Víkurfréttir - 24.09.1981, Side 1
17. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 24. september 1981
H2ÉTTIE
Erfiður róður hjá Hrað'
frystihúsi Keflavíkur hf
Mjög illa horfir nú með áfram-
haldandi rekstur Hraðfrystihúss
Keflavíkur hf., því þrátt fyrir
stöðuga vinnu hrúgast upp skuld
ir fyrirtækisins út um hvippinn og
kvappinn og virðast þær vera
alveg botnlausar. Er nú svo
komið að fyrirtækið er rekið með
stórtapi sem er talið í mjög háum
tölum i hverjum mánuði.
Ekki bætir úr skák hin eilífa bil-
anatíðni b.v. Bergvíkur, en nú
síðast þurfti eins og kunnugt er
að rífa aðalvél skipsins til
grunna. Síöan skipið var keypt
hingað hefur varla komið ein
veiðiferð án þess að eitthvað hafi
bilað. Að sögn þeirra aðila sem
kynnt hafa sér reksturfyrirtækis-
ins að undanförnu, erekki annað
sjánalegt en að selja verði annan
togarann, ef ekki báða, til að
rétta fyrirtækið við.
Þar sem þetta fyrirtæki hefur
verið eitt af aðalhjólum atvinnu-
rekstursins hér á Suðurnesjum
og er fyrirtæki sem verðuraðlifa,
sé þess nokkur kostur, eru nú
ráðamenn á fullu að leita að ein-
hverjum fleti til áframhaldandi
reksturs, jafnframt sem gengið
verði frá skuldum fyrirtækisins.
Athygli vekur að á sama tíma
og rekstur Hraðfrustihússins
gengur svona illa, eru eigendur
fyrirtækisins, Kaupfélag Suður-
nesja, aö láta reisa stórmarkað í
Njarðvík, og virðist þar vera
nægjanlegt fjármagn til staðar.
Annars viröist í gegnum tíðina
það vera þannig, að stjórn KSK
hafi oft sett afgreiðslubann á
vörurtil Hraðfrystihússins vegna
skuldar, þó bæði fyrirtækin séu í
raun eitt fyrirtæki með sömu yfir-
stjórn, þ.e. aðalfund KSK.
Bergvikin vlð landfesfar I Keflavíkurhöfn
Ný hafnarvog í Sandgerði
Hafnar eru framkvæmdir við
byggingu nýrrar hafnarvogar í
Sandgerði. Nýja vogin verður
staösett við hliðina á gömlu vog-
inni, en sú gamla er mjög orðin
slitin, enda orðin 19 ára gömul,
að sögn Jóns Júliussonar vigtar-
manns, og það léleg, að nú ný-
lega var hún biluö í um vikutíma.
Nýja vogin mun geta vigtað 50
tonna þunga en sú eldri, sem var
oröin alltof lítil, gat aðeins vigtað
20 tonna þunga. Vonast er til að
vogin verði komin í gagnið um
næstu áramót.
Um aðrar framkvæmdir við
höfnina sagði Jón, að jafnhliða
vinnu við hafnarvogina stæði til
að endurnýja innsiglingarljósin
og i því sambandi yrði reist nýtt
mastur við Bæjarsker.
Videovæðingin heldur áfram
(búar í suðurjaðri Eyjabyggðar
eru nú að hrinda í framkvæmd
sameiginlegu videokerfi. (byrjun
eru um 30 hús meö, en möguleiki
er á verulegri stækkun kerfisins,
jafnvel fyrir alla Eyjabyggöina ef
út í það færi. Jarðvinnufram-
Auglýsingasiminn
er1760
kvæmdir eru þegar hafnar, en
búast má við að kerfið verði
rekstrarhæft fyrri part nóv. n.k.,
gangi allt að óskum.
Kostnaður er áætlaður kr.
2.800 pr. hús. Þá er allt talið með
nema jarðvinna, sem íbúarnir
gera sjálfir.
Ef til þess kemur að hér náist
sjónvarpssendingar frá gervi-
hnöttum, er tiltölulega ódýrt að
hagnýta sér þær i þessu kerfi.
Er sorp nýtilegt?
Frásögn af járnporti Sorpeyðingarstöðvarinnar
Því verður vart á móti mælt, að
með tilkomusorpeyðingarstöðv-
arinnar leystust ýmis aðkallandi
vandamál. Hins vegar er Ijóst að
með gangsetningu hennar komu
fram ný og áður óþekkt vanda-
mál. ( samræmi við þá fjárfest-
ingu sem sorpeyöingarstöðin
var, átti fólk eðlilega von á að
sorp- og úrgangsmál svæöisins
væru leyst. En svo var þó ekki.
Ot úr ýmsum samþykktum og
fundargerðum héðan og þaðan,
má lesa nokkra annmarka sem
stöðin býr við. Hún tekur m.a.
ekki við mold, grjóti, torfi, salti,
fiskúrgangi eða afbeitu. Hún
tekur heldur ekki við málmum,
ónýtum bílum eða ónýtum heim-
ilistækjum. Né heldur netum,
eins og sjá má frá Hafnavegin-
um. Skoði maðuröskuna kemur í
Ijós að stöðin hefur ekki eytt
dósum.
Hverjireru þáeiginleikarþess-
arar stöðvar?
„Þessi stöð tekur allt sem
brennur," sagði einn starfsmað-
ur Sorpeyðingarstöðvarinnar.
„Þetta er hins vegarengin málm-
bræðsla." Nú er sjálfsagt eðlilegt
að fólk taki því með ró og spekt
að stöðin búi við takmarkanir.
Það væri mesta fásinna að bera
fram ásakanir á hendur starfs-
mönnum í þeim efnum. Hins
vegar ber stjórnin ábyrgð á því
að losa fólk við þann úrgang sem
stöðin tekur ekki.
JÁRNPORTIO
Ein afleiðing þessara ann-
marka er járnport eitt, miður
Framh. á 13. sfðu
„Sorpeyðingarstöðin er engln málmbræðsla“