Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.1981, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 26.03.1981, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 26. marz 1981 VIKUR-fréttir Míkur fCETTIC Útgefandi: Vasaútgáfan Ritstjóri og ábm.: Sigurjón Vikarsson, srtni 2968 Blaðamenn: Steingrimur Lilliendahl, sími 3216 Elias Jóhannsson, sími 2931 Emil Páll Jónsson, sími 2677 Ritstj. og augl. Hringbraut 96, Keflavik, sími 1760 Setning og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik Loftpressa Tek að mér múrbrot, fleygun og borun fyrir sprengingar. Geri föst verðtilboð. SÍMI 3987 Sigurjón Matthíasson Brekkustíg 31 c - Y-Njarðvík Prjónakonur Nú kaupum við einungis lopapeysur, heilar og hnepptar. Móttaka að Bolafæti 11, Njarðvík, miðvikudagana 1., 15. og 29. apríl kl. 13-15. Híslenzkur markadur hf. mmims Videoking klúbbur Suðurnesja Leigjum myndsegulbönd í Keflavík, Njarðvík og nágrenni. Fjöldinn allur af góðum myndum við allra hæfi, m.a.: The Graduate - Funny Girl Jesus Christ Superstar - Hárið The Incredible Hulk o.fl. o.fl. Upplýsingar í síma 1828 milli kl. 19-21. Áhaldavörður Starf áhaldavarðar hjá Áhaldahúsi Keflavíkurbæj- ar er laust til umsóknar. Laun samkv. kjarasamningum S.T K.B. Umsóknarfrestur er til 6. apríl n.k. Allar nánari upplýsingar veitir yfirverkstjóri, Ellert Eiríksson. Áhaldahús Keflavíkurbæjar Sími 1552 Myndin er tekin á æfingu hjá kórnum í síðustu viku, en hann æfir i húsnæði Tónlistarskóla Njarðvíkur. Söngstjórinn, Margrét Pálma- dóttir, er lengst til hægri. Kór Fjölbrautaskólans Stofnaður hefur verið kór í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Auglýst var eftir stjórnanda i desember sl. og var Margrét Pálmadóttir ráðin sem stjórnandi kórsins frá 1. janúar. Hún er einnig söngkennari í Sand- gerði og stjórnar einnig kór í Hafnarfirði. I kór Fjölbrautaskólans eru 25 nemendur, en hann kom í fyrsta sinn fram opinberlega á tónlistar- hátíð I Félagsbíói sl. föstudagskvöld, sem Nemendafélag FS hélt. Margir frábærir tónlistarmenn komu þar fram, en með þessari tónlist- arhátíð lauk starfsviku FS, sem stóð frá 16.-20. marz. Ungmennafélag Keflavíkur: Meðlimir á sl. ári voru 980 Eins og sagt var frá í síðasta blaði var aðalfundur UMFK hald- inn 5. marz sl. f skýrslu stjórnar kemur fram, að meðlimir í félag- inu á síðasta ári voru um 980 og flestir starfandi í hinum ýmsu iþróttagreinum sem félagið býður upp á, en nokkrir starfa eingöngu að félagsmálum. Knattspyrna er lang fjölmennasta íþrótta- greinin innan UMFK. Á vegum félagsins voru æfingar yfir vetr- armánuðina fyrir drengi og stúlkur. Einnig eru æfingar fyrir yngstu drengina stundaðar yfir sumarmánuðina. Tekið var þátt í nokkrum mótum á árinu og varárangurinn nokkuð góður, t.d. í Keflavikur- mótinu o.fl. Farið var í ferðalag með yngri flokkana til Sauðárkróks og Siglufjarðar ásamt nokkrum styttri ferðum. Handknattlelkur Nokkurgróskavarí handknatt- leiknum á síðasta ári. Einkum hafa verið haldnar æfingar fyrir yngstu flokkastúlkna. Hefurorð- ið töluverð framför á síðasta ári, en þó ekki nógu mikil, og verður að leggja betri rækt við hand- boltann til þess að viðhalda þeim framgangi sem hann hefurverið í árin á undan. Borötennis hefur verið í svolítilli lægð að undanförnu, en þó á UMFK nokkra góða einstaklinga sem eru í fremstu röð hérlendis. Þokkalegur árangur náðist í hinum ýmsu mótum áárinu. Það sem einna helst háir borðtennis hér á landi er skortur á menntuö- um þjálfurum í greininni. Júdó I júdóinu á félagið harðsnúinn kjarna sem náð hefurágætum ár- angri. Sl. vetur réði deildin ensk- an þjálfara og var þá starfsemin mjög mikil. Júdóið viröist vera í uppgangi ífélaginuogerþaðvel. Sund Sundæfingar fóru að öllu leyti fram á vegum (BK og keppt var undir merki bandalagsins. Sund- fólkið hefur tekið þátt í mörgum mótum við ágætan árangur. Helst þyrfti að gera átak í ungl- ingastarfseminni og ná I fleiri meðlimi. Skiöi Skíðanefnd var starfandi inn- an félagsins og var þetta fjórða starfsár hennar. Starfsemi nefnd- arinnar er nú komin í fastar skorður. Gekkst nefndin fyrir fjölda skíðaferða, aðallega í Blá- fjöll, en skíðaáhugi hér í bæ virðist vera geysi mikill um þess- ar mundir. fþróttahúsiö Á árinu var tekiö í notkun nýtt og glæsilegt íþróttahús hér í bæ, sem gerbreytir allri aðstöðu fyrir innanhússíþróttir. Þar hefur fé- lagið 5 tíma á viku sem einkum eru notaðir fyrir knattspyrnu. Einnig hefur félagið töluvert af tímum í íþróttahúsi Barnaskól- ans. I Ungó eru líka æfingar á vegum félagsins, einkum þá í júdó og borðtennis. (þróttatímar á vegum félagsins eru sennilega til samans um 40-50 tímaráviku I hinum ýmsu íþróttagreinum. Landsmót U.M.F.f. Þrjár umsóknir bárust um að halda Landsmót UMF( 1984, en Framh. á 10. sföu

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.