Kiwanisfréttir - 01.08.2003, Page 2
Eitt af því sem fylgir starfi
umdæmisstjóra er þátttaka í
fundum og þingum erlendis.
Í vor sótti ég ásamt fleirum
Evrópuþing í Ceský Krumlov í
Tékklandi.
Í ferðina til Tekklands fór
51 Íslendingur, kiwanisfélagar
frá 12 klúbbum og makar
þeirra.
Evrópuþingið var mjög
gagnlegt, þar var samþykkt
framkvæmd sameiginlegs
styrktarverkefni okkar Evr-
ópubúa um aðstoð við mennt-
un barna í Austur Evrópu. Við
erum að undirbúa okkar þátt-
töku í þessu verkefni sem við
kynnum nánar í haust. Einnig
voru samþykkt ný lög fyrir
Evrópusamband Kiwanis.
Í ferð okkar um Tékkland
heimsóttum við barnaheimili í
Ceské Budéjovice, á þessu
barnaheimili eru um 30 börn á
aldrinum 2-5 ára, mörg þeirra
eiga við málhelti að stríða.
Þetta barnaheimili varð fyrir
miklum skemmdum í flóðun-
um í fyrrasumar, við höfðum
sent þeim peninga úr Styrkt-
arsjóði Umdæmisins til end-
urbyggingar. Móttökurnar
sem við fengum hjá börnun-
um og starfsfólkinu voru al-
veg frábærar til dæmis fór
einn drengur með ljóð sem
hann hafði æft í tilefni komu
okkar. Að skilnaði fengu
börnin pakka sem við höfðum
komið með að heiman. Þeg-
ar ég kom heim beið mín
þakkarbréf og myndir frá
starfsfólkinu. Þarna sýndum
við sannan kiwanis anda í
verki og lögðum okkar lóð á
vogarskálina til markmiðs
okkar „ Þjónum börnum
heimsins“.
Á þinginu afhentum við
Pólska umdæminu Umdæm-
isstjórakeðju, sem er gjöf frá
umdæminu okkar til þeirra,
en Pólland er nýjasta um-
dæmið í Evrópu.
Síðar í ferðinni hittum við
Við erum hlekkur í alþjóðlegri keðju.
Þetta er þriðja fréttablað
okkar sem kemur út á starfs-
árinu og jafnframt það ní-
unda sem ritstjóri hefur stýrt
og erum við í ritstjórninni
ánægð með hvernig til hefur
tekist á undanförnum árum.
Kiwanisfréttir voru settar
inn á Internetið í fyrsta skipti
á starfsárinu 2000-2001. Þetta
var nýung sem reynd var og
hefur gefist vel og hafa öll
blöð á síðustu þremur starfs-
árum verið sett inn á vefinn.
Vil ég sérstaklega þakka
þeim Sigurbergi Baldurssyni
og Gesti Halldórssyni fyrir
mikla og óeigingjarna vinnu
við að koma Kiwanisfréttum
inn á heimasíðnuna. Hafið
bestu þökk fyrir.
Uppi hafa verið vangavelt-
ur um hvort hætta eigi útgáfu
Kiwanisfrétta og gefa jafnvel
út kálf sem myndi fylgja
Morgunblaðinu, með ein-
hverju ákveðnu millibili. Ég
hef hugsað þetta frá þó
nokkrum mörgum sjónar-
hornum. Ég held að þetta sé
hugmynd sem við ættum að
reyna að einhverju leyti. Ég
teldi að við ættum að gefa út
jóla- og þingblað eins og
hingað til, en að prufa að
hafa eitt blað í kringum
páska sem myndi fylgja
Morgunblaðinu sem kálfur.
Þarna myndi blaðið ná til
allra landsmanna og lands-
menn gætu þá lesið hvað við
værum að gera, en það yrði
að passa upp á að blaðið yrði
eingöngu kynningarblað, en
ekki blað um innra starf
klúbbana og fjármálin. Ég
held að við ættum að prufa
þetta, en ekki nema með góð-
um fyrirvara og vera búin að
hnýta alla lausa enda áður en
haldið yrði af stað og vanda
til verksins. Því oft er betur
heima setið en af stað farið.
En nú er komið að leiðar-
lokum. Nýr kafteinn hefur
verið ráðinn í brúnna og er
það vel. Það er ekki gott að
festast í sama farinu - við
verðum að fá ný sjónarhorn
og ferskleika annars verður
blaðið alltaf eins. Þegar ég lít
yfir þessi 3 síðustu starfsár er
margt að minnast. Stundum
hefur verið erfitt að kríja út
greinar frá klúbbum og hefur
eftirrekstur oft á tíðum verði
mikill en allt hefur þetta þó
hafist að lokum. Margar
greinar hafa birst í þessum
blöðum og vil ég sérstaklega
þakka þær.
Ég vil þó sérstaklega fá að
þakka Ragnari Erni Péturs-
syni fyrir hans þátt í gerð
blaðsins, þolinmæði í minn
garð og alla snúninga sem
hann hefur þurft að þola.
Jóni Oddi í Prentsmiðjunni
Grágás vil ég þakka frábæra
samvinnu - þar er réttur mað-
ur á réttum stað. Umdæmis-
stjórum síðustu 3ja ára vil ég
þakka fyrir traustið sem þeir
sýndu mér með því að treysta
mér fyrir blaðinu. Öllum
kiwanisfélögum sem hafa
skrifað í blaðið vil ég þakka -
án ykkar hefði ekkert blað
orðið til.
Verðandi Umdæmisstjórn
og ekki síst nýjum ritstjóra
vil ég óska allra heilla og vel-
farnaðar í starfi.
Svo að lokum sjáumst
hress og kát á Umdæmis-
þinginu
Takk fyrir mig
Þyrí Marta Baldursdóttir
ritstjóri Kiwanisfrétta.
2
Kiwanisfréttir
Útgefandi:
Kiwanisumdæmið Ísland - Færeyjar
Ábyrgðarmaður: Valdimar
Jörgenson, umsdæmisstjóri
Ritstjórn: Þyrí Marta Baldursdóttir
Umsjón: Ragnar Örn Pétursson
Forsíðumynd: Thorsten Henn,
www.icelandphoto.com
Prentvinnsla: Grágás ehf.33. árg. • 3. tbl. • Ágúst 2003
Þyrí Marta
Baldursdóttir
Ágætu Kiwanisfélagar
Maria Tupa kjördæmisstjóri Tékklands flytur ávarp
við setningu Evrópuþings.
Verðamdi- heimsforseti Bob og Evrópuforseti Ástbjörn
skoða blaðagrein um Evfópuþingið.