Verslunartíðindi - 01.01.1918, Side 20

Verslunartíðindi - 01.01.1918, Side 20
Verslunartiðindí ÍÖ en áður hefur veriS, þá þarf engan aö furða á því, að nkyrslurnar birtast fyrst nú. Meðan engin breyting verður á sjálfri skýrslugjöfinni og innheimtunni, er eigi að búast við að hægt sje að birta skýrsiur fyr. Eins og kunnugt er gefa vöru-innflytjendur og útflytjendur eina skýrslu fyrir alt árið og er því eigi ætlast til að hún sje gerð fyr en í byrjun næsta árs. En á því vill mjög verða nrisbrestur og er það einmitt óafsakanlegt tómlæti margra skýrslugefenda, sem á mikla sök á ólagi því, sem er á útkomu skýrslnanna. En á þessu eiga innheimtu- mennirnir auðvitað að ráða bót með því að ganga rækilega eftir skýrslugjöfinni og beita sektar- ákvæðunum ef með þarf. Þessi mikli dráttur á útkomu verslunarskýrsln- anna er auðvitað mjög bagalegur, en hitt er þó enn alvarlegra, að í skýrslúrnar vantar algjörlega talsverðan hluta bæði aðfluttar Dg útfluttar vöru. Við samanburð sem hagstofan gerir á allskonar tollvörum, milli þess er út kemur samkvæmt verslunarskýrslunum og þess, er tdlur hefur verið greiddur af, kemur l ljós að í verslunar- skýrslurnar vantar rúmlega J/4 hluta miðað við verð varanna — af þeim vörum, er samkvæmt tollreikningum eiga að vera þar. Árið 1914 hefur þessi mismunur á aðfluttum tollvörum samkvæmt tollreikningunum og því, sem skýrsl- ur hafa borist um, numið alls 1,3 milj. kr. eða 13,5% af verðupphæð þeirra vörutegunda, en á útfluttum tollvörum (þ. e. vörur sem útflutn- ingsgjald greiðist af) hefur mismunurinn numið 5,6 milj. kr. eða 38,2% af verðupphæð þessara vörutegunda. Alls vantaði þannig í skýrslurnar nærri 7 milj. kr. virði af aðfluttum og útflutt- um tollvörum og er það eins og fyr er sagt rúmlega % hluta af verðupphæð þeirra vara, sem um að ræða. Það er því bersýnilegt að inn- heimtan á skýrslunum hefur verið fjarri því sem skyldi. Fjöldi vöruinnflytjenda hlýtur að hafa skotist algjört undan, en á því getur enginn ráðið bót nema sjálfir innheimtumennirnir. Þeir einir vita hverjir eiga að gefa skýrslur og þeir verða að ganga eftir að hlutaðeigendur geri það. En það er hætt við að eigi verði ráðin veru- leg bót á þeim göllum, sem eru á verslunar- skýrslunum, nema öllu fyrirkonrulaginu verði breytt. Þegar ein skýrsla er gefin fyrir alt árið getur eigi hjá því farið að skýrslurnar verði ónákvæmar og það veldur mjög drætti á birt- ingu skýrslnanna að allar vörur ársins fylgjast að á einni skýrslu. En breyting á þessu getur verið hættuleg meðan innheimtan er eigi komin í betra horf. Yerði skýrslurnar gefnar oftar t. d. á hverjum mánuði eða fyrir hverja sendingu, ríður enn meir á árvekni innheimtumanna og er varla að búast við góðum áraugri nema sjer- stakri tollgæslu verði komið á. Samkvæmt lög- um frá síðasta Alþingi kemst bráðlega á fót sjer- stök tollgæsla í Reykjavík. Mætti þá gera til- raun með breytingu þar, og mun hagstofan jafn vel hugsa til framkvæmda á þá leið. Yerslunarskýrslurnar eru að þessu sinni miklu ítarlegri en áður. Fyrir árið 1914 voru gerð ný eyðublöð undir versluuarskýrsluruar og voru á alls 473 vöruliðir, en á gömlu eyðublöðunum voru þeir aðeins 218 Á nýju eyðublöðunum voru aðfluttar vörurnar í 350 liðum (áður 153) og útfluttu vörurnar í 93 liðum (áður 15). Enn- fremur var bú breyting gerð á eyðublöðunum að nú eru vörurnar aðallega flokkaðar eftir því hvaða efni er í þeim, en áður eftir notkun þeirra. Er þessi flokkun í samræmi bæði við þá flokkun er notuð er á Norðurlöndum og þá sem notuð verður af alþjóðaverslunarhagstofunni í Bruxelles. Var sú stofnun að komast á fót í stríðsbyrjun og tekur hún væntanlega til starfa þegar að ófriðnum loknum. Við þessa breytingu hafa verslunarskýrslurnar orðið miklu fullkomnari en þær voru. í fyrri verslunarskýrslum munu menn þráfaldlega hafa leitað árangslaust að einstökum vörutegundum, annaðhvort alls ekki fundið þær eða þá fundið safnflokk þar sem vörunum var slengt saman við ýmsar aðrar vörur. En nú eru vöruflokkun- in orðin svo ítarleg, að eigi verður með sanngirni krafist meira. Þá hefur einnig að öðru leyti verið gerð breyting á skýrslunum, sem er til mikilla bóta. Áður voru aðeins tilgreind sjer- staklega 5 helstu aðflutningslöndin og 7 helstu útflutningslöndin, en nú er tilgreint sjerhvert að- fiutnings- og útflutriingsland, án tillits til þess hvort viðskifti íslands við það hafa verið mikil eða lítil. Þessi breyting hefur haft það í för

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.