Fréttablaðið - 14.06.2018, Page 34
Það er algjör skylda að mínu mati að fara á allavega einn leik þegar Ísland kemst á
stóra sviðið á heimsmeistara-
mótinu. Ég fór á einn leik á
Evrópumótinu og stefni á að gera
slíkt hið sama í Rússlandi. Þegar
Ísland tekst á við besta leikmann
heims, það er Lionel Messi, þá
er ekki hægt að láta sig vanta,
þannig að ég ætla að sjá leikinn
gegn Argentínu í Moskvu,“ sagði
Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi
fyrirliði íslenska karlalandsliðsins
í knattspyrnu, þegar Fréttablaðið
innti hann eftir áformum hans í
kringum heimsmeistaramótið sem
hefst í dag.
„Heimsmeistaramótið er mun
stærra svið en Evrópumótið og
það verður mikil upplifun að sjá
íslenska liðið taka þátt í þessu
stóra móti. Mín tilfinning er sú
að þetta sé í fyrsta en ekki síðasta
skipti sem liðið kemst á heims-
meistaramótið, en ég ætla hins
vegar ekki að taka áhættuna ef
þetta verða einstakur viðburður
í knattspyrnusögunni. Ég næ að
slá tvær flugur í einu höggi með
því að sjá leikinn gegn Argentínu,
það er að vera á vellinum þegar
Ísland leikur sinn fyrsta leik á
heimsmeistaramóti í sögunni og
sjá að mínu mati besta leikmann
sögunnar, Lionel Messi,“ sagði Her-
mann enn fremur.
„Ég hef ekki orðið þeirrar gæfu
aðnjótandi að sjá með berum
augum Lionel Messi spila. Maður
hefur bara fylgst agndofa með
tilþrifum hans sitjandi í sófanum
að horfa á hann í sjónvarpinu. Ég
hlakka mikið til að sjá hann leika
listir sínar fyrir framan mig. Sviðið
verður ekki stærra og það verður
gaman að sjá íslensku leikmennina
kljást við þessa lifandi goðsögn
í knattspyrnuheiminum,“ sagði
Hermann með glampa í augunum
af spennu.
„Ég hef sjálfur spilað í Moskvu,
bæði með landsliðinu og Evrópu-
leik með Ipswich Town. Ég hef
einnig farið þangað sem ferða-
maður, en ég fór í ferð á vegum
Íslandsstofu og tók bæði Moskvu
og Sankti Pétursborg út. Ég tók
heilan dag í að rölta um Moskvu
þvera og endilanga og undir lok
dags var ég farinn að rata og átta
mig á kennileitum í þessari glæsi-
legu borg. Ef einhvern vantar leið-
sögumann í ferð sína til Rússlands
þá er hægt að hringja í mig. Mín
upplifun af borginni er góð og ég
mæli með henni við hvern þann
sem spyr mig,“ sagði Hermann um
upplifun sína af Moskvu.
„Ég er alveg kominn yfir það að
geta ekki leikið á þessu getustigi
lengur. Það var til að mynda frábær
skemmtun að vera partur af þeirri
flottu umgjörð sem var í kringum
Evrópumótið. Hitta gamla félaga
úr boltanum, hressa stuðnings-
menn íslenska liðsins og drekka í
sig stemmingu frá stuðningsmönn-
um annarra þjóða. Ég verð illa
svikinn ef umgjörðin verður ekki í
sama gæðaflokki hjá Rússunum,“
sagði Hermann þegar hann var
spurður að því hvernig tilfinningin
væri að horfa á íslenska liðið úr
stúkunni.
„Ég er alveg ofboðslega spenntur
fyrir þessu móti, en ég hef ávallt
verið límdur við skjáinn á meðan
á mótinu stendur og það verður að
öllum líkindum alveg magnað að
vera viðstaddur. Við erum að sjálf-
sögðu í ofboðslega erfiðum riðli
og það verður þrautin þyngri að
komast upp úr honum. Argentína
fór í úrslit síðast og margir telja
að þetta sé síðasti möguleiki fyrir
Lionel Messi til þess að vinna
mótið og hann verði afar mótíver-
aður nú. Við vitum það vel hvað
Króatía getur eftir að hafa mætt
þeim fjölmörgum sinnum undan-
farin ár og Nígería er með öflugt
lið. Ég hef hins vegar fulla trú á
íslenska liðinu og tel að það geti
vel farið upp úr riðlinum,“ sagði
Hermann um möguleika íslenska
liðsins á heimsmeistaramótinu.
Þegar Ísland tekst á
við besta leikmann
heims, það er Lionel
Messi, þá er ekki hægt að
láta sig vanta, þannig að
ég ætla að sjá leikinn gegn
Argentínu í Moskvu.
Hermann Hreiðarsson
Spenntur að sjá lifandi
goðsögn mæta Íslandi
Hermann Hreiðarsson lék í fimmtán ár með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu, en náði aldrei
að spila á stórmóti. Hermann fór á Evrópumótið árið 2016 sem eldheitur stuðningsmaður og ætl-
ar að gera slíkt hið sama á heimsmeistaramótinu. Hermann er öllum hnútum kunnugur í Moskvu.
Hermann Hreið-
arsson í leik
með íslenska
karlalandsliðinu
í knattspyrnu á
móti Þýskalandi.
Hermann lék 89
landsleiki fyrir
Íslands hönd og
skoraði í þeim
leikjum fimm
mörk. Hermann
þjálfar nú lið í
indversku ofur-
deildinni ásamt
David James,
fyrrverandi
liðsfélaga sínum
hjá Portsmouth.
Hermann ætlar
að fara til Rúss-
lands og styðja
íslenska liðið
með ráðum og
dáð. Hermann
er spennt-
astur fyrir því
að sjá leikmenn
Íslands mæta
Lionel Messi.
Magnesíum er fjórða mikilvægasta
steinefni líkamans og er nauðsynlegt fyrir
eðlilega starfsemi hjarta, vöðva og nýrna.
Magnesíum Recovery er sérstaklega
þróað með íþróttafólk í huga.
Getur hindrað krampa og flýtt fyrir
endurheimti vöðva eftir mikil átök.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
heilsuhillum verslana.
Magnesíum Recovery fyrir íþróttafólk
Magnesíum Recovery er staðalbúnaður í maraþonhlaupum. Hraðvirkt og áhrifaríkt. Hefur
slegið á krampa eftir hlaup á aðeins 10 sekúndum! - Sigurjón Sigurbjörnsson, langhlaupari
Recovery 5x10.pdf 1 07/06/2018 14:33
6 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
2
1
-D
D
8
8
2
0
2
1
-D
C
4
C
2
0
2
1
-D
B
1
0
2
0
2
1
-D
9
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K