Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2018, Qupperneq 3

Víkurfréttir - 14.06.2018, Qupperneq 3
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M S U Ð U R N E S J A MAGASÍN fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002 Sláðu upp mexíkanskri veislu - Allar flögur frá Santa Maria með 35% afslætti KJÖTSEL NAUTGRIPAHAKK FERSKT 8-12% FEITT 1.232 KRKG ÁÐUR: 1.759 KR/KG-30% -30% NAUTAÞYNNUR FERSKT 1.959 KRKG ÁÐUR: 2.798 KR/KG Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Bein leið hafa myndað nýjan meirihluta í Reykja- nesbæ. Nýr meirihluti mun taka við á bæjarstjórnarfundi þann 19. júní nk. Helstu áhersluat- riði nýs meirihluta eru að áfram verður unnið skv. þeirri aðlögunaráætlun sem í gildi er og lögbundnu skuldaviðmiði náð fyrir árið 2022. Skattheimtu verði stillt í hóf og áfram verði unnið að því að bæta og opna stjórnsýslu sem verður endurskoðuð á kjörtímabilinu. Þrjár nýjar nefndir verða settar á laggirnar, lýðheilsunefnd, framtíðarnefnd og mark- aðs-, atvinnu- og ferðamálanefnd. Þá verður auknum fjármunum varið í fræðslumál til þess að bæta aðbúnað og aðstöðu bæði í leik- og grunnskólum. Nýr meirihluti hafnar mengandi stóriðju í Helguvík og mun nýtt Framtíðarráð fjalla um starfsemina og leita lausna svo tryggja megi að atvinnuuppbygging í Reykjanesbæ sé ávallt í sátt við íbúa. Unnið verði áfram að atvinnuuppbyggingu í Helguvík með það að leiðarljósi að nýta hafnarmannvirki og efla enn frekar kjarnastarfsemi Reykjaneshafnar. Kjartan Már Kjartansson, núverandi bæjar- stjóri, verður endurráðinn. Friðjón Einarsson frá Samfylkingu verður formaður bæjarráðs og Jóhann Friðrik Friðriksson, Framsóknar- flokki, tekur við sem forseti bæjarstjórnar fyrstu tvö ár kjörtímabilsins en Guðbrandur Einarsson, Beinni leið, verður forseti bæjar- stjórnar seinni tvö árin. Nánar má lesa um stefnu nýs meirihluta á vef Víkurfrétta, vf.is. Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Bein leið hafa myndað nýjan meirihluta í Reykjanesbæ Nýr meirihluti hafnar mengandi stóriðju Mikill áhugi var á því að fræðast um tröll og drauga í Reykjanes Geopark en um 120 göngugestir tóku þátt í göngu Útivistar í Geopark sl. fimmtudag en hún er sú fyrsta í gönguröð sumarsins. Eggert Sólberg Jónsson þjóðfræð- ingur og forstöðumaður Reykjanes Geopark leiddi gönguna en gengið var um næsta nágrenni Gunnu- hvers og Reykjanesvita. Þetta er annað árið sem Reykja- nes Geopark stendur fyrir göngu- ferðum um Reykjanesið en sam- starfsaðilar verkefnisins eru Bláa lónið og HS orka. Að sögn Eggerts Sólberg er markmið verkefnisins er að kynna einstakt umhverfi og menningu Reykjanes Geopark fyrir almenningi gegnum útivist, fróð- leik og skemmtun. Næsta ganga sumarsins verður farin fimmtudaginn 14. júní en þar verður gengið á Vatnsleysu- strönd með Minja- og sögufélagi Vatnsleysustrandar. Þann 23. júní verður Jónsmesssuganga Bláa lónsins og Grindavíkurbæjar, þann 5. júlí verður gengið um Stóra Skógfell með jarðfræðingi HS orku, farið verður í fjöruferð með Náttúrustofu Suðvestur- lands þann 12. júlí og hjólað um Reykjanesbæ og nágrenni með 3N 9. ágúst. Lokagangan er tón- listarganga um gömlu Keflavík með Söngvaskáldum Suðurnesja þann 23. ágúst. Á SLÓÐUM TRÖLLA OG DRAUGA Krossmóa 4 | Reykjanesbæ Opnunartími mán.–fös. frá 9–20 lau.–sun. frá 11–18 Rotary-menn rækta skóg við Rósaselsvöt n SÍÐA10 fimmtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.