Fréttablaðið - 14.06.2018, Síða 36
Ísland hóf undankeppni HM á því að gera 1-1 jafntefli við
Úkraínu á tómum Ólympíuleikvangi í Kænugarði. Alfreð
Finnbogason skoraði mark íslenska liðsins snemma leiks.
Leiðin
á HM Íslendingar unnu ævintýralegan sigur á Finnum, 3-2, í fyrsta heimaleiknum í undankeppninni. Ísland lenti tvisvar undir í leiknum og Gylfi Þór Sigurðsson klúðraði vítaspyrnu í seinni hálfleik. En tvö mörk í uppbótartíma, frá Alfreð
og Ragnari Sigurðssyni, tryggðu Íslandi fyrsta sigurinn í undankeppninni.
Ísland vann öruggan sigur á Tyrklandi á heimavelli, 2-0.
Íslendingar spiluðu fyrri hálfleikinn af miklum krafti og
leiddu 2-0 að honum loknum. Theodór Elmar Bjarnason
og Alfreð skoruðu mörkin undir lok fyrri hálfleiks. Fjar-
vera Arons Einars Gunnarssonar kom ekki að sök.
Tvö mörk frá
Marcelo Brozo-
vic tryggðu Kró-
ötum 2-0 sigur
á Íslendingum á
Maksimir-vell-
inum í Zagreb,
vellinum þar
sem Króatía
vann Ísland í
umspili um sæti
á HM 2014.
Þetta var fyrsta
tap Íslands í
undankeppn-
inni.
Ísland vann sinn fyrsta útisigur í undankeppninni þegar liðið lagði Kósovó að
velli, 1-2, í fyrsta landsleik þjóðanna. Björn Bergmann Sigurðarson skoraði
fyrra markið, sem var hans fyrsta fyrir landsliðið, og Gylfi Þór Sigurðsson það
síðara úr vítaspyrnu. Kósovóar þjörmuðu að Íslendingum en þeir héldu út.
Skallamark Harðar Björgvins Magnússonar á lokamínútunni tryggði Íslandi
fyrsta sigurinn á Króatíu í sögunni. Íslenska liðið sýndi mikinn styrk í leiknum
gegn gríðarsterkum Króötum sem töpuðu þarna sínum fyrsta leik í undan-
keppninni. Með sigrinum jafnaði Ísland Króatíu að stigum á toppi riðilsins.
Lokaspretturinn
í undankeppn-
inni byrjaði ekki
vel, eða með 1-0
tapi fyrir Finn-
landi í Tamp-
ere. Íslenska
liðið náði sér
engan veginn
á strik gegn
baráttuglöðum
Finnum sem
unnu sinn fyrsta
sigur í undan-
keppninni. Rúrik
Gíslason var
rekinn af velli í
seinni hálfleik.
Íslendingar hristu af sér vonbrigðin
eftir tapið fyrir Finnum og unnu 2-0
sigur á Úkraínumönnum þremur
dögum síðar. Gylfi Þór Sigurðsson
skoraði bæði mörkin í seinni hálf-
leik. Hinn Hafnfirðingurinn í íslenska
liðinu, Emil Hallfreðsson, var frábær
í seinni hálfleiknum.
Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 0-3 sigur á Tyrklandi frammi fyrir met-
fjölda áhorfenda á Eskisehir-vellinum. Jóhann Berg Guðmundsson og Birkir
Bjarnason skoruðu í fyrri hálfleik eftir undirbúning Jóns Daða Böðvarssonar
sem átti sinn besta landsleik á ferlinum. Í upphafi seinni hálfleiks skoraði
Kári Árnason svo þriðja markið eftir vel útfærða hornspyrnu og eftir það voru
úrslitin ráðin. Íslendingar fögnuðu vel og innilega eftir leikinn, sérstaklega
eftir að fregnir bárust af því að Finnar hefðu jafnað undir lokin gegn Króötum.
Íslandi dugði því sigur á Kósovó til að komast á HM í fyrsta sinn í sögunni.
Ísland tryggði sér farseðilinn til Rússlands með 2-0 sigri á Kósovó 9. október
2017 á Laugardalsvellinum. Gylfi og Jóhann Berg skoruðu mörkin. Ísland varð
þar með langfámennasta þjóðin til að komast á HM. Íslendingar unnu alla
fimm heimaleiki sína í undankeppninni með markatölunni 10-2.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
2
1
-F
1
4
8
2
0
2
1
-F
0
0
C
2
0
2
1
-E
E
D
0
2
0
2
1
-E
D
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K