Verslunartíðindi - 01.01.1918, Page 9

Verslunartíðindi - 01.01.1918, Page 9
w UNARTIfllNDI MANAÐARBIT 6EFIÐ ÚT AF VERSLUNARRAÐI ISLANDS 1. ár. Janúar 1918 Nr. 1. Y erslanartiðindi koma út einu sinni í mánuði 8—12 blaðsíður. — Árgangurinn kostar 3 krónur Rittsjórn og afgreiðsla: Skrifstofa Verslunarráðs Islands, Kirkjustræti 8B. Talsími 694. Pósthólf 614 X lögum verslunarráðsins er ákveðið, að ráðið skuli gefa út blað, er skýri frá því markverðasta í viðskiftamálum innan lands og utan og birti ennfremur lög og stjórn- arfyrirskipanir, er snerta atvinnumál. — Vegna örðugleika þeirra sem nú eru á allri blaðaútgáfu var ráðinu í sjálfsvald sett hvenær byrjað væri á að gefa blaðið út. Verslunarráðinu er fyllilega ljóst, að eins og nú er ástatt, getur blaðið eigi orð- ið svo vel úr garði gert sem skyldi, meðal annars vegna þess, að nú eru að heita má engar póstsamgöngur við útlönd og er það sjerstaklega bagalegt fyrir verslunar- blað. En þrátt fyrir það hefur ráðið viljað byrjaáútgáfublaðsins og vonar að það verði til þess, að ráðið komist í nánar asamband en ella, við alla þá, er starfa innan þeirra atvinnugreina sem ráðið er fulltrúi fyrir. Verslunarráö. í öllum menningarlöndum hefir þegaf fyrir löngu verið komið á fót sjerstökum fulltrúastofnunum, er vinna að því að vernda og efla atvinnuvegina. Slíkum fulltrúastofnunum fyrir verslun, er nefnd- ust verslunarráð (chambres de Commerce), var fyrst komið á fót í FraJcklandi á 17. öld og var það að tilhlutun stjórnarinnar. Hafði stjórnin komist að raun um, að henni væri brýn nauðsyn á að komast í nánari kynni, en verið hafði, við sjálft viðskifta- lífið og þá menn, er þar stóðu framarla, til þess að afskiftí hennar af viðskiftalif- inu bæru heillaríkan árangur. í byrjun var aðeins eitt verslunarráð fyrir alt land- ið, en smámsaman mynduðust sjerstök ráð fyrir helstu viðskiftaborgirnar, er unnu í sambandi við aðal-verslunarráðið. Stjórnar- byltingaárið 1791 voru öll verslunaráðin áfnumin, en aðal-verslunarráðið var endur- reist sama ár, með því að stjórnin gat eigi án þess verið og nokkrum árum síðar voru einnig hin verslunarráðin endurreist. Fyrirkomulag frönsku verslunarráðanna, eins og það er nú, er ákveðið með lögum frá 1898. Samkvæmt þeim eru verslunar- ráðin opinberar stofnanir og á að minsta kosti að vera eitt ráð fyrir hvert amt

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.