Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 44
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
Rafmagnstjakkar
Kynningarverð:
282.897 kr. m/vsk
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
VIÐ SÉRHÆFUM
OKKUR Í
ASÍSKRI
MATARGERÐ.
HOLLUR OG
LJÚFFENGUR
MATUR.
Vietnamese restaurant
Laugavegi 27 og
Suðurlandsbraut 8
sími: 588 6868
pho.is Netflix
Disenchantment
HHHHH
Höfundar: Matt Groening, Josh
Weinstein
Aðalhlutverk: Abbi Jacobson, Eric
André, Nat Faxon, John DiMaggio
Matt Groening á h e i ð u r i n n a f t v e i m u r skemmtilegustu teiknimyndaþáttum í sjón
varpi síðustu áratuga; The Simp
sons og Futurama. Fátt jafnast á við
þessar tvær þáttaraðir í góðu og hár
beittu gríni þegar þær risu sem hæst.
Árgangar 3–8 af The Simpsons eru
klassík sem þola endalausa endur
skoðun og sama má vel segja um
fyrstu fjóra árganga Futurama.
Groening mætti í síðustu viku til
leiks á Netflix með tíu þætti í nýrri
seríu, Disenchantment, og hefur
aðeins fengið að kenna á því að það
getur verið kalt í eigin skugga.
Samanburður við The Simp
sons og Futurama er vitaskuld
óhjákvæmilegur og heldur hallar
á Disenchantment í þeim efnum
í þessari fyrstu umferð. Skyldleiki
Disen chantment og Futurama er
mun augljósari en tengingar við gulu
vísitölufjölskylduna í Springfield.
Disenchantment gerist í miðalda
ævintýraheimi þar sem álfar, tröll,
djöflar og alls konar aðrar furðuverur
eru á sveimi innan um misgáfulegar
mannskepnur; ruglaða konunga,
hrokafulla prinsa og allt hring
snýst þetta síðan um kostulegt tríó;
drykkfelldu og óstýrilátu prinsess
una Bean, hennar persónulega innri
djöful Luci og áttavillta flóttaálfinn
Elfo.
Þáttunum má vel lýsa sem ein
hvers konar bræðingi af Futurama
og Game of Thrones krydduðum
með bragðefnum frá Monty Python,
Shrek og alls konar súputeningum
öðrum í dægurmenningunni.
Prinsessan Bean er hress stelpa
sem fer sínar eigin leiðir, konung
inum föður sínum til mikillar
mæðu. Hún hefur mun meiri áhuga
á að drekka sig fulla yfir fjárhættu
spilum á knæpum með sauðsvörtum
og grálúsugum almúganum frekar en
að svífa um hirðina í prinsessuleik.
Þegar Bean er kynnt til leiks neytir
hún allra bragða til þess að koma sér
hjá þvinguðu hagsmunahjónabandi
við konungsson úr nágrannaríkinu.
Hún svífst einskis í þeirri viðleitni
og vílar jafnvel ekki fyrir sér að
brugga vonbiðlum sínum
banaráð. Kannski ekki
furða þar sem
hún er nýbúin að
kynnast púkan
um Fulci. Sínum
innri djöfli sem
losnar skyndi
lega úr læðingi.
Þetta sérkenni
lega tvíeyki verður
síðan óvænt tríó þegar
við bætist álfurinn Elfo sem
er í mikilli tilvistarkreppu, nýflúinn
úr glassúrhúðuðum glimmer heimi
sínum, æstur í að kynnast grimmd
og ljótleika tilverunnar utan huliðs
heimsins.
Þessi tíu þátta fyrsti hluti sög
unnar er brokkgengur, ef ekki
hreinlega krampakennd
ur. Sagan er skemmtileg
og persónurnar vel
flestar ágætar
en engin
þeirra kemst þó með tærnar þar
sem Hómer, Bart, vélmennið Bend
er, Marge, Fry og Leela voru með
hælana í The Simpsons og Futurama.
Futurama gerðist í fjarlægri fram
tíð, árið 3000 nánar tiltekið, en
skyldleikinn við þetta miðaldaflipp
er þó augljós. Sumar persónurnar
eru dauft bergmál af persónum Fut
urama og í báðum tilfellum er sögð
samfelld saga, ólíkt The Simpsons
þáttunum sem hefjast ætíð á byrj
unarreit og hafa gert vikulega í 29 ár.
Netflix hefur þegar keypt 20 þætti
til viðbótar en ef Groening spýtir
ekki hressilega í lófana er ansi hætt
við að þættirnir af Dis
enchantment verði ekki fleiri.
Brandararnir flæða að vísu í stríð
um straumi í gegnum þessa tíu fyrstu
þætti en ólíkt The Simpsons og
Futurama hitta sorglega fáir í mark.
Hér er gælt við groddalegt grín, grót
esku og ýkt Itchy og Scratchy teikni
myndaofbeldi en í hálfkæringi. Ef
hugmyndin var að hafa miðalda
myrkur yfir stemningunni þá kemur
eiginlega ekkert annað til greina en
að fara alla leið.
Þessir þættir eru alls ekki leiðin
legir en heldur ekki nógu fyndnir,
frumlegir og skemmtilegir til þess
að hneppa áhorfendur í milljónavís
í álög. En vonandi á Groening eftir að
hressast og í því sambandi er ágætt
að hafa í huga að The Simpsons og
Futurama hrukku ekki í gírinn fyrr
en í það minnsta einn árgangur var
að baki. thorarinn@frettabladid.is
Niðurstaða: Þrátt fyrir góða spretti
og á köflum groddalegt grín og teikni-
myndaofbeldi standast þessir þættir
ekki samanburð við The Simpsons og
Futurama þannig að mun betur má ef
duga skal.
Öfugsnúin álög og
Simpsons-bölvunin
Matt Groening gerir nú þriðju tilraunina til þess að heilla
áhorfendur með teiknuðum furðufígúrum í þáttunum
Disenchantment en hneppir fólk ekki í álög í fyrstu tilraun.
Ævintýri prinsessunnar Bean, púkans Fulci og álfsins Elfo fer heldur skrykkjótt af stað í Disenchantment á Netflix.
Fry, Leela og vélrón-
inn Bender héldu
fjörinu gangandi
í Futurama og
bjuggu yfir
sjarma sem
persónur Dis-
enchantment
hafa ekki fundið
ennþá.
Simpsons-fjölskyldan er sjálf-
sagt vinsælasta sjónvarpsfjöl-
skylda allra tíma og fátt bendir
til þess að konungsfjölskyld-
an í Disenchantment muni
komast úr skugga gulu
vísitölufjölskyldunnar.
2 3 . á g ú s t 2 0 1 8 f i M M t u D a g u r28 M e N N i N g ∙ f r É t t a B l a ð i ð
Bíó
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
1
-1
6
8
4
2
0
A
1
-1
5
4
8
2
0
A
1
-1
4
0
C
2
0
A
1
-1
2
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K