
7
2
0
2
0
2
1
-8
5
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K