Fréttablaðið - 23.08.2018, Qupperneq 18
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
GR, og Birgir Leifur Hafþórsson,
GKG, hefja leik á atvinnumanna-
mótum erlendis í dag þar sem Ólafía
leikur í Kanada en Birgir Leifur í
Tékklandi.
Ólafía Þórunn tekur þátt í CP-
meistaramótinu í Kanada sem er
hluti af LPGA-mótaröðinni og þarf
heldur betur að bretta upp ermar.
Hún missti af niðurskurði um síð-
ustu helgi og er í verulegri hættu á
að ná ekki að endurnýja þátttöku-
réttinn á LPGA-mótaröðinni á
næsta ári. Er hún í 139. sæti á stiga-
listanum þegar skammt er eftir af
tímabilinu og þarf að komast meðal
hundrað efstu til að halda keppnis-
réttinum.
Tók hún einnig þátt í þessu móti
í fyrra þar sem henni tókst ekki að
ná niðurskurði. Er hún með Sydnee
Michaels og Madeleine Sheils í rás-
hóp og hefur leik rétt eftir hádegi að
staðartíma á tíunda teig.
Birgir Leifur keppir á sama tíma í
Tékklandi á tékkneska
meistaramótinu
sem er hluti af
E v r ó p u m ó t a -
röðinni. Verður
þetta níunda mót
Birgis á þessari
sterkustu mótaröð
Evrópu og eru frá-
bærir kylfingar
á borð við Lee
W e s t w o o d ,
Danny Will-
ett, Padraig
Harrington og
Thomas Piet-
ers skráðir til
leiks.
Mótið fer fram í Prag
og á Birgir teigtíma
rétt fyrir klukkan níu
að staðartíma. – kpt
Ólafía og Birgir
hefja leik í dag
fótbolti Rúnar Alex Rúnarsson,
markvörður íslenska landsliðsins,
hefur byrjað vel í frönsku deildinni
með Dijon eftir vistaskipti frá FC
Nordsjælland í sumar. Var hann
keyptur til félagsins meðan á HM
stóð og greiddi franska félagið met-
upphæð fyrir íslenskan markvörð.
Dijon byrjaði tímabilið á tveimur
sigrum og er ásamt Reims, Nimes og
stjörnum prýddu liði PSG á toppi
deildarinnar.
Tókst Rúnari Alex að halda hreinu
í öðrum leiknum og var verðlaunað-
ur með sæti í liði vikunnar í Frakk-
landi.
Hann kveðst vera búinn að koma
sér vel fyrir í Frakklandi og frönsku-
kunnátta hans úr skólagöngunni
hjálpi honum að koma sér fyrir.
„Þetta hefur verið ansi gott hing-
að til. Við erum komin með allt sem
við þurfum og fengum góða íbúð
svo við erum búin að koma okkur
vel fyrir. Ég lærði frönsku í grunn- og
menntaskóla þannig að ég er með
grunnkunnáttu í tungumálinu og
skil margt sem er sagt við mig. Ég er
ekki byrjaður í tímum en þá verður
þetta fljótt að koma,“ segir Rúnar og
að það hjálpi honum á æfingum.
„Þetta hefur hjálpað mér þvílíkt, ég
skil flest af því sem þjálfarinn segir
strax. Ef það gengur ekki eru nokkrir
í liðinu sem tala góða ensku og geta
aðstoðað,“ segir Vestur bæingurinn.
Frábært að halda strax hreinu
Gengið var frá félagsskiptunum
meðan á HM stóð og var Rúnar því
afar spenntur að hefja æfingar á ný
eftir sumarfríið.
„Auðvitað var maður alltaf
spenntur fyrir því að hefja nýtt
ævintýri. Fyrst og fremst fann ég
fyrir tilhlökkun yfir að koma og
byrja að æfa með liðinu.“
Eins og búast mátti við eru meiri
gæði og meiri hraði í franska bolt-
anum en þeim danska.
„Helsti munurinn á deildunum og
á æfingunum er að hér er allt hrað-
ara og leikmenn eru fjölhæfari. Í
Danmörku eru leikmenn oft hraðir
eða sterkir en ekki margir sem hafa
báða eiginleikana. Það eru meiri
gæði í leikjum og á æfingum, við
það verð ég að stíga upp og bæta
minn leik.“
Dijon, sem er aðeins tuttugu
ára gamalt félag eftir sameiningu
tveggja liða í borginni Dijon, var að
hefja þriðja tímabil sitt í röð í efstu
deild. Félagið náði besta árangri
sínum í efstu deild í fyrra þegar það
lenti í ellefta sæti og byrjar tímabilið
af krafti í ár.
„Þetta er góð byrjun, auðvitað
stefnir maður alltaf á að vinna alla
leiki en það var kannski framar
björtustu vonum að ná í sex stig.
Við byrjuðum á erfiðum útivelli
gegn Montpellier þar sem sigur-
markið kom í uppbótartíma sem
gerði heilmikið fyrir liðið og sjálfs-
traustið. Svo var flott að ná að halda
hreinu strax í annarri umferð, það
tók ellefu umferðir í fyrra,“ segir
Rúnar sem var valinn í lið umferðar-
innar af L’Equipe eftir að hafa haldið
hreinu gegn Nantes.
„Það gerir heilmikið fyrir mig til
að fá strax virðingu frá stuðnings-
mönnunum og andstæðingunum.
Ég fékk strax traustið frá þjálfar-
anum og öllum í liðinu, það veitti
manni sjálfstraust en það þýðir
ekkert að verða saddur núna. Ég
verð að æfa vel, bæta mig og standa
undir traustinu.“
Spennandi verkefni fram undan
Rúnar Alex var hluti af HM-hópnum
hjá Heimi Hallgrímssyni og verður
eflaust í fyrsta leikmannahópnum
hjá Erik Hamrén í fyrsta leiknum
undir stjórn þess sænska.
„Heimir vann frábært starf með
landsliðið og það var ótrúlega
gaman að þetta endaði vel hjá
honum með því að komast í loka-
keppni HM. Góður endasprettur
hans munu vonandi hjálpa Erik að
taka við keflinu og vonandi getum
við haldið áfram þessu góða gengi
landsliðsins.“
Hann kveðst spenntur fyrir því að
mæta til æfinga og kynnast því að
æfa undir stjórn Hamrén.
„Ég myndi ekki halda að það verði
stórtækar breytingar en það kemur
í ljós í Sviss. Þetta verður áhuga-
vert, það er alltaf gaman að prófa
og kynnast einhverju nýju. Ég fékk
ekki að vinna með Lars á sínum
tíma þannig að það verður gaman
að kynnast sænskum þjálfunar-
aðferðum og læra vonandi eitthvað
nýtt.“
Hann horfði meðal annars til þess
hvað félagsskiptin til Frakklands
myndu þýða fyrir landsliðsferilinn.
„Auðvitað spilaði það inn í
ákvörðunina að fara í stærri deild til
að auka möguleika mína á að spila
fyrir landsliðið en það eru margir
þættir sem hafa áhrif. Ég verð að
standa mig með félagsliðinu mínu
og þetta verður alltaf undir þjálfar-
anum komið. Auðvitað dreymir
mann eins og alla um að spila reglu-
lega fyrir hönd íslensku þjóðarinnar
en það verður að koma í ljós.“
kristinnpall@frettabladid.is
Mun meiri hraði í Frakklandi
Rúnar Alex Rúnarsson er búinn að koma sér vel fyrir hjá liði Dijon í frönsku úrvalsdeildinni. Félagið er með
fullt hús stiga eftir tvær umferðir og hélt hann hreinu í síðasta leik sem skilaði honum sæti í liði vikunnar.
Það tók Rúnar Alex Rúnarsson aðeins tvo leiki að halda hreinu í fyrsta sinn í Frakklandi, eitthvað sem tók liðið ellefu umferðir í fyrra. Hér sést hann í útileik
gegn Montpellier sem Dijon vann 1-2. Sigurmarkið kom á lokasekúndunum. Dijon er með fullt hús í frönsku deildinni eftir tvær umferðir. NoRDicPHotoS/getty
Reusch hefur alltaf verið með frábæra markmannshanska
Rúnar Alex skrifaði nýlega undir
samning við ítalska fyrirtækið
Reusch um samstarf þegar kemur
að markmannshönskum.
Mun hann áfram vera samnings
bundinn Nike þegar kemur að
skófatnaði. Reusch var um árabil
eitt þekktasta merki heims í mark
mannshönskum en minna hefur
farið fyrir fyrirtækinu undanfarin
ár. Meðal markmanna sem eru á
samningi hjá fyrirtækinu eru Julio
Cesar, fyrrverandi landsliðsmark
vörður Brasilíu, og Samir Handano
vić, markvörður Inter. Rúnari leist
best á Reusch af þeim fyrirtækjum
sem höfðu samband.
„Ég var ekki með samning um
markmannshanska og það voru
nokkur fyrirtæki sem höfðu sam
band þegar HM var í gangi. Ég valdi
Reusch því mér leið ofboðslega vel
í hönskunum þeirra, það skipti mig
mestu máli. Þetta hafa alltaf verið
frábærir markmannshanskar og
ég er bara spenntur fyrir komandi
samstarfi.“
Ég fékk strax
traustið frá þjálfar-
anum og liðsfélögunum og
það veitti manni aukið
sjálfstraust.
Rúnar Alex Rúnarsson,
markvörður íslenska landsliðsins
ÍR - Haukar 2-0
10 Shaneka Gordon (11.), 20 Hanna Barker
(56.).
Nýjast
inkasso-deild kvenna
Ljónin unnu
fyrsta titilinn
handbolti Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði níu mörk þegar Rhein-Neck-
ar Löwen vann Flensburg, 26-33, í
leiknum um þýska Ofurbikarinn í
handbolta í gærkvöldi.
Guðjón Valur var næstmarka-
hæstur í liði Löwen á eftir svissneska
leikstjórnandanum Andy Schmid
sem skoraði tíu mörk. Alexander
Petersson átti einnig góðan leik og
skoraði fimm mörk.
Löwen varð bikarmeistari á síð-
asta tímabili en þurfti að horfa á
eftir þýska meistaratitlinum í hendur
Flensburg. – iþs
Alexander Petersson og félagar fagna
eftir sigurinn á Flensburg í gærkvöldi.
NoRDicPHotoS/getty
2 3 . á G ú s t 2 0 1 8 f i M M t U d a G U R18 s p o R t ∙ f R É t t a b l a ð i ð
sport
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
1
-2
0
6
4
2
0
A
1
-1
F
2
8
2
0
A
1
-1
D
E
C
2
0
A
1
-1
C
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K