Verslunartíðindi - 01.01.1918, Page 13

Verslunartíðindi - 01.01.1918, Page 13
Verslunartlðindi h ný fulltrúasamkoma »Den danske Handels- stands Fœllesreprœsentation« og heldur hún fund árlega, en föst framkvæmdarnefnd annast störfin milli funda. »(lrosserer- Societetets Ko:nité« tekur þátt í fulltrúa- samkomunni fyrir hönd verslunarstjettar Kaupmannahafnar og er í stöðugri sam- vinnu við framkvæmdarnefndina. Hjer hefir að nokkru verið skýrt frá fyrirkomulagi og verksviði erlendra versl- unarráða og svipaðra stofnana. Tilgang- ur þeirra er að heita má allsstaðar hinn sami, en fyrirkomulagið nokkuð með ýmsu móti og verksviðið misjafnlega viðtækt. Eins og tekið hefir verið fram, eru versl- unarráðin venjulega einnig fulltrúastofn- anir fyrir iðnað og siglingar. Að því er iðnaðinn snertir, þá er aðallega átt við verksmiðjuiðnað og handiðnað rekinn í stærri stíl. Ennfremur er það mjög títt, að handiðnaður og verslun með aðkeyptar vörur fer saman, og verður þá hlutaðeig- andi að teljast til verslunarstjettarinnar. Það er svo margt er snertir sameiginlega verslun, iðnað og siglingar, að það er næsta eðlilegt að þessar atvinnugreinar bafi sameiginlegar fulltrúastofnanir. Það eitt að slíkura stofnunum hefur ver- ið komið á fót í nær öllum menningar- löndum, nægir til þess að færa heim sann- anir um, hve nauðsynlegar þær eru. Versl- unarstjettin getur eigi, frekar en aðrar at- vinnustjettir, án þess verið að hafa full- trúa, er koma fram fyrir hennar hönd. Það eru ótal mál, er snerta verslunarstjett- ina í heild sinni, og varðar það auðvitað niiklu að þeim sje ráðið heppilega til lykta. Til þess að stuðla að þvi, verður stjettin að eiga fulltrúa, sem ávalt eru reiðubúnir «1 þess að rannsaka málin og hafa önnur nauðsynleg afskifti af þeim. En það eru ekki einungis atvinnustjett- irnar sjálfar, er hjer koma til greina, held- ar einnig þjóðfjelagið í heild sinni. Vegna þess að ástand viðskiftalífsins hefur bæði mikil og víðtæk áhrif á hag þjóðfjelagsins í heild sinni, verða stjórnarvöldin ávalt að hafa náin kynni af því, ella verða af- skifti þeirra af viðskiftalífinu til lítils gagns eða jafnvel til ills eins, og bitnar það á þjóðinni allri. Að stjórnarvöldunum hefur verið þetta ljóst sjest á því, að í flestum löndum hafa einmitt þau átt upptökin að fulltrúastofnunum fyrir atvinnustjettirnar. Þó hefir eigi verið skortur á opinberum embættismönnum, er afskifti hafa af þeim málum, er snerta atvinnuvegina. Fiest lönd eru svo vel skipuð embættismönnum, að þau hafa sjerfróða starfsmenn á nær öllum sviðum. öll stærri löndin og flest hinna smærri hafa sjerstök ráðuneýti eða stjórnardeildir fyrir aðalatvinnuvegina, hvern um sig, og auk þess fasta ráðunauta á ýmsum sviðum. En stjórnarvöldin og löggjafarþingin hafa sjeð, að þrátt fyrir þetta geta þau eigi unnið verk sitt sem skyldi, nema þau hafi náið samband við atvinnuvegina sjálfa, við þá menn er starfa innan þeirra. Enda virðist fátt vera jafn sjálfsagt sem það, að leitað sje álits full- trúa atvinnustjettanna áður en gerðar eru opinberar ráðstafanir, er kunna að hafa í för með sjer víðtæk áhrif á viðskiftalífið. Stofnun Verslunarráðs Islanðs. Verslunarstjettin íslenska er kornung, hún hefur að mestu leyti myndast á síð- ustu áratugum. Það er þessvegna við að búast, að hún á mörgum sviðum þoli eigi samjöfnuð við verslunarstjettir annara landa, Meðal annars hefur lítið verið um fjelagslíf og fast skipulag innan stjettar-

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.