Kiwanisfréttir - 01.08.2003, Page 3
3
konur úr kiwanisklúbbnum í
Ostrava en klúbburinn þeirra
er tveggja ára gamall, þær
sögðu okkur frá þeirra starfi,
sem er aðallega að styrkja
barnadeild á sjúkrahúsi bæj-
arins. Það var mjög ánægju-
legt fyrir okkur að hitta þessa
félaga og geta sagt þeim frá
okkar starfi.
Að lokinni ferð um Tékk-
land og Slóvakíu með góðum
hóp kiwanisfélaga héldum við
hjónin til Bandaríkjana á
heimsþing sem var haldið í
Indianapolis, þar sem höfuð-
stöðvar Kiwanis International
eru. Þar hittum við aftur Sig-
urgeir kjörumdæmisstjóra,
Erlu konu hans, og Ástbjörn
Egilsson.
Á heimsþingi sem er mjög
stórt í sniðum skynjar maður
mjög vel hvað það er mikill
heiður fyrir okkar litlu lönd
sem Ísland og Færeyjar eru
að vera hlekkur í þessari
stóru keðju sem nær til 88
landa í öllum heimsálfum.
Einn dagskrárliður á heims-
þingi er kynning á styrktar-
verkefnum sem klúbbar eða
umdæmi eru með. Við kynnt-
um hjálmaverkefnið og vor-
um með 4 reiðhjólahjálma
sem vöktu mikla athygli, að
kynningu lokinni gáfum við
hjálmana til barna sem höfðu
heimsótt okkur.
Þó mér hafi verið tíðrætt
um erlendu samskiptin erum
við líka á fullu hérna heima,
margir klúbbar og svæði eru
núna með sínar árlegu fjöl-
skylduhátíðir, þessar hátíðir
eru nauðsynlegar fyrir okkar
starf, því ef við eigum að vera
dugleg við að safna pening-
um til styrktarverkefna okkar
verðum við að gera eitthvað
skemmtilegt fyrir okkur sjálf.
Ég vil mynna á að nú stytt-
ist í Umdæmisþing sem verð-
ur haldið í Reykjavík 29.-31.
ágúst. Ég vonast til að sjá sem
flesta félaga á þingi og á gala-
balinu. Þingnefnd er nú að
leggja lokahönd á undirbún-
ing þingsins.
Nú líður senn að lokum
starfsárs míns sem umdæmis-
stjóra. Þetta starfsár er búið
að vera mjög ánægjulegt fyrir
okkur hjónin við höfum heim-
sótt marga klúbba og tekið
þátt í afmælishófum, jóla-
fundum og ýmsum hátíðum
með kiwanisfélögum. Allstað-
ar þar sem við höfum verið
með kiwanisfélögum og fjöl-
skyldum þeirra höfum við
fengið frábærar móttökur, við
höfum eignast marga nýja vini
treyst vináttubönd við gamla
vini, fyrir þetta erum við
þakklát.
Það er von okkar að það
takist að efla Kiwanishreyf-
inguna og við eigum eftir að
sjá nýja klúbba bæði á Íslandi
og í Færeyjum.
Kiwanis er vinátta.
Valdimar Jörgensson
umdæmisstjóri.
STYRKTARSJÓÐUR
Kiwanishreyfingarinnar Ísland - Færeyjar
Ávallt úrval af
Kiwanisvörum
til á lagernum
Hafið samband!
Munið gull og silfur stjörnurnar
og styrktarsjóðsmerkin Sigurður / SveinnSími 5883244 • Fax 5883246
isspor@mi.is
Umdæmisstjóri Valdi afhendir Umdæmisstjóra
Póllands Umdæmisstjórakeðju.
Ýmisslegt bar á góma í ferðinni, þar á meðal þetta, tvær ungar dömur
voru að selja varning úr húddi SKODA