Kiwanisfréttir - 01.08.2003, Blaðsíða 11
11
Kiwanisklúbburinn Sól-
borg hefur ekki legið í dvala
þetta starfsárið frekar en
önnur starfsár.
Haldnir hafa verið reglu-
legir fundir en mæting á
fundi hefur verið með lélegra
móti þetta starfsárið en allar
fjarvistir félaga hafa átt eðli-
legar skýringar.
Einu sinni á starfsári höf-
um við verið með fund með
Hörpufélögum og skiptast
klúbbarnir á að vera með
fundinn og sér þá hinn um
gest kvöldsins þetta starfsár-
ið var hann haldinn í húsi
Setbergsmanna, en eins og
kunnugt er hafa Hörpu-konur
fundað þar þetta starfsárið,
og þá er það í okkar verka-
hring að koma með gesti og
var gerð mikil leit og á síð-
ustu stundu voru það dætur
Jóhönnu í Sólborg sem
mættu. Það eru þær Steinunn
hárgreiðslunemi og Erla Sig-
ríður förðunarfræðingur.
Erla Sigríður farðaði félaga
okkar með dagförðun og
Steinunn sýndi konum hver-
su auðvelt er að setja upp
hárið. Þökkum við þeim
systrum fyrir að koma og
bjarga okkur þetta kvöld.
Sólborgarfélagar mættu
líka á afmælishóf Brúar, en
fyrir huguð var 1 heimsókn í
klúbb um þetta leyti svo okk-
ur þótti það vel við hæfi að
fjölmenna í afmæli þeirra.
Eins og við höfum gert öll
okkar starfsár sáum við um
kaffiveitingar fyrir Fjörð
íþróttafélag fatlaða, þetta er
orðinn fastur liður í styrkjum
okkar og alltaf jafn gaman að
koma og sjá þessa krakka
hvað þau eru glöð og hversu
lítið þarf til að gleðja þau.
Þar sem Sólborg heldur
fundi sína á fimmtudögum
voru margir fundir sem duttu
niður í vor vegna allra þess-
ara fimmtudagsfrídaga, en
ekki datt starfið niður heldur
varð bara meira að gera.
Tókum við virkan þátt í
undirbúning og framkvæmd
á balli fyrir fatlað sem klúbb-
arnir 6 í Hafnarfirði, Garða-
bæ og Kópavogi halda á hver-
ju vori. Að þessu sinni var
það haldið í Kirkjulundi við
Vídalínskirkju í Garðabæ og
var það hljómsveitin Spútnik
sem hélt upp fjörinu, með
Kristján Gíslason í broddi
fylkinga nokkrir samkvæmis-
gestir fengu að taka lagið
með hljómsveitinni.
Annar liður sem er orðin
fastur í okkar starfi, er að
færa öllum börnum sem fara
í skóla að hausti reiðhjóla-
hjálma og veifur og var eng-
in undantekning þar á. Þetta
verkefni er samstarfsverk-
efni klúbbana í Hafnarfirði
Sólborgar, Eldborgar og
Hraunborgar. Þetta árið var
hjálmurinn afhentur í upp
hafi sýningarinnar „Fólk og
fyrirtæki“ sem haldin var í
Kaplakrika og þar sem við
vorum nú í þessu stússi öllu
við sýninguna bættum við
bara við okkur vinnu og tók-
um þátt í sýningunni með því
að vara með bás á sýning-
unni. Þarna voru klúbbarnir
3 úr bænum með kynningu á
því sem við erum að gera vor-
um með myndir, sýnishorn af
reiðhjólahjálmunum sem við
höfum gefið í gengum árin
bæklinga um starf okkar og
hreyfingarinnar auk þess að
við vorum með bækur þar
sem gestir gátu skrifað nöfn
sín í ásamt símanúmerum ef
viðkomandi hefði áhuga á að
kynna sér starf okkar betur,
getum við þá haft samband
þegar starfið fer aftur á stað í
haust. Við í Sólborg vorum
nokkuð sáttar með okkar
hlut í þessu verkefni og ekki
var vandamál að fá konur til
að standa vaktina í básnum.
Náðum við í nokkur nöfn í
okkar bók, en mest erum við
þó ánægðar með þá kynn-
ingu sem við vorum með á
starfi okkar og svo fyrir
hreyfinguna alla og vil ég
hvetja þá klúbba sem tök
hafa á því að taka þátt í
svona verkefni að láta verða
af því, þar sem öll kynning er
af hinu góða.
Einn Umdæmisstjórnar-
fundur var haldinn í Kiwanis-
húsinu í Hafnarfirði og var
farið þess á leit við okkur í
Sólborg hvort við vildum
taka að okkur að sjá um mat-
inn fyrir fundargesti, eins og
alltaf voru konur fúsar til
þess en það er mottó okkar í
klúbbum að segja bara „já ,,
eða „já, já,, Þarna náðum við
okkur í nokkrar krónur í fé-
lagasjóðinn, og hvet ég verð-
andi Umdæmisstjóra til að
gera slíkt hið sama þetta get-
ur hjálpað klúbbum að ná í
peningi í félagasjóð þannig
að það auðveldi þeim að gera
eitthvað fyrir félaga í klúbbn-
um.
Sumarhátíð Ægissvæðis
var haldin í lok júní eins og
undanfarin ár og að þessu
sinni var hún á Álfaskeiði í
Hreppum. Þarna voru mættir
félagar í flestum klúbbum í
svæðinu. Sólborgar félagar
voru 8 sem mættu þarna
ásamt börnum mökum og
öðrum gestum. Þótt nokkur
hafi verið blautt skemmtu all-
ir sér vel.
Nú ættu allir að vera
komnir í frí en ekki við hjá
Sólborg, því verið er að und-
irbúa stórt verkefni fyrir
haustið. Ég er ekki viss um
að við viljum tala mikið um
það hér en eitt er víst að
þetta getur gefið okkur góð-
an pening og ekki síst mikla
umfjöllun í fjölmiðlum, sem
okkur og ekki síst hreyfing-
unni allri er til góða. Við
erum með góða aðila sem
þekkja þetta miklu betur en
við þannig að við erum fullar
áhuga og bjartsýni.
Kæru Kiwanisfélagar sjá-
umst öll á umdæmisþinginu
nú í ágúst, tökum virkan þátt
í störfum þess.
Kveðja
Dröfn Sveinsdóttir
blaðafulltrúi Sólborgar.
Fréttir úr starfi Sólborgar